Fleiri fréttir

Út fyrir ramma

Friðrika Benónýsdóttir skrifar

Í helgarblaði Fréttablaðsins er spjall við hóp ungs listafólks sem sett hefur á stofn vinnustofu uppi á Höfða í þeim tilgangi að skapa fjölbreyttan starfsvettvang fyrir listamenn. Þetta unga fólk, sem flest er nýútskrifað úr listnámi, er ekkert á þeim buxunum að samfélagið eigi að skapa því verkefni og aðstöðu,

Mikil aukning vindorku í Noregi

Einar Sveinbjörnsson skrifar

Augu manna hafa verið að opnast fyrir því að í vindinum gæti falist auðlind sem nýta má á hagkvæman hátt til raforkuvinnslu. Landsvirkjun hefur bent á að vindorka gæti orðið þriðja stoðin í raforkuframleiðslu landsmanna og tilraunir á Hafinu ofan Búrfells lofa góðu.

Hvers vegna er RIFF mikilvæg fyrir fjölmenningarsamfélagið?

Ottó Tynes skrifar

Það er hægt að deila um hvort alheimsvæðing sé jákvæð framför eða ekki en engu að síður er hún augljós staðreynd. Helsta afleiðing alheimsvæðingarinnar á samfélög er óhjákvæmileg blöndun kynþátta, trúarbragða og ólíkra menningarheima. Þetta er það sem almennt er kallað fjölmenning.

Samstarf til vinstri

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Vinstrihreyfingin – grænt framboð getur að mörgu leyti vel við unað eftir sveitarstjórnarkosningar þar sem hreyfingin stóð vörð um árangur sinn frá 2010 og bauð fram víða um land, bæði undir eigin nafni en einnig með formlegri og óformlegri þátttöku í sameiginlegum framboðum.

Fjallsárlón

Jón Baldur Þorbjörnsson skrifar

Nýverið birtist í dagblöðunum auglýsing frá sveitarfélaginu Hornafirði um að laus væru til umsóknar leyfi til nýtingar á landsvæði í Fjallsárlóni (NB: í Fjallsárlóni, ekki við Fjallsárlón). Fyrir þá sem ekki til þekkja er Fjallsárlón nokkru vestan við Jökullón á Breiðamerkursandi, en miklu minna umleikis.

Hvenær telst notuð fasteign haldin galla?

Hildur Ýr Viðarsdóttir skrifar

Flest ágreiningsmál vegna fasteignaviðskipta eru um um galla, bæði hvort fasteign sé yfirhöfuð gölluð og hvort ágallinn sé þannig vaxinn að kaupandi eigi rétt á skaðabótum eða afslætti af kaupverði fasteignarinnar. Það er nefnilega ekki alltaf þannig að kaupandi eigi rétt á afslætti af kaupverði fasteignar þó að eignin sé haldin ágalla.

Vinna lögfræðingar frítt, námsvist eða launalaus vinna?

Gísli Logi Logason skrifar

Það hefur lengi vel verið við lýði að aðilar sæki út fyrir hinn akademíska þankagang og fari að hagnýta þekkingu sína á atvinnumarkaðinum samhliða námi. Nú á tíðum, sem og áður, stendur laganemum til boða að starfa hjá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum í svokallaðri námsvist/starfsþjálfun.

Hver er aðal persónan í lífi þínu?

Hildur Þórðardóttir skrifar

Ertu alltaf með áhyggjur af því að öðrum líði vel, að þeir verði ekki reiðir eða fari í fýlu? Ertu meira í að láta drauma annarra rætast en þína eigin? Heldurðu að þú verðir hamingjusöm ef þú hjálpar öðrum að hætta að drekka, reykja eða líða illa?

Áfram Úrúgvæ!

Snærós Sindradóttir skrifar

Ég er ekki áhugamanneskja um fótbolta og hef aldrei verið. Á þeim þremur árum sem ég æfði fótbolta tókst mér einu sinni að skora mark. Það var á Pæjumóti á Siglufirði og markið var dæmt af því ég skoraði það með lófanum á mér. Þar með lauk mínum fótboltaferli í raun og veru.

Hverjir eru þessir múslimar?

Ólafur Halldórsson skrifar

Ég ætla ekki að fara út í stóra heim með öllum hans stóru, flóknu vandamálum, heldur bara halda mig hér á klakanum og fara á handahlaupum yfir aðstæður þeirra um 1.500 múslima sem hér búa. Það verður seint sagt að þeir séu einsleitur hópur. Þeir koma frá tugum þjóðlanda, úr öllum byggðum heimsálfum og eiga fátt sameiginlegt annað en það að vera múslimar.

Eitt mesta skipulagsslys í Reykjavík í uppsiglingu?

Guðmundur Kristjánsson skrifar

Reykjavíkurhöfn hefur verið eitt mesta atvinnusvæði og menningarstaður Reykjavíkur alla tíð. Núna er búið að ákveða að leggja höfnina niður í sinni mynd og gera hafnarsvæðið að íbúðabyggð.

Niðurgreitt nikótín

Mikael Torfason skrifar

Það eru þrefalt meiri líkur á því að fátækt fólk reyki en efnameira. Sömu sögu er að segja um fólk með grunnskólapróf, fleiri þeirra reykja en þeir sem eru með háskólapróf. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem kynnt var undir heitinu Heilsa og líðan Íslendinga 2012.

Stefnulaus sjávarútvegsráðherra

Þorsteinn Pálsson skrifar

Sjávarútvegsráðherra kom stefnulaus inn í ráðuneytið fyrir rúmu ári síðan. Á sumarþingi í fyrra voru gerðar bráðabirgðabreytingar á auðlindagjaldinu af því að ráðherrann vissi ekki hvernig best væri að haga því til frambúðar. Nú á vorþinginu voru aftur gerðar bráðabirgðabreytingar þar sem ráðherranum hafði ekki unnist tími til að hugsa málið til þrautar.

Rannsakaður afturábak og áfram í 12 ár

Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar

Í síðustu viku féll dómur í svo kölluðu Aurum máli. Þar var enn á ný dæmt um sakargiftir á hendur mér. Í vel rökstuddum forsendum dómsins er í raun tekið undir allt sem ég hef haldið fram í þessu máli frá upphafi. Mikilvægast er að sýnt er fram á með rökum að Glitnir var betur settur eftir viðskiptin en áður var.

Boltinn sameinar

Friðrika Benónýsdóttir skrifar

Heimsmeistaramótið í fótbolta hófst í gær. Aðdragandi þess hefur verið óvenju stormasamur að þessu sinni og í heilt ár hafa þúsundir Brasilíubúa mótmælt á götum úti og kvartað yfir hækkun á opinberum samgöngukostnaði, miklum útgjöldum vegna heimsmeistarakeppninnar og ófullnægjandi fjárveitingum í opinberri þjónustu.

Aukin þjónusta við fatlað fólk

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar

Breytingar verða á Ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu frá og með áramótum. Strætó bs. hefur umsjón með þjónustunni að stærstum hluta og þar sem hún skiptir miklu í lífi margra er bæði ljúft og skylt að greina nánar frá því í hverju breytingarnar eru fólgnar.

Má ég biðja um tært og ómengað vatn í sundlaugar!

Benedikta Jónsdóttir skrifar

Hættum að klórmenga sundlaugar á Íslandi. Klór er ætandi eiturefni sem enginn ætti að baða sig upp úr. Fjöldi rannsókna, sem gerðar hafa verið, sýnir fram á skaðleg og heilsuspillandi áhrif klórefna.

Brasilíu-Aron

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Ekki leið langur tími frá því að pósturinn var sendur út á fréttastofunni um HM-leikinn í gær þangað til fólk streymdi að og staðfesti þátttöku sína. Fólk sem gæti ekki tengt Cristiano Ronaldo og Lionel Messi saman við þjóðerni þeirra ætlaði ekki að missa af því að vera hluti af stemmningunni sem fram undan er

Fjögur ár

Pawel Bartoszek skrifar

Fyrir rúmum fjórum árum sat ég og hringdi í ungt fólk fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Fyrir mann sem hafði staðið í kosningabaráttu í nokkra mánuði og taldi sig hafa kynnt sér hin ýmsustu borgarmál kom það á óvart hvaða spurning það var sem brann helst á hinum ungu kjósendum.

Nauðsynlegar sameiningar háskóla

Sveinn Hallgrímsson skrifar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fv. ráðherra, fer yfir sameiningar Háskóla (HÍ) í Fréttablaðinu mánudaginn 5. maí sl. og nefnir þar sameiningu Tækniskólans og Háskólans í Reykjavík og HÍ og Kennaraháskólans. Þá nefnir Þorgerður áhuga menntamálaráðherra á að sameina HÍ og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)

Hvers vegna eru erfðabreytt matvæli merkt?

Sandra B. Jónsdóttir skrifar

Erfðabreytt matvæli eru merkt vegna þess að aldrei hefur verið sýnt fram á öryggi þeirra til neyslu. Nytjaplöntum var erfðabreytt með sn. genasmíð, sem inniheldur gen úr framandi lífveru (t.d. fiski, skordýri, dýrum og jafnvel mönnum) sem flækt er saman við bakteríu, vírus og gen sem tjáir ónæmi fyrir sýklalyfjum.

Stjórnvöld mega ekki bregðast

Elín Hirst skrifar

Það er augljóst að það er skylda samfélagsins að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin eftir að sjávarútvegsfyrirtækið Vísir tilkynnti að það ætlaði að leggja niður starfsemi á þremur stöðum á landsbyggðinni.

Félagslegt heilbrigðiskerfi

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Vaxandi vantraust á stjórnmálaflokkum og stjórnmálakerfinu er mikið áhyggjuefni hér á landi sem annars staðar. Fólk situr uppi með þá tilfinningu að stjórnmálin snúist öðru fremur um að tryggja sérhagsmuni háværra, valdamikilla og auðugra hópa samfélagsins en ekki hagsmuni hins almenna borgara.

Af silfurreyni og hótelfaraldri í 101 eða reitur 1.7.2.2.

Egill Ólafsson skrifar

Enginn er sár, hvað þá gramur, nei, það er helst að maður fyllist sorg – sorg yfir því að horfa upp á enn einn faraldurinn ríða húsum skefjalaust í okkar krumpaða og um margt vanþróaða samfélagi. Nú heitir faraldurinn; Hótel má vera í öðru hverju húsi í 101.

Setjum Framsókn í skammarkrókinn

Freyr Þórarinsson skrifar

Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum gerðust þau ömurlegu tíðindi að framboð Framsóknarflokksins í Reykjavík sigldi undir merkjum trúarfordóma og andúðar á aðfluttu fólki og fékk aukið fylgi út á það. Þetta kemur ekki alveg á óvart því í mörgum nágrannalöndum okkar hefur viðlíka áróður skilað árangri,

Þakkir til Rauða krossins

Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar

Eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda þegar kemur að hælisleitendum er að tryggja fullnægjandi þjónustu við meðferð umsókna þeirra. Í gær náðum við mikilvægum áfanga í þeim efnum þegar innanríkisráðuneytið og Rauði krossinn á Íslandi undirrituðu samning um þjónustu við hælisleitendur.

Ungt fólk til vinnu

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði skrifar

Eitt mikilvægasta verkefni norrænu velferðarsamfélaganna er að takast á við atvinnuleysi ungs fólks. Ungt fólk sem ekki nær fótfestu á vinnumarkaði á enda á hættu að lenda utangarðs í samfélaginu allt sitt líf. Fyrir utan þann persónulega harmleik sem slíkt hefur í för með sér fer samfélagið jafnframt á mis við mikil verðmæti sem mannauður þessa unga fólks er.

Undirlýstar myndir af þvottakörfum

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Instagram er samfélagsmiðill þar sem fleiri en 200 milljónir notendur deila 60 milljónum mynda daglega. Myndirnar eru af ýmsu tagi; sumir taka myndir af matnum sínum en aðrir af sínum nánustu. Enn aðrir deila hógværum montmyndum af sér í ræktinni, á sólarströndum eða í fjallgöngum. Loks má ekki gleyma þeim sem halda að kettir séu sniðugt myndefni

Meira vald takk

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum kom í ljós að verulega hefur dregið úr þátttöku í kosningum hér á landi, sem þó hefur sögulega verið afar góð. Við virðumst því á sömu leið og mörg önnur lönd. Bretar telja sig til að mynda góða ef kjörsókn er á milli 50 til 55 prósent. Í nýafstöðnum kosningum til Evrópuþings var kjörsókn þar 43 prósent.

Lengi býr að fyrstu gerð

Kolbrún Árnadóttir skrifar

Senn líkur fyrsta áfanga í skólagöngu dóttur minnar og nýr og spennandi áfangi tekur við. Það er óhætt að segja að það er með þakklæti og hlýhug sem við kveðjum það frábæra og metnaðarfulla starf sem fram fer á leikskólanum Norðurberg í Hafnarfirði.

Fiskeldið styrkir byggðaþróun á Vestfjörðum

Haraldur Guðmundsson skrifar

Mannfjöldi í Vesturbyggð og Tálknafirði er í dag 1.246 íbúar og hefur fjölgað um 60 íbúa eða 5% frá árinu 2012 en þá var íbúafjöldinn kominn niður í 1.186. Ef spár ganga eftir verður fiskeldið á suðurfjörðunum mjög umfangsmikið á tiltölulega skömmum tíma. Vinnsla á afurðum frá eldinu verður mikil og þörf á auknum mannafla við vinnslu á afurðum. Sumar sjávarbyggðirnar eiga því nokkur atvinnutækifæri inni í fiskeldi sem eru handan við hornið, t.d. á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði. Reikna má fastlega með að þróun íbúafjölda á suðurfjörðunum verði afar jákvæð á næstu árum.

Pólitíkusar sem brjóta öll lögmál

Þóranna K. Jónsdóttir skrifar

Í nýafstaðinni kosningabaráttu verð ég að viðurkenna að ég undraðist hvernig víða var staðið að. Ég gat ekki gert að því að hugsa sem svo að pólitíkusar hefðu mjög gott af því að læra grundvallarlögmál markaðsfræðinnar.

Harðsvíruð ófrægingarmýta

Ingvar Gíslason skrifar

Fjaðrafokið sem þyrlast hefur upp kringum Framsóknarflokkinn hefur að formi til tvær hliðar. Önnur snertir innanflokksmál, hin hliðin snýr að umfjöllun í fjölmiðlum. Þar ber reyndar hæst greinahöfunda á vegum Fréttablaðsins. Ef lýsa ætti í fáum orðum þeirri hlið, sem að innanflokksmálum snýr, einkennist hún af veikburða forystu, ráðaleysi og klúðri.

Fjögurra ára í fitusog

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Krakkarnir hanga í tölvunni, við fáum þá frið á meðan. Þetta hef ég oft hugsað. Núna síðast í langri bílferð norður yfir heiðar. Tvö lítil skott sátu steinþegjandi í aftursætinu með heyrnartól á eyrunum og dunduðu sér í spjaldtölvu. Á meðan söfnuðust kílómetrarnir að baki.

Kína nær og fjær

Einar Benediktsson skrifar

Bankahrunið 2008 og alþjóðlega efnahagskreppan hafa leitt til stjórnmálaviðbragða sem sumpart áttu ekki að koma á óvart. Árinni kennir illur ræðari, segir máltækið og það má herma á Grikki. Þeir kenna Evrópusambandinu og Myntbandalaginu um ófarir sem stafa af lélegri hagstjórn þeirra sjálfra.

„… allir eru skrýtnir, og líka þú“*

Kristín Elfa Guðnadóttir skrifar

Við hötum öll eitthvað. Það er þegar við förum að hata aðrar manneskjur sem hlutirnir verða alvarlegir. Þá fyrst skemmtum við skrattanum og bjóðum honum í grill í leiðinni.

Til höfuðs okrinu

Ósjaldan heyrist fólk kvarta yfir dýrtíð hér á landi. Eitthvert lögmál virðist segja til um að gallabuxur (merkjavara) séu á um tíföldu því verði sem gerist í Bandaríkjunum til dæmis– svipað á við um annan fatnað.

Berjumst gegn ofbeldi

Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar

Sumir halda því fram að bardagaíþróttir séu ofbeldisfullar og séu því ekki skyldar öðrum íþróttum. Þegar foreldrar og/eða börn velja íþróttagrein þá sýna tölur opinberra aðila að stelpur fara í fimleika, dans eða sund og strákar fara í bardagalistir eða boltagreinar.

Handónýt ríkisstjórn?

Ögmundur Jónasson skrifar

Þegar ég kom inn á þing um miðjan tíunda áratuginn minnist ég kröftugs málflutnings gegn kvótakerfinu. Með því væri verið að færa tilteknum aðilum eignarhald á sjávarauðlindinni. Framsalið væri augljósasta vísbending þessa auk veðsetningar á óveiddum afla.

Hvað er fermingin?

Þórir Stephensen skrifar

Þessari spurningu var oft beint til mín, meðan ég var starfandi sóknarprestur. Hún kemur enn upp af ýmsu tilefni, og nú nýlega frá foreldri barns, sem horfir fram til þessara tímamóta í lífi sínu. Mig langar að svara henni einnig hér á opinberum vettvangi.

Sjá næstu 50 greinar