Hún er ekki glæpamaður! Bryndís Bjarnadóttir skrifar 21. september 2015 15:30 28. september er alþjóðlegur dagur þar sem fólk um heim allan skorar á ríkisstjórnir að afglæpavæða fóstureyðingar. Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International stendur fyrir undirskriftasöfnun í Kringlunni, laugardaginn 26. júní frá kl. 13 til 17, í þeim tilgangi að hvetja írsk stjórnvöld að afglæpavæða fóstureyðingar. Löggjöf um fóstureyðingar á Írlandi er ein sú strangasta í heimi þar sem fóstureyðing er aðeins leyfð þegar líf konu eða stúlku er í mikilli hættu. Hvorki konur sem verða þungaðar í kjölfar nauðgunar eða sifjaspells né konur sem eiga á hættu að glata heilsu sinni vegna þungunar eiga kost á fóstureyðingu á Írlandi. Þá mega konur ekki leita sér fóstureyðingar þegar um alvarlega fósturgalla ræðir eða fóstrið er ekki lífvænlegt. Írsk stjórnvöld brjóta á mannréttindum kvenna og stúlkna með því að banna fóstureyðingar í þessum tilvikum. Þá er ekki skýrt í írskum lögum hvað telst til lífshættu á meðgöngu eða heilsubrests þungaðra kvenna og stúlkna og setur það heilbrigðistarfsfólki mjög þröngar skorður. Spurningin, hvenær eru konur og stúlkur nægilega dauðvona á meðgöngu til að unnt sé að grípa inn í, brennur því á mörgum læknum og heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt lagabreytingum á stjórnarskrá Írlands sem gerð var árið 1983 er líf fósturs jafnrétthátt lífi móður. Raunveruleikinn er sá að líf fóstursins hefur meira vægi en líf móðurinnar. Lögin neyða að minnsta kosti fjögur þúsund þungaðar konur og stúlkur á hverju ári til að ferðast utan Írlands til að leita sér fóstureyðingar eða tíu til tólf konur og stúlkur á dag, með tilheyrandi andlegum og fjárhagslegum kostnaði. Flestar eru á aldrinum 20-34 ára. Fjölmargar konur og stúlkur sem ferðast utan Írlands í leit að fóstureyðingu hafa tjáð Amnesty að skömmin sé mikil og þeim líði eins og glæpamönnum. Fyrir þær konur og stúlkur sem ekki er kleift að ferðast – til dæmis hælisleitendur, þær sem ekki hafa ráð á ferðinni eða eru of veikburða – er aðeins um tvo afarkosti að ræða: að brjóta írsk lög og hætta heilsu sinni með því að leita sér ólöglegrar og ótryggrar fóstureyðingar, eða að ganga fulla meðgöngu þvert gegn vilja sínum. Konur og stúlkur sem geta ekki ferðast til annarra landa fá ekki aðgang að nauðsynlegri læknisþjónustu á Írlandi eða þurfa að hætta á hegningu leiti þær sér ólöglegrar fóstureyðingar heima fyrir. Konur geta átt yfir höfði sér allt að fjórtán ára fangelsisdóm sæki þær fóstureyðingu á Írlandi og heilbrigðisstarfsfólk sem aðstoðar konur í þessum tilgangi er undir sömu sökina selt. Heilbrigðisstarfsfólk veigrar sér jafnvel við því að veita konum og stúlkum upplýsingar um fóstureyðingar þar sem slíkt getur kallað á kæru fyrir að „stuðla að” fóstureyðingum en sekt við því getur varðað allt að 600.000 íslenskum krónum. Refsivæðing fóstureyðinga er skýrt mannréttindabrot. Í skýrslu Amnesty International, Hún er ekki glæpamaður: áhrif laga um fóstureyðingar á Írlandi, er að finna vitnisburð fjölda írskra kvenna sem hafa gengist undir fóstureyðingu á erlendri grundu. Sumar voru tilneyddar að ganga með lífvana eða ólífvænt fóstur í nokkrar vikur. Lupe, sem bar lífvana fóstur undir belti í 14 vikur, sagði Amnesty International að hún hafi þurft að ferðast til Spánar, á heimaslóðir sínar, til að fá viðhlítandi læknisþjónustu: „Mér fannst ég alls ekki örugg... ég var virkilega óttaslegin því mér varð ljóst að ef einhver vandkvæði kæmu upp, myndi þetta fólk láta mig deyja.“ Írland, Andorra, Malta og San Marino eru einu löndin í Evrópu sem banna konum að leita sér fóstureyðingar jafnvel þegar um nauðgun er að ræða, alvarlega fósturgalla eða þungun stefnir heilsu þeirra í hættu. „Írska þjóðin samþykkti nýverið að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra og státaði sig í framhaldinu af því að vera frjálslynt og opið samfélag en ekki er allt með felldu í írska lýðveldinu. Mannréttindi kvenna og stúlkna eru þverbrotin á degi hverjum vegna þess að stjórnarskráin gerir konur að útungunarvélum,“ segir framkvæmdastjóri Amnesty International Salil Shetty. „Konur og stúlkur sem þurfa á fóstureyðingu að halda eru meðhöndlaðar eins og glæpamenn, útskúfaðar og neyddar til að koma sér úr landi sem tekur gríðarlegan toll af andlegri og líkamlegri heilsu þeirra. Írska ríkið getur ekki lengur hunsað þennan veruleika og þær skelfilegu afleiðingar sem hann hefur á þúsundir einstaklinga á hverju ári.“ Löngu er tímabært að Írland breyti harðneskjulegri fóstureyðingarlöggjöf. Konur og stúlkur verða að njóta aðgengis að löglegri og öruggri fóstureyðingu, í það minnsta þegar þungun er afleiðing nauðgunar eða sifjaspella, þegar þungun stofnar andlegri eða líkamlegri heilsu konu eða stúlku í hættu eða þegar um alvarlega eða lífshættulega fósturgalla ræðir. Íslandsdeild Amnesty International hvetur alla til að taka þátt í undirskriftasöfnun Ungliðahreyfingar deildarinnar á laugardaginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir Skoðun Inngilding er daglegt líf Joanna Marcinkowska Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson,Hafsteinn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Saman erum við sterkari Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon skrifar Skoðun Inngilding er daglegt líf Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin skrifar Skoðun Jöfn tækifæri barna eru ekki sjálfgefin, við þurfum að tryggja þau Unnur Ólöf Tómasdóttir skrifar Skoðun Borg sem er skemmtilegri en skjárinn Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson,Hafsteinn Hauksson skrifar Skoðun Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kæmu úr okkar eigin vösum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Fjölskyldubærinn Akranes Katrín Valdís Hjartardottir skrifar Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Jöfn tækifæri barna eru ekki sjálfgefin, við þurfum að tryggja þau Unnur Ólöf Tómasdóttir skrifar
Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun