Fleiri fréttir

Fondú fyrir byrjendur

Fondú er skemmtileg tilbreyting í matarboðum, en það eru kannski ekki allir sem treysta sér í fondúgerð. Dómhildur Sigfúsdóttir hjá Osta- og smjörsölunni lumar á góðum ráðum.

Fleiri í Vísindakirkjuna

Það furðuðu sig margir að því að sjá bæði Jennifer Lopez og Jim Carrey í brúðkaupi skjötuhjúanna Tom Cruise og Katie Holmes. Fáir vissu til að einhver tengsl væru á milli Lopez, Carreys og hjónanna, en er því nú haldið fram að Lopez og Carrey hafi tekið upp trú Vísindakirkjunnar.

DiCaprio með tvennu

Leonardo DiCaprio fékk tvær tilnefningar til Critics Choice-verðlaunanna í Bandaríkjunum sem verða afhent 12. janúar.

Chanel í Monte Carlo

Karl Lagerfeld ákvað að halda innreið sína til ríka og fræga fólksins í Monte Carlo á dögunum þar sem hann sýndi það nýjasta fyrir vorið og sumarið 2007. Lagerfeld hannar fyrir hátískumerkið Chanel og er það í miklum metum hjá heimafólki í Monte Carlo.

„Bíóræningi“ í fangelsi

Ungur Bandaríkjamaður, Johnny Ray Gasca, sem einnig hefur verið kallaður sjóræningjaprinsinn hefur verið dæmdur í 7 ára fangelsi í kjölfarið á því að hann var gripinn glóðvolgur með upptökubúnað í kvikmyndahúsi.

Öllu lokið hjá McCartney og Mills

Breska blaðið News of the World telur sig hafa heimildir fyrir því að Paul McCartney hafi náð samkomulagi við Heather Mills um peninga vegna skilnaðar þeirra.

Umkringd stórstjörnum

Birgitta Sigursteinsdóttir gerði Vísi að upphafssíðu sinni og datt heldur betur í lukkupottinn þegar hún var dregin út og vann ferð til London á frumsýningu Eragon.

Papparassar lentu í slag

Deilur kryddpíunnar fyrrverandi Mel B og leikarans Eddies Murphy eru það sjóðheitar í Hollywood um þessar mundir að aðrar deilur hafa kviknað í kjölfarið. Mel B var stödd á veitingastað síðastliðinn föstudag, en þar svifu á hana tveir papparassa-ljósmyndarar, sem á endanum fóru að deila um hvor þeirra ætti rétt á umræddu svæði.

Lét lagfæra brjóstin

Adrianne Curry, fyrsti vinningshafinn úr þáttaröðinni America’s Next Top Model, er íðilfögur en greinilega ekki alveg fullkomin. Fyrirsætan greindi nýlega frá því að hún hafi farið í brjóstastækkunaraðgerð.

Jói og Gugga í heilagt hjónaband

„Þetta var mjög fallegt allt saman. Brúðkaupið var fallegt og veislan á eftir ekki síðri,“ segir sjónvarpsmaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson í Kompási. Á laugardaginn síðasta gengu þau Jóhann Traustason og Guðbjörg Inga, unnusta hans, í heilagt hjónaband.

Hudson slær í gegn

Jennifer Hudson heitir nýjasta stjarna Hollywood, en hún fer með eitt aðal­hlutverkanna í kvikmyndinni Dreamgirls sem hefur gert það afar gott í Bandaríkjunum á haustmánuðum.

Geri loksins hamingjusöm

Geri Halliwell segist ekkert þurfa á karlmanni í sitt líf, hún eigi yndislegt barn og frábæra vini. Söngkonan upplýsir þetta í viðtali við glanstímaritið OK.

Gefur 70 milljónir

Leikkonan Jada Pinkett Smith hefur gefið eina milljón dollara, eða tæpar sjötíu milljónir króna, til listaskóla í Baltimore þar sem hún stundaði nám á sínum yngri árum.

Einar Ágúst aftur á svið á næstunni

Umboðsmaðurinn Páll Eyjólfsson, Palli Papi, hefur safnað saman athyglisverðri samsuðu tónlistarmanna úr öllum áttum, í hljómsveit sem kallast Phönix og mun leika á nýja staðnum Domo 22. desember.

Borat vann málið

Tveimur háskólanemum tókst ekki að koma í veg fyrir að gamanmyndin Borat verður gefin út DVD-mynddiski á næstunni.

Á ófyrirséðu flakki

Örvæntingarfullri þriggja vikna leit starfsmanna bókabúðarinnar Lame Duck í Cambridge í Massachusetts-ríki í Bandaríkjunum að tveimur handrita argentínska rithöfundarins Jorge Luis Borges lauk á mánudag þegar gersemarnar fundust í versluninni.

