Fleiri fréttir

Mýrin inn á þrjátíu milljón heimili í Bandaríkjunum

Þrjátíu milljón heimili í Bandaríkjunum munu hafa aðgang að Mýrinni, kvikmynd Baltasar Kormáks, í gegnum nýja „Video on Demand" þjónustu IFC Entertainment. Baltasar segir IFC eitt stærsta „indie" dreifingarfyrirtæki í Bandaríkjunum og að samningurinn geti því haft mikil áhrif á framhaldið.

Lúxussnekkja Saddams til sölu á Íslandi

Lúxussnekkja Saddams Husseins, sem Vísir greindi frá að væri til sölu á dögunum, er nú skráð á sölu hjá Viðskiptahúsinu. „Þetta var bara gert í góðu gríni" segir Vilhjálmur Ólafsson, fasteigna og skipasali hjá Viðskiptahúsinu. „Mér þótti þetta bara fyndin frétt."

Jenna hætt að glenna

Leikkonan Jenna Jameson segist hætt að leika í klámmyndum. "Ég mun aldrei nokkurn tímann glenna fæturnar í þessum bransa aftur. Aldrei“ sagði stjarnan á AVN Adult Movie Awards, árlegri verðlaunahátíð klámmyndaiðnaðarins í Las Vegas um helgina.

Björk tilnefnd í flokknum besta alþjóðlega söngkonan

Tilkynnt var í kvöld að söngkonan Björk Guðmundsdóttir er tilnefnd til Bresku tónlistaverðlaunanna í flokknum besta alþjóðlega söngkonan. Auk Bjarkar eru þær Alicia Keys, Rhianna, Kylie Minoque og Feist tilnefndar.

Unnur Birna á nýjum bíl með fataskápinn í skottinu

Fegurðardrottingin og lögfræðineminn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fékk sér glænýjan og glansandi fínan Hyundai i30 á dögunum. Unnur var áður á jeppling, sem hún segir hafa hentað vel í hestamennskunni, en langaði í minni bíl til almennra nota. „Ég ákvað að minnka við mig og fara á smábíl fyrir innanbæjarsnattið", segir Unnur. Hún býr til skiptis í Árbæ og Garðabæ, og þarf því ekki að hafa áhyggjur af stæðum þar, en segir stærð bílsins hins vegar koma sér vel þegar þarf að leggja honum fyrir utann Háskólann í Reykjavík, þar sem hún lærir lögfræði.

Ebay neitar að selja yahoo.is

Uppboðssíðan eBay tók lénið yahoo.is, sem Garðar Arnarson kerfisstjóri hugðist selja þar, úr sölu vegna gruns um að það bryti í bága við höfundarréttarlög. Því er Garðar ekki sammála, en hann telur ekki að salan stangist á við höfundarréttarlög. Hann segir að yahoo sé fullgilt enskt orð, og að þó að Yahoo.com sé skrásett vörumerki, gildi það sama ekki um yahoo.is.

Stjörnurnar flykkjast til Keflavíkur

Beyonce er langt því frá eina stjarnan sem hefur gist í Keflavík á leið sinni yfir Atlantshafið. „Við erum hérna rétt við flugvöllinn og það er algengt að fræga fólkið detti hér inn út af seinkunum" segir Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hóteli Keflavík. „Við erum náttúrulega nafli alheimsins hér á Íslandi“, segir Steindór hlæjandi.

Tíu hús sem gætu verið mikilvægari en Svandís Svavarsdóttir

„Það er enginn pólitíkus merkilegri en Laugavegur 4-6 í mínum huga." Þessi orð hefur Morgunblaðið eftir Svandísi Svavarsdóttur, formanni skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, á fundi um skipulag miðborgarinnar um helgina. Hún sagði að það skipti því engu máli hver skipti um skoðun á hvaða tímapunkti eða hver ákvað hvað.

Beyonce leigði hæð á Hótel Keflavík

Söngdívan Beyonce gisti ásamt fylgdarliði á Hótel Keflavík í nótt, eftir að hafa millilent á Keflavíkurflugvelli á leið sinni vestur um haf. Poppstjarnan lætur sér ekki duga neitt slor og var öll fjórða hæð hótelsins bókuð undir hópinn.

Brúðgumi Baltasars frumsýndur

Brúðguminn, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks verður frumsýnd í Háskólabíói á miðvikudag. Myndin er systurverk leiksýningarinnar Ívanovs, eftir Anton Tsjekov, sem er sýnd í Þjóðleikhúsinu, og standa sömu leikarar og listrænu stjórnendur að verkefnunum tveimur.

Garðar Thor í vinsælum breskum sjónvarpsþætti

Garðar Thór Cortes kemur fram í sjónvarpsþætti Alan Titchmarsh á sjónvarpsstöðinni ITV í Bretlandi í dag. Þetta er í annað skipti sem Garðar er gestur í þættinum, en þegar hann kom í þáttinn til Alans í haust heillaðist þáttastjórnandinn upp úr skónum af tenórnum íslenska. Alan líkir Garðari fullum fetum við Pavarotti, og má segja að hann sé einn mesti aðdáandi Garðars í breskum fjölmiðlum.

