Aldrei meiri veltuaukning á milli ára í dagvöruverslunum 11. ágúst 2008 15:35 MYND/Sigurður Jökull
Velta í dagvöruverslun jókst um rúm 22 prósent í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra á breytilegu verðlagi og hefur vöxturinn aldrei verið meiri frá því að farið var að mæla smásöluvísitöluna árið 2001. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Rannsóknarseturs verslunarinnar. Hins vegar jókst veltan um 3,2 prósent ef miðað er við fast verðlag. Í tilkynningu Rannsóknarsetursins segir að verðlagshækkanir vega þarna þyngst í aukinni veltu en verð á dagvöru hækkaði um rúm 18 prósent á einu ári, frá júlí í fyrra til júlí á þessu ári. Þá sýna tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar að áfengissala hafi aukist í júlí. Hún jókst um rúman fjórðung miðað við breytilegt verðlag en 17 prósent ef tekið er mið af föstuverðlagi. Bent er á að áfengsverð hafi hækkað um átta prósent milli ára. Þá jókst sala á fatnaði einnig á milli ára og reyndist rúmlega sjö prósentum meiri á breytilegu verðlagi og nærri fjórum prósentum á föstu verðlagi í júlí miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á fötum lækkaði um 12,5 prósent á milli mánaðanna júní og júlí og eiga sumarútsölur líklega stærstan þátt í því. Verð á fötum hækkaði hins vegar um 3,1 prósent á síðustu 12 mánuðum, sem eru minni hækkanir en í flestum öðrum vöruflokkum. Samanlögð velta í smásöluverslun eykst um sjö prósent Enn fremur segir í tilkynningunni að samanlögð velta í smásöluverslun hafi aukist um tæp sjö prósent á milli júlí í ár og sama mánaðar í fyrra á föstu verðlagi og um nærri 23 prósent á breytilegu verðlagi. Dagvara og áfengi vega þar þyngst. Bent er á að miklar sveiflur hafi verið í verslun að undanförnu. „Í maí og júní varð raunlækkun í veltu dagvöruverslunar sem ekki hafði sést um langt skeið, en í júlí jókst velta aftur umfram verðlagshækkanir. Ef til vill ræður gott veðurfar í júlí þar einhverju um auk þess sem fimmtudagur fyrir verslunarmannahelgi var síðasti dagur júlímánaðar, en það er jafnan söluhár dagur í dagvöru- og áfengisverslun. Auk þess er nú hagstæðara fyrir erlenda ferðamenn að kaupa mat og drykk hér á landi en undanfarin ár, sem gæti haft sín áhrif," segir í tilkynningu Rannsóknarseturs verslunarinnar.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira