Fleiri fréttir

Depp þakkar Brando fyrir ferilinn

Johnny Depp þakkar Marlon Brando fyrir góð ráð og að hafa raunar lagt grunninn að ferli hans, í viðtali við breska blaðið The Sun. Brando og Depp léku saman í tveimur myndum, Don Juan og The Brave, en það er fyrsta og eina kvikmyndin í fullri lengd sem Depp hefur leikstýrt. Þeir urðu miklir vinir og Brando leiddi hann í allan sannleika um hvernig væri best að ná árangri í Hollywood.

Rómantísk á Facebook

Leikarahjónin Ashton Kutcher og Demi Moore eru dugleg við að lýsa ást sinni hvort á öðru á síðunum Twitter og Facebook. Fimm ár eru liðin síðan þau gengu upp að altarinu og ást þeirra hefur aldrei verið sterkari. „Að senda eitthvað sætt á Twitter eða Facebook er gaman,“ skrifaði hinn 32 ára Kutcher í pistli fyrir tímaritið Harper"s Bazaar sem nefnist: „Hafa textaskilaboð eyðilagt rómantíkina?“ „Á ýmsan hátt er það ekkert öðru

Maður verður seint ríkur á dauðarokkinu

Liðsmenn dauðarokks­sveitar­innar Beneath hafa samið við bandarískt plötufyrirtæki um útgáfu og dreifingu á tónlist sinni á heimsvísu. „Við erum allir mjög sáttir. Þetta er það sem við erum búnir að vera að stefna að,“ segir Gísli Sigmundsson úr dauðarokkssveitinni Beneath.

Glæsileg á tískuhátíð

Það er óhætt að fullyrða að klæðnaður gesta á Bresku tískuverðlaununum hafi verið útpældur en verðlaunin fóru fram fyrr í vikunni. Bretland er löngum þekkt fyrir að vera framarlega á tískusviðinu og hefur getið af sér fjölmarga góða fatahönnuði. Fyrrverandi poppstjarnan og nú fatahönnuðurinn Victoria Beckham stal senunni þegar hún heiðraði samkomuna með nærveru sinni.

Angelina Jolie vill vernda börnin

Leikkonan Angelina Jolie var gestur í spjallþætti Larry King fyrr í vikunni og ræddi þar um móðurhlutverkið og alla þá athygli sem fjölskyldan fær.

Jólatónleikar Melchior

Jólatónleikar Melchior verða í Landnámssetrinu í Borgarnesi í kvöld klukkan 20.30. Þar verður einnig fiskisúpa í boði. Heiðursgestur verður Ólafur Flosason sem lék á óbó með hljómsveitinni fyrir þrjátíu árum. Helstu lög Melchior verða leikin í bland við það nýjasta úr smiðju sveitarinnar. Hún gaf nýverið út tvöföldu plötuna

Laus og liðug

Söngvarinn Nick Cave ók Jagúar-bifreið sinni á hraðamyndavél og vegrið í heimabæ sínum Hove á Englandi. Tíu ára tvíburasynir hans voru með honum í bílnum, sem skemmdist töluvert, en engan sakaði. Enginn annar bíll kom við sögu í slysinu og ekki er vitað hvað olli því. Cave var ekki handtekinn og virðist hann því ekki hafa verið undir áhrifum vímuefna.

Vill verða þekktari en Lady Gaga

Söngkonan unga Willow Smith vonast til að hún verði einhvern tímann jafn fræg og Lady Gaga. „Mig langar að verða mjög þekktur listamaður. Jafn þekktur listamaður og Lady Gaga, og jafnvel þekktari en hún,“ sagði Willow nýverið við breska tónlistartímaritið NME. Willow, sem er dóttir söngvarans

Þorgrímur með tvær á toppnum

Lífið leikur við barnabókahöfundinn Þorgrím Þráins­son um þessar mundir. Tvær bóka hans eru á lista yfir mest seldu bækur landsins.

Krummi dustar rykið af plötunum sínum

„Það verður spiluð tónlist frá eldri tímum eins og blús og kántrý í bland við nýrra," svarar Krummi Björgvinsson tónlistarmaður spurður hverng tónlist hann ætlar að spila á Boston barnum á Laugavegi 28b í kvöld. „Ég hef ekki plötusnúðast lengi þannig að ég ákvað að dusta af nokkrum plötum og gera mér góða kvöldstund með góðu fólki," svarar hann spurður hvert sé tilefnið.

Ekki viltu fleiri börn Angelina?

Leikkonan Angelina Jolie, 35 ára, opnaði sig í sjónvarpsþætti Larry King varðandi barneignir með unnusta hennar Brad Pitt eins og sjá má í myndskeiðinu. „Engin plön akkúrat í augnablikinu," sagði leikkonan í gær en bætti við: En við erum alltaf opin fyrir hugmyndinni (að eignast fleiri börn)." Angelina ræðir einnig um stöðugt áreiti sem hún og Brad, 46 ára, verða fyrir öllum stundum.

Þolir ekki síma

Stórleikarinn Johnny Depp segist ekki eiga síma, þar sem hann vilji ekki láta ná í sig hvenær sem er.

Brakfögnuður á Faktorý

Hljómplötuútgáfan Brak heldur tónleikakvöld á Faktorý Bar við Smiðjustíg í kvöld þar sem hljómsveitir útgáfunnar koma fram.

Morrissey tekur undir með Marr

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fékk á baukinn hjá Johnny Marr, gítarleikara hinnar sálugu hljómsveitar The Smiths, í síðustu viku. Marr sagði tónlist hljómsveitarinnar ekki vera fyrir Cameron, sem lýsti nýlega yfir að hann væri aðdáandi The Smiths.

Margslunginn Lewis

Sennilega hafa engar barnabækur verið jafn umdeildar og Narníu-bækurnar. Fræðimenn hafa rifist um duldar merkingar þeirra, falin skilaboð og hvað í ósköpunum höfundurinn C.S Lewis var að reyna að segja. Þriðja myndin í Narníu-flokknum, Voyage of the Dawn Treader eða Sigling Dagfara, verður frumsýnd um helgina. Hinar myndirnar tvær hafa hlotið

Vinir Dóra með jólablús

Hljómsveitin Vinir Dóra verður með jólablúsgjörning á Rúbín fimmtudaginn 16. desember. Jólablúsinn hefur notið mikilla vinsælda árum saman og er gott tækifæri til að hvíla sig á veraldlegu amstri aðventunnar. Vinir Dóra hafa verið í fararbroddi blústónlistarinnar á Íslandi síðan þeir hituðu upp fyrir John Mayall árið 1989. Vinirnir sem spila á Rúbín eru Halldór Bragason, gítar­leikari og söngvari, Guðmundur Pétursson gítarleikari, Ásgeir Óskarsson

Zuckerberg ánægður með fatavalið

Stofnandi samskiptavefjarins Face­book, Mark Zuckerberg, ákvað að bjóða öllu sínu starfsliði á myndina The Social Network. Myndin, sem er leikstýrt af David Fincher, á að fjalla um líf Zuckerbergs og uppruna Facebook og hefur Zucker­berg nú viðurkennt að honum líki við þessa Hollywood-útgáfu af sí

Konungsræða Georgs sigursæl á breskri hátíð

The King‘s Speech, eða Konungsræðan, hlaut flest verðlaun á hátíð sjálfstæðrar kvikmyndagerðar í Bretlandi sem fram fór á mánudag. Myndinni hefur verið spáð mikilli velgengni á komandi Óskarsvertíð. Hún segir frá því þegar Georg VI sigraðist á örðugleikum sínum en hann stamaði og átti því erfitt með að tjá sig á opinberum vettvangi eins og kóngi er skylt að gera, ekki síst þegar þjóð hans er á leið í stríð.

Jónas og Þráinn Bertelsson í Tíma nornarinnar

„Það veit enginn af þessu, ekki konan mín né dætur. Ég var nú eiginlega að vona að ég yrði klipptur út,“ segir Jónas Jónasson, útvarpsmaður á Rás 1. Hann leikur Hannes, ritstjóra Síðdegisblaðsins sem Einar blaðamaður vinnur á, í sjónvarpsþáttaröðinni Tíma nornarinnar eftir Friðrik Þór Friðriksson.

Glæsileg tískusýning hjá Kiss

Tískuvöruverslunin Kiss hélt veglega tískusýningu á skemmtistaðnum Spot fyrir skemmstu. Húsfyllir var og góðir gestir fylgdust með fyrirsætum spranga um á sýningarpöllum en einnig var boðið upp á veglega líkamsmálningarsýningu sem vakti mikla athygli meðal gesta.

Grant gerir upp fortíðina

John Grant á bestu plötu ársins að mati breska tónlistartímaritsins Mojo. Þar slær þessi áður óþekkti tónlistarmaður við stórum nöfnum á borð við Arcade Fire og MGMT.

Skemmtir sér í Stokkhólmi

Leikarinn Denzel Washington setur víst svip á skemmtanalífið í Stokkhólmi þessa dagana. Heiðraði hann vinsælan skemmtistað á Stureplan með nærveru sinni og gestir staðarins sneru sig úr hálslið þegar þeir sáu Hollywood-leikarann sýna mikla fimi á dansgólfi staðarins. Ástæðan fyrir dvöl Washingtons í Stokkhólmi er sú að hann er að hlaða batteríin áður en hann heldur til Oslóar og verður kynnir á hinum árlegu tónleikum Nóbelsverðlaunanna ásamt leikkonunni Anne Hathaway.

Fyrsta plata Páls í fimm ár

„Þetta eru perlur frá gamalli tíð,“ segir söngvarinn Páll Rósinkrans. Páll hefur gefið út plötuna Ó hvílík elska sem inniheldur fjórtán lög úr ýmsum áttum. „Ég hef verið að syngja þessi lög við ýmis tækifæri, bæði sorgleg og glaðleg. Íslenska þjóðarsálin að mörgu leyti,“ segir hann.

Flott klæddar á frumsýningu

Vanalega er rauði dregillinn á frumsýningum í Hollywood samur við sig, mikið af stuttum kjólum og glamúrinn allsráðandi. Það var því ánægjulegt að sjá hversu margir smekklegir gestir mættu á frumsýningu nýjustu myndar Sofiu Coppola, Some­where. Það er kannski ekki við öðru að búast þegar hún er annars vegar enda er hún talin mikil tískufyrirmynd í Evrópu. Leikaralistinn er einnig áhugaverður en þar má meðal annarra sjá nöfn á borð við Erin Wasson, fyrirsætu og fatahönnuð.

Erlendir aðdáendur til Íslands

Alls munu 192 útlendingar frá 21 landi fljúga hingað til lands gagngert til að fylgjast með tónleikum Jónsa í Laugardalshöllinni 29. desember. Flestir koma frá Bandaríkjunum og Bretlandi, eða 98 talsins, 34 koma frá Frakklandi og Þýskalandi og tíu frá Japan. Aðrir aðdáendur Jónsa koma meðal annars frá Rússlandi, Ástralíu, Mexíkó og Ítalíu.

Vatnið í mikilvægu hlutverki í Dexter

„Flott, ég verð að sjá þennan þátt,“ segir athafnamaðurinn Jón Ólafsson, stjórnarformaður og annar af stofnendum Icelandic Water Holdings. Vatn Jóns og félaga, Icelandic Glacial, er í mikil­vægu hlutverki í fjórða þætti í fimmtu seríu Dexter, sem sýnd er um þessar mundir í Bandaríkjunum.

Potts og Rybak vilja endurtaka leikinn að ári

Björgvin Halldórsson bauð upp á sannkallaða jólaveislu þegar hann tók á móti gestum sínum á glæsilegu sviði Laugardalshallarinnar um helgina. Erlendu gestirnir voru himinlifandi og sögðu tónleikana hafa verið á heimsmælikvarða.

Viðkvæm á nýrri plötu

Fjórða plata söngkonunnar Avril Lavigne, Goodbye Lullaby, kemur út í mars. „Ég eyddi miklum kröftum í hana og hélt aldrei aftur af mér,“ sagði Lavigne um gerð plötunnar. „Ég leyfði mér að vera viðkvæmari en áður. Ég held að fólk tengist best í gegnum þessar sönnu stundir í lífinu. Platan snýst um það hvernig við göngum í gegnum erfiða lífsreynslu, hvort sem það eru endalok ástarsambands, starfsmissir eða að missa einhvern nákominn sér. Við komumst öll í gegnum þetta og þroskumst,“ sagði hún. Fyrsta smáskífulagið af plötunni nefnist What the Hell og er væntan­legt síðar í mánuðinum.

Blanchett í Hobbitann

Óskarsverðlaunaleikkonan Cate Blanchett mun endurtaka hlutverk sitt úr The Lord of the Rings sem álfakonan Galadriel í Hobbitamyndunum tveimur sem eru í bígerð. Leikstjórinn Peter Jackson er hæstánægður með liðsstyrkinn og segir Blanchett vera í miklu uppáhaldi hjá sér. Hann leikstýrði þríleiknum Lord of the Rings og mun halda því áfram í Hobbitanum sem fjallar um atburði sem áttu sér stað á undan Hringadróttinssögu.

Potter-gengið sameinað á ný

Rándýr mistök sem áttu sér stað við tökur á lokamynd ævintýranna um galdrastrákinn þýða að Potter-gengið þarf að öllum líkindum að endurnýja kynnin.

Björk söng fyrir McQueen

Fatahönnuðurinn Alexander McQueen fékk heiðursverðlaun á bresku tískuverðlaununum á þriðjudagskvöldið en hann féll fyrir eigin hendi fyrr á þessu ári. Hans var sérstaklega minnst á hátíðinni og sýnd var stuttmynd eftir ljósmyndarann Nick Knight sem var einn nánasti vinur og samstarfs­félagi McQueens. Þar mátti heyra nýtt lag eftir Björk Guðmundsdóttur en almennt er talið að Björk eigi heiðurinn af því að hafa komið McQueen á framfæri við umheiminn.

Munnmök orka tvímælis

Mikið hefur verið rætt um sjóðandi heitt kynlífsatriði Natalie Portman og Milu Kunis í kvikmyndinni Black Swan. Atriðið þykir þó nógu saklaust til að fá „Rated R“-stimpil í Bandaríkjunum, sem þýðir að flest kvikmyndahús sýna myndina.

Bigelow með nýja mynd

Kathryn Bigelow, sem fékk Óskarinn í fyrra fyrir The Hurt Locker, er búin að fá Tom Hanks til að leika í stórmyndinni Triple Frontier. Og Karl Júlíusson til að hanna leikmyndina eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá.

Vill snáka sem gæludýr

Leikkonan Nicole Kidman vill eignast snáka sem gæludýr um leið og tveggja ára dóttir hennar Sunday Rose verður eldri. Kidman býr á sveitabýli í Tennessee með eiginmanni sínum, sveitasöngvaranum Keith Urban. Þar eru alls konar dýr en engir snákar. „Mig langar einhvern tímann að eignast fleiri skrítin dýr. Ég væri til í eignast snáka því ég elska þá. Það er samt ekki sniðugt að vera með þá innan um barnið,“ sagði hún í viðtali við spjallþáttastjórnandann Conan O"Brien.

Úr tískunni í gosdrykkina

„Ég ætlaði að koma að skoða hjá þeim verksmiðjuna því ég þekki þá sem eru að gera þetta. Svo sá ég hvað þetta var stórt og ákvað að rissa upp fyrir þá útlit. Þeir féllust bara á að það væri málið,“ segir tísku- og grafíski hönnuðurinn Mundi Vondi.

Tvö ár fyrir að skera Leo

Kona sem var ákærð fyrir að hafa skorið andlit leikarans Leonardo DiCaprio með brotnu glasi hefur verið dæmd í tveggja ára fangelsi. Atvikið átti sér stað árið 2005 í partíi í Hollywood. Konan lýsti upphaflega yfir sakleysi sínu og vildi meina að hún hefði haldið að DiCaprio væri fyrrverandi kærasti sinn. Hún átti yfir sér allt að sjö ára fangelsi en ákvað að játa sektina gegn því að dómurinn yrði styttur. Eftir að konan hefur afplánað dóm sinn verður hún flutt til heimalands síns, Kanada.

Sögulegir endurfundir í sjónmáli

Óskarsverðlaunaleikstjórinn Danny Boyle útilokar ekki að gera framhald af hinni mögnuðu Trainspotting sem var byggð á samnefndri bók Irvine Welsh. Myndin sló eftirminnilega í gegn í Evrópu og markaði upphaf að glæstum ferli Ewans McGregor. Boyle viðurkenndi á blaðamannafundi að þetta væri raunhæfur möguleiki en þetta þýddi að Boyle og McGregor yrðu að grafa stríðöxina.

Auglýsingamyndir Eyjafjallajökuls ilmvatnsins

Meðfylgjandi má sjá allra fyrstu frumsýningu af auglýsingamyndum ilmsins EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja þar sem Sigrún Lilja Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Gyðju er andlit ilmsins. Myndirnar verða notaðar í markaðssetningu á ilmvatninu hérlendis og erlendis en salan á ilminum hefst um helgina.

Dönsuðu allsberir með hatt á kynfærunum

Meðfylgjandi myndir voru teknar á konukvöldi sem haldið var á skemmtistaðnum Players 3. desember síðastliðinn. Fjöldi kvenna mætti og skemmti sér konunglega. Sigríður Klingenberg stjórnaði fögnuðinum, Beggi og Pacas töfruðu fram frábæra rétti, Bjarni Töframaður spilaði réttu tónlistina, Brynja Valdís leikkona var með uppistand og jólasveinar fækkuðu fötum eins og sagði í tilkynningunni og greinilega má sjá á myndunum.

Gekkst undir höfuðaðgerð og fékk nýja sýn á lífið

Sigrún Linda Karlsdóttir listakona sem málar meðal annars myndir af stjörnumerkjunum tólf, sem skoða má á stjörnumerki.is, gekkst undir stóra höfuðaðgerð fyrir tveimur árum. Þá breyttust áherslur hennar og hún gerði sér grein fyrir því hversu fallvalt lífið er. „Ég hef haft áhuga á að teikna síðan ég man eftir mér," svarar Sigrún og heldur áfram:

Rétt missti af gullinu

Nýjasta plata rapparans Kanye West, My Beautiful Dark Twisted Fantasy, fór beint í efsta sætið á bandaríska vinsældalistanum sína fyrstu viku á lista. Þetta er fjórða plata West sem nær þessum merka áfanga. Alls seldust 496 þúsund eintök af plötunni og vantaði því aðeins fjögur þúsund upp á að hún næði gullsölu. Nýjasta platan hefur selst aðeins betur en hans síðasta, 808 and Heartbreaks, sem kom út fyrir tveimur árum. Besta árangrinum náði West með plötunni Graduation sem seldist í 957 þúsund eintökum árið 2007.

Hjaltalín til Evrópu

Hljómsveitin Hjaltalín heldur á sunnudag í tónleikaferð til Þýskalands og Belgíu og stendur ferðin til 18. desember. Tónleikarnir verða sex talsins og verða fimm þeirra í Þýskalandi. Snorri Helgason mun hita upp á tónleikunum í Þýskalandi.

Sjá næstu 50 fréttir