Atonement besta myndín á Golden Globe

Golden Globe verðlaunin voru tilkynnt í gærkvöldi en þau þykja gefa góða vísbendingu um hverjir hljóti Óskarsverðlaun. Það var hin rómantíska breska mynd Atonement sem kosin var besta myndin

Fleiri fæðingar í Hollywood

Nicole Richie og kærasta hennar Joel Madden fæddist stúlka á föstudaginn. Stúlkan mun því eiga sama afmælisdaga og sonur söngkonunnar Christinu Aguilera sem hún átti sama dag.

Bæjarlistamaður Seltjarnaress

Kristín G. Gunnlaugsdóttir myndlistamaður var útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness í gær.

Eignaðist strák!

Söngkonan Christina Aguilera eignaðist dreng á föstudaginn. Erfitt hefur verið að fá það staðfest en erlendir fréttamiðlar halda því þó fram.

Egill Helga í sólinni með Engelbert Humperdinck

„Þá þóttist ég kenna að þarna væri kominn söngvarinn Engelbert Hupmerdinck sem var mjög vinsæll þegar ég var drengur,“ segir Egill Helgason á bloggsíðu sinni en hann hitti söngvarann í fríi á Barbados um helgina.

Pabbi Pennants selur blaðamanni eiturlyf

Breska götublaðið News of the world er þekkt fyrir allt annað en ófrumleika í fréttaflutningi sínum. Forsíða blaðsins í dag er tileiknuð föður knattspyrnukappans Jermaine Pennant sem lekur með Liverpool.

Austfirsku alparnir opnir í dag

Skíðasvæðið í Oddsskarði hefur oft verið nefnt austfirsku alparnir. Þeir jóðla af glæsileika í dag að sögn Dagfinns S Ómarssonar hjá skíðamiðstöðinni.

Íslendingur selur lystisnekkju Saddams Hussein

Viðskiptahúsið hefur sett í sölu lystisnekkjum Saddams Hussein fyrir rúmlega tvo milljarða króna. Undanfarin ár hefur skipið legið í höfn í Frakklandi en það er smíðað í Danmörku árið 1981.

Ronaldo kominn með nýja kærustu

Gulldrengurinn Cristiano Ronaldo er kominn með nýja kærustu. Þetta er fjórða sjónvarpsstjarnan sem hann er á föstu með í röð.

Boðið að berjast um Adrenalínbeltið

Gunnari Nelson bardagaíþróttamanni hefur verið boðið að taka þátt í baráttunni um Adrenalinebeltið í sínum þyngdarflokki í blönduðum bardagaíþróttum (MMA) á Adrenalinemótinu í Kaupmannahöfn 12. apríl.

Britney reynir að leika á fjölmiðla

Britney Spears setti á svið leikrit til þess að flýja fjölmiðla og endurheimta frelsi sitt. Í leikritinu var hún með tvær einkaþotur, nokkra öryggisverði, eðalvagna og jafnvel lögreglan var kölluð til aðstoðar.

Brad Pitt á Botoxi og grasi

Einn fegursti maður í heimi ku vera í krísu með útlitið. Að sögn Star tímaritsins hefur Brad Pitt sést í stuttum heimsóknum hjá bestu Botox -sérfræðingum í Hollywood, í þeirri von að endurvinni drengslegt útlit sitt.

Franskt forsetabarn á leiðinni

Nicolas Sarkozy og unnusta hans, Carla Bruni eiga von á barni, að sögn franskra fjölmiðla. Parið kynntist kynntist í samkvæmi 23. nóvember síðastliðinn, mánuði eftir að Sarkozy skildi við eiginkonu sína til tólf ára, Ceciliu Sarkozy.

Siggi Hall opnar nýjan stað

„Ég stefni að því að opna nýjan veitingastað á vori, undir sömu formerkjum, markmiðið er að hann verði besti veitingastaður á Íslandi." segir Sigurður Hall, meistarakokkur. Eins og kunnugt er hætti Siggi nýverið á Óðinsvéum, þar sem hann hefur rekið veitingastaðinn Sigga Hall í rúm átta ár.

Landsliðsmenn með útvarpsþátt

“Það verður mikið um dýrðir, við verðum með sneysafullann pakka,” segir Róbert Gunnarsson línumaður íslenska landsliðsins í handbolta sem mun í dag stýra þættinum Mín skoðun sem alla jafna er í umsjá Valtýs Björns á útvarpsstöðinni X-inu 977.

Fyrrum kona Sarkozy segir hann óhæfan sem forseta

Sápuóperan í kringum kvennamál Sarkozy Frakklandsforseta heldur áfram. Fjölmiðlar greina nú frá því að fyrrum eiginkona hans, Cecilia, segi að forsetinn sé nískur, ótrúr, með hegðunarvandamál og óhæfur í embætti það sem hann gegnir.

Fjölskylda Britney æf út í dr. Phil

Fjölskylda Britney Spears er æf út í sjónvarpslækinn dr. Phil. Fjölskyldan fékk dr. Phil upphaflega til að reyna að beina Britney frá villu síns vegar og koma í veg fyrir að hún sykki endanlega í hneykslasúpunni.

Leikarinn John Cleese að skilja

Leikarinn John Cleese, stjarnan í nýjustu auglýsingu Kaupþings, er að skilja við eiginkonu sína eftir 19 ára hjónaband.

Lost stjarna látin laus

Michelle Rodriguez, ein af fyrrverandi stjörnum Lost þáttanna, var í gær látin laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað 18 daga af 180 daga dómi sem hún hlaut fyrir að brjóta skilorð í haust. Rodriguez var á skilorði fyrir að hafa í þrígang verið tekin fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.

John Cleese skilur við þriðju eiginkonuna

Leikarinn John Cleese, er að skilja við eiginkonu sína til fimmtán ára, sálgreininn Alyce Eichelberger. Að sögn vina parsins er skilnaðurinn sameiginleg ákvörðun, tekin í kjölfar þunglyndis sem Cleese hefur glímt við undanfarna mánuði, þar sem hann hefur misst fjölda náinna vina.

Oprah gerir manninn arflausan

Oprah Winfrey ætlar ekki að láta það ráðast fyrir slysni hver erfir auðæfi hennar. Spjallþáttadrottningin skrifaði nýlega erfðaskrá, og samkvæmt heimildum National Enquirer fær maður hennar ekki krónu að henni genginni.

Pamela Anderson ólétt

Skilnaður Pamelu Anderson og Rick Salomon er aftur á dagskrá. Parið ákvað fyrir skemmstu að skilja, en hætti við nokkrum dögum síðar. Þau reyndu árangurslaust að lappa upp á sambandið, og hafa nú endanlega ákveðið að fara hvert sína leið, þrátt fyrir það að Pamela sé ólétt.

Vince Vaughn elskar Witherspoon

Vince Vaughn segir í samtali við Parade tímaritið að samskipti hans og leikkonunnar Reese Witherspoon séu í fínu lagi. „Ég dýrka hana. Hún er ekki einungis frábær leikkona heldur einnig mjög fyndin. Við höfum skemmt okkur mjög vel saman,"

Harvard háskóli verðlaunar Paris Hilton

Paris Hilton verður í Boston í þann sjötta febrúar að kynna mynd sína, „The Hottie and the Nottie". Í tilkynningu sem framleiðslufyrirtæki myndarinnar sendi frá sér um ferðina kemur fram að hún muni einnig nýta ferðina til að taka á móti verðlaunum frá Harvard háskóla, en ekki er gefið upp hver verðlaunin verða.

Christina Aguilera fæðir á morgun

Christina Aguilera mun ef að líkum lætur eignast barn á morgun. Söngkonan pantaði fyrir nokkru keisaraskurð þann tíunda janúar, til að fæða fyrsta barn hennar og eiginmannsins, Jordan Bratman. Kyn barnsins mun ekki koma meira á óvart en dagsetningin, en það mun vera drengur.

Vantar eitthvað í nærbuxurnar hans Davids Beckham?

Önnur auglýsingin með David Beckham í herferð fyrir Emporio Armani nærföt er komin í birtingu. Stinnir magavöðvarnir eru enn á sínum stað en eitthvað virðist vanta í kolsvartar nærbuxurnar. Í síðustu auglýsingu er fótboltakappinn í svipuðum stellingum, en þá vakti athygli með afbrygðum myndarleg kúla undir nærbuxunum. Sú virðist hafa gufað upp á nýjustu myndinni.

Siggi Hall hættir á Óðinsvéum

Meistarakokkurinn Siggi Hall er hættur á samnefndum veitingastað á Hóteli Óðinsvéum. Veitingastaðnum hafi verið lokað vegna breytinga og ráðgert sé að opna nýjan og stærri stað um miðjan febrúar.

Sonur Sigríðar Snævarr og Kjartans Gunnarssonar skírður

Litli sonur Sigríðar Snævarr og Kjartans Gunnarssonar var skírður á sunnudaginn. Hann hlaut nafnið Kjartan Gunnsteinn. Sigríður sagði í samtali við Vísi að Gunnsteins nafnið væri í höfuðið föður hennar, Gunnsteini Ármanni Snævarr.

PETA hlífir Spears

Dýraverndarsamtökin PETA hafa ákveðið að sjá aum á Britney Spears, og fjarlægja hana frá lista sínum yfir verst klæddu stjörnurnar. Listi PETA nær yfir þær stjörnur sem ganga í loðfeldum. Hinn frægi og illkvittni Mr. Blackwell fjarlægði einnig poppstjörnuna föllnu nýlega af frægum lista sínum yfir verst klædda fólkið.

Sjá næstu 50 fréttir