Lífið

Fjölskylda Britney æf út í dr. Phil

Fjölskylda Britney Spears er æf út í sjónvarpslækinn dr. Phil. Fjölskyldan fékk dr. Phil upphaflega til að reyna að beina Britney frá villu síns vegar og koma í veg fyrir að hún sykki endanlega í hneykslasúpunni.

Nú segir fjölskyldan að dr. Phil hafi svikið samkomulag það sem hann gerði við fjölskylduna og hafi nýtt sér málið sér til framdráttar. Samkvæmt samkomulaginu átti dr. Phil meðal annars að lýsa því yfir opinberlega að Britney hefði þörf á að komast í meðferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.