Fleiri fréttir

Mjór er mikils vísir

Líf Magneudóttir skrifar

Oft kemur það í hlut stjórnvalda að greiða götuna fyrir verkefnum sem ella hefðu ekki fengið brautargengi. Það er nefnilega þannig að lítil verkefni sem ýtt er úr vör af hugsjónafólki verða hreyfiafl þó áhrif þeirra verði ekki metin til fjár sem oft vill vera mælikvarði í samfélagi nútímans.

Ríkið á ekki að vasast í samkeppni

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Í sérstakri umræðu um málefni ríkisfyrirtækisins Íslandspósts á Alþingi í síðustu viku kom ýmislegt áhugavert fram. Ólöf Nordal innanríkisráðherra, sem hefur póstmál á sinni könnu, lýsti því þar yfir að hún teldi að afnema ætti einkarétt ríkisins, þ.e. Íslandspósts, á bréfasendingum. Jafnframt ætti að stefna að því að selja fyrirtækið. Þá lýsti ráðherra því afdráttarlaust yfir í tvígang að hún teldi að ríkið ætti ekki að vera að „vasast í samkeppnisrekstri“.

Fyrirsjánlegt, en kom samt á óvart

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar

Sú staða sem upp er komin á vinnumarkaði hefði ekki átt að koma neinum á óvart. Í kjölfar hrunsins tóku fjölmargar stéttir á sig kaupmáttarskerðingu þar sem allir þyrftu að leggja sitt af mörkum til að endurreisa íslenskt efnahagslíf.

Samgöngustyrkur

Ásbjörn Ólafsson skrifar

Það er frábært að hjóla til og frá vinnu. Þetta er þægilegur fararmáti og bætir þrek og hreysti.

Skemmtilegur bjánaskapur er samt bjánaskapur

Kári Stefánsson skrifar

Sif Sigmarsdóttir er sá pistlahöfundur sem skrifar í íslensk dagblöð sem mér þykir hvað mest varið í fyrir ýmissa hluta sakir. Pistlarnir hennar eru skemmtilegir, skringilegir, öðruvísi og fjalla oftast um efni sem mér finnast skipta máli. Það er kannski þess vegna sem það fór fyrir brjóstið á mér þegar ég las pistilinn hennar á föstudaginn í síðustu viku þar sem hún gerði mér upp hegðun og skoðanir til þess eins að koma sínum á framfæri.

Við viljum frið…

Signý Pálsdóttir skrifar

Öll börn eru í eðli sínu listamenn. Óbeislað ímyndunarafl, innlifun og sköpunargleði eru aðalsmerki þeirra sem slíkra. Þau lifa sig inn í ævintýrið og skapa ný ævintýri hvort sem er í leik eða listrænni tjáningu.

Komdu og sjáðu

Magnús Guðmundsson skrifar

Almenningsbókasöfn eru fallegir staðir. Ekki aðeins vegna allra þeirra dásemda sem fylla söfnin heldur ekki síður vegna þeirra hugsunar sem liggur að baki.

Komma á röngum stað

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Ýmsum þótti mannsbragð að því hjá Kristjáni Loftssyni að mæta sjálfur í Ríkisútvarpið til að ræða um 33% hækkun á launum til stjórnarmanna í Granda, sem samþykkt var samhljóða af fulltrúum hluthafa - líka fulltrúum lífeyrissjóðanna á meðan starfsfólki (sem á lífeyrissjóðina) er boðin 3,3% launahækkun. 33% - 3,3%. Þetta er Ísland í dag: komma á röngum stað.

Hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar og A-próf

Helga Jónsdóttir skrifar

Nýverið birtist í þessu blaði pistill þar sem því var velt upp hvort ákvörðun um það hverjir verða hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar ráðist með svokölluðu A-prófi en það er aðgangspróf fyrir háskólanám sem ætlað er að mæla almenna áunna færni við að tileinka sér flókið námsefni.

Forsætisráðherra axlar ábyrgð

Sigurður Oddsson skrifar

Það kom að því að þjóðin eignaðist mann við Austurvöll, sem axlar ábyrgð á meðferð skattpeninga.

Sterkur háskóli í þágu þjóðar

Guðrún Nordal skrifar

Háskólar um allan heim eru í mikilli deiglu. Alls staðar knýja breytingar dyra. Tæknibreytingar ekki síður en breytingar á atvinnuháttum, áskoranir sem fylgja auknum hreyfanleika fólks og síaukinni upplýsingamiðlun.

Virkir foreldrar skapa betri skóla

Anna Margrét Sigurðardóttir skrifar

Í ár eru tímamót hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra. Foreldraverðlaunin verða afhent í tuttugasta sinn þann 20. maí nk. við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra.

Stóri haus

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Ég bjó í blokk fyrstu fimm ár ævi minnar og á góðar minningar um gamla konu sem bjó í íbúðinni á móti okkur.

