Vorblót Ögmundar 9. nóvember 2006 00:01 FjármálafyrirtækiÞingmaðurinn Ögmundur Jónasson boðar fagnaðarerindi vinstri manna á heimasíðu sinni. Þar talar einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar og skrif hans hljóta því að hafa nokkuð vægi. Á dögunum var að finna skýr skilaboð til starfsmanna íslenskra fjármálafyrirtækja þar. Þar sagði hann meðal annars: "Misskipting og ranglæti þrífst og breiðir úr sér sem aldrei fyrr. Spurningin er þá eftirfarandi: Er jafnaðarsamfélaginu fórnandi fyrir 12 milljarða og nokkra stráka og stelpur í silkigöllum; þotuliðið? Eða eigum við að snúa spurningunni við: Er þotuliðinu fórnandi fyrir meiri jöfnuð og félagslegt réttlæti? Mitt svar er játandi," Því miður fylgdu yfirlýsingum þingmannsins ekki nánari útlistanir á því hvernig þessi fórnarathöfn ætti að fara fram. En hvort sem hann hefur í huga skattaþvinganir, ríkisvæðingu eða önnur kunnug verkfæri sósíalista, eru orð þingmannsins áminning um það sem koma skal ef vinstri öflin ná yfirtökunum eftir kosningarnar í vor: Það verður gerð atlaga að frjálsu framtaki í landinu. Varla ætti vera þörf á að minna á að fjármálafyrirtækin og starfsmenn þeirra greiða árlega tugi milljarða í sameiginlega sjóði. Afraksturinn af rekstri bankanna meðan þeir voru undir forsjá ríkisins voru smámunir í samanburðinum. Að auki leggja bankarnir hundruð milljóna til menningar- og mannúðarmála árlega. En þetta skiptir Ögmund engu máli, því þotuliðinu er fórnandi. Fjármálafyrirtækin eru líka eftirsóttur vinnuveitandi fyrir vel menntað og metnaðarfullt ungt fólk. Þau hafa t.a.m. opnað ný tækifæri fyrir Íslendinga sem stundað hafa langskólanám á erlendri grundu. Og vissulega er þeim umbunað fyrir vel unnin störf, en það er líka nauðsynlegt til þess að íslensku fyrirtækin geti haldið í úrvals starfsfólk í alþjóðlegu umhverfi. En Ögmundur gefur lítið fyrir þessi nýju tækifæri fyrir ungt fólk á Íslandi, hann varðar ekkert um "nokkra stráka og stelpur í silkigöllum" sem standa í vegi fyrir framtíðarlandi félagshyggjunnar. Þeim er fórnandi! Það er full ástæða til þess að halda þessum orðum Ögmundar til haga, þau gefa einstaka innsýn í hugarheim íslenskra vinstri manna. Hagnaður og gróði er eitur í þeirra beinum " jafnvel þótt samfélagið í heild njóti ávaxtanna í aukinni skattheimtu og velmegun. Sæl er sameiginleg eymd gæti allt eins verið kjörorðið. Krakkanir í silkigöllunum þurfa því ekki að ganga að því gruflandi hvernig þeim mun reiða af í vor ef Ögmundur og félagar hans í stjórnarandstöðunni ná settu marki. Þau verða fyrsta fórn vorblótsins. Höfundur gefur kost á sér í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar