Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glæsileg tískusýning hjá Kiss Tískuvöruverslunin Kiss hélt veglega tískusýningu á skemmtistaðnum Spot fyrir skemmstu. Húsfyllir var og góðir gestir fylgdust með fyrirsætum spranga um á sýningarpöllum en einnig var boðið upp á veglega líkamsmálningarsýningu sem vakti mikla athygli meðal gesta. 9.12.2010 12:00
Grant gerir upp fortíðina John Grant á bestu plötu ársins að mati breska tónlistartímaritsins Mojo. Þar slær þessi áður óþekkti tónlistarmaður við stórum nöfnum á borð við Arcade Fire og MGMT. 9.12.2010 12:00
Skemmtir sér í Stokkhólmi Leikarinn Denzel Washington setur víst svip á skemmtanalífið í Stokkhólmi þessa dagana. Heiðraði hann vinsælan skemmtistað á Stureplan með nærveru sinni og gestir staðarins sneru sig úr hálslið þegar þeir sáu Hollywood-leikarann sýna mikla fimi á dansgólfi staðarins. Ástæðan fyrir dvöl Washingtons í Stokkhólmi er sú að hann er að hlaða batteríin áður en hann heldur til Oslóar og verður kynnir á hinum árlegu tónleikum Nóbelsverðlaunanna ásamt leikkonunni Anne Hathaway. 9.12.2010 11:30
Fyrsta plata Páls í fimm ár „Þetta eru perlur frá gamalli tíð,“ segir söngvarinn Páll Rósinkrans. Páll hefur gefið út plötuna Ó hvílík elska sem inniheldur fjórtán lög úr ýmsum áttum. „Ég hef verið að syngja þessi lög við ýmis tækifæri, bæði sorgleg og glaðleg. Íslenska þjóðarsálin að mörgu leyti,“ segir hann. 9.12.2010 11:00
Flott klæddar á frumsýningu Vanalega er rauði dregillinn á frumsýningum í Hollywood samur við sig, mikið af stuttum kjólum og glamúrinn allsráðandi. Það var því ánægjulegt að sjá hversu margir smekklegir gestir mættu á frumsýningu nýjustu myndar Sofiu Coppola, Somewhere. Það er kannski ekki við öðru að búast þegar hún er annars vegar enda er hún talin mikil tískufyrirmynd í Evrópu. Leikaralistinn er einnig áhugaverður en þar má meðal annarra sjá nöfn á borð við Erin Wasson, fyrirsætu og fatahönnuð. 9.12.2010 10:00
Erlendir aðdáendur til Íslands Alls munu 192 útlendingar frá 21 landi fljúga hingað til lands gagngert til að fylgjast með tónleikum Jónsa í Laugardalshöllinni 29. desember. Flestir koma frá Bandaríkjunum og Bretlandi, eða 98 talsins, 34 koma frá Frakklandi og Þýskalandi og tíu frá Japan. Aðrir aðdáendur Jónsa koma meðal annars frá Rússlandi, Ástralíu, Mexíkó og Ítalíu. 9.12.2010 09:00
Vatnið í mikilvægu hlutverki í Dexter „Flott, ég verð að sjá þennan þátt,“ segir athafnamaðurinn Jón Ólafsson, stjórnarformaður og annar af stofnendum Icelandic Water Holdings. Vatn Jóns og félaga, Icelandic Glacial, er í mikilvægu hlutverki í fjórða þætti í fimmtu seríu Dexter, sem sýnd er um þessar mundir í Bandaríkjunum. 9.12.2010 09:00
Potts og Rybak vilja endurtaka leikinn að ári Björgvin Halldórsson bauð upp á sannkallaða jólaveislu þegar hann tók á móti gestum sínum á glæsilegu sviði Laugardalshallarinnar um helgina. Erlendu gestirnir voru himinlifandi og sögðu tónleikana hafa verið á heimsmælikvarða. 9.12.2010 08:30
Viðkvæm á nýrri plötu Fjórða plata söngkonunnar Avril Lavigne, Goodbye Lullaby, kemur út í mars. „Ég eyddi miklum kröftum í hana og hélt aldrei aftur af mér,“ sagði Lavigne um gerð plötunnar. „Ég leyfði mér að vera viðkvæmari en áður. Ég held að fólk tengist best í gegnum þessar sönnu stundir í lífinu. Platan snýst um það hvernig við göngum í gegnum erfiða lífsreynslu, hvort sem það eru endalok ástarsambands, starfsmissir eða að missa einhvern nákominn sér. Við komumst öll í gegnum þetta og þroskumst,“ sagði hún. Fyrsta smáskífulagið af plötunni nefnist What the Hell og er væntanlegt síðar í mánuðinum. 9.12.2010 08:00
Blanchett í Hobbitann Óskarsverðlaunaleikkonan Cate Blanchett mun endurtaka hlutverk sitt úr The Lord of the Rings sem álfakonan Galadriel í Hobbitamyndunum tveimur sem eru í bígerð. Leikstjórinn Peter Jackson er hæstánægður með liðsstyrkinn og segir Blanchett vera í miklu uppáhaldi hjá sér. Hann leikstýrði þríleiknum Lord of the Rings og mun halda því áfram í Hobbitanum sem fjallar um atburði sem áttu sér stað á undan Hringadróttinssögu. 9.12.2010 08:00
Potter-gengið sameinað á ný Rándýr mistök sem áttu sér stað við tökur á lokamynd ævintýranna um galdrastrákinn þýða að Potter-gengið þarf að öllum líkindum að endurnýja kynnin. 9.12.2010 07:30
Björk söng fyrir McQueen Fatahönnuðurinn Alexander McQueen fékk heiðursverðlaun á bresku tískuverðlaununum á þriðjudagskvöldið en hann féll fyrir eigin hendi fyrr á þessu ári. Hans var sérstaklega minnst á hátíðinni og sýnd var stuttmynd eftir ljósmyndarann Nick Knight sem var einn nánasti vinur og samstarfsfélagi McQueens. Þar mátti heyra nýtt lag eftir Björk Guðmundsdóttur en almennt er talið að Björk eigi heiðurinn af því að hafa komið McQueen á framfæri við umheiminn. 9.12.2010 07:00
Munnmök orka tvímælis Mikið hefur verið rætt um sjóðandi heitt kynlífsatriði Natalie Portman og Milu Kunis í kvikmyndinni Black Swan. Atriðið þykir þó nógu saklaust til að fá „Rated R“-stimpil í Bandaríkjunum, sem þýðir að flest kvikmyndahús sýna myndina. 9.12.2010 06:30
Bigelow með nýja mynd Kathryn Bigelow, sem fékk Óskarinn í fyrra fyrir The Hurt Locker, er búin að fá Tom Hanks til að leika í stórmyndinni Triple Frontier. Og Karl Júlíusson til að hanna leikmyndina eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá. 9.12.2010 06:00
Vill snáka sem gæludýr Leikkonan Nicole Kidman vill eignast snáka sem gæludýr um leið og tveggja ára dóttir hennar Sunday Rose verður eldri. Kidman býr á sveitabýli í Tennessee með eiginmanni sínum, sveitasöngvaranum Keith Urban. Þar eru alls konar dýr en engir snákar. „Mig langar einhvern tímann að eignast fleiri skrítin dýr. Ég væri til í eignast snáka því ég elska þá. Það er samt ekki sniðugt að vera með þá innan um barnið,“ sagði hún í viðtali við spjallþáttastjórnandann Conan O"Brien. 9.12.2010 06:00
Úr tískunni í gosdrykkina „Ég ætlaði að koma að skoða hjá þeim verksmiðjuna því ég þekki þá sem eru að gera þetta. Svo sá ég hvað þetta var stórt og ákvað að rissa upp fyrir þá útlit. Þeir féllust bara á að það væri málið,“ segir tísku- og grafíski hönnuðurinn Mundi Vondi. 9.12.2010 06:00
Tvö ár fyrir að skera Leo Kona sem var ákærð fyrir að hafa skorið andlit leikarans Leonardo DiCaprio með brotnu glasi hefur verið dæmd í tveggja ára fangelsi. Atvikið átti sér stað árið 2005 í partíi í Hollywood. Konan lýsti upphaflega yfir sakleysi sínu og vildi meina að hún hefði haldið að DiCaprio væri fyrrverandi kærasti sinn. Hún átti yfir sér allt að sjö ára fangelsi en ákvað að játa sektina gegn því að dómurinn yrði styttur. Eftir að konan hefur afplánað dóm sinn verður hún flutt til heimalands síns, Kanada. 9.12.2010 06:00
Sögulegir endurfundir í sjónmáli Óskarsverðlaunaleikstjórinn Danny Boyle útilokar ekki að gera framhald af hinni mögnuðu Trainspotting sem var byggð á samnefndri bók Irvine Welsh. Myndin sló eftirminnilega í gegn í Evrópu og markaði upphaf að glæstum ferli Ewans McGregor. Boyle viðurkenndi á blaðamannafundi að þetta væri raunhæfur möguleiki en þetta þýddi að Boyle og McGregor yrðu að grafa stríðöxina. 9.12.2010 05:00
Auglýsingamyndir Eyjafjallajökuls ilmvatnsins Meðfylgjandi má sjá allra fyrstu frumsýningu af auglýsingamyndum ilmsins EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja þar sem Sigrún Lilja Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Gyðju er andlit ilmsins. Myndirnar verða notaðar í markaðssetningu á ilmvatninu hérlendis og erlendis en salan á ilminum hefst um helgina. 8.12.2010 14:19
Dönsuðu allsberir með hatt á kynfærunum Meðfylgjandi myndir voru teknar á konukvöldi sem haldið var á skemmtistaðnum Players 3. desember síðastliðinn. Fjöldi kvenna mætti og skemmti sér konunglega. Sigríður Klingenberg stjórnaði fögnuðinum, Beggi og Pacas töfruðu fram frábæra rétti, Bjarni Töframaður spilaði réttu tónlistina, Brynja Valdís leikkona var með uppistand og jólasveinar fækkuðu fötum eins og sagði í tilkynningunni og greinilega má sjá á myndunum. 8.12.2010 12:49
Gekkst undir höfuðaðgerð og fékk nýja sýn á lífið Sigrún Linda Karlsdóttir listakona sem málar meðal annars myndir af stjörnumerkjunum tólf, sem skoða má á stjörnumerki.is, gekkst undir stóra höfuðaðgerð fyrir tveimur árum. Þá breyttust áherslur hennar og hún gerði sér grein fyrir því hversu fallvalt lífið er. „Ég hef haft áhuga á að teikna síðan ég man eftir mér," svarar Sigrún og heldur áfram: 8.12.2010 08:53
Skálmöld bókuð á stærstu þungarokksútihátíð heims Þrátt fyrir að hafa starfað í stuttan tíma er hljómsveitin Skálmöld tilbúin með plötu, búin að skrifa undir útgáfusamning og á leiðinni á risastóra þungarokkshátíð í Þýskalandi á næsta ári. 8.12.2010 14:00
Rétt missti af gullinu Nýjasta plata rapparans Kanye West, My Beautiful Dark Twisted Fantasy, fór beint í efsta sætið á bandaríska vinsældalistanum sína fyrstu viku á lista. Þetta er fjórða plata West sem nær þessum merka áfanga. Alls seldust 496 þúsund eintök af plötunni og vantaði því aðeins fjögur þúsund upp á að hún næði gullsölu. Nýjasta platan hefur selst aðeins betur en hans síðasta, 808 and Heartbreaks, sem kom út fyrir tveimur árum. Besta árangrinum náði West með plötunni Graduation sem seldist í 957 þúsund eintökum árið 2007. 8.12.2010 13:00
Hjaltalín til Evrópu Hljómsveitin Hjaltalín heldur á sunnudag í tónleikaferð til Þýskalands og Belgíu og stendur ferðin til 18. desember. Tónleikarnir verða sex talsins og verða fimm þeirra í Þýskalandi. Snorri Helgason mun hita upp á tónleikunum í Þýskalandi. 8.12.2010 12:00
Gillz býður rithöfundum í Burn-partí „Ég hef aldrei verið jafn ánægður á ævinni,“ segir Egill „Gillzenegger“ Einarsson rithöfundur. 8.12.2010 11:00
Vill meiri illsku Gamanleikarinn Will Ferrell er orðinn þreyttur á því að leika sömu persónurnar og vill spreyta sig á vondum körlum í auknum mæli. Hann lék hinn illa Mustafa í Austin Powers-myndunum og hafði mjög gaman af því. „Ég hef ekki fengið að prófa þetta nógu oft. Mustafa var vondur en hann var í aukahlutverki og entist ekki lengi,“ sagði Ferrell. „Illska hans fékk ekki að njóta sín nógu vel.“ 8.12.2010 10:30
Fyrsta platan í febrúar Ný hljómsveit Liams Gallagher, Beady Eye, gefur út sína fyrstu plötu 28. febrúar. Hún nefnist Different Gear, Still Speeding og hefur að geyma þrettán lög, þar á meðal fyrsta smáskífulagið Bring the Light. Einnig eru á plötunni lög á borð við Four Letter Word, Millionaire og Beatles and Stones. Upptökustjóri plötunnar er Steve Lilywhite, sem er þekktastur fy 8.12.2010 10:00
Fá skemmtikrafta í skólaverkefni „Þetta á að vera svona spjallþáttur svipaður Loga í beinni, nema með Mána,“ segir Fannar Sveinsson, nemi í Kvikmyndaskóla Íslands. 8.12.2010 09:00
Fagna plötuútgáfu Plötuútgáfan Record Records ætlar að fagna uppskeru ársins með veglegri tónleikaveislu á Faktorý á föstudags- og laugardagskvöld. Ensími, Bloodgroup, Of Monsters and Men og Sing For Me Sandra stíga á svið fyrra kvöldið en Agent Fresco, Moses Hightower, For a Minor Reflection og Útidúr á því síðara. 8.12.2010 08:00
Dóttir Jims Carrey skilin Dóttir gamanleikarans Jims Carrey, Jane, hefur skilið við eiginmann sinn Alex Santana eftir einungis eins árs hjónaband. „Þau verða áfram vinir og munu annast í sameiningu uppeldi níu mánaðar sonar þeirra,“ sagði blaðafulltrúi leikarans. Jane Carrey, sem er 23 ára, eignaðist Jackson Riley, eina barn 8.12.2010 07:00
Arnaldur og Yrsa að stinga af í jólabókaflóði ársins „Þetta er alveg magnað, við höfum prentað tíu þúsund eintök og höfum núna selt sjö þúsund. Þetta er hennar langbesta byrjun á jólabókavertíðinni og allt útlit fyrir að hún slái eigið sölumet,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Veröld. 8.12.2010 06:00
Leitað að röddum í kór Hörpunnar „Við erum að fara í þessa leit til að undirstrika að Harpan er tónlistarhús allra Íslendinga,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpunnar. 7.12.2010 13:00
Langþráð vítamínsprauta Þögnin hefur verið rofin því fyrsta plata Apparat Organ Quartet í átta ár, Pólýfónía, er loksins að koma út. Útgáfutónleikar verða á Nasa á fimmtudagskvöld þar sem öllu verður tjaldað til. 7.12.2010 12:00
Gerir grín að Jóni stóra Helgi Jean Claesson hefur sent frá sér bók þar sem hinn umdeildi Jón stóri er til umfjöllunar. „Ég sá hann fyrst í ræktinni. Þá kom hugmyndin upp þegar ég sá hann tróna yfir öllum,“ segir rithöfundurinn og spéfuglinn Helgi Jean Claessen. Hann hefur gefið út sína fjórðu ádeilubók og í þetta sinn er hinn umdeildi Jón stóri, eða Jón Hilmar Hallgrímsson, í forgrunni. Jón var í fjölmiðlum fyrr á árinu í tengslum við Kúbverjamálið svokallaða.?- 7.12.2010 10:00
Spáir ekki í Simpson Nick Lachey, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Jessicu Simpson, er nú trúlofaður kærustu sinni, sjónvarpsstjörnunni Vanessu Minnillo. Stuttu eftir að trúlofun Lachey og Minnillo var gerð opinber lýsti Simpson því yfir að hún væri einnig trúlofuð sínum kærasta. Lachey segist þó lítið hafa velt sér upp úr þessari tilviljun. 7.12.2010 09:30
Ingó fluttur í fyrstu íbúðina „Þetta leggst bara vel í mig,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó eins og hann er jafnan kallaður, en hann er fluttur frá Selfossi og í sína fyrstu íbúð. Fréttablaðið sagði frá því í september að Ingó væri búinn að festa kaup á íbúð í Gerðunum í Reykjavík og áætlað væri að hann myndi flytja inn í byrjun desember. Hann er nú fluttur inn og byrjaður að innrétta. 7.12.2010 09:00
Ellen fagnar plötuútgáfu Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir heldur útgáfutónleika á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 21. Tilefnið er útgáfa plötunnar Let Me Be There sem var tekin upp í samstarfi við gítarleikarann Pétur Hallgrímsson. Tíu lög eru á plötunni, átta eftir Pétur en hin tvö eftir Ellen. Auk þeirra tveggja spila á plötunni Jakob 7.12.2010 08:00
André Bachmann lagður inn á sjúkrahús „Hann vaknaði um daginn með þvílíka magapínu sem endaði með því að hann var lagður inn,“ segir Jóhannes Bachmann, bróðir André Bachmann sem hefur skipulagt jólaball fatlaðra undanfarin ár. 7.12.2010 06:00
Þessi köttur er algjör rúsína Á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í útgáfuboði rithöfundarins Belindu Theriault sem skrifaði bók um köttinn Birtu, er kisan algjör rúsína. Það vakti mikla lukku viðstaddra þegar Birta áritaði bókina í Máli og menningu um helgina. 6.12.2010 07:55
Guðmundur hannar fyrir GK Guðmundur Jörundsson mun hanna klassísk hversdagsföt fyrir verslunina GK. Hann verður þó áfram yfirhönnuður hjá Kormáki & Skildi. Guðmundur Jörundsson fatahönnuður hefur verið ráðinn til að hanna nýja herrafatalínu fyrir tískuverslunina GK Reykjavík. Guðmundur lætur þó ekki af störfum sem yfirhönnuður Herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar heldur mun hann sinna báðum verkefnum. 6.12.2010 12:00
Ástin er bara í myndböndunum Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrirsæta hjá Eskimo, lék nýverið í tónlistarmyndbandi við nýtt jólalag hinnar vinsælu hljómsveitar Hurts. Þetta er í annað sinn sem Anna Þóra leikur í myndbandi með hljómsveitinni en í bæði skiptin leikur hún stúlkuna sem söngvari hljómsveitarinnar, Theo Hutchcraft, er hugfanginn af. 6.12.2010 10:00
30 erlend forlög bítast um bók Óskars „Ég held að það hljóti að vera einsdæmi að svo margir sýni frumraun íslensks höfundar slíkan áhuga,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. 6.12.2010 08:00
Winona leikur að nýju Winona Ryder var ein vinsælasta leikkonan í Hollywood á tíunda áratugnum og lék hún meðal annars í kvikmyndum á borð við Edward Scissorhands, Dracula og Reality Bites. 5.12.2010 22:00
Glee-leikarar hætta Ryan Murphy, höfundur hinna vinsælu þátta um krakkana í Glee, hefur tilkynnt að meirihluti leikaranna muni líklegast hætta árið 2012. Ástæðan ku vera sú að persónurnar í þáttunum verða þá útskrifaðar úr menntaskóla og því þurfi aðrir leikarar að taka við. 5.12.2010 20:45
Jessica ekki ólétt Slúðurmiðlar vestanhafs hafa haldið því fram að söngkonan Jessica Simpson beri barn undir belti. 5.12.2010 19:30