Glötuð tækifæri 29. apríl 2007 06:00 Bjarni Jónsson skrifar: Mikils misskilnings gætir í málflutningi stjórnarandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrrstöðu í fjárfestingum í orkukræfum iðnaði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjárfesta, þar sem frá var horfið. Ekkert er fjær lagi en að fjárfestar sitji með hendur í skauti og bíði þess, að valdhöfum í stjórnmálum á Íslandi þóknist að leyfa samninga um stóriðju. Fjárfestarnir munu freista gæfunnar annars staðar í heiminum í stað þess að bíða. Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær. Hið sama á við um fjárfestana. Þeir eiga á hættu að tapa markaðshlutdeild, ef þeir bíða í 5 ár; hvað þá lengur. Þess vegna yrði valdaskeið núverandi stjórnarandstöðu tímabil hinna glötuðu tækifæra. Þjóðarbúskapurinn íslenzki yrði af um 200 milljörðum króna á slíku stöðnunarskeiði, og er þá aðeins reiknað með því erlenda fé, sem mundi streyma um æðar íslenzks efnahagskerfis vegna fjárfestinga í virkjunum fyrir álver og í álverunum sjálfum. Miðað er við hóflegan uppbyggingarhraða, sem íslenzka efnahagskerfið ræður við án verðbólgu. Þetta jafngildir því, að stjórnmálamenn forræðishyggjunnar hafi með handstýringu sinni og úreltum vinnubrögðum haft eina milljón króna í tekjuaukningu af hverjum einasta launþega í landinu. Sameignarsinnarnir yrðu landsmönnum miklu dýrari en þetta, kæmust þeir til valda eftir kosningarnar 12. maí 2007. Þeir væru með sínu „stóriðjustoppi“ búnir að stórskaða trúverðugleika íslenzkra yfirvalda í samskiptum við fjárfesta. Trúnaðarbrest tekur langan tíma að bæta fyrir. Þá er og líklegt, að sameignarsinnarnir í Samfylkingu og VG færu að föndra við skattakerfið með þeim afleiðingum, að allir bæru skarðan hlut frá borði; ríkissjóður, fjármagnseigendur og launþegar. Slíkt er ávísun á samdrátt efnahagslífsins, skuldasöfnun hins opinbera og gengissig. Hafa þá skapazt aðstæður fyrir verðbólgu, og í heild gætu landsmenn undir nýrri vinstri stjórn setið uppi með dýrtíð og kreppu (e. „stagflation“). Sameignarsinnarnir á Íslandi skilja hvorki gangverk viðskiptalífsins né efnahagslífsins. Forystumenn vinstri manna eru hugmyndafræðilegar fornaldareðlur, sem engan veginn er þorandi að hleypa inn í Stjórnarráðið. Þeir boða stjórnunaraðgerðir, sem henta ekki frjálsu efnahagskerfi í heimsviðskiptum, en þóttu nothæfar, þegar stjórnmálamenn ginu yfir atvinnulífinu. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Sá tapar sem fyrstur nefnir nasistana: gengisfelling orðsins „rasisti“ Birgir Finnsson Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir Skoðun Heilbrigðiskerfið í bakkgír Ingibjörg Isaksen Skoðun Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum Nótt Thorberg Skoðun Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar Gígja Sigríður Guðjónsdóttir Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð Ingólfur Gíslason Skoðun Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Blóðrautt norðanáhlaup Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Tökum höndum saman áður en það er of seint Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun PWC – Traustsins verðir? Björn Thorsteinsson skrifar Skoðun Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Pólitískar kreddur á kostnað skattgreiðenda Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Óttumst við það að vera frjálsar manneskjur í frjálsu landi? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Loftslagsváin bíður ekki Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Hvers vegna að kenna leiklist? Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Jóna Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Jafnt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir öll Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar Gígja Sigríður Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið í bakkgír Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Blóðrautt norðanáhlaup Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Í vítahring stöðnunnar og úreldra vísinda Björn Ólafsson skrifar Skoðun ,,Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir. Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.” (EB) Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Við erum réttindalaus Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Raunir ríka fólksins og bænir þess Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Myglaða nestisboxið og gleymda sítrónan María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Talið við okkur áður en þið talið um okkur Ian McDonald skrifar Skoðun Björgunarleiðangur fyrir Heimsmarkmiðin Antonio Guterres skrifar Skoðun Átti ekki að klára dæmið í geðheilbrigðismálum? Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Tómstunda- og félagsfræðinemar harma ákvörðun Akureyrarbæjar Hópur nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ skrifar Skoðun Nefhjól á Austurvelli – Skiptir öryggi fólks á fjölmennasta svæði landsins ekki máli? Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir,Martin Swift skrifar Skoðun Óður til Sigga sjéní Ingvi Þór Georgsson skrifar Skoðun Álframleiðsla á Íslandi er ekki bara mikilvæg fyrir Ísland Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Sjá meira
Bjarni Jónsson skrifar: Mikils misskilnings gætir í málflutningi stjórnarandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrrstöðu í fjárfestingum í orkukræfum iðnaði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjárfesta, þar sem frá var horfið. Ekkert er fjær lagi en að fjárfestar sitji með hendur í skauti og bíði þess, að valdhöfum í stjórnmálum á Íslandi þóknist að leyfa samninga um stóriðju. Fjárfestarnir munu freista gæfunnar annars staðar í heiminum í stað þess að bíða. Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær. Hið sama á við um fjárfestana. Þeir eiga á hættu að tapa markaðshlutdeild, ef þeir bíða í 5 ár; hvað þá lengur. Þess vegna yrði valdaskeið núverandi stjórnarandstöðu tímabil hinna glötuðu tækifæra. Þjóðarbúskapurinn íslenzki yrði af um 200 milljörðum króna á slíku stöðnunarskeiði, og er þá aðeins reiknað með því erlenda fé, sem mundi streyma um æðar íslenzks efnahagskerfis vegna fjárfestinga í virkjunum fyrir álver og í álverunum sjálfum. Miðað er við hóflegan uppbyggingarhraða, sem íslenzka efnahagskerfið ræður við án verðbólgu. Þetta jafngildir því, að stjórnmálamenn forræðishyggjunnar hafi með handstýringu sinni og úreltum vinnubrögðum haft eina milljón króna í tekjuaukningu af hverjum einasta launþega í landinu. Sameignarsinnarnir yrðu landsmönnum miklu dýrari en þetta, kæmust þeir til valda eftir kosningarnar 12. maí 2007. Þeir væru með sínu „stóriðjustoppi“ búnir að stórskaða trúverðugleika íslenzkra yfirvalda í samskiptum við fjárfesta. Trúnaðarbrest tekur langan tíma að bæta fyrir. Þá er og líklegt, að sameignarsinnarnir í Samfylkingu og VG færu að föndra við skattakerfið með þeim afleiðingum, að allir bæru skarðan hlut frá borði; ríkissjóður, fjármagnseigendur og launþegar. Slíkt er ávísun á samdrátt efnahagslífsins, skuldasöfnun hins opinbera og gengissig. Hafa þá skapazt aðstæður fyrir verðbólgu, og í heild gætu landsmenn undir nýrri vinstri stjórn setið uppi með dýrtíð og kreppu (e. „stagflation“). Sameignarsinnarnir á Íslandi skilja hvorki gangverk viðskiptalífsins né efnahagslífsins. Forystumenn vinstri manna eru hugmyndafræðilegar fornaldareðlur, sem engan veginn er þorandi að hleypa inn í Stjórnarráðið. Þeir boða stjórnunaraðgerðir, sem henta ekki frjálsu efnahagskerfi í heimsviðskiptum, en þóttu nothæfar, þegar stjórnmálamenn ginu yfir atvinnulífinu. Höfundur er verkfræðingur.
Skoðun ,,Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir. Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.” (EB) Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Skoðun Tómstunda- og félagsfræðinemar harma ákvörðun Akureyrarbæjar Hópur nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ skrifar
Skoðun Nefhjól á Austurvelli – Skiptir öryggi fólks á fjölmennasta svæði landsins ekki máli? Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir,Martin Swift skrifar
Skoðun Álframleiðsla á Íslandi er ekki bara mikilvæg fyrir Ísland Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar