Velta í júlí sú minnsta í Kauphöllinni í þrjú ár 8. ágúst 2008 17:16 MYND/GVA
Heildarvelta á innlendum hlutabréfamarkaði nam aðeins 51 milljarði króna allan júlímánuð, samkvæmt tölum Kauphallar Íslands. Þetta þýðir að hún var einungis tíundi hluti þess sem hún var í sama mánuði í fyrra þegar úrvalsvísitalan fór í hæstu hæðir. Þá nam veltan alls 528 milljörðum króna. Fram kemur í hálffimmfréttum Kaupþings að þó beri að hafa í huga að júlímánuður í fyrra hafi verið óvenjulegur fyrir þær sakir að viðskipti vegna yfirtökunnar á Actavis gengu þá í gegn. Markaðsverðmæti félagsins var um 290 milljarðar króna. Þá bendir greiningardeild Kaupþings á að veltan í sama mánuði fyrir tveimur árum hafi verið 57 milljarðar sem var langdaprasti mánuður þess árs. „Heildarveltan í nýliðnum júlí er þó alltént sú minnsta sem sést hefur síðan í maí árið 2005 eða í rúm þrjú ár," segir í hálffimmfréttum. Markaðsverðmæti hlutabréfa minnkar um 2000 milljarða Þegar horft er til fyrstu sjö mánaða ársins var hlutabréfaveltan rúmir 900 milljarðar en hún var tæpir 2000 milljarðar á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn nemur því 54 prósentum og skýrir fyrrnefnd yfirtaka á Actavis hann að hluta til. „Minnkandi umsvif skýrast þó að stærstum hluta af þeirri verðmætarýrnun sem hefur orðið á hlutabréfamarkaði en þannig hafði markaðsverðmæti skráðra hlutabréfa í lok júlí fallið um tvö þúsund milljarða milli ára, úr 3.638 milljörðum í 1.562 milljarð," segir í hálffimmfréttum Kaupþings.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira