Fleiri fréttir

Öngvir rasistar!

Það sem eftir stendur í atburðum síðustu daga þ.e. innflytjendamálin/frjálst flæði vinnuafls frá Evrópu " og það situr í mér " er að aðrir flokkar, stjórnmálaspékúlantar og einhverjir fleiri séu að kallastefnu Frjálslynda flokksins rasisma.

Blóðugar hendur

Hægrimenn á Íslandi, hvort heldur í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki eða Samfylkingu, hafa löngum legið flatir fyrir bandarískum stjórnvöldum og þjónað þeim jafnt til góðra sem vondra verka. Bandaríkjunum var leyft að hafa hér herstöðvar meðan þeim þóknaðist og logið að þjóðinni að það væri greiði og gustukarverk fyrir Íslendinga, til að tryggja öryggi okkar.

Bankarnir rífi sig ekki frá samfélaginu

Ögmundur Jónasson skrifar

Við skulum ekki gleyma að undirstaða vaxtarins í bankakerfinu er íslenska lífeyrissjóðakerfið. Grundvöllur þess er markaður af lögum frá Alþingi. Lífeyrissjóðirnir eru byggðir upp af skyldusparnaði íslenskra launamanna.

Skiptum um áhöfn

Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar jafnaðarmanna verður að bæta kjör lífeyrisþega, bæði með því að hækka lífeyri og tryggja að atvinnu- og lífeyristekjur skerði ekki greiðslur almannatrygginga. Einnig hef ég lagt til að lífeyrisgreiðslur beri ekki hærri skatt en fjármagnstekjur.

Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu

Einstaklingsframtakið á að fá notið sín á öllum sviðum ískensks atvinnulífs. Samstarf einkaaðila og ríkisins í heilbrigðismálum er ekki bara áhugaverð þróun heldur líka nauðsynleg þróun. Einkarekstur þekkist reyndar víða í heilbrigðiskerfinu, læknastofur út um allan bæ eru reknar af einkaaðilum.

Samkeppnishæfara skattaumhverfi

Skattalækkanir á undanförnum árum hafa skilað sér í auknum skatttekjum fyrir ríkissjóð. Svartagallsraus þeirra vinstri manna sem töldu að fótunum yrði kippt undan velferðarkerfinu með skattalækkunum reyndist því ekki á rökum reist.

Afastelpa á Þing

Bryndís hefur brennandi áhugi á að starfa að framgangi sjálfstæðisstefnunnar þar sem frelsi einstaklingsins er í hávegum haft svo og jöfn tækifæri allra til að þroska og nýta hæfileika sína.

Mamma, mig langaði svo að þér liði betur!!!

Svona maður er að mínu skapi, ég vona að allir sjái hina miklu og góðu möguleika sem búa í stráknum! Komið, gerum breytingar, tökum þátt í prófkjörinu 11 nóvember hjá Samfylkingunni og styðjum þennan unga hugsjónamann!!!

Hver ber ábyrgð á hverju?

Toshiki Toma skrifar

Að mínu mati verður að skoða tvö atriði í þessu samhengi: Í fyrsta lagi hvort fjölgun erlendra verkamanna sé of mikil og hröð. Í öðru lagi hvað þjóðin eigi að gera til þess að byggja upp framtíðarsamfélag með innflytjendum.

Án samvinnu – engar umbætur

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir skrifar

Um þessar mundir er verið að ganga frá starfs- og fjárhagsáætlun fyrir leikskólasvið og menntasvið Reykjavíkur. Áætlunin er leiðarvísir að því hvernig skólamálum skuli hagað í borginni næstu tíu árin. Skemmst er frá að segja að hún verður bara orðin tóm ef kennarar eru ekki hafðir með í ráðum og áhugi þeirra virkjaður.

Vorblót Ögmundar

Því miður fylgdu yfirlýsingum þingmannsins ekki nánari útlistanir á því hvernig þessi fórnarathöfn ætti að fara fram. En hvort sem hann hefur í huga skattaþvinganir, ríkisvæðingu eða önnur kunnug verkfæri sósíalista, eru orð þingmannsins áminning um það sem koma skal ef vinstri öflin ná yfirtökunum eftir kosningarnar í vor: Það verður gerð atlaga að frjálsu framtaki í landinu.

Svona er Alcan í raun!

Eina ferðina enn gera stjórnendur Íslenska álfélagsins atlögu að starfsfólki og heiðri þess. Árlegum hreinsunum er nýlokið undir þeim formerkjum að óæskilegur starfskraftur hafi þurft að víkja.

Hvar verður þú í kvöld?

Í dag 6. nóvember, ganga fermingarbörn í hús og safna til hjálparstarfs á vegum kirkjunnar sinnar. Vertu klár, ekki bara með budduna ef þú átt aur - heldur líka hvatningu. Það er ekki oft sem krakkar fá tækifæri til að hjálpa svo um muni.

Ríkið tekur yfir prentsmiðju

Það er ekki oft sem íslenska ríkið ræðst með krafti gegn íslenskum fyrirtækjum með beinum og augljósum hætti. Það gerðist þó í vikunni þegar ríkið keypti prentfyrirtækið Samskipti og opinberaði fyrirætlanir sínar um að reka það í samkeppni við önnur prentfyrirtæki hérlendis.

Stöndum vörð um kynfrelsið!

Það þarf vart að minnast á þær ógeðfelldu nauðganir sem hafa verið framdar nýlega, flestir lesendur hafa þegar heyrt á þær minnst - sem betur fer! Umfjöllunin sem þessi voðaverk hafa fengið í fjölmiðlum gefa það sterklega til kynna að almenn vitundarvakning hafi orðið í þjóðfélaginu. Ótal konum hefur verið misþyrmt á undanförnum árum, líklega mun fleirum en við getum gert okkur í hugarlund. Síðustu droparnir hafa fyllt mælinn, og almenningur hefur vaknað upp af vondum draumi.

Fífl og heimskingi

Það hefur komið í hlut okkar nútímamanna að taka virkan þátt í sjúkdómavæðingunni. Skilin á milli sjúkleika og heilbrigði eru sífellt að verða óljósari, og er sá maður orðinn vandfundinn sem alheilbrigður er, nema hann sé þá nýfæddur.

Ofbeldi gegn börnum – samfélagslegt vandamál

Í Palestínu búa börn við daglegt ofbeldi og vopnaskak, á Indlandi alast börn upp í vændishúsum, í Síerra Leóne þræla börn í demantanámum, í Súdan og Austur-Kongó hafa börn séð foreldra sína og vini myrta. Víða í Afríku er stúlkubörnum nauðgað af HIV smituðum mönnum og árlega eru yfir milljónir barna seldar eins og hverjar aðrar vörur á milli landa.

Kjarklausir heilbrigðisráðherrar

Árið 2002 hættu flestir heilsugæslulæknar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Upp úr því fara bæjaryfirvöld fram á það við heilbrigðisráðherra sem þá var Jón Kristjánsson að gerður yrði þjónustusamningur við Grindavík um að Grindavíkurbær gerðist reynslusveitarfélag í reksturs heilsugæslu.

Það er gott að stjórna með óttanum

Þegar Ragnar Halldórsson var forstjóri, hlustaði hann á skoðanir starfsmanna á gólfinu án þess að þeir fengju mínusstig. Það mátti brosa og vera með glens. Síðustu ár hafa aðrir stjórnarhættir tekið við.

Setjum Hafnarfjarðarveginn í stokk

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar

Samgöngur og vegamál eru ofarlega á baugi um þessar mundir. Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sjálfstæðismaðurinn Halldór Halldórsson, hefur gert nýjar kröfur í samgöngumálum að umfjöllunarefni í þessu blaði og Samtök verslunar og þjónustu hafa nýverið skorað á stjórnvöld að gera 10 ára stórátak í vegamálum.

Hvað er ég að vesenast í pólitík?

Já, hvað er maður að brölta þetta í pólitík. Það hafa einhverjir spurt að þessu og flestir hvatt mig til dáða. Ég hef starfað í kringum stjórnmál í 17 ár þá mest í bæjarpólitík og fannst mér komin tími á að stíga skrefið og taka þátt í prófkjöri fyrir alþingiskosningar.

Ljúga stjórnvöld?

Alþingismenn og ráðherrar núverandi stjórnarflokka tuða sífellt á því hvað lágmarkslaun verkafólks hafi hækkað umfram önnur laun í landinu. Viljandi mata þeir þjóðina á þeim ósannindum að lágu launin hafi hækkað umtalsvert meira en þau hærri.

Ingibjörg Sólrún - líttu þér nær

Ragnheiður Elín Árnadóttir skrifar

Ég vona að formaður Samfylkingarinnar sjái hversu lítið hald er í fréttaskýringu hennar þegar hún er yfirfærð á hennar eigin flokk. Ég sem kona í Sjálfstæðisflokknum og stoltur frambjóðandi í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi vil biðja formann Samfylkingarinnar að láta af þeim leiða ósið að vera sífellt að tala niður til okkar sjálfstæðiskvenna.

Tekur fólk ekki rökum?

Einar K. Guðfinnsson skrifar

Hér á landi draga nánast engir í efa að veiðar á hvalategundunum langreyði og hrefnu megi stunda með sjálfbærum hætti. Við höfum upplýsingar frá Hafrannsóknastofnun sem sýna þetta og Alþjóðahvalveiðiráðið hefur staðfest stofnstærðarmatið.

Veiðiferðin er búin

Róbert Marshall skrifar

Því miður virðist það vera svo að ríkisstjórnin hafi talið að ef haldið yrði til veiða þá myndi þjóðin þjappa sér á bakvið hana og styðja hana í stríði hins litla við öll stórveldi heimsins. Og hætta að tala um hleranir.

Alfriðun?

Nú síðustu ár hefur áhugi á uppbyggingu við Laugaveg aukist til muna, en enn og aftur eru það hvorki Torfusamtökin né Reykjavíkurborg sem standa í vegi fyrir framkvæmdum.

Ég vil skattfrelsi líknarfélaga

Ísland er reyndar eina landið sem ég veit um þar sem stjórnvöld ýta ekki undir framlög einstaklinga til líknarfélaga með því að leyfa þeim að draga framlagið frá skattstofni. Í öllum öðrum löndum er skattafrádráttur vegna framlaga til góðgerðarsamtaka og líknarfélaga talinn vera mikilvæg hvatning til einstaklinga til að láta eitthvað af höndum rakna til starfsemi þeirra.

Samskipti barna og foreldra

Að hafa aðgengi að foreldrunum skiptir jafnvel hvað mestu máli. Í þessum stutta pistli langar mig að velta vöngum yfir eðli þeirra samskipta sem foreldrar og börn eiga saman. Sjálf hef ég haldið ótal fyrirlestra um þetta málefni fyrir foreldra og einnig fyrir ólíka hópa í samfélaginu sem starfa með börnum.

Af hverju konur fá enn greidd lægri laun en karlar

Við þurfum að setja kynjagleraugunum á nefið í öllum málaflokkum. Þegar sett eru ný lög á Alþingi séu þau skoðuð sérstaklega með tilliti til áhrifa þeirra á konur og karla. Í undirbúningi að ákvarðanatöku og við úthlutun fjármagns, t.d. í fjárhagsáætlunargerð, og þegar teknar eru aðrar ákvarðanir um úthlutun fjármagns, þarf að taka mið af þörfum og áhrifum á bæði kynin og greina áhrif ákvarðana á stöðu þeirra.

Með fjölbreytni að vopni

Það er mikivlægt að við stöndum vörð um fjölbreytni. Stillum upp taflborði þar sem drottningar vinna með hrókum, riddarar vinna með peðum, biskupar berjast með og kóngurinn heldur velli. Skák og mát.

Ísland og alþjóðleg samkeppni

Mikilvægt hlutverk hins opinbera er að stuðla að þróun framleiðsluþáttanna með því að efla og styðja við menntun, rannsóknir og nýsköpun. Beinum ríkisafskiptum á að halda í lágmarki. Hlutverk stjórnvalda á sviði upplýsingarmiðlunar er þó mikilvægt.

Við þurfum sterkan forsætisráðherra

Helgi Hjörvar skrifar

Við þurfum ekki á þessu að halda. Við þurfum sterkan forsætisráðherra sem ræðst gegn verðbólgunni og ofurvöxtunum og hefur þrek til að halda aftur af ríkisútgjöldum. Við þurfum forsætisráðherra sem leiðir nýja stefnu í öryggismálum fyrir Ísland, en þiggur ekki bara og hlýðir haukunum í Bandaríkjunum.

Ómarktækur umhverfisráðherra

Yfirlýsingar Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra í fjölmiðlum, vegna þess að Íslendingar hefja nú atvinnuhvalveiðar á nýjan leik eru fádæma klaufalegar og lýsa botnlausri hræsni. Það er fyrir neðan allar hellur að ráðherra í ríkisstjórn Íslands skuli láta svona lagað frá sér fara rétt eftir að heimsbyggðinni hefur verið tilkynnt að einhugur ríki í sömu ríkisstjórn um að hefja atvinnuhvalveiðar á nýjan leik eftir um tuttugu ára hlé.

Beinvænt mataræði

Beinþynning er afar sársaukafullur sjúkdómur. Áhættuþættir beinþynningar eru margir og þá helstu náum við ekki að stjórna enda tengjast þær erfðum og hækkandi lífaldri. En ýmsa beinvæna lífsþætti getum við lært að tileinka okkur og náð þannig að byggja upp beinin eins vel og viðhaldið beinstyrk eins lengi og okkur er frekast kostur. Í því samhengi skiptir beinvænt mataræði miklu máli.

Ekkert til að biðjast afsökunar á

Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Ögmundur Jónasson er vaxandi stjórnmálamaður, stefnufastur, ötull og fylginn sér. En stundum vottar fyrir því, að hann sé helst til trúgjarn. T.d. hefur hann látið Þór Whitehead telja sér trú um það, að við Steingrímur Hermannsson, fv. forsætisráðherra, hefðum stundað njósnir um samráðherra okkar í ríkisstjórn Steingríms 1988-91. Það gerðum við Steingrímur að sönnu ekki og þurfum því ekki að biðjast afsökunar á því.

Er tónlist annars flokks listgrein?

Það er í raun ótrúlegt að það skuli hafa viðgengist í gegnum árin að tónlist og ritlist séu skattlögð með misjöfnum hætti. Ég hef a.m.k. aldrei heyrt nein skynsamleg rök sem gætu réttlætt slíka mismunun. Mér er hulinn sá eðlismunur á tjáningarformunum sem slík tilhögun gæti mögulega grundvallast á.

Hjörleifur fjaðralaus ósannindamaður

Okkur öllum sem er annt um náttúru Íslands ofbýður það þegar einstaklingar sem kenna sig við náttúruvernd nota rakalaus ósannindi í meintri baráttu sinni fyrir náttúruvernd.

Þeir eiga að biðja Svavar Gestsson afsökunar

Ögmundur Jónasson skrifar

Þór Whitehead skrifar grein í Fréttablaðið í gær (miðvikudaginn 18. október) sem varð til þess að mig setti hljóðan. Fram kemur að samráðherrar Svavars Gestssonar í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, 1988-1991, óskuðu eftir því að kannað yrði hvort Svavar hefði gengið erinda austur-þýsku leyniþjónustunnar! Ráðherrarnir voru samkvæmt frásögn Þórs, forsætisráðherrann Steingrímur Hermannsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráherra og þáverandi formaður Alþýðuflokksins.

Sátt um lausnir á vanda LSH

Það getur reynst erfitt að vera stór og taka til sín mikið af almannafé. Stærsta fyrirtæki landsins, Landspítalinn, með yfir 5.000 starfsmenn, hefur fundið fyrir því. Um það bil 9 prósentum af útgjöldum ríkisins er veitt til reksturs spítalans.

Sagnfræðingur og stjörnuvitni

Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Viðbrögð sumra stjórnmálamanna við þeim upplýsingum, að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður svo seint sem á árunum 1991-93, mega heita undarleg. Fyrstu viðbrögð voru þau, að fórnalamb ólöglegra og leynilegra hlerana var krafið um vitni.

Eru íslenskar byggðir í andarslitrunum?

Í grein þessari, sem er sú seinni, gera undirritaðir nokkrar athugasemdir við málsmeðferð og túlkanir Sigríðar Daggar Auðunsdóttur blaðamanns, í röð fréttaskýringa sem birtist í Fréttablaðinu og grundvölluð er á líkani sem sett hefur verið fram af Frank J. Popper og Deborah konu hans.

Hvar er tengingin?

Helga Vala Helgadóttir skrifar

Kæri Sturla. Nú þegar árið 2006 er senn á enda er ekki úr vegi að spyrja þig, ráðherra fjarskipta á Íslandi hvernig hátti með fjarskiptaþjónustu við landsmenn alla. Þú seldir fyrirtækið okkar, Símann, ekki alls fyrir löngu án þess að hafa komið því í kring að grunnþjónusta yrði tryggð um allt land.

Sjá næstu 50 greinar