Fleiri fréttir

Dragdrottningar á Grandrokk

Spurningakeppnin Drekktu betur á Grand rokk verður með óvenjulegum hætti á föstudaginn eftir viku, hinn 28. júlí. Þá munu dragdrottningarnar Keikó og Roxie verða í hlutverki spyrla og spurningar þeirra tengjast flestar samkynhneigð í ljósi sögunnar.

Kvenhetjur hvíta tjaldsins

Hetjudáðir í kvikmyndum eru oftast drýgðar af karlmönnum. Þeir bjarga fögrum konum úr klóm illmenna og kvænast þeim í sögulok. Indiana Jones, James Bond og Luke Skywalker hafa oftar en ekki bjargað veröldinni frá brjáluðum nasistum, geðsjúkum glæpamönnum eða sjálfum Svarthöfða. Öðru hverju spretta þó upp kvenhetjur sem eru engu síðri en hinir byssuglöðu karlar.

Silfruð syrpa á Borginni

Söngvarinn Seth Sharp flytur silfraða söngdagskrá ásamt söngkonunni Vé­dísi Hervöru Árnadóttur á Borginni í kvöld og annað kvöld. Tónleikarnir fara fram á veitingastaðnum Silfur á Hótel Borg sem er skemmtileg tilviljun því Seth fékk hugmyndina að baki dagskránni og yfirskrift hennar löngu áður en staðsetningin var ákveðin. „Þetta var algjör tilviljun, ég kalla dagskrána „Silfur“ sem vísar til blöndu af svörtu og hvítu. Við flytjum íslensk og bandarísk lög og blöndum þeim saman í syrpu, til dæmis flytur Védís lagið „Sofðu unga ástin mín“ og ég syng „Summertime,“ útskýrir Seth Sharp.

Biggi og fimm manna hljómsveit

The Bigital Orchestra leikur fyrir gesti og gangandi í verslun 12 Tóna að Skólavörðustíg 15 á morgun 21. júlí. Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 og verða léttar veitingar á boðstólnum. Tónleikarnir í 12 Tónum eru einu tónleikar Bigga í Reykjavík í þetta skiptið

Magni slær í gegn

Magni Ásgeirsson, söngvarinn austfirski sem keppir nú um að komast í hljómsveitina Supernova, hlaut mikið hól fyrir frammistöðu sína í veruleikaþáttunum Rockstar Supernova í gærkvöldi og var aldrei á meðal þeirra fimm sem um tíma voru í hættu á að detta út.

Andlit norðursins í Vestmannaeyjum

Í sumar gefst Vestmanneyingum og gestum þeirra tækifæri til að virða fyrir sér ljósmyndir Ragnars Axelssonar sem komið hefur verið fyrir utan á salthúsi Ísfélags Vestmannaeyja við Kirkjuveg og Strandveg.

Hljómaveitin Æla gefur út

Hljómsveitin Æla hefur verið starfandi í þeirri mynd sem hún er í dag frá árinu 2003. Í upphafi átti Æla bara að vera gott partý en nú er komin út breiðskífa sem ber heitið Sýnið tillitssemi, ég er frávik.

Líf í Eden um helgina

Það að verður mikið um að vera fyrir fjölskyldufólk um helgina í Eden. Trúðurinn Eddi hefur heldur betur slegið í gegn, og hefur nú samið dans- og söngatriði í samstarfi við risa Amazon páfagaukaparið. Einnig er aldrei að vita nema Orkuveitu risarækjurnar og kanínurnar slái á létta strengi.

Davíð Þór dómari í Gettu Betur

Allar líkur eru á að Davíð Þór Jónsson taki að sér hlutverk dómara í Gettu betur á komandi vetri. Davíð var sem kunnugt er spyrill í þáttunum frá 1997 til 2000 en nú þarf hann að dusta rykið af sögubókunum því hann verður einnig spurningahöfundurinn í þáttunum sívinsælu.

Ballettveisla í London

Ballettdansararnir Ekatarina Kondaurova frá Mariinsky-ballettnum (sem áður hét Kirov ballettinn) og Nikolai Tsiskaridze frá Bolshoi-ballettnum brugðu á leik fyrir utan Tower Bridge í London á dögunum í tilefni af því að þessi tvö stærstu ballettfélög heims sýna í sömu borg í fyrsta skipti í sögunni. Þau munu bæði sýna í Bretlandi í sumar og eflaust gleðja marga ballettáhugamenn.

Fabúla á Rósenberg

Söngkonan og lagasmiðurinn Fabúla heldur tónleika á Rósenberg í kvöld ásamt Birki Rafni Gíslasyni, Jökli Jörgenssen og Einari Scheving. Þar munu þau leika lög af væntanlegri plötu, en von er á þriðju plötu Fabúlu í næsta mánuði. Fimm ár eru síðan síðasta plata Fabúlu, Kossafar á ilinni, kom út.

Akureyri undirlögð af Django

Djasstónlist kennd við belgíska gítarsnillinginn Django Reinhardt verður sífellt vinsælli um allan heim. Á morgun hefst hátíð norðan heiða þar sem arfleifð þessa einstaka manns er haldið á lofti.

Stjörnur sumarsins á rauða dreglinum

Það er alltaf ákveðinn staðfestingu á komu sumars þegar stórmyndirnar fara að rata inn í bíóhús borgarinnar. Fréttablaðið tók saman nokkarar skemmtilegar myndir frá frumsýningu Pirates of the Caribbean; Dead man"s chest, Superman Returns og grínmyndarinnar You, me and Dupree sem verður frumsýnd hér á landi síðar í þessum mánuði.

Ástin lifir ekki að eilífu hjá Paris Hilton

Partíljónið og hótelerfinginn París Hilton hefur komið víða við og það virðist varla vera veisla í Hollywood án þess að hún sé viðstödd. Paris hefur verið með mörgum mönnum þrátt fyrir ungan aldur enda gaf hún nýlega út yfirlýsingu þess efnis að hún væri komin í pásu frá karlmönnum í bili.

Strákarnir okkar til Bandaríkjanna

Kvikmyndin Strákarnir okkar verður frumsýnd í Frakklandi í dag en hún er nú að hefja ferðalag um Evrópu þar sem áætlaðar eru sýningar í Belgíu, Hollandi, Spáni, Noreg og Þýskalandi. „Myndin verður sýnd í fimmtán kvikmyndahúsum í Frakklandi og sex borgum í Þýskalandi,“ segir Júlíus Kemp, aðalframleiðandi myndarinnar hjá Kvikmyndafélagi Íslands. Stærsti sigur myndarinnar er hins vegar dreifing í Bandaríkjunum á næsta ári en ekki er ljóst í hversu mörgum kvikmyndahúsum hún verður sýnd þar.

Innilegt samband við stein

Nýjasta smásagnasafn japanska rithöfundarins Haruki Murakami hefur fengið ágætar viðtökur gagnrýnenda en bókin Blind Willow, Sleeping Woman geymir 26 sögur Murakamis sem skrifaðar eru á undanförum 30 árum.

Navarro skilinn

Dave Navarro, rokkarinn og kynnirinn í Rock Star: Supernova er að skilja við eiginkonu sína Carmen Electra.

Oprah Winfrey segist ekki vera lesbía

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey hefur neitað orðrómi um að hún sé samkynhneigð. Slúðurpressan gerði sér mat úr því að Oprah er mjög náin vinkonu sinni og viðskiptafélaga, Gayle King, og fór svo að Oprah og Gayle ræddu málið í blaði Opruh, O.

Það verður hálf tómlegt í kotinu þegar Sesar fer

Það hefur verið nóg að gera hjá Bryndísi Schram að undanförnu því hún hefur haft hund dótturdóttur sinnar í fóstri. Bryndís segist hafa notið þess að hafa hundinn hjá sér og viðurkennir að það verði jafnvel hálftómlegt í kotinu hjá þeim Jóni Baldvin þegar hundurinn fer.

Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju

Fimmtudaginn 20. júlí leikur Douglas A. Brotchie, organisti Háteigskirkju, á hádegistónleikum tónleikaraðarinnar Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Tónleikarnar, sem byrja kl. 12, hefjast á Kornelíusarmarsi eftir Felex Mendelssohn sem upphaflega var skrifaður fyrir hljómsveit árið 1841.

Hjólandi á tónleikatúr

Klukkan tólf á hádegi í dag, þriðjudaginn 18. júlí, munu þrír vaskir drengir leggja af stað hjólandi í tónleikatúr hringveginn. Ferðin er farin til að kynna og vekja athygli á SPES-samtökunum og munu þeir hafa opinn baukinn á tónleikum sínum til styrktar samtökunum.

Rokkað feitt fyrir austan

Tónlistarhátíðin Eistnaflug var haldið í Neskaupstað annað árið í röð um liðna helgi. Hátíðin var vel sótt og voru aðstandendur hennar hæstánægðir með það hvernig til tókst.

Lögin hans Jóns míns

Gleðigjafarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson senda frá sér plötuna Lögin hans Jóns míns sem kemur út þann 21. júlí næstkomandi hjá Senu. Platan inniheldur bestu og vinsælustu lögin sem hinn kunni tónlistarmaður Jón Ólafsson hefur samið fyrir þá félaga í gegnum tíðina, enda er platan nefnd honum til heiðurs.

Moshi Moshi á Airwaves

Líkt og í fyrra mun breska plötuútgáfan Moshi Moshi vera með sérstakt Moshi Moshi kvöld á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Samstarf Airwaves og Moshi Moshi teygir sig nokkur ár aftur í tímann.

FREYMÓÐSSON-DANLEY-verðlaunin

FREYMÓÐSSON-DANLEY-verðlaunin sem veitt eru íslenskum nemendum fyrir góðan námsárangur við Kaliforníuháskólann í Santa Barbara, voru veitt í annað sinn mánudaginn 12. júní síðastliðinn.

100% sumar

Þessi diskur er sá fyrsti nýrrar útgáfuraðar frá 21 12 Culture Company og inniheldur 20 af heitustu íslensku lögunum vorið og sumarið 2006.

Syngur dúett með Ellý Vilhjálms

Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason færði Einari Kristni Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra eintak af nýju plötunni sinni, Vel sjóaður, sem kom út á þriðjudaginn var.

Pólverji færir út kvíarnar

Pólska matvöruverslunin Stokrotka hefur fært út kvíarnar og opnað matsölustað undir sama nafni. Matsölustaðurinn er til húsa að Hvaleyrabraut 35 í Hafnarfirði, þar sem verslunin var áður en hún er flutt í stærra húsnæði að Reykjavíkurvegi 64.

Forhlustun á fyrstu plötu Dr. Mister & Mr. Handsome

Tónlist.is ætlar að bjóða Íslendingum öllum að hlusta á fyrstu plötu Dr. Mister & Mr. Handsome áður en hún kemur í verslanir nk. fimmtudag. Dirty Slutty Hooker Money er frumburður einnar ferskustu hljómsveitar sem komið hefur fram á sjónarsvið íslenska tónlistarmarkaðarins í mörg ár.

Ný dansmynd unnin í Svíþjóð

Dansarinn og danshöfundurinn Helena Jónsdóttir er á leið til Svíþjóðar að vinna að dansverki fyrir sjónvarp í samstarfi við vel þekkta listamenn þar í landi.

List framtíðarinnar

Í sumar hafa 20 skapandi sumarhópar verið starfandi hjá Hinu húsinu. Á fimmtudaginn gátu gestir og gangandi kynnt sér starfsemi þessarra hópa á skemmtun sem haldin var í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík þar sem hver hópur sýndi brot af sinni starfsemi á svokallaðri lokahátíð.

Morrissey mætir á klakann - Miðasala hefst á morgun

Morrissey, einhver áhrifamesti tónlistarmaður Breta undanfarin rúm 20 ár heimsækir Íslendinga í næsta mánuði. Hann stofnaði The Smiths ásamt Johnny Marr í upphafi 9. áratugarins og vakti sú sveit strax gríðarmikla athygli.

Hætta ekki áður en þau koma til Íslands

Kanadíska hljómsveitin Islands er ein af þeim erlendu sveitum sem munu spila á næstu Iceland Airwaves hátíð en fyrsta plata sveitarinnar, Return to the Sea, hefur verið hampað af mörgum gagnrýnendum sem ein besta poppplata ársins. Steinþór Helgi Arnsteinsson fór á tónleika með sveitinni í smáborginni Münster í Þýskalandi fyrir stuttu og spjallaði þar við nokkra meðlimi sveitarinnar.

Ókeypis ljóð og angurværir tónar

Þrír félagar halda á þriðjudag í hringferð í kringum landið á reiðhjólum. Tilgangur ferðarinnar er að vekja athygli á Spes-samtökunum sem styrkja foreldralaus börn í Afríkuríkinu Tógó. Strákarnir, sem heita Gísli Hvanndal Ólafsson, Guðjón Heiðar Valgarðsson og Dagbjartur Ingvarsson, ætla að safna fé fyrir samtökin með ljóðalestri og angurværri rokktónlist en planið er að halda skemmtanir víðsvegar um landið.

Arkitektar fyrir klámbúð

Kynlífsverslunin Exxxotica sem var til húsa á Barónsstígnum í mörg ár hefur nú vikið fyrir arktitektastofunni Skapað og skerpa. Blaðamaður sló á þráðinn til Jóhanns Sigurðssonar hjá stofunni og spurði hann út í breytingarnar. Við fluttum nú bara inn fyrir tæpum tveimur vikum og erum að koma okkur í gang. Þú getur rétt ímyndað þér hvað nágrannarnir eru ánægðir með þessi skipti, segir hann hlæjandi.

Grísk gyðja

Það eru margir sem kannast við Sophiu Kokosalaki enda er erfitt að gleyma þessu langa nafni. Hún er fatahönnuður af grískum ættum og hannar hún undir sínu eigin nafni.

Franskt elektró

Í kvöld munu taktfastir elektró tónar hljóma í portinu á bak við Loftkastalann. Þeir Róbert Aron Magnússon, betur þekktur sem Robbi Chronic, og Halldór Gunnlaugsson standa fyrir þessum viðburði og hafa fengið til liðs við sig Smirnoff sem mun sjá gestum fyrir drykkjum allt kvöldið.

Göldróttir sumartónleikar

Rúmenska tónskáldið Doina Rotaru er stödd hér á landi en tónlist hennar er á dagskrá í þriðja hluta Sumartónleika Skálholtskirkju. Verkin, sem flutt verða af Caput-hópnum, nefnast Klukkur, Prana-aparnir, og Japanskur garður.

Hvar er Haddaway?

Annað "90-partí sumarsins verður haldið á Bar 11 í kvöld en forkólfar þess eru plötusnúðarnir DJ Curver og DJ Kiki-Ow. Yfirskrift kvöldsins er "No Limits" sem vísar til ódauðlegrar lagasmíðar hljómsveitarinnar 2Unlimited sem gerði garðinn frægan á árunum sem sumir vildu gleyma en nú er kominn tími til að minnast.

Sjá næstu 50 fréttir