Lífið

Arnaldur fulltrúi Barna á kvikmyndahátíð

Fannst það lítil fyrirhöfn að veita sérstökum verðlaunum handa Börnum viðtöku á Ítalíu.
Fannst það lítil fyrirhöfn að veita sérstökum verðlaunum handa Börnum viðtöku á Ítalíu.

„Þetta sýnir bara hvað Ísland er lítið. Arnaldur var staddur þarna í bænum vegna þess að kvikmyndahátíðin er tvískipt; annars vegar er þetta kvikmyndahátíð og hins vegar bókmenntahátíð sem Arnaldur tók þátt í og honum fannst það ekkert tiltökumál að veita verðlaununum viðtöku," útskýrir Ragnar Bragason, leikstjóri kvikmyndarinnar Börn, sem á sunnudaginn fékk sérstök verðlaun dómnefndar á ítölsku kvikmyndahátíðinni Courmayeur Noir.

Glæpasagnahöfundurinn Arnaldur Indriðason veitti þeim viðtöku fyrir hönd leikstjórans. Væntnalega gerir það tilviljunina enn skemmtilegri að Arnaldur er sem kunnugt er höfundur Mýrarinnar en kvikmynd byggð á bókinni hefur slegið öll aðsóknarmet hér á landi. „Það var hringt í mig á laugardeginum og ég beðinn um að koma og taka við þeim en þar sem ég var í Búdapest að leggja lokahönd á sýningareintökin fyrir Foreldra gafst mér því miður ekki tækifæri til þess," bætir leikstjórinn við en hið sjálfstæða framhald Barna verður frumsýnt 19. janúar á næsta ári.

Ragnar segir kvikmyndahátíðina vera haldna í litlum bæ við ítölsku Alpana en Ingvar E. Sigurðsson, einn framleiðandi myndarinnar, hafi farið fyrir hönd aðstandenda myndarinnar og tekið þátt í blaðamannafundum og öllu því sem fylgir slíkum hátíðum en hann leikur einmitt einnig aðalhlutverkið í Mýrinni. Formaður dómnefndarinnar var Mike Hodges sem gerði meðal annars kvikmyndina Get Carter með Michael Caine í aðalhlutverki og hreifst hann mjög af hinni íslensku kvikmynd.

Ragnar komst ekki til Ítalíu þar sem hann var í Búdapest að klára sýningareintök fyrir myndina Foreldrar.


.
Ingvar E. Sigurðsson ræddi við formann dómnefndar, Mike Hodges, sem hreifst mjög af hinni íslensku mynd.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.