Fleiri fréttir

Launakjör starfsstétta á Íslandi

Svavar T. Óskarsson skrifar

Tilefni þessara skrifa eru launadeilur aðila vinnumarkaðarins almennt og þá sérstaklega heilbrigðisþjónustunnar. Ekki verður fjallað hér um þær alvarlegu afleiðingar sem þessar deilur í heilbrigðis­þjónustunni hafa haft í för með sér fyrir þolendur sem margir hverjir hafa þurft að búa við mikla vanlíðan, m.a. vegna þess að þeim hefur verið neitað um bráðaþjónustu og þess í stað settir á biðlista, jafnvel allt upp í átta mánuði.

Hræsni stuðningsmanna Ísraels

Yousef Tamimi skrifar

Frá því að borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti tillögu um að sniðganga vörur framleiddar í Ísrael hafa komið fram ofsafengin viðbrögð af hálfu stuðningsmanna Ísraels.

Dómur er fallinn

Áslaug Agnarsdóttir skrifar

Dómur er fallinn. Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á Fanney Björk Ásbjörnsdóttir ekki rétt á nýjustu lyfjum við lifrarbólgu-C. Þar með hafa mannréttindi verið fótum troðin á Íslandi. Héraðsdómur hefur orðið sér til skammar.

Hvað heitir þessi nýi aftur?

Tinni Kári Jóhannesson og Þorsteinn V. Einarsson skrifar

Ímyndaðu þér að eiga að mæta fyrsta vinnudaginn í nýrri vinnu á morgun. Kannski búinn að vera að mennta þig eða skapa þér reynslu annars staðar.

Aðstöðuleysi á vökudeild Landspítala

Berglind Aðalsteinsdóttir skrifar

Eftir mikla umhugsun fann ég mig knúna til að deila persónulegri reynslu af heilbrigðisþjónustu sem reyndist mér vel en jafnframt benda á brotalöm í húsnæðismálum vökudeildar Landspítala sem brýnt er að lagfæra.

Fjárlögin og fólkið

Páll Valur Björnsson skrifar

Á vordögum skrifaði ég greinar hér í Fréttablaðið sem fjölluðu um samfélag án aðgreiningar og jöfn tækifæri fólks og um ýmislegt sem þarf að gera til að það megi verða í verki en ekki bara í orði. Greinar þessar skrifaði ég eftir að ég hafði heimsótt samtök og stofnanir sem vinna að málefnum barna, fatlaðs fólks og einnig fanga. Til að varpa ljósi á stöðu þessara mála lagði ég einnig fyrirspurnir fyrir innanríkisráðherra og heilbrigðisráðherra um þessi mál.

Umboðsvandi Landsbankans

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Landsbanki Íslands er að níutíu og sjö hundraðshlutum í eigu þjóðarinnar. Þrátt fyrir það er aðkoma og áhrif kjörinna fulltrúa illa skilgreind og í lágmarki. Svo virðist sem 3% hluthafa, en meirihluti þeirra fékk hlut sinn á silfurfati í tíð síðustu ríkisstjórnar, fari sínu fram um stjórnun bankans án nokkurs tillits til vilja meirihlutaeiganda bankans, almennings.

Konur í kvikmyndagerð

Laufey Guðjónsdóttir skrifar

Umræða um stöðu og þátt kvenna í kvikmyndagerð hefur verið þó nokkur síðustu misserin. Það er þakkarvert hve konur sem starfa við kvikmyndagerð hafa verið ötular við að benda á það ójafnvægi sem ríkir þegar kemur að hlut kvenna.

Stund sannleikans er runnin upp

Heimir Snorrason skrifar

Yfirskriftin á þessum stutta pistli er tekin upp úr yfirlýsingu frá António Guterres, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hann bætir við að nú sé: "Tímabært að standa vörð um þau gildi sem Evrópa er byggð á.“

Þak og stakkur

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Frá hruni hefur það verið árleg frétt að færri feður taki fæðingarorlof en áður. Um fimmtungur feðra barna fæddra árið 2014 ákváðu að taka ekki fæðingarorlof. "Um leið og farið var að grípa til lagabreytinga og lækka greiðslur þá gerist þetta, skýr tenging er þar á milli,“ segir Leó Þorleifsson, forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs, í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að þar sem feður nýti sér ekki mánuðina í núverandi ástandi séu þeir ekki að fara að nýta fleiri mánuði í lengdu fæðingarorlofi, því sé brýnt að hækka hámarksgreiðslur. Leó telur einnig slæmt ef mæður tækju áfram allt orlofið yrði það lengt, og yrðu þannig meiri eftirbátar á vinnumarkaði en nú.

Dapurleg viðbrögð við ályktun borgarstjórnar

Einar Ólafsson skrifar

Ísland tekur þátt í þvingunum gagnvart Rússlandi vegna afstöðu Rússa í Úkraínu og innlimun Krímskagans. Þær aðgerðir eru réttlættar með innlimun Krímskagans, það sé fáheyrt að ríki innlimi hluta af öðru ríki og við því verði að bregðast.

Er ekki stemming fyrir því?

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Stemming í þjóðfélaginu er skemmtileg skepna. Á sumrin skottumst við um í lopapeysum á ættarmótum með miðnæturglampa í augum.

Óboðleg aðgerð

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Tímabilið 2006-2010. þegar þrír meirihlutar störfuðu á einu kjörtímabili, var hörmungartímabil í sögu borgarstjórnar Reykjavíkur.

Fordæmalaust klúður meirihlutans

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Undanfarna daga höfum við horft upp á ógurlegt klúður í borgarstjórn. Meirihlutinn hefur viðurkennt að hafa ekki haft hugmynd um hvað hann var að samþykkja þegar ákveðið var að sniðganga vörur frá Ísrael eða hverjar afleiðingarnar yrðu. Þær hafa reynst margvíslegar, bæði fyrir viðskiptahagsmuni og orðspor Íslands.

Hönnun, handverk eða föndur?

Halla Helgadóttir skrifar

Í tilefni af umræðu um hlut hönnunar í flugstöð Leifs Eiríkssonar er mikilvægt að skoða hvað felst í orðinu hönnun.

Blindfull af forréttindum

Ólöf Skaftadóttir skrifar

Munurinn á stöðu fólksins í háhýsinu og þeirra sem nýta sér þjónustu borgarinnar stingur í augu.

Illa útfærð barátta

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Borgarstjórn Reykjavíkur vakti vægast sagt mikla athygli í síðustu viku með kveðjugjöf sinni til Bjarkar Vilhelmsdóttur, fráfarandi borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, þegar ákveðið var að samþykkja viðskiptabann á Ísrael af hálfu borgarinnar. Samþykktin var að sögn gerð í nafni mannúðar og samstöðu með Palestínumönnum en sá hængur var á að borgarfulltrúarnir vissu í raun ekkert hvað þeir voru að gera og höfðu ekki hugmynd um hvaða vörur ætti að sniðganga eftir samþykktina.

Þingmaðurinn og páfinn

Ögmundur Jónasson skrifar

Þingmaðurinn sem vísað er til í fyrirsögninni er Frosti Sigurjónsson. Og páfinn er Franciscus, sá sem nú situr í Róm. Þannig að þetta greinarkorn fjallar um þá Frosta og Franc­isc­us. Nú veit ég ekki hve margt þessir tveir eiga sameiginlegt.

Hvað skerðir örorkugreiðslur?

Þorbera Fjölnisdóttir skrifar

Hún Hallgerður fékk fullt örorkumat við 26 ára aldur. Hún býr ein ásamt syni sínum, honum Snorra. Þar sem Hallgerður var í námi, hefur hún aldrei verið á vinnumarkaði og á því ekki rétt á greiðslum úr lífeyrissjóði. Hennar einu tekjur eru örorkugreiðslur Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og þær nema 218.884 krónum á mánuði eftir skatt. Meðlag er ekki reiknað inn í þessa upphæð.

Samþykkir Alþingi kjarakröfur aldraðra?

Björgvin Guðmundsson skrifar

Alþingi kom saman 8. september. Ekkert gerðist þar strax í málefnum aldraðra og öryrkja. Engin samþykkt var gerð um málið í upphafi þings. Formsatriðin höfðu forgang: Messa í Dómkirkjunni, þingsetningarræða forseta Íslands, ávarp forseta þingsins og ræða forsætisráðherra að kvöldi þingsetningardags. Á meðan á þessum formsatriðum stendur er ekki von að þingið megi vera að því að hugsa um eldri borgara og öryrkja! Ekkert breytist á Alþingi. Þar er allt fast í forminu. Kerfið er sterkt. Það er alveg sama hvað þörfin er brýn í þjóðfélaginu. Þó hópur eldri borgara eigi ekki fyrir mat síðustu daga mánaðarins hreyfir Alþingi sig ekki! Þó álit almennings á Alþingi sé í lágmarki gerir Alþingi ekkert til þess að breyta um starfsaðferðir og bregðast við óskum þjóðarinnar. Ef til vill hreyfa þingmenn sig, þegar fylgi gömlu flokkanna er komið niður í 0! Þeir telja greinilega ekki komið hættuástand enn!

Mamma manneskjumenni

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar

Í fjörutíu ár hefur mamma mín farið í vinnuna á kvöldin og á nóttinni. Um helgar og á páskunum. Á afmælinu mínu og þegar það er opið hús í skólanum.

Mannréttindi handa öllum?

Magnús Guðmundsson skrifar

Það er ekki fjarri lagi að segja að foreldrar séu stjórnvald í hverri fjölskyldu og í hverju heimilshaldi. Reyndar gegna foreldrar þessari ábyrgðarstöðu innan heimilisins ekki í krafti lýðræðis heldur aldurs, þroska og vonandi færni til þess að halda vel utan um fjölskyldu sína og heimili.

Skaðsemi stera misnotkunar

Helga María Guðmundsdóttir skrifar

Flestir hafa heyrt um stera og steranotkun. Sterar eru lípíð eða fituefni og eiga það sameiginlegt að vera vatnsfælin. Það eru til margar tegundir af sterum sem hafa mjög ólík áhrif á líkamann. Ein tegund af sterum eru anabólískir sterar. Anabólískir sterar innihalda hormónið testósterón og hafa meðal annars vefjaaukandi áhrif á líkamann, eykur magn blóðrauða og eykur vellíðunar tilfinningu.

Hún er ekki glæpamaður!

Bryndís Bjarnadóttir skrifar

Bann við fóstureyðingum á Írlandi brýtur í bága við alþjóðleg mannréttindaviðmið.

Ósyndir í djúpri laug

Inga María Árnadóttir skrifar

Landspítali -háskólasjúkrahús er kennslusjúkrahús sem þýðir að þar er veitt heilbrigðisþjónusta þar sem jafnframt er lögð áhersla á rannsóknir, þróun og kennslu. Þar eru nemar við störf í ýmsum heilbrigðisvísindagreinum en á því eru bæði kostir og gallar.

Inntaka nemenda í framhaldsskóla

Tryggvi Gíslason skrifar

Lög um Menntamálastofnun voru samþykkt á Alþingi í sumar og hafa þegar tekið gildi og stofnunin þegar tekið til starfa.

Svampgryfjan

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Hvað finnst mér að Ísland eigi að taka á móti mörgum flóttamönnum? Finnst mér að Dagur B. Eggertsson eigi að segja af sér vegna Ísraelsmálsins? Treysti ég múslimum? Svo margar spurningar og ég hef ekki svar við neinni þeirra.

Ögurstund íslenskunnar

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Í síðustu viku vakti athygli viðtal hjá RÚV við Úlfar Erlingsson, yfirmann tölvuöryggisrannsókna hjá Google, en íslenskir starfsmenn þess fyrirtækis hafa séð til þess að íslenskan er eina litla tungumálið í heimi sem komið hefur verið fyrir í máltæknigrunni þar.

Cogito, ergo sum. Eða hvað?

Jón Gnarr skrifar

„Ég hugsa og þess vegna er ég,“ er heimspekileg staðhæfing sem yfirleitt er eignuð franska stærðfræðingnum, heimspekingnum og vísindamanninum René Descartes (1596-1650).

Erum við eftirá og með allt niðrum okkur?

Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar

Ég er heft af þjóðfélagi sem hefur ekki enn stigið inn í nútímann, þjóðfélagi sem virðir ekki mannréttindi mín né annars fatlaðs fólks nema í orði.

Hræsni viðskiptabanns

Yair Lapid skrifar

Verður lyfið Copaxone sem ætlað er MS-sjúklingum einnig sniðgengið?

Að drepa tímann

Bergur Ebbi Benediktsson skrifar

Ég er stundum gáttaður á meintri heimsku fólks hér og þar og pæli mikið í “vondum skoðunum” og rugli sem sett er fram.

Nýir tímar í pólitík

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Lengi vel höfðu flokkarnir tangarhald á menningu og listum, réðu fjölmiðlum, bönkum, samtökum fyrirtækja og verkalýðshreyfingunni. Ítökin hafa minnkað. En nokkur fyrirtæki hafa illu heilli hert tökin á sínum flokkum.

Mikil fyrirhöfn fyrir fáa skóla

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Forsvarsmenn flestra grunnskóla virðast hins vegar langflestir fyrst hafa frétt af þessum fyrirætlunum þegar umfjöllun blaðsins birtist.

Úber góð þróun

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Eins með Kodak sem vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar stafrænu myndavélarnar komu til sögunnar – sem lentu svo líka í klandri vegna snjallsímanna.

Öll eggin í sama álkeri

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Katherine Mansfield, rithöfundur og eiginkona bókmenntarýnisins Johns Middleton Murry, til hjákonu Murry, 24. mars, 1921. Ég vil biðja þig um að hætta að senda eiginmanni mínum ástarbréf á meðan við hjónin búum saman. Það er einn af þessum hlutum sem tíðkast ekki í okkar heimi. Þú ert mjög ung. Fáðu eiginmann þinn til að útskýra fyrir þér óhagræðið við slíka hegðun.

Sjá næstu 50 greinar