Fleiri fréttir

Húðflúr stór mistök

Sjónvarpsstjarnan sem varð hönnuður, Nicole Richie, lét húðflúra orðið jómfrú eða „virgin" á úlnliðinn á sér þegar hún var sextán ára.

Milljónir hlusta á söng stúlknanna í The Charlies

Stúlkurnar í hljómsveitinni The Charlies, þær Alma Guðmundsdóttir, Steinunn Camilla Sigurðardóttir og Klara Elíasdóttir, halda áfram að vekja verðskuldaða athygli í Borg Englanna. Nýverið bauðst þeim að syngja kynningarlag hins vinsæla sjónvarpsþáttar Dancing With The Stars, en þátturinn er með svipað áhorf og American Idol í Bandaríkjunum.

Mátti ekki fljúga til Íslands

Everything Everything er eitt heitasta bandið sem spilar á Iceland Airwaves-hátíðinni í október. Söngvarinn Jonathan Higgs fékk aldrei að fara til Íslands þegar hann var lítill.

Bingó og Gay Pride

Suðurnesjasveitin Breiðbandið hefur gefið út sína þriðju plötu og nefnist hún Breiðbandið – Bætir á sig. Á plötunni er að finna lagið Popppunktur sem hljómsveitin notaði til að „væla“ sig inn í samnefndan sjónvarpsþátt. Önnur lög á plötunni fjalla um stjórnartíð Gordons Brown, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, bingó í Vinabæ og gleðigönguna Gay Pride. Eiginkonur og bjór koma einnig við sögu sem fyrr. Breiðbandið spilar næst á Ljósanótt í Reykjanesbæ í kvöld á stóra sviðinu.

Norrænt velferðarLókal

Lókal, alþjóðlegri leiklistarhátíð í Reykjavík, var hleypt af stokkunum í gær og stendur hún fram á sunnudag. Norræn leikverk eru í öndvegi á hátíðinni, en norræn samtímaleikritun hefur átt erfitt uppdráttar í íslenskum leikhúsum undanfarin ár.

Aulalöggurnar Will Ferrell og Mark Wahlberg

Allen Gamle og Terry Hoitz eru „hinar" löggurnar. Þeir fá auðveldustu málin, keyra ekki um á hraðskreiðum bílum né fylla líkama þjófa af blýi á götum úti.

Draugar Romans Polanski

Nafn Romans Polanski hefur oftar verið nefnt í tengslum við 33 ára gamalt dómsmál og Manson-fjölskylduna en kvikmyndagerð hans. Hann þykir þó sýna gamalkunna takta í sinni nýjustu mynd, Ghost Writer.

Fjölþreifinn en góður við konur

Kvennaljóminn velski, Tom Jones, segist alltaf hafa komið vel fram við konur, hann hafi til að mynda aldrei hugsað um kvenkynsaðdáendur sína sem „grúppíur“.

Verkjaði alls staðar

Sex and the City stjarnan, leikkonan Kim Cattral, segir að hana hafi verkjað í líkamann eftir að hafa mátað fötin sem hún klæddist í myndinni SATC II því mátunin tók heila eilífð að hennar mati.

Jolie og Depp náðu vel saman

Þýski leikstjórinn Florian Henckel von Donnersmarck var hissa að sjá og uppilfa hvað Johnny Depp og Angelina Jolie náðu vel saman á settinu. Florian, sem leikstýrir stjörnunum tveimur í væntanlegri kvikmynd sem ber heitið The Tourist segir að strax og Jolie og Depp hittust byrjuðu þau að hlæja og grínast eins og krakkar. “Johnny og Angie smullu strax saman. Ég sá það strax frá fyrsta fundi okkar," sagði leikstjórinn. Leikaraparið tengdist á einstakan hátt og sló á létta strengi. Það var virkilega gaman að vinna með þeim. Þau eru bæði með fjörugt ímyndunarafl og hlógu stöðugt og léku sér. Það kom mér líka á óvart að þau höfðu aldrei hist fyrr en núna. Ég er stoltur að hafa kynnt þau fyrir hvort öðru," sagði hann.

Rihanna í vax

Madame Tussaud-safnið í Washington afhjúpaði á þriðjudaginn vaxmynd af söngkonunni Rihönnu.

Ánægð með afturendann

Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kendra Wilkinson er óhrædd við að segja það sem hún hugsar en nú síðast lét hún hafa eftir sér á opinberum vettvangi að afturendinn á henni sé það stærsta og fallegasta á líkama hennar. Kendra sem varð fræg í sjónvarpsþáttunum um Hugh Hefner og stelpurnar hans í sjónvarpsþáttunum The Girls Next Door hefur lagt mikið á sig undanfarið til að komast í líkamlega gott form eftir að hún eignaðist son í desember á síðasta ári með eiginmanni sínum, fótboltahetjunni Hank Baskett. Rassinn á mér er það stærsta og fallegasta á líkama mínum akkúrat núna. Mér líður mjög vel með hann. Ég þarf meira að segja að berjast til fá Hank til að láta mig í friði," sagði Kendra.

Sakaður um framhjáhald

Leikarinn Ashton Kutcher er brjálaður þessa dagana því nú gengur sú kjaftasaga að hann haldi framhjá eiginkonu sinni, leikkonunni Demi Moore. Snemma í morgun upplýsti tímaritið Star að vitni sáu Ashton kyssa ljóshærða konu innilega og sú kona hefur verið gift honum síðustu fimm árin. Ég fékk sjokk við að sjá hann í hörkukerleríi við fallega unga konu sem var greinilega ekki Demi," er haft eftir vitni. Star heldur því fram að hjónaband Demi og Ashton standi á brauðfótum. Alveg frá byrjun var Demi sagt að sambandið myndi aldrei ganga upp og að hann myndi pottþétt svíkja hana. Hún verður eyðilögð og gjörsamlega niðurbrotin þegar hún fréttir þetta," var jafnframt haft eftir heimildarmanni.

Þrjóska heldur Baggalúti á lífi

„Sumarfríið var mjög gott, bæði fyrir okkur og sérstaklega fyrir lesendur. Núna erum við búnir að hlaða öll hugsanleg batterí," segir Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur.

Clooney í pólitíkina

Bandaríska stórstjarnan George Clooney er orðaður við ótal verkefni þessa dagana í Hollywood. Samkvæmt vef Empire-kvikmyndatímaritsins þykir líklegast að næsta kvikmynd hans verði Farragut North. Clooney hyggst ekki leika í myndinni heldur leikstýra en Farragut North yrði byggð á samnefndu leikriti Beu Willimons sem sett var upp á Broadway 2007 við góðar undirtektir gagnrýnenda.

Douglas vongóður um bata

Leikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi fyrir skemmstu og hefur nú lokið fyrstu viku sinni í meðferð. Douglas var gestur í spjallþætti Davids Letterman og þar ræddi hann opinskátt um veikindi sín.

Bieber kætir aðdáendur

Ungstirnið Justin Bieber kom aðdáendum sínum í New York nokkuð á óvart á tónleikum sínum síðastliðið þriðjudagskvöld. Í stað þess að standa einn á sviðinu og syngja sitt sykursæta popp fékk hann listamenn á borð við Usher, Boys II Men og Miley Cyrus uppá svið til sín.

Stolt af söguþræðinum

Bandaríska leikkonan Jessica Alba kveðst vera stolt af söguþræði kvikmyndarinnar Machete en myndin verður frumsýnd um helgina í Bandaríkjunum. Alba segist venjulega vera að skemmta fólki með leik sínum en er ánægð með að getað leikið í kvikmynd sem hafi sterkan pólitískan undirtón.

Garðurinn gerir garðinn frægan

Gerður Kristný hlaut í gær Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins fyrir skáldsöguna Garðinn. Gerður gleðst yfir athyglinni sem barna- og unglingabækur fá og ætlar að skrifa framhald að Garðinum.

Forsetinn á Skagaströnd

Fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra þjófstartar 200 ára afmælisdagskrá Jóns forseta Sigurðssonar og stendur fyrir málþingi 12. september í Bjarmanesi á Skagaströnd. Þingið ber yfirskriftina „Framtíð Jóns Sigurðssonar – Karlar á stalli og ímyndasköpun“. Þar munu einmitt nokkrir karlar stíga á stall og ræða með hvaða hætti minningin um Jón forseta sem leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni varð til og mótaðist í íslensku samfélagi á fyrstu áratugunum eftir andlát hans.

Afmælishátíð Party Zone um helgina

Á laugardagskvöld verður haldin vegleg hátíð á Nasa í tilefni af 20 ára afmæli útvarpsþáttarins Party Zone. Þar verður mikið um dýrðir og ætlunin er að fagna og hampa síðustu 20 árum danstónlistarinnar.

Lífið í rúst og hótelherbergið líka

Leikkonan Drew Barrymore, 35 ára, segist vera algjör sóði. Ekki nóg með það heldur er líf hennar í rúst. Leikkonan leigir iðulega hótelherbergi á ferðalögum sínum um heiminn sem hún segir líta út eins og svínastíur þegar hún dvelur þar. Hún líkir sér við pönkarann Sid Vicious þegar kemur að umgengni. Drew viðurkennir að hún er vanalega mjög skipulögð þegar kemur að framleiðslu kvikmynda og leik en þegar heimilisstörfin eru annars vegar er hún ómöguleg. Þið ættuð að sjá hótelherbergið sem ég gisti í akkúrat núna. Það lítur út líkt og Sid Vicious búi þar," sagði hún og bætti við: Svo er líf mitt gjörsamlega í rúst líka. Ég þarf virkilega að hringja í einhvern núna til að hjálpa mér því allt er að verða svo skrýtið í lífi mínu. Skrifborðið mitt er til dæmis í algjöru drasli, ég er hætt að skipuleggja mig og týni öllu."

Þrá afkvæmi

Leikkonan Anna Paquin, 28 ára, og eiginmaður hennar og mótleikari Stephen Moyer, 40 ára, þrá fátt annað en að eignast afkvæmi saman. Parið, sem leikur saman í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni True Blood sem sýnd er á Stöð 2 við miklar vinsældir, er byrjað að plana barneignir. Að eignast barn er efst á óskalistanum hjá Stephen og Anna telur að hún er einmitt á réttum aldri til að verða barnshafandi. Svo er hún í mjög góðu sambandi við stelpurnar hans Stephen en þær eru átta og tíu ára gamlar, er haft eftir nánum vini hjónanna. Hjónin fjárfestu í nýju heimili í Los Angeles nýverið með tilliti til þess að fjölskyldan stækkar innan tíðar.

Mikið líf í Latabæ

Mikið líf hefur verið í höfuð­stöðvum Latabæjar undanfarna daga. Þar hafa staðið yfir upptökur á nýrri þáttaröð sem verður með eilítið öðruvísi sniði en aðdáendur Latabæjar hafa átt að venjast og svo var tilkynnt um stofnun Íþróttaskóla Latabæjar.

Ræktuðu kartöflur á húsþaki

Anna Hrund Másdóttir og Sigríður Tulinius listakonur komu upp myndarlegum matjurtagarði á húsþaki við Hverfisgötu í sumar og ræktuðu þar meðal annars kál, kartöflur og kryddjurtir.

Spaugstofuhringnum lokað

Spaugstofan er komin yfir á Stöð 2 eftir tvo farsæla áratugi í Sjónvarpinu. Þátturinn verður með óbreyttu sniði og á sama tíma og áður, eða á laugardagskvöldum kl. 19.35. Meðlimir Spaugstofunnar undirrituðu tveggja ára samning við Stöð 2 í Þjóðmenningarhúsinu í gær um að ástsælasti sjónvarpsþáttur þjóðarinnar undanfarin tuttugu ár yrði þar á dagskrá frá og með 9. október.

Sjónvarpsveturinn skýrist

Haustdagskrá sjónvarpsstöðvanna er smám saman að skýrast. Spaugstofan er gengin til liðs við Stöð 2 en tilkynnt hefur verið um fimm aðrar leiknar þáttaraðir. Stöð 2 verður sem fyrr með flestar leiknu þáttaraðirnar. Sjónvarpsstöðin stendur auðvitað frammi fyrir þeim „vanda“ að engin vaktar-sería verður í ár en vinsældir þeirra eru einsdæmi í íslenskri sjónvarpssögu.

Halldór Laxness hálfgerður Forrest Gump Íslendinga

Afgangurinn af leyniskjölum bandarísku leyniþjónustunnar um Halldór Kiljan Laxness og dvöl hans í Hollywood er kominn í öruggt skjól bandaríska utanríkisráðuneytisins. Og þar með er talið ólíklegt að þau verði einhvern tímann gerð opinber þar sem skjöl í vörslu ráðuneytisins teljast varða þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Þetta segir Halldór Þorgeirsson, kvikmyndagerðarmaður og tengdasonur Halldórs, en hann hyggst gera heimildarmynd um nóbelskáldið. Halldór grunar að Bandaríkjastjórn hafi engra sérstakra hagsmuna að gæta með að breiða yfir skjölin með þessum hætti, þetta sé miklu frekar vinargreiði við einhverja Íslendinga. Fram kom í Fréttablaðinu snemma á þessu ári að bandaríski fræðimaðurinn Chay Lemoine hefði sömuleiðis komið að lokuðum dyrum í utanríkisráðuneytinu en fjölskylda Halldórs hefur fengið að sjá þrettán lítilfjörleg skjöl.

Hætt að drekka og dópa

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell, 40 ára, sér ekki eftir villtu líferni fortíðar en á þessum tímapunkti í lífi hennar segir hún að partíið sé búið. Fyrirsætan, sem hefur drukkið og dópað í gegnum tíðina, segist ekkis já eftir neinu. Það er alls engin eftirsjá af minni hálfu. Ég skemmti mér stórkostlega en núna er partíið búið því líf mitt hefur tekið stakkaskiptum," sagði Naomi. Naomi er á föstu með rússneska milljónamæringnum Vladislav Doronin sem hún er mjög ástfangin af. Sagan segir að brúðkaup sé í vændum en Naomi kýs að halda því út af fyrir sig. Burtséð frá því vill hún eignast börn. Þegar guð ákveður að það er rétt fyrir mig að eignast börn gerist það. Ég er óvirkur alki og eiturlyfjaneytandi og í dag er ég ekki í neyslu. Ég lifi fyrir einn dag í einu og kýs að hlutirnir gerist á náttúrulegan máta," sagði hún. Naomi nýtur þess að búa í Moskvu með ástinni sinni Vladislav.

Cruise varðveitir æskublómið

Leikarinn Tom Cruise hefur sett sér takmark sem hann hyggst ná á næstu mánuðum. Samkvæmt tímaritinu In Touch Weekly vill Cruise yngjast um tíu ár áður en tökur á kvikmyndinni Mission Impossible IV hefjast í lok ársins. „Tom er kominn í stranga líkamsþjálfun og æfir nú í þrjá klukkutíma á dag og borðar aðeins mat sem inniheldur fáar hitaeiningar,“ var haft eftir heimildarmanni.

Færri miðar en meiri gróði

Hagnaður kvikmyndahúsa í Bandaríkjunum jókst um hundrað milljónir dollara, rúma tólf milljarða íslenskra, frá því í fyrra þrátt fyrir að kvikmyndahúsagestum hafi fækkað umtalsvert. Þeir hafa raunar ekki verið færri síðan 2005 en alls voru 552 milljónir bíómiða seldar á þessu ári. Talið er að þar skipti mestu að kvikmyndahúsin eru farin að rukka hærra miðaverð á hinar svokölluðu þrívíddar-myndir en varla hefur verið þverfótað fyrir slíkri kvikmyndagerð á þessu ári eða síðan Avatar sló hvert miðasölumetið á fætur öðru.

Beit annan hund til bana

Hundur plötusnúðarins Samönthu Ronson hefur verið sendur burt af heimili hennar eftir að hann drap hund nágrannans. Ronson á bolabítinn Cadillac og hefur nú þurft að skilja við hundinn eftir að hann réðst á smáhund í eigu nágrannakonu. Hinn hundurinn, lítill Maltese hundur, hafði sloppið fram á gang þegar lætin byrjuðu. Hávaðinn vakti athygli nágranna sem þurstu þegar fram til að athuga málið en þá hafði Cadillac þegar drepið smáhundinn og síðan bitið eiganda hundsins þegar hún kom askvaðandi að.

Sjá næstu 50 fréttir