Atli skemmtanalögga þrítugur

Það var margt um manninn og mikið fjör á skemmtistaðnum Yello í Keflavík þegar skemmtanalöggan Atli Rúnar Hermannsson fagnaði þrítugsafmælinu sínu í góðra vina hópi um síðustu helgi.

Arnaldur fulltrúi Barna á kvikmyndahátíð

„Þetta sýnir bara hvað Ísland er lítið. Arnaldur var staddur þarna í bænum vegna þess að kvikmyndahátíðin er tvískipt; annars vegar er þetta kvikmyndahátíð og hins vegar bókmenntahátíð sem Arnaldur tók þátt í og honum fannst það ekkert tiltökumál að veita verðlaununum viðtöku,“ útskýrir Ragnar Bragason, leikstjóri kvikmyndarinnar Börn, sem á sunnudaginn fékk sérstök verðlaun dómnefndar á ítölsku kvikmyndahátíðinni Courmayeur Noir.

Vill prófa aðra hluti

Óskarsverðlaunahafinn Nicolas Cage ætlar að taka sér hlé frá leiklistinni til að einbeita sér að öðrum áhugamálum á borð við sjálfstæða kvikmyndagerð.

Fiskur og franskar í Tryggvagötu

Fyrrverandi fjölmiðlakonan Erna Kaaber opnaði nýja veitingastaðinn sinn, Icelandic Fish'n Chips, með formlegum hætti fyrir helgina.

Furðuleg ástríða fyrir enska boltanum

Leikstjórinn Róbert Douglas er nú að vinna að því að gera heimildarmynd um hina merkilegu ástríðu íslenskra knattspyrnuáhugamanna á enska boltanum sem mörgum þykir alveg séríslenskt fyrirbæri.

Tölum ekki niður til barnanna

„Latibær slær nýtt met í hverri viku," segir Máni Svavarsson, lagahöfundur sjónvarpsþáttanna um Íþróttaálfinn og vini hans. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hafnaði smáskífan Bing Bang í fjórða sæti breska smáskífulistans en engum íslenskum tónlistarmanni hefur tekist að koma hugarsmíð sinni svona hátt í fyrstu vikunni.

Var dónaleg við tengdó

Eins og kunnugt er fékk kryddpían Mel B á dögunum sömu meðferð og Minnie Driver mátti sæta hér um árið, þegar henni var sagt upp í beinni útsendingu eða því sem næst.

Margt um manninn hjá Hemma

Hemmi Gunn hélt upp á sextugsafmæli sitt með veglegri veislu á Broadway á sunnudag. Þar var samankominn stór hópur velunnara, enda hefur Hemmi sett mark sitt á ófáan manninn í gegnum árin.

Söfnun á Akureyri

Umfangsmikil söfnun til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar stendur yfir til laugardagsins 16. desember á vegum Voice 987 og Hljóðkerfi.com á Akureyri.

Nýtt ilmvatn undir nafni Gwen Stefani

Gwen Stefani er nýjasta stjarnan til þess að gera samning við ilmvatnsframleiðandann Coty sem framleiðir ilmvötn fyrir Jennifer Lopez og Söru Jessicu Parker. Það er ekki enn vitað hvaða ilm vökvinn mun leysa úr læðingi en hugsanlegt að rósrauðar varir hennar komi þar við sögu.

Jólaskógurinn verður opinn næstu helgar

Skógræktarfélag Reykjavíkur býður öllum að koma í Heiðmörk og sækja sér jólatré. Skógurinn er allur opinn en þar vex stafafura sem er barrheldið og fallegt tré sem ilmar vel. Fólk velur sér sitt eigið tré sem passar í stofuna og er sama verð á trjánum óháð stærð.

Hátíðardagskrá og opið hús á afmæli Kristjáns Eldjárns

Miðvikudaginn 6. desember næstkomandi verða 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðardagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst klukkan 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.

Trúlofaðist Tony Parker

Eva Longoria, sem leikur í þáttunum Desperate Housewifes, hefur trúlofast franska körfuboltakappanum Tony Parker.

Setið um stjörnurnar

Fólk sem situr um fræga einstaklinga er því miður frekar algengt fyrirbæri. Er þetta fólk jafnan haldið þeim ranghugmyndum að það tengist fólkinu á einhvern hátt og getur sú þráhyggja endað í alls kyns vitleysu.

Lindsay sökuð um ritsóðahátt

Ungstirnið Lindsey Lohan vísar gagnrýni um barnalegt málfar og stafsetningu í kveðju til minningar um leikstjórann Robert Altman til föðurhúsanna. Hún segir að stafsetningavillur skipti ekki máli þar sem kveðjan hafi verið skrifuð frá hjartanu.

Fyrirgefningin

Fimmtudaginn 7.desember kl 20:00 heldur Guðjón Bergmann tveggja stunda fyrirlestur í samstarfi við Eddu útgáfu á Grand Hótel Reykjavík með yfirskriftinni Fyrirgefningin: Heimsins fremsta lækning. Þetta er í annað skiptið sem fyrirlesturinn er haldinn á stuttum tíma vegna mikillar eftirspurnar.

Kidman ekki ófrísk

Leikkonan Nicole Kidman hefur vísað á bug sögusögnum um að hún sé ófrísk eftir eiginmann sinn, sveitasöngvarann Keith Urban.

Ketilbjöllur nýtt æði í líkamsrækt

„Það sem greinir ketilbjöllur frá annarri líkamsrækt er að þú lætur líkamann vinna sem heild og einangrar ekki einstaka vöðva. Þannig setur maður kröfu á að vöðvarnir vinni sem eitt kerfi og gagnist manni þannig í lifandi lífi," segir Vala Mörk Jóhannesdóttir, einkaþjálfari og sérfræðingur í rússneskum ketilbjöllum sem verið hafa að ryðja sér til rúms hérlendis.

Hneig niður

Larry Hagman, sem lék illmennið JR í sápuóperunni Dallas, er á batavegi eftir að hafa hnigið niður. Hafði hann kvartað undan höfuðverkjum og missti loks meðvitund. Var hann fluttur á sjúkrahús en er nú kominn á heimili sitt í Malibu.

Framandi tíska í Malasíu

Þessa dagana stendur yfir alþjóðleg tískuvika í Malasíu. Vikan er haldin í borginni Kuala Lumpur og er glæsileg í alla staði. Malasía fór að setja sitt mark á tískuheiminn árið 2003 þegar vikan var haldin í fyrsta sinn og kom þá mönnum í opna skjöldu enda landið ekki þekkt fyrir tísku.

Vill hætta sem hörkutól

Leikarinn Denzel Washington segist þreyttur á því að leika fól og hörkutól. Hann segist vera kominn með nóg af því að þurfa halda sér í formi og að hans síðustu hlutverk hafi þreytt hann mikið.

Pelsar ekki lengur munaðarvara

Loðfeldir, mokkakápur og selskinnsjakkar eru dýrustu flíkur í sem hægt er að fá á Íslandi í dag. Vinsældir þeirra hafa farið vaxandi með árunum og eru kaupmenn sem selja slíkan vöru sammála um það að batnandi efnahagur í landinu spili þar inní.

Komin í AA samtökin

Leikkonan unga Lindsay Lohan hefur nú sést mæta á AA fundi. Lohan fannst á hótelherbergi sínu fyrir skömmu þar sem hún var meðvitundarlaus eftir ofneyslu áfengis og vímuefna.

Grasrótar grínistinn

„Er hann svangur?, ég er nefnilega að sjóða pylsur ef hann vill,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, þegar blaðamaður segir honum að ljósmyndari sé á leiðinni til hans. Steinþór hefur slegið í gegn meðal netverja með gamansemi sinni undanfarin misseri, en með aðstoð myspace.com og youtube hefur hann dreift grínlögum og sketsum við góðar undirtektir.

Fasteignasali opnar bístróbar

Fasteignasalinn Andrés Pétur Rúnarsson hefur opnað veitingastaðinn Bistro á Laugavegi, sem hann á ásamt Jóhönnu S. Ólafsdóttur. „Áður var þetta Blús-barinn en við hreinsuðum allt út og endurhönnuðum allt og innréttuðum upp á nýtt í nútímastíl með speglum, plasmatækjum, svörtum og rauðum stólum en öll borðin eru úr eik,“ segir Andrés Pétur ánægður með útkomuna.

Drukkinn í spjallþætti

Leikarinn Danny DeVito mætti drukkinn í bandaríska spjallþáttinn The View sem er sýndur að deginum til. Meðstjórnandi þáttarins, Rosie O"Donnel, átti ekki í erfiðleikum með að fyrirgefa DeVito. „Danny DeVito er ekki alkóhólisti. Hann er bara náungi sem fékk sér of marga drykki með vinum sínum,“ sagði hún.

Á flakki frá fæðingu

Á veggjum kaffihússins Babalú á Skólavörðustígnum gefur nú að líta teikningar eftir Steindór Walter Þorgeirsson. Þetta er fyrsta sýning hans hér á landi, en hann hefur áður sýnt í Amsterdam og Danmörku. „Ég er fæddur á Íslandi, ólst upp í Róm, var í námi í Bretlandi og hef eiginlega verið á flakki frá fæðingu,“ sagði Steindór. Hann hefur þó alltaf snúið aftur til Íslands inn á milli.

Sjá næstu 50 fréttir