Lífið

Sísý Ey kemur fram á Sónar í Barcelona

Sara McMahon skrifar
Hljómsveitin Sísý Ey hefur bæst við stóran og fjölbreyttan hóp tónlistarmanna sem koma fram á Sónar-tónlistarhátíðinni í Sumar.
Hljómsveitin Sísý Ey hefur bæst við stóran og fjölbreyttan hóp tónlistarmanna sem koma fram á Sónar-tónlistarhátíðinni í Sumar. Fréttablaðið/Stefán
„Við spiluðum á Sónar í febrúar og bókarar frá Sónar í Barcelona sáu tónleikana og vildu í kjölfarið fá okkur út,“ segir Sigríður Eyþórsdóttir. Hljómsveitin Sísý Ey hefur bæst við stóran og glæstan hóp listamanna sem koma fram á Sónar-hátíðinni í Barcelona dagana 13. til 15. júní. Hljómsveitin er skipuð systrunum Sigríði, Elínu og Elísabetu Eyþórsdætrum, Carmen Jóhannesdóttur og plötusnúðnum Friðfinni „Oculus“ Sigurðssyni.

Sigríður segist enn ekki vita hvenær tónleikar sveitarinnar fara fram enda sé stutt síðan fréttirnar voru staðfestar. „Við vitum enn voðalega lítið, við höfum ekki einu sinni bókað flug út. Það eina sem er staðfest er að við förum út að spila í sumar.“

Sónar-hátíðin er haldin í tuttugasta sinn í sumar og á meðal þeirra listamanna sem koma fram í ár eru goðsagnirnar í Kraftwerk, Pet Shop Boys, Skrillex, breski tónlistarmaðurinn Jamie Lidell, íslenski tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds og plötusnúðatvíeykið Gluteus Maximus.

Lagið Ain‘t Got Nobody með Sísý Ey hefur fengið mikla útvarpsspilun og von er á smáskífu með laginu á næstunni. Sigríður segir danstónlistarheiminn ólíkan þeim hefðbundna og því komi tónlist sveitarinnar út í einingum. „Við eigum tilbúið efni í heila plötu en við byrjum líklega á því að gefa lögin út í smáskífuformi,“ útskýrir hún.

Sigríður og systur hennar koma úr mikilli tónlistarfjölskyldu; foreldrar þeirra eru tónlistarfólkið Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson, frændi þeirra er KK og sjálf er hún gift tónlistarmanninum Þorsteini Einarssyni. „Það má segja að tónlistargenið sé ráðandi í fjölskyldunni. Við erum öll að sinna tónlistinni á einhvern hátt,“ segir hún að lokum.

Mynd/Brynjar Snær





Fleiri fréttir

Sjá meira


×