Krónubréf fyrir 20 milljarða hafa fallið á gjalddaga í mánuðinum 11. ágúst 2008 17:19
Ekki var framlengt í útgáfu krónubréfa upp á fimm milljarða króna sem runnu út í dag. Það hafði hins vegar engin teljandi áhrif á gengi krónunnar, eftir því sem segir í hálffimmfréttum Kaupþings.Þar segir enn fremur að ekki hafi verið gert ráð fyrir framlengingu. Það sem af er mánuði hafa 20 milljarðar í krónubréfum fallið á gjalddaga og er framhald á nokkuð stórum gjalddögum á komandi mánuðum. Þannig munu 85 milljarðar falla á gjalddaga fram að áramótum og 257 milljarðar næsta árið eftir því sem greiningardeild Kaupþings segir.„Skortur á lausafé hefur gert útgefendum krónubréfa erfitt fyrir að nýta sér háa íslenska vexti í gegnum gjaldeyrisskiptamarkað og hefur hvatinn fyrir útgáfu nýrra krónubréfa því verið takmarkaður síðan lausafjárskorturinn skall á af öllu afli. Helst hafa fjárfestar snúið sér að ríkisskuldabréfum til að nýta sér vaxtamun milli hagkerfa.Útgefendur krónubréfa munu sjá sér lítinn hag í því að framlengja bréfum sínum þegar nær dregur gjalddaga snúi lausafjárskorturinn ekki til betri vegar í tæka tíð. Gæti það í raun þýtt að krónan haldist veik meðan útistandandi krónubréf mjatla nær gjalddaga fari svo að alþjóðleg lausafjárþurrð lagast ekki. Seðlabankinn gæti mætt slíkri atburðarrás með aukinni útgáfu skuldabréfa en stór galli við slíka aðgerð væri enn aukinn skortur á krónum sem myndi þrengja að fjármálastofnunum og takmarka frekar útlán innanlands með tilheyrandi hættu á samdrætti," segir í hálffimmfréttum.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira