Fleiri fréttir

Er hún búin að láta stækka á sér brjóstin?

Kántrísöngkonan Taylor Swift mætti á People's Choice-verðlaunahátíðina í flegnum, hvítum kjól og sýndi talsvert hold. Síðan þá hafa sögur gengið manna á milli að Taylor sé búin að láta stækka barm sinn.

Misstu 60 kg

"Ég og maðurinn minn höfum á undanförnum tveimur árum breytt algjörlega um lífsstíl og létt okkur um samtals 60 kg með breyttu mataræði án öfga og án megrunar og tekur öll fjölskyldan þátt í þessu með okkur, bæði börnin okkar tvö og foreldrar," útskýrir Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir spurð um nýjan lífsstíl sem hefur gjörbreytt lífi hennar og eiginmannsins Tjörva Óskarssonar.

Auðvitað vil ég skilja

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur í nægu að snúast við að mæta í hin ýmsu viðtöl til að tala um ófætt barn sitt. Hjónaband hennar við Kris Humphries bar á góma í einu af þessum viðtölum.

Leikkonur sem einu sinni voru fyrirsætur

Margar af skærustu leikkonum Hollywood sáu fyrir sér sem fyrirsætur áður en þær hófu leikferil sinn. Sumar stefndu alltaf að því að verða leikkonur á meðan aðrar einfaldlega duttu í lukkupottinn og fengu stóra tækifærið fyrir tilviljun.

Kynþokkafyllstu ömmur Íslands

Vikan velur kynþokkafyllstu ömmur Íslands í nýjasta tölublaðinu. Eins og segir í tímaritinu eiga þessar konur það allar sameiginlegt að líta glæsilega út og bera ömmutitilinn með miklum sóma. Á listanum eru Unnur Steinsson vörustjóri Lyfju, Sólveig Eiríksdóttir kokkur, Brynja Árný Nordquist flugfreyja, Tinna Gunnlaugs leikhússtjóri, Ragnhildur Gísladóttir söngkona, Guðrún Bergmann rithöfundur, Hjördís Gissurardóttir gullsmiður, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlakona, Iðunn Angela Andrésdóttir verslunareigandi, Elín Hirst fjölmiðlakona og Helga Möller söngkona.

Hálfmaraþon og maraþon – á einni helgi

Popparinn Joey Fatone brosti blítt þegar hann kom í mark eftir að hafa hlaupið maraþon í skemmtigarðinum Disney World fyrir stuttu. Hann var samt sem áður frekar þreyttur. Ekki furða – hann hljóp hálfmaraþon deginum áður.

Funheitur Íslandsvinur

Skoski leikarinn og Íslandsvinurinn Gerard Butler sat nýlega fyrir í myndaþætti fyrir karlútgáfu ítalska Vogue, L’uomo Vogue. Butler er vægast sagt sjóðheitur á myndunum, en hann er myndaður af Tom Murno og klæðist m.a. fötum frá Givenchy og Giorgio Armani. „Ég lék í kvikmynd á Íslandi árið 2005 sem hét Bjólfur og Grendill. Fyrst var ég í Svíþjóð og fór síðan til Íslands. Og það var frábært - ég ber mikla ást til landsins," lét Gerard hafa eftir sér í viðtali.

Syngur í brjóstahaldaranum

Kryddpían Geri Halliwell er sveitt í stúdíói þessa dagana að taka upp efni á nýjustu sólóplötu sína. Svo sveitt reyndar að hún fann sig knúna til að fara úr bolnum og söng á brjóstahaldaranum.

Í skóm klámmyndastjörnu

Kvikmyndin Lovelace ku vera djarfasta mynd sem gefin verður út á þessu ári. Í henni leikur ljóshærða leikkonan Amanda Seyfried klámmyndastjörnuna Lindu Lovelace sem lék meðal annars í goðsagnakenndu klámmyndinni Deep Throat árið 1972.

Segir allt meira kósí á nýjum 800 Bar

800 Bar á Selfossi verður opnaður á nýjan leik á Selfossi í vor við Austurveg 52 hjá gömlu slökkvistöðinni. "Þetta er við aðalgötuna. Það er traffík þarna framhjá og þetta er mjög góður staður,“ segir Eiður Birgisson, sem á nýja staðinn ásamt Sverri Rúnarssyni. Tæpt ár er liðið síðan 800 Bar brann til kaldra kola við Eyraveg eftir að eldur kom upp í röraverksmiðju en breiddist svo út í skemmtistaðinn.

Búin að gleyma Bieber

Söng- og leikkonan Selena Gomez, 20 ára, var glæsileg á rauða dreglinum um helgina þegar hún var mynduð á rauða dreglinum í teiti sem haldið var eftir Golden Globe verðlaunahátíðina. Selena leit ekki út fyrir að sakna Justin Bieber fyrrum unnusta síns. Nú er stúlkan að hitta ástralskan leikara, Luke Bracey sem er 23 ára gamall. "Þau leiddust og létu vel að hvort öðru," er haft eftir vitni sem sá þau stinga nefjum saman á dögunum - sem segir að henni líkar við kauða.

Vill ekki yfirgefa börnin fyrir vinnuna

Breski leikarinn Damian Lewis viðurkennir að það taki á að dvelja langdvölum frá fjölskyldu sinni sökum starfs síns. Lewis hefur slegið í gegn með leik sínum í sjónvarpsþáttunum Homeland.

Undraverður árangur á stuttri þjálfun

Ég, rétt eins og margir aðrir Íslendingar, fylgdist full af áhuga með þættinum "Líkamsrækt í jakkafötum" sem sýndur var mánudaginn 7. janúar í Ríkissjónvarpinu og endursýndur 14. janúar. Þótt ég hafi stundað líkamsrækt í meira en tvo áratugi og fái mikla ánægju út úr því þá veit ég um marga sem þykir líkamsrækt mikil tímasóun og drepleiðinleg í þokkabót. Það vakti áhuga hjá mér og eflaust hjá fleirum að heyra hversu miklum árangri er hægt að ná með undravert stuttri þjálfun.

Fáklædd í óléttumyndatöku

Söngkonan Shakira og hennar heittelskaði, fótboltastjarnan Gerard Piqué, eru búin að opinbera nokkrar myndir af sér saman til að fagna komu fyrsta barns þeirra.

Ræðir við del Toro

Leikstjórinn Guillermo del Toro vill fá leikkonuna Emmu Stone til að fara með hlutverk í nýrri kvikmynd eftir sig. Kvikmyndin er hrollvekja sem ber titilinn Crimson Peak.

Lítillækkandi stimpill

Megan Fox fannst hún vanmáttug eftir að hún var stimpluð kynbomba af fjölmiðlum. Þetta kemur fram í viðtali sem leikkonan veitti Esquire. „Mér fannst ég vanmáttug. Mér fannst ég ekki sterk. Stimpillinn át alla aðra þætti persónuleika míns, ekki persónulega heldur í því hvernig fólk sá mig. Það var ekkert annað sem því þótti vert að vita eða sjá. Það gerði lítið úr mér. Ég var ímynd. Ég var uppstilling,“ sagði Fox, sem hefur að mestu dregið sig í hlé frá leiklistinni og frægðinni.

Hreinskilinn við Cox

Courteney Cox og David Arquette standa í skilnaði um þessar mundir en það þýðir ekki að þeim sé ekki vel til vina. Cox mærði fyrrverandi eiginmann sinn í viðtalsþætti Ellen DeGeneres fyrir skemmstu og Arquette dásamaði Cox í nýlegu viðtali við People.

Egill leikur Egil

Atriði fyrir Hollywood-myndina The Man Who Sold the World verður tekið upp í stúdíói Silfurs Egils í dag.

Alvitað leyndarmál

Leikarinn Victor Garber staðfesti í viðtali við bloggarann Greg Hernandez að hann væri samkynhneigður. Hann sagði kynhneigð sína ekki vera neitt leyndarmál, enda hefði hann verið í sambúð með kærasta sínum, listamanninum Rainer Andreesen, í þrettán ár.

Alveg einstakur persónuleiki

"Hann var búinn að vera veikur, með tannsýkingu og sýkingu í beinum, og hættur að borða eins og dýr gera þegar þau gefast upp. Dýralæknar voru búnir að meðhöndla hann eins og hægt var og að lokum tókum við þá erfiðu ákvörðun um að láta svæfa hann,“ segir Halldóra Björk Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri Kattholts, um heimilisköttinn Bjart sem kvaddi þennan heim á þriðjudag. Bjartur var mörgum vel kunnur, enda sinnti hann hlutverki móttökustjóra Kattholts.

Ómissandi snyrtivörur Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir ástríðukokkur með meiru hefur í nægu að snúast þessa dagana en hún heldur úti fróðlegri matarsíðu PureEbba.com samhliða því að skrifa matreiðsluækur á sinn einstaka máta. Lífið spurði Ebbu hvaða fimm snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Við erum vinir – ekki elskhugar

Mikið hefur verið slúðrað um það síðustu daga að Íslandsvinurinn Russell Crowe sé byrjaður með hinni þokkafullu Ditu Von Teese. Russell segir það hins vegar ekki vera satt.

Flaggar trúlofunarhringnum á setti

Trúlofunarhringur Oliviu Wilde er sko ekkert slor en hún játaðist grínistanum Jason Sudeikis stuttu eftir jól. Olivia var ófeimin að sýna hringinn á setti nýjustu myndar sinnar, The Third Person.

Charlie Sheen verður afi

Ærslabelgurinn Charlie Sheen verður afi í fyrsta sinn seinna á árinu. Elsta dóttir hans, Cassandra Estevez, gengur með sitt fyrsta barn en hún er 28 ára gömul.

Ég er hommi

Leikarinn Victor Garber, sem lék meðal annars Jack Bristow í Alias og skipasmiðinn Thomas Andrews í Titanic, staðfesti það í vikunni að hann er samkynhneigður.

Crawford hefur engu gleymt

Tískusíðan Fashion Gone Rouge birti nýlega myndaþátt þar sem ofurfyrirsætan Cindy Crawford var mynduð af Andrew Macpherson. Myndaþátturinn var tekinn sérstaklega fyrir heimasíðuna og bar hann einfaldlega nafnið Cindy. Þar sat hún fyrir í fötum frá Giorgio Armani, DAY Birger et Mikkelsen, Calvin Klein, Acne og fleirum. Það er deginum ljósara að hin 46 ára gamla Crawford hefur engu gleymt, en hún hefur starfað sem fyrirsæta í fjölda ára. Til gamans má geta að árið 1995 var hún sú fyrirsæta í heiminum sem þénaði mest og var valin kynþokkafyllsta kona allra tíma af tímaritinu Men's Health um árið.

Fótalaus afrekskona með meiru

Meðfylgjandi má sjá myndir af Aimee Mullins, 37 ára, fyrrum Ólympíufara sem keppti á árum áður fyrir hönd Bandaríkjanna. Afrekskonan Aimee er fyrirsæta sem á tólf pör af fótleggjum, eða öllu heldur gervifætur fyrir öll tilefni...

Hélt að hún gæti ekki eignast börn

Rapparinn Kanye West tilkynnti um óléttu kærustu sinnar, raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, stuttu fyrir áramót. Það hefur þó ekki reynst þeim auðvelt að eignast barn.

Bensínlaus ÓB-maður

Grínistarnir úr Mið-Íslandi, þeir Jóhann Alfreð Kristinsson og Björn Bragi Arnarsson, komust í hann krappan í gær þegar bíllinn þeirra varð bensínlaus á miðri Hringbrautinni, með öllum þeim vandræðagangi sem því fylgdi.

Samvinna í gegnum Skype og Dropbox

Vinkonurnar Kari Ósk Grétudóttir og Kristín Eiríksdóttir hafa lokið við sitt fyrsta leikverk. Leikritið, Karma fyrir fugla, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1. mars.

Verður jafn stórt og Gay pride

"Eurobandið á lagalista sem telur yfir 60 lög og ef ég þekki þennan hóp flytjenda rétt kunnum við þau öll utanbókar. Við þurfum því bara að fara yfir listann og velja úr. Þetta verður bara risadjamm á sviðinu,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, sem verður á sviðinu á Eurovision-tónleikunum í Hörpu. "Mér líst rosalega vel á þetta og er mjög spenntur, bæði fyrir tónleikunum og líka fyrir hátíðinni sjálfri,“ segir hann. "Ég hef trú á að með Rainbow Reykjavík-hátíðinni sé Pink Iceland að sá fræi sem stækkar með árunum og verður á endanum jafn stórt og Gay Pride er á sumrin,“ bætir hann við.

Útötuð í drullu

Leikkonan Demi Moore skellti sér í heilsumeðferð í Mexíkó í vikunni. Hún skellti sér í hugleiðslu á ströndinni og ataði sig alla út í drullu til að fá sem mest út úr stundinni.

Gjaldþrota poppari

Söngvarinn Shane Filan var eitt sinn hluti af Westlife, vinsælasta strákabandi Írlands allra tíma. Á blómaskeiði sveitarinnar rakaði hann inn milljónum á ári en nú er hann orðinn gjaldþrota.

Farðaði heimsfrægan fótboltamann

Lífið heyrði stuttlega í Elínu Reynisdóttur förðunarmeistara sem býr í Dubai ásamt eiginmanni og tveimur börnum. Elín hefur unnið við fjölda spennandi verkefna í Saudi Arabíu og nú síðast farðaði hún engan annan en Raul einn frægasta fótboltamann Spánverja sem spilaði með með Real Madrid 1992-2010. Hvernig stendur á því að þú ert að farða stjörnuna? "Ég var að vinna í sjónvarpsauglýsingu í fjóra daga í Quatar Doha fyrir Bank of Quatar og í henni voru fullt af íþróttastjörnum, aðallega stjörnur í Quatar. Þar voru arabameistarinn í boxi, körfuboltalið Quatar, sund- og dýfingafólk, fimleikafólk, spretthlauparar, langhlauparar og margir aðrir. Hann Raul var aðalstjarnan. Ég hafði ekki hugmynd um að hann væri frægur fótboltamaður. Ég hélt fyrst að hann væri einn af hlaupurunum," svarar Elín. Hvernig var að vinna með kappanum? "Hann var algjört yndi og var að segja mér frá því að hann ætti fimm börn, fjóra stráka og svo loksins eina stelpu. Hann sýndi mér myndir mjög stoltur," útskýrir Elín.

Alveg eins og pabbi heitinn

Matilda, dóttir leikarans Heath Ledger heitins, er mjög lík föður sínum. Þetta segir Sally Ledger, móðir leikarans, í ástralska tímaritinu New Idea.

Ein á ströndinni

Ofurmódelið Irina Shayk leiddist ekki á ströndinni á Miami í vikunni þó að kærasti hennar, fótboltakappinn Cristiano Ronaldo, væri víðsfjarri.

Hollustan rauði þráðurinn í lífinu

Elísabet Margeirsdóttir er þekktust sem veðurfréttamaður á Stöð 2 en hún rekur líka næringarráðgjöf og er ástríðufullur hlaupari sem stefnir á 168 kílómetra fjallahlaup í haust. Hvernig stóð á því að hún gerði hreyfingu og mataræði að uppistöðu í lífi sínu og hvaða ráð á hún fyrir þá sem dreymir um að taka upp hollari lífsstíl á nýju ári?

Gallafatnaður vinsæll

Eitt af aðal tískutrendum vorsins er klárlega gallaefni. Gallaefni sést til að mynda í buxum, skyrtum, pilsum, stuttbuxum og jökkum. Gallaskyrturnar eru með herralegu sniði en þó ekki þannig að það líti út fyrir að þú hafir skellt þér í skyrtu af karlinum þínum, sniðin eru kvenlegri en áður og það má með sanni segja að gallatískan sé mjög fjölbreytt og spennandi í ár. Í dag er reglan sú að það er engin regla eins og segir á vefnum Tíska.is. Gallaefni í kjólum verður áberandi þannig að þar blandast saman hversdagstískan og kvenlegheit sem okkur finnst snilld. Nú eru útsölur í fullum gangi hér á landi og um að gera að tryggja sér gallaflíkur sem þú getur notað áfram í vor. Hér eru nokkur dæmi beint af tískupöllunum.

Sjá næstu 50 fréttir