Óundirbúinn borgarstjóri slær sér á brjósti

Óttarr Guðlaugsson skrifar

Það var afar ánægjulegt að sjá hversu margir af íbúum Grafarholts- og Úlfarsárdals sáu sér fært að mæta til fundar með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra á fimmtudag en hátt í þriðja hundrað manns voru þar samankomnir til að hlusta á borgastjórann ræða um málefni hverfisins.

Barack og Hillary

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Síðast þegar demókratar völdu forsetaefni var mörgu frjálslyndu flokksfólki vandi á höndum.

Hugsjónir Bjartrar framtíðar

Guðmundur Steingrímsson skrifar

Í viðtali á dögunum auglýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eftir meiri umræðu um hugsjónir í íslenskum stjórnmálum. Okkur í Bjartri framtíð er ljúft og skylt að bregðast við áskoruninni.

Sjómenn við skyldustörf

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Það er hollt að muna hver uppruni okkar Íslendinga er. Þjóðin varð til úr hópum fólks sem efndi til eins konar þjóðflutninga burt af meginlandi Evrópu. Orsakir þeirra voru efalítið nokkrar.

Mikilvægasta vinna veraldarsögunnar

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Ekkert starf er mikilvægara í allri veraldarsögunni en skáldskapur. Ég gæti hugsað mér að búa í heimi þar sem ekki væru til læknar, kennarar eða kaupmenn en að búa við tilveru sem ekkert skáld hefur litað með órum skáldagyðjunnar

Að sigra heiminn

Jón Gnarr skrifar

Ég hef aldrei skipt mér neitt sérstaklega af stjórnmálum, nema einu sinni og þá með nokkuð afdrifaríkum hætti. Ég hef nokkrum sinnum skráð mig í stjórnmálaflokk til að geta stutt eða kosið einhvern vin minn eða kunningja í prófkjöri eða slíku.

Maðurinn sem óhreinkar ekki skyrtuna sína

Agnes Linnet og Hilmar Jónsson skrifar

Það er kaldur þriðjudagsmorgunn í höfuðvígi rafmagns- og tölvuverkfræðinema í Háskóla Íslands. Klukkan er sautján mínútur yfir átta og tíu litlir verkfræðinemar hjúfra sig hver að öðrum í hlýjum, grátóna hettupeysum.

Söngur fiskverkakonunnar

Lýður Árnason skrifar

Þessa dagana blöskrar þjóðinni framganga ráðamanna varðandi fyrirtækið Forsvar sem fékk djobbi úthlutað frá ríkinu án útboðs. Engum var boðið að borðinu nema þessu eina fyrirtæki

Listir og menning drepa konur og börn

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Þegar ég starfaði í fyrsta sinn við fjölmiðil sem sumarstarfsmaður á Morgunblaðinu var mér úthlutað verkefni sem fékk mig til að skjálfa á beinunum. Ég átti að hringja í Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og taka hann tali.

Byrjandi í Baqueira Beret

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Árlega bíðum við þess að sumarið komi. Árstíðina vor þekkjum við varla. Við bíðum svo lengi eftir vorinu að þegar allir virðast sammála um að það sé komið vor er í raun komið sumar.

Landssöfnun til styrktar leiðsöguhundum

Huld Magnúsdóttir skrifar

Dagana 17.–19. apríl fer landssöfnun Lions, Rauða fjöðrin, fram um allt land. Til styrktar leiðsöguhundum er yfirskrift söfnunarinnar í ár en markmiðið er að safna í sjóð fyrir leiðsöguhunda fyrir blinda

Hvers vegna nær Samfylkingin ekki flugi?

Björgvin Guðmundsson skrifar

Samfylkingin nær ekki flugi. Hún mælist í skoðanakönnunum með þetta 16-17%fylgi. Það er lítið miðað við það, að Samfylkingin var stofnuð við samruna margra stjórnmálaflokka og átti að verða mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn og leysa hann af hólmi

Menntun metin til launa

Anna Guðrún Halldórsdóttir og Margrét Ófeigsdóttir skrifar

Við erum félagsráðgjafar og vinnum á geðsviði Landspítalans. Á hverjum degi sinnum við verkefnum sem miða að því að sporna gegn félagslegu ranglæti með því að hafa ávallt réttindi einstaklingsins í fyrirrúmi.

Hollráð sem hlustandi er á

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Samtök atvinnulífsins halda í dag ársfund sinn í Hörpu undir yfirskriftinni "gerum betur“. Í riti með sama heiti sem samtökin gefa út í dag er farið yfir nokkrar leiðir til að gera Ísland að "betri stað til að búa á, starfa og reka fyrirtæki“. Skemmst er frá því að segja að tillögur samtakanna virðast mestanpart bæði skynsamlegar og líklegar til að auka hagsæld bæði fólks og fyrirtækja.

Sjá næstu 50 greinar