Fleiri fréttir

Jóhanna söng Helga nótt fyrir Monocle

„Þeir báðu mig bara um að koma og ég söng þarna fimm lög,“ segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona. Breska tímaritið Monocle bauð henni til London til að koma fram í útvarpsþætti tímaritsins sem það heldur úti í ansi glæsilegu hljóðveri sínu.

Sameinuð um jólin

Leikkonan Sandra Bullock hyggst eyða jólunum í Texas með fyrrverandi eiginmanni sínum, Jesse James, börnum hans og syni sínum, Louis. Bullock og James skildu fyrr á árinu eftir að upp komst um framhjáhald hans.

Jay-Z fékk dýrasta bílinn að gjöf

Söngkonan Beyoncé Knowles taldi það ekki eftir sér að gefa eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Jay-Z, dýrasta bíl heims í tilefni 41 árs afmælis hans. Beyoncé keypti Bugatti Veyron Grand Sport handa ástinni sinni og kostar bíllinn ekki nema 232 milljónir króna.

Diskóið læknar svínaflensuna

Eftir fimm ára hlé snýr Margeir Ingólfsson aftur með sitt vinsæla diskókvöld á annan í jólum. Tilefni endurkomunnar er skinkuvandmál unglingsstúlkna í tengslum við svínaflensuna og ævisaga hans sem var rituð í hans óþökk. Diskókvöld Margeirs voru haldin tíu ár í röð og nutu mikillar hylli þangað til plötusnúðurinn ákvað að setja þau í salt. Núna, fimm árum síðar, hefur hann snúið aftur og í þetta sinn verður diskóið á skemmtistaðnum Austur á annan í jólum.

Bloom í Hobbitanum

Leikarinn Orlando Bloom er sagður í viðræðum um að leika í Hobbitanum. Stutt er síðan Cate Blanchett ákvað að leika álfadrottninguna Galadriel í myndinni og nú virðist Bloom ætla að feta í fótspor hennar. Bloom lék

Þreytt á slúðrinu

Kourtney Kardashian er sögð miður sín vegna orðróms um að unnusti hennar, Scott Disick, sé samkynhneigður og hrífist af klæðskiptingum.

Ben vinnur heima

Samkvæmt US Magazine ætlar leikarinn Ben Affleck að vera heimavinnandi faðir nú á næstu mánuðum og segist hann hlakka mikið til að geta eytt tíma með dætrum sínum tveimur.

Winona treystir ekki karlmönnum

Leikkonan Winona Ryder segist eiga erfitt með að treysta karlmönnum því frægðin geri það að verkum að ókunnugt fólk viti ótrúlegustu hluti um hana.

Góður fílingur í gosverksmiðju

Gosverksmiðjan Klettur sem hefur hafið framleiðslu á Kletta gos og Kletta vatni hélt opnunarhóf í gær. Eins og meðfylgjandi myndir sýna var mannskapurinn í góðum fíling. Klettur bauð birgjum, hönnuðum og öðrum velunnurum fyrirtækisins að skoða verksmiðjuna. Fjöldi fólks lagði leið sína í hófið til að fagna með eigendum á þessum stóru tímamótum.

Nýir húsbændur á Mótel Venus

„Staðurinn þurfti mikilla breytinga við og nafnabreyting var stór hluti af því, til að gefa staðnum nýjan blæ,“ segir Veigar Freyr Jökulsson, sem hefur tekið við rekstri Hótels Brúar í Borgarfirðinum, sem hét áður Mótel Venus.

Hlakkar til jólanna

Leikkonan Liv Tyler segir í viðtali við tímaritið People að hún hafi ekki gaman af því að fara á stefnumót. Leikkonan hefur verið á lausu frá því hún skildi við eiginmann sinn árið 2008.

Hayek var ólögleg

Leikkonan Salma Hayek viðurkennir í viðtali við tímaritið V Magazine Spain að hún hafi verið ólöglegur innflytjandi í Bandaríkjunum fyrst þegar hún kom til landsins.

Það leiddist engum í þessu jólaglöggi

SkjárEinn bauð til heljarinnar jólaveislu á veitingahúsinu Cafe Oliver - beint á móti Jólaþorpinu á Laugavegi í gærkvöldi. Stöðin bauð gestum og gangandi upp á heitt jólaglögg, kakó og piparkökur. Eins og sjá má á myndunum spjölluðu sjónvarpsstjörnurnarnar Karl Berndsen, Hrefna Rósa, Tobba Marinós og Sölvi Tryggvason við gesti á milli þess sem þær árituðu bækurnar sem þau gefa út fyrir jólin.

Jólaboð Ásdísar Ránar

Meðfylgjandi myndir voru teknar í jólaboði Ásdísar Ránar á skemmtistaðnum RE-PLAY á Grensásvegi í gærkvöldi. Ásdís Rán áritaði Playboy-blaðið sem hún sat fyrir í ásamt því að kynna nýju snyrtivörulínuna sína og Sigríður Klingenberg spáði fyrir gestum. Eins og sjá má í myndaalbúminu leiddist engum í jólaboðinu þar sem meðal annars var boðið upp á piparkökur. Hér má sjá Ásdísi árita.

Hreimur hræðir Cole

Cheryl Cole vinnur nú að því að verða stjarna í Bandaríkjunum og er á góðri leið með að takast það. Hún verður dómari í bandarískri útgáfu X-Factor á næstunni, en óttast þó að breski hreimurinn skemmi fyrir henni. Hún vill fá þjálfun í að tala eins og Bandaríkjamaður.

Norskar húfur nefndar eftir Sigur Rós

„Ég er mjög mikill aðdáandi Sigur Rósar og Jóns og nafnið er augljóslega vísun í lag hljómsveitarinnar,“ segir Petter Foshaug, stofnandi norska húfuframleiðandans Hoppipolla Headwear.

Klessukeyrði Jagúar-bílinn

Söngvarinn Nick Cave ók Jagúar-bifreið sinni á hraðamyndavél og vegrið í heimabæ sínum Hove á Englandi. Tíu ára tvíburasynir hans voru með honum í bílnum, sem skemmdist töluvert, en engan sakaði. Enginn annar bíll kom við sögu í slysinu og ekki er vitað hvað olli því. Cave var ekki handtekinn og virðist hann því ekki hafa verið undir áhrifum vímuefna.

Suede í stórri höll

Breska poppsveitin Suede, sem kom nýlega saman eftir nokkurra ára hlé, spilaði á sínum stærstu tónleikum innandyra til þessa á þriðjudagskvöld. Tónleikarnir voru haldnir í O2-höllinni í London, sem tekur ríflega tuttugu

Vilja Smith sem Hróa

Svo gæti farið að Will Smith leiki Hróa hött í nýrri mynd Wachowski-bræðranna um þennan sokkabuxnaklædda Skírisskógsbúa. Systkinin munu að öllum líkindum leikstýra myndinni Hood hjá Warner Bros samsteypunni og vilja þau að Smith leiki aðalhlutverkið. Ef Smith þekkist boðið fetar hann í

Fyrsta upplag uppselt

Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson hélt vel heppnaða tónleika í Tjarnarbíói í vikunni ásamt hljómsveit sinni Ritvélum framtíðarinnar. Tilefnið var önnur plata hans, Allt er eitthvað, sem kom út í október. Þar er meðal annars að finna sumar­smellinn Hamingjan er hér.

Gosling og Blake Lively nýtt par

Samkvæmt slúðursíðunni Lainey­Gossip eru Ryan Gosling og Blake Lively heitasta parið í Hollywood um þessar mundir. Parið sást fyrst saman í október, stuttu eftir að Lively hætti með Penn Badgley, mótleikara sínum í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl.

Frú Brand

Bandaríska söngkonan Katy Perry hyggst breyta nafni sínu og taka upp eftirnafn eiginmanns síns, grínistans Russells Brand. Perry og Brand hafa verið gift í tvo mánuði og í viðtalsþætti Ellen DeGeneres viðurkenndi Perry að hún ætlaði sér að taka upp eftirnafn eiginmannsins og verða frú Brand.

Ólafur ein af stjörnum Ólympíulistahátíðar í London

„Þegar menn eru búnir að reisa fossa í New York og byggja sól er þetta kannski rökrétt framhald,“ segir Börkur Arnarson hjá listgalleríinu i8, einn nánasti samstarfsmaður Ólafs Elíassonar hér á landi.

Snjóþyngsli töfðu útgáfu

Fjórða plata Benna Hemm Hemm, Skot, er loksins komin út, rúmum mánuði á eftir áætlun. Ein af ástæðunum er hinn mikli snjóþungi sem hefur verið í Bretlandi upp á síðkastið en þar var gripurinn framleiddur.

Finnst ævisaga Keiths leiðinleg

Mick Jagger, söngvari The Rolling Stones, segir að sjálfsævisaga gítarleikarans Keiths Richards, Life, sé leiðinleg og að hann myndi aldrei skrifa sögu í svipuðum dúr.

Ekki saman um jólin

Jude Law mun eyða jólunum með börnum sínum og fyrrverandi eiginkonu, hönnuðinum Sadie Frost. Kærasta Law, leikkonan Sienna Miller, verður þó fjarri góðu gamni.

Ekkert bótox

Carey Mulligan fékk eitt sinn þær ráðleggingar frá húðlækni sínum að hún ætti að fá sér bótox til að fjarlægja hrukkur í kringum augun. Mulligan hefur leikið í kvikmyndum á borð við An Education og Wall Street: Money Never Sleeps.

Milljarðs dala konan

Jessica Simpson hefur ekki náð sér á strik í tónlistarbransanum undanfarin ár. Hún gerði misheppnaða tilraun til að gerast kántrísöngkona fyrir tveimur árum og fréttir af óánægðum tónleikagestum bárust eins og eldur í sinu um netheima. Tilraunin reyndist vera salt í sár Simpson, sem virtist ennþá vera

Depp þakkar Brando fyrir ferilinn

Johnny Depp þakkar Marlon Brando fyrir góð ráð og að hafa raunar lagt grunninn að ferli hans, í viðtali við breska blaðið The Sun. Brando og Depp léku saman í tveimur myndum, Don Juan og The Brave, en það er fyrsta og eina kvikmyndin í fullri lengd sem Depp hefur leikstýrt. Þeir urðu miklir vinir og Brando leiddi hann í allan sannleika um hvernig væri best að ná árangri í Hollywood.

Rómantísk á Facebook

Leikarahjónin Ashton Kutcher og Demi Moore eru dugleg við að lýsa ást sinni hvort á öðru á síðunum Twitter og Facebook. Fimm ár eru liðin síðan þau gengu upp að altarinu og ást þeirra hefur aldrei verið sterkari. „Að senda eitthvað sætt á Twitter eða Facebook er gaman,“ skrifaði hinn 32 ára Kutcher í pistli fyrir tímaritið Harper"s Bazaar sem nefnist: „Hafa textaskilaboð eyðilagt rómantíkina?“ „Á ýmsan hátt er það ekkert öðru

Maður verður seint ríkur á dauðarokkinu

Liðsmenn dauðarokks­sveitar­innar Beneath hafa samið við bandarískt plötufyrirtæki um útgáfu og dreifingu á tónlist sinni á heimsvísu. „Við erum allir mjög sáttir. Þetta er það sem við erum búnir að vera að stefna að,“ segir Gísli Sigmundsson úr dauðarokkssveitinni Beneath.

Glæsileg á tískuhátíð

Það er óhætt að fullyrða að klæðnaður gesta á Bresku tískuverðlaununum hafi verið útpældur en verðlaunin fóru fram fyrr í vikunni. Bretland er löngum þekkt fyrir að vera framarlega á tískusviðinu og hefur getið af sér fjölmarga góða fatahönnuði. Fyrrverandi poppstjarnan og nú fatahönnuðurinn Victoria Beckham stal senunni þegar hún heiðraði samkomuna með nærveru sinni.

Angelina Jolie vill vernda börnin

Leikkonan Angelina Jolie var gestur í spjallþætti Larry King fyrr í vikunni og ræddi þar um móðurhlutverkið og alla þá athygli sem fjölskyldan fær.

Jólatónleikar Melchior

Jólatónleikar Melchior verða í Landnámssetrinu í Borgarnesi í kvöld klukkan 20.30. Þar verður einnig fiskisúpa í boði. Heiðursgestur verður Ólafur Flosason sem lék á óbó með hljómsveitinni fyrir þrjátíu árum. Helstu lög Melchior verða leikin í bland við það nýjasta úr smiðju sveitarinnar. Hún gaf nýverið út tvöföldu plötuna

Laus og liðug

Söngvarinn Nick Cave ók Jagúar-bifreið sinni á hraðamyndavél og vegrið í heimabæ sínum Hove á Englandi. Tíu ára tvíburasynir hans voru með honum í bílnum, sem skemmdist töluvert, en engan sakaði. Enginn annar bíll kom við sögu í slysinu og ekki er vitað hvað olli því. Cave var ekki handtekinn og virðist hann því ekki hafa verið undir áhrifum vímuefna.

Vill verða þekktari en Lady Gaga

Söngkonan unga Willow Smith vonast til að hún verði einhvern tímann jafn fræg og Lady Gaga. „Mig langar að verða mjög þekktur listamaður. Jafn þekktur listamaður og Lady Gaga, og jafnvel þekktari en hún,“ sagði Willow nýverið við breska tónlistartímaritið NME. Willow, sem er dóttir söngvarans

Þorgrímur með tvær á toppnum

Lífið leikur við barnabókahöfundinn Þorgrím Þráins­son um þessar mundir. Tvær bóka hans eru á lista yfir mest seldu bækur landsins.

Krummi dustar rykið af plötunum sínum

„Það verður spiluð tónlist frá eldri tímum eins og blús og kántrý í bland við nýrra," svarar Krummi Björgvinsson tónlistarmaður spurður hverng tónlist hann ætlar að spila á Boston barnum á Laugavegi 28b í kvöld. „Ég hef ekki plötusnúðast lengi þannig að ég ákvað að dusta af nokkrum plötum og gera mér góða kvöldstund með góðu fólki," svarar hann spurður hvert sé tilefnið.

Ekki viltu fleiri börn Angelina?

Leikkonan Angelina Jolie, 35 ára, opnaði sig í sjónvarpsþætti Larry King varðandi barneignir með unnusta hennar Brad Pitt eins og sjá má í myndskeiðinu. „Engin plön akkúrat í augnablikinu," sagði leikkonan í gær en bætti við: En við erum alltaf opin fyrir hugmyndinni (að eignast fleiri börn)." Angelina ræðir einnig um stöðugt áreiti sem hún og Brad, 46 ára, verða fyrir öllum stundum.

Þolir ekki síma

Stórleikarinn Johnny Depp segist ekki eiga síma, þar sem hann vilji ekki láta ná í sig hvenær sem er.

Brakfögnuður á Faktorý

Hljómplötuútgáfan Brak heldur tónleikakvöld á Faktorý Bar við Smiðjustíg í kvöld þar sem hljómsveitir útgáfunnar koma fram.

Morrissey tekur undir með Marr

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fékk á baukinn hjá Johnny Marr, gítarleikara hinnar sálugu hljómsveitar The Smiths, í síðustu viku. Marr sagði tónlist hljómsveitarinnar ekki vera fyrir Cameron, sem lýsti nýlega yfir að hann væri aðdáandi The Smiths.

Margslunginn Lewis

Sennilega hafa engar barnabækur verið jafn umdeildar og Narníu-bækurnar. Fræðimenn hafa rifist um duldar merkingar þeirra, falin skilaboð og hvað í ósköpunum höfundurinn C.S Lewis var að reyna að segja. Þriðja myndin í Narníu-flokknum, Voyage of the Dawn Treader eða Sigling Dagfara, verður frumsýnd um helgina. Hinar myndirnar tvær hafa hlotið

Sjá næstu 50 fréttir