Fleiri fréttir

Kátur með eiginkonunni

Leikarinn Ben Affleck kveðst njóta þess að eiga frí vikurnar eftir Óskarsverðlaunin. Hann eyðir tíma sínum með börnum sínum og eiginkonu.

Björgvin Páll verður pabbi í sumar

Björgvin Páll Gústavsson handboltakappi með meiru sem spilar með SC Magdeburg og eiginkona hans, Karen Einarsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í sumar. "Ég og þessi fallega kona (Karen Einarsdóttir) eigum von á okkar fyrsta barni núna í byrjun ágúst! Krílið er hinsvegar ekki á þeim buxunum að gefa upp kyn sitt ennþá þannig að þær upplýsingar verða að bíða í smá tíma í viðbót. ;)" skrifaði Björgvin á Facebook síðuna sína fyrir um klukkustund. Ekki nóg með að fjölskylda landsliðsmarkmannsins stækki í sumar heldur skiptir hann um lið og fer yfir til Bergischer HC sem er lið í vestur - þýskalandi.

Berar sig fyrir Brian Atwood

Fyrirsætan Eva Herzigova varð nýlega fertug en vílar ekki fyrir sér að bera líkama sinn í nýrri auglýsingaherferð fyrir skórisann Brian Atwood.

Tapaði milljónum á vindmyllum

Stórleikarinn Kelsey Grammer tapaði tugum milljóna á fjárfestingu í vindmyllum en hann bjóst við að þetta útspil hans yrði arðvænlegt. Það fór ekki sem skyldi.

Súpermódel með hálskraga

Ofurfyrirsætan Miranda Kerr spókaði sig um í Los Angeles í vikunni með hálskraga en Victoria's Secret-engillinn slasaðist í bílslysi.

Með bert á milli

Disney stjarnan Selena Gomez mætti í þessu sumarlega dressi frá Dolce & Gabbana á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, Spring Breakers, í Los Angeles fyrr í vikunni.

24ra karata hjólastóll

Poppfuglinn Lady Gaga er að jafna sig á mjaðmaraðgerð og lætur ekki keyra sig um í hvaða hjólastól sem er.

Missti vinnuna í hruninu og lét drauminn rætast

Hönnuður Stubba, Gústaf A. Hermannsson byggingafræðingur er einn af mörgum í byggingageiranum sem varð atvinnulaus eftir hrun. Hann hafði lengi gengið með þann draum í maganum að hanna húsgögn fyrir krakka enda hafði langafi hans verið duglegur við að smíða leikföng. Gústaf vildi hanna eitthvað alveg sérstaklega fyrir börn en ekki eingöngu smækkaða útgáfu af fullorðinshúsgögnum.

Forritarar eru ekki sveittir lúðar

"Það sjá margir forritara fyrir sér sem einhverja sveitta lúða. En þetta er alls ekki þannig," segir Elísabet Jónsdóttir sem kemur til með að vera einn dómaranna á Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Ég á líf frumsýnt í dag

Myndband lagsins Ég á líf, framlags Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, verður frumsýnt með pompi og prakt á hádegi.

Hver er þessi Conny?

Þýska „krautrokkið“ sem kom fram á áttunda áratugnum lifir góðu lífi á meðal tónlistaráhugamanna í dag. Það má heyra áhrif frá því hjá mörgum tónlistarmönnum af yngri kynslóðinni og frumkvöðlarnir njóta enn mikillar virðingar.

Grasrót hefst

Tónleika- og skemmtistaðurinn Faktorý hefur farið af stað með nýja tónleikaröð sem kallast Grasrótin.

Tvisvar hent út af sömu kránni

Liam Gallagher, fyrrverandi söngvara Oasis, var tvisvar sinnum hent út af sömu kránni fyrir að vera of drukkinn í síðustu viku.

Starði á föngulegan barminn

Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry var gestur spjallþáttakóngsins Jay Leno í vikunni. Halle klæddist afar djörfum kjól sem sýndi barm hennar vel og átti Jay í erfiðleikum með að horfa ekki á hann.

Lady Gaga giftir sig

Söngfuglinn Lady Gaga ætlar að giftast kærasta sínum, Vampire Diaries-folanum Taylor Kinney, í sumar. Að sögn vinkonu lafðinnar, DJ Starlight, er samband þeirra orðið mjög alvarlegt og tilbúið fyrir næsta skref.

Dóttir krókódílaveiðimannsins orðin stór

Bindi Irwin, dóttir krókódílaveiðimannsins heitins Steve Irwin er komin aftur í sviðsljósið. Þessi fjórtán ára gamla krúttsprengja er í Sydney þessa dagana að kynna nýjustu mynd sína, Return to Nim's Island.

Engin kolvetni fyrir börnin

Leikkonan Gwyneth Paltrow hefur prófað ýmsar stefnur í matargerð og er þekkt fyrir að borða afar hollan mat. Nú hefur hún bannað börnum sínum að borða kolvetni.

Út með golfara – inn með auðkýfing

Ljóshærða þokkadísin Elin Nordegren, fyrrverandi eiginkona golfarans Tiger Woods, er komin með nýjan mann upp á arminn. Sá heppni heitir Chris Cline og er í kolabransanum.

Spurning um að setja aðeins meiri neista í kynlífið

Það má ekki gleyma því að að með því að stunda reglulega hreyfingu þá getur þú sett aðeins meiri neista í kynlífið hjá þér. Þegar maður kemst í form þá líður manni betur og líkaminn er orkumeiri sem getur haft góð áhrif á kynlífið. Meiri orka, meiri örvun, betri fullnæing.

Fjárfesti í íbúð í Stokkhólmi - sjáðu myndirnar

Íbúðin, sem er 52 fermetrar að stærð, er einstaklega falleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Íbúðin kostaði 3.300.000.- sænskar krónur eða 65 milljónir íslenskar krónur. Eins og sjá má er rými íbúðarinnar mjög vel nýtt. Þá er arinn í svefnherberginu og stórar svalir. Takið eftir gólfflísunum á ganginum en þær eru upprunalegar frá árinu 1800.

Konur morgunfúlli en karlar

Vísindamenn segja svefnleysi hafa mun verri áhrif á konur en karla, bæði andlega og líkamlega.

Gat ekki annað en grátið

Nemendur í Menntaskólanum við Sund halda Góðgerðarviku í fyrsta skipti og safna fyrir Ljósið. Vikan er haldin í nafni Jennýar Þórunnar Stefánsdóttur sem greindist með krabbamein í haust, þremur mánuðum eftir útskrift úr skólanum.

Eyþór Ingi í teiknimynd

Eurovision-faranum er breytt í teiknimyndapersónu í myndbandi Ég á líf, sem er frumsýnt á föstudaginn

Sólarhringur í lífi Victoriu Beckham

Tískugúrúinn Victoria Beckaham fer yfir sólarhring í lífi sínu í nýjasta hefti bandaríska Harper's Bazaar. Þar er margt sem kemur á óvart.

Sleikur í sjónum

Leikarinn Adrien Brody er í fríi með kærustu sinni, fyrirsætunni Löru Lieto, á Havaí um þessar mundir. Þau hafa eytt miklum tíma á ströndinni og láta taka eftir sér.

Má ekki horfa á Dawson's Creek

Leikkonan Diane Kruger prýðir forsíðu tímaritsins Flare. Þar ræðir hún meðal annars um kærasta sinn Joshua Jackson sem vill alls ekki lifa í fortíðinni.

Fyrir ári síðan var ég stödd í hjólastól en í dag get ég gengið

"Ég vissi þegar ég var 15 ára að ég væri með þennan séríslenska sjúkdóm sem nefnist arfgeng heilablæðing. Síðasta heilablæðing sem ég fékk var tvöföld og gerðist fyrir ári síðan í janúar. Ég fékk fyrri blæðinguna um daginn. Þá fékk ég svima og skrifaði á Facebook: "Vitið þið hvað ég geri við svima?" Ég fékk svima en skildi ekkert í því. Frænka mín var með mér. Þennan dag fórum við heim í tölvuna að fíflast eitthvað og svo kom seinni blæðingin síðar um kvöldið. Þá byrjaði ég að gráta. Ég fann ekki þegar blæðingin kom en augun á mér byrjuðu að snúast í hringi og ég gat varla labbað. Frænka mín hringdi þá í 112 og þeir báðu hana að halda mér vakandi þar til þeir komu. Ég man að ég fór að pissa," þannig lýsir María Ósk Kjartansdóttir 26 ára Keflvíkingur upplifun hennar fyrir rúmu ári þegar hún fékk heilablóðfall þennan örlagaríka dag í janúar árið 2012.

Gleymdi nafninu eftir einnar nætur gaman

Raunveruleikastjarnan Brandi Glanville lét hafa eftir sér fyrir stuttu að leikarinn Gerard Butler væri stórkostlegur í rúminu. Gerard kannaðist í fyrstu ekkert við það að hafa sofið hjá Brandi en útskýrði svo mál sitt í viðtali við Howard Stern í síðustu viku.

Myndir úr lífi Lilian prinsessu

Sænska prinsessan Lilian lést í gær, 97 ára að aldri. Hún var fædd árið 1915 í Wales og starfaði framan af sem fyrirsæta þar sem hún prýddi meðal annnars forsíðu Vogue nokkrum sinnum.

Verðlaunaafhending Gulleggsins

Úrslit og verðlaunaafhending Gulleggsins 2013, frumkvöðlakeppni Innovit, fóru fram síðastliðinn laugardag í Háskólanum í Reykjavík. Þar kynntu 10 teymi viðskiptahugmyndir sínar fyrir dómnefnd en alls hófu 327 hugmyndir keppni í janúar.

Þrettán ára með eigið tískublogg

Ólavía Grímsdóttir er þrettán ára mær með sterkar skoðanir á tísku. Hún heldur úti tískubloggi og dreymir um að starfa innan bransans.

Vill fúlgur fjár frá Kutcher

Hollywoodleikkonan Demi Moore er staðráðin í því að fá fúlgur fjár út úr skilnaði sínum og Ashton Kutchers. Þau voru gift um árabil en skildu fyrir um einu og hálfu ári. Demi Moore bendir á að þau hafi ekki gert með sér kaupmála þegar þau giftu sig og að Kutcher hafi þénað vel á meðan þau voru gift. Breska blaðið London Evening Standa4rd segir að Kutcher eigi nú um 100 milljónir dala, eða um 12,7 milljarða króna.

Fögnuðu opnun Lemon

Samloku- og djússtaðurinn Lemon var opnaður á Suðurlandsbraut 4 um helgina. Til að fagna opnuninni slógu eigendur staðarins upp opnunargleði á fimmtudaginn. Margt var um manninn og stemningin góð, eins og sést vel.

Efnilegt klúður

Hugmyndin er góð og persónusköpunin til fyrirmyndar. Framkvæmdin er heldur síðri og áhorfandinn upplifir algjört stefnuleysi á köflum.

Sísý Ey kemur fram á Sónar í Barcelona

Systrahljómsveitin Sísý Ey er ein af þeim íslensku sveitum sem bókarar Sónar-hátíðarinnar í Barcelona hafa valið til að koma fram á hátíðinni í júní.

Ræddu stöðu kvenna í fjölmiðlum

í ljósi sviptinga á fjölmiðlamarkaði í síðustu viku boðaði Félag kvenna í fjölmiðlum félagskonum og þeim sem vildu að hittast á kaffi Sólon í kvöld. Þar mættu Sigríður Dögg Auðunsdóttir, nýráðinn ritstjóri Fréttatímans, og Steinunn Stefánsdóttir, fráfarandi aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, og ræddu stöðu kvenna í fjölmiðlum. Eins og sjá má á myndunum sem Daníel Rúnarsson ljósmyndari tók var fjölmennt á fundinum.

Sjá næstu 50 fréttir