Fleiri fréttir

Arnaldur og Yrsa að stinga af í jólabókaflóði ársins

„Þetta er alveg magnað, við höfum prentað tíu þúsund eintök og höfum núna selt sjö þúsund. Þetta er hennar langbesta byrjun á jólabókavertíðinni og allt útlit fyrir að hún slái eigið sölumet,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Veröld.

Leitað að röddum í kór Hörpunnar

„Við erum að fara í þessa leit til að undirstrika að Harpan er tónlistarhús allra Íslendinga,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpunnar.

Langþráð vítamínsprauta

Þögnin hefur verið rofin því fyrsta plata Apparat Organ Quartet í átta ár, Pólýfónía, er loksins að koma út. Útgáfutónleikar verða á Nasa á fimmtudagskvöld þar sem öllu verður tjaldað til.

Gerir grín að Jóni stóra

Helgi Jean Claesson hefur sent frá sér bók þar sem hinn umdeildi Jón stóri er til umfjöllunar. „Ég sá hann fyrst í ræktinni. Þá kom hugmyndin upp þegar ég sá hann tróna yfir öllum,“ segir rithöfundurinn og spéfuglinn Helgi Jean Claessen. Hann hefur gefið út sína fjórðu ádeilubók og í þetta sinn er hinn umdeildi Jón stóri, eða Jón Hilmar Hallgrímsson, í forgrunni. Jón var í fjölmiðlum fyrr á árinu í tengslum við Kúbverjamálið svokallaða.?-

Spáir ekki í Simpson

Nick Lachey, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Jessicu Simpson, er nú trúlofaður kærustu sinni, sjónvarpsstjörnunni Vanessu Minnillo. Stuttu eftir að trúlofun Lachey og Minnillo var gerð opinber lýsti Simpson því yfir að hún væri einnig trúlofuð sínum kærasta. Lachey segist þó lítið hafa velt sér upp úr þessari tilviljun.

Ingó fluttur í fyrstu íbúðina

„Þetta leggst bara vel í mig,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó eins og hann er jafnan kallaður, en hann er fluttur frá Selfossi og í sína fyrstu íbúð. Fréttablaðið sagði frá því í september að Ingó væri búinn að festa kaup á íbúð í Gerðunum í Reykjavík og áætlað væri að hann myndi flytja inn í byrjun desember. Hann er nú fluttur inn og byrjaður að innrétta.

Ellen fagnar plötuútgáfu

Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir heldur útgáfutónleika á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 21. Tilefnið er útgáfa plötunnar Let Me Be There sem var tekin upp í samstarfi við gítarleikarann Pétur Hallgrímsson. Tíu lög eru á plötunni, átta eftir Pétur en hin tvö eftir Ellen. Auk þeirra tveggja spila á plötunni Jakob

André Bachmann lagður inn á sjúkrahús

„Hann vaknaði um daginn með þvílíka magapínu sem endaði með því að hann var lagður inn,“ segir Jóhannes Bachmann, bróðir André Bachmann sem hefur skipulagt jólaball fatlaðra undanfarin ár.

Þessi köttur er algjör rúsína

Á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í útgáfuboði rithöfundarins Belindu Theriault sem skrifaði bók um köttinn Birtu, er kisan algjör rúsína. Það vakti mikla lukku viðstaddra þegar Birta áritaði bókina í Máli og menningu um helgina.

Guðmundur hannar fyrir GK

Guðmundur Jörundsson mun hanna klassísk hversdagsföt fyrir verslunina GK. Hann verður þó áfram yfirhönnuður hjá Kormáki & Skildi. Guðmundur Jörundsson fatahönnuður hefur verið ráðinn til að hanna nýja herrafatalínu fyrir tískuverslunina GK Reykjavík. Guðmundur lætur þó ekki af störfum sem yfirhönnuður Herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar heldur mun hann sinna báðum verkefnum.

Ástin er bara í myndböndunum

Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrirsæta hjá Eskimo, lék nýverið í tónlistarmyndbandi við nýtt jólalag hinnar vinsælu hljómsveitar Hurts. Þetta er í annað sinn sem Anna Þóra leikur í myndbandi með hljómsveitinni en í bæði skiptin leikur hún stúlkuna sem söngvari hljómsveitarinnar, Theo Hutchcraft, er hugfanginn af.

30 erlend forlög bítast um bók Óskars

„Ég held að það hljóti að vera einsdæmi að svo margir sýni frumraun íslensks höfundar slíkan áhuga,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.

Winona leikur að nýju

Winona Ryder var ein vinsælasta leikkonan í Hollywood á tíunda áratugnum og lék hún meðal annars í kvikmyndum á borð við Edward Scissorhands, Dracula og Reality Bites.

Glee-leikarar hætta

Ryan Murphy, höfundur hinna vinsælu þátta um krakkana í Glee, hefur tilkynnt að meirihluti leikaranna muni líklegast hætta árið 2012. Ástæðan ku vera sú að persónurnar í þáttunum verða þá útskrifaðar úr menntaskóla og því þurfi aðrir leikarar að taka við.

Jessica ekki ólétt

Slúðurmiðlar vestanhafs hafa haldið því fram að söngkonan Jessica Simpson beri barn undir belti.

Svaf hjá þremur konum á dag

Söngvarinn Mick Hucknall hefur beðist afsökunar á framferði sínu á níunda áratugnum þegar hann svaf hjá yfir eitt þúsund konum á þriggja ára tímabili.

Fann loks ástina

Ryan Seacrest, kynnir American Idol, bað kærustu sinnar í rómantískri ferð til Parísar fyrir stuttu. Seacrest og leikkonan Julianne Hough hafa verið saman síðan í sumar.

Dætur í stað dóps

Shaun Ryder, fyrrverandi söngvari bresku hljómsveitarinnar Happy Mondays, þakkar tveimur dætrum sínum fyrir breyttan lífsstíl sinn.

Bieber býr yfir ýmsum hæfileikum

Söngvarinn Justin Bieber sannaði fyrir heiminum að hann er meira en bara sæt táningsstjarna, þegar hann mætti í spænskan spjallþátt á dögunum.

Brotist inní tölvu Gaga

Samkvæmt fréttamiðlum vestanhafs hafa þýskir tölvuhakkarar brotist inn í tölvur Lady Gaga, Ke$hu og annarra tónlistarmanna og leikara. Samkvæmt sömu fréttum stálu hakkararnir meðal annars nektarmyndum.

Sarah Jessica Parker: Engar aðgerðir

Eitt vinsælasta umfjöllunarefni tískutímarita í dag virðist vera ellin og hvernig frægar konur taka því að eldast. Leikkonan Sarah Jessica Parker sagði í viðtali við tímaritið Elle að lítið væri hægt að gera til að breyta gangi lífsins.

Britney er hamingjusöm

Britney Spears og kærasti hennar, Jason Trawick, segja samband sitt vera gott og ástríkt.

Kim langar í barn sem fyrst

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur verið að slá sér upp með fyrrverandi sambýlismanni Halle Berry, fyrirsætunni Gabriel Aubry. Að sögn vina er stúlkan afskaplega hrifin af Aubry og telur jafnvel að nú hafi hún fundið framtíðar eiginmanninn.

Sparkað úr flugvél

Leikaranum Josh Duhamel var sparkað úr flugfél sem var á leiðinni frá New York til Kentucky í gær. Samkvæmt sjónarvottum neitaði hann að slökkva á símanum sínum og því fór sem fór.

Mesti hávaðinn í trompetinum

Kristjón Daðason frá Stykkishólmi stundar trompetnám við Tónlistarháskólann í Árósum í Danmörku og stendur sig með prýði. Hinn sextán ára Baldvin Oddsson er ekki eini ungi trompetleikarinn sem er að gera það gott í útlöndum því Kristjón Daðason, 25 ára úr Stykkishólmi, er á þriðja ári við Tónlistarháskólann í Árósum í Danmörku.

Reynir Pétur gengur betur

Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir forsýndi heimildarmyndina Reynir Pétur - gengur betur í Bíói paradís á fimmtudagskvöld. Stjarna myndarinnar, Reynir Pétur, mætti að sjálfsögðu á svæðið ásamt Hanný, sambýliskonu sinni, og stórum hópi frá Sólheimum. Myndin verður sýnd í Sjónvarpinu á sunnudag.

Johnny Marr líkar ekki aðdáun Camerons

Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari ensku hljómsveitarinnar The Smiths, vill að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hætti að lýsa yfir hrifningu sinni á sveitinni.

Land og synir snúa aftur

Hreimur og félagar í Landi og sonum eru að vakna af værum blundi. Sveitin spilar á Spot í kvöld og ný lög eru væntanleg.

Gaurinn í undirfötunum bar af

Meðfylgjandi myndir voru teknar á tískusýning á vegum Herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar þar sem meðal annars var ný fatalína eftir Guðmund Jörundsson sýnd. Fyrirsæturnar voru ekki af verri endanum: Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður, Kjartan Sturluson fótboltamaður, Aron Bergmann leikmyndahönnuður, Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður, Högni Egilsson tónlistarmaður, Böðvar Guðjónsson formaður körfuknattleiksdeildar KR, Georg Kári Hilmarsson fyrrum sprenjuhallarmeðlimur, Stebbi Stef úr GusGus, Róbert Marshall þingmaður og Guðmundur Steingrímsson þingmaður.

Vill klassík og geimverur

Leikkonan Anne Hathaway er með mörg hlutverk á óskalistanum. Hún vill helst leika persónur úr leikverkum eftir mörg af þekktustu leikskáldum sögunnar. Best væri ef kvikmynd væri gerð byggð á verkunum.

Lög til heiðurs sauðkindinni

Jóel Pálsson segir það á við sjö háskólagráður að reka sprotafyrirtæki á borð við Farmers Market. Hann var að gefa út fimmtu sólóplötu sína og segir viðskiptin og tónlistina passa ágætlega saman.

Háu hælarnir þvældust fyrir Angelinu

Kvikmyndin The Tourist, með Angelinu Jolie og Johnny Depp í aðalhlutverkum, verður frumsýnd innan skamms og hafa leikararnir verið duglegir við að kynna myndina með því að veita viðtöl.

Kate Winslet fer með börnin til Mendes

Leikkonan Kate Winslet ætlar að fara með börnin sín, Joe og Miu, til London á meðan fyrrverandi eiginmaður hennar, leikstjórinn Sam Mendes, tekur þar upp næstu James Bond-mynd.

Fergie valin kona ársins

Fergie, söngkona hinnar vinsælu hljómsveitar The Black Eyed Peas, hefur verið valin kona ársins af bandaríska tónlistartímaritinu Billboard. Hún tók á móti verðlaununum í New York og var að vonum í skýjunum með þennan mikla heiður, sérstaklega vegna þess að svo margar konur hafa náð langt á vinsældalista Billboard á árinu.

Ameríka opnast fyrir Vesturport

„Þetta er náttúrlega fáránlegt og eiginlega hálfsjúkt, að nánast allt leikhúslíf í New York skuli snúast um einn dóm,“ segir Gísli Örn Garðarsson. Uppfærsla Vesturports á Hamskiptunum eftir Franz Kafka fékk lofsamlega dóma í bandaríska stórblaðinu The New York Times.

Björgvin klár í risahelgi

Björgvin Halldórsson býður upp á sannkallað jólalagahlaðborð í Laugardalshöllinni þegar einvalalið jólagesta hans treður upp á fernum tónleikum. Búist er við tólf þúsund gestum.

Stórskotalið á styrktartónleikum

„Þarna verður stórskotaliðið úr poppinu í ár,“ segir Einar Bárðarson athafna- og umboðsmaður, en 30. desember verða haldnir stórtónleikar í Háskólabíói til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þetta verður þrettánda árið í röð sem Einar heldur þessa tónleika en allt frá árinu 1998 hafa tónlistarmenn og hljómsveitir gefið vinnu sína til að safna fyrir málefnið.

Sumir eiga bara fræga vini

Eiginkonur Simma og Jóa, Ólína Jóhanna Gísladóttir og Bryndís Björg Einarsdóttir, opnuðu í gær nýja verslun sem ber heitið Kastanía sem er á jarðhæð í glerturninum við Höfðatorg þar sem Hamborgarafabrikka Simma og Jóa er einnig staðsett. Á meðal gesta voru mörg þekkt andlit en burtséð frá því var frábær stemning í opnunininni og ekki voru veitingarnar af verri endanum eins og myndirnar sýna greinilega. http://visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP1063

Líkamsfarða léttklæddar stúlkur

„Þetta verður rosalega mikið fyrir augað,“ segir Sólveig Birna Gísladóttir, kennari í Airbrush & Makeup School, en skólinn efnir til heljarinnar tískusýningar á skemmtistaðnum Spot í kvöld.

Hendrikka Waage fagnar

Rikka og töfrahringurinn á Indlandi er önnur bók Hendrikku Waage en hún fagnaði útkomu bókarinnar í góðum félagsskap hjá útgáfunni Sölku eins og meðfylgjandi myndir sýna. Bókin fjallar um ævintýri Rikku sem ferðast með hjálp töfrahrings. Þar minnir Hendrikka lesendur á að þótt hin fjölmörgu lönd veraldar séu ólík þá búum við öll saman í þessum heimi og eigum að vera vinir; hvar sem við erum á hnettinum.

Katie Price missir prófið

Glamúrpían Katie Price hefur verið sett í sex mánaða ökubann í Bretlandi eftir að hún játaði að hafa ekið of hratt á Land Rover-bifreið sinni.

Hvað með rokkara og fallegar konur?

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfupartýi sem haldið var í nýju Mótorsmiðjunni Skipholti 5 í gær þar sem útgáfu bókarinnar Zen og listin að viðhalda vélhjólum var fagnað. Þá var sérstök kynning á iPad og rafrænum bókum fyrir iPad í gegnum iTunes, en ZEN bókin, sem Sigurður A. Magnússon þýddi, er fyrsta íslenska bókin sem dreift er með rafrænum hætti á Íslandi. Eins og myndirnar sýna greinilega var góð stemning, rokk og ról og veitingar við hæfi.

Snipes í steininn

Wesley Snipes hefur verið skipað að mæta til afplánunar í fangelsi í Pennsylvaníu í næstu viku vegna skattalagabrota.

Tarantino grillaður

Bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino var vígður inn í hinn þekkta Friar"s-klúbb fyrir skömmu.

Sjá næstu 50 fréttir