Kvenhetjur hvíta tjaldsins 20. júlí 2006 11:30 Ný gerð af hetju Einhver vinsælasta tölvuleikjapersóna heims er kvenskörungurinn Lara Croft en Angelina Jolie hefur túlkað þessa nýju hetju.
Hetjudáðir í kvikmyndum eru oftast drýgðar af karlmönnum. Þeir bjarga fögrum konum úr klóm illmenna og kvænast þeim í sögulok. Indiana Jones, James Bond og Luke Skywalker hafa oftar en ekki bjargað veröldinni frá brjáluðum nasistum, geðsjúkum glæpamönnum eða sjálfum Svarthöfða. Öðru hverju spretta þó upp kvenhetjur sem eru engu síðri en hinir byssuglöðu karlar. Kannski var Kleópatra ein fyrsta kvenhetja hvíta tjaldsins. Elizabeth Taylor blómstraði í hlutverki hinnar egypsku prinsessu sem lét sitt ekki eftir liggja í ráðabruggi Rómverja. Þrátt fyrir að Kleópatra hafi ekki lyft sverði í myndinni stjórnaði hún hersveitum sínum og var meira en bara einhver postulínsdúkka sem beið eftir prinsinum á hvíta hestinum. Konur eru yfirleitt í hlutverki hins vitra í kvikmyndum. Skemmst er að minnast Véfréttarinnar í Matrix sem gat sagt fyrir með ógurlegri nákvæmni hvað ætti eftir að eiga sér stað. Konurnar draga ekki upp byssurnar heldur segja körlunum frekar hvern á að skjóta. Hetjur okkar í Íslendingasögunum þekkja þetta kannski manna best þar sem konurnar sættu sig ekki við neinn heigulshátt þegar kom að því að hefna fyrir kinnhesta eða sæti í brúðkaupum. Hefndin hefur löngum verið eitt af aðalsmerkjum karla, sem hika ekki við að borga óvini sínum til baka í margfaldri mynd. Fátt er hins vegar jafn hættulegt og kona í hefndarhug, eins og óvinir Beatrix Kiddo komust svo eftirminnilega að raun um í Kill Bill. Hin morðóða brúður hefði þó varla ratað inn í kvikmyndahús Hollywood-borgar ef ekki hefði verið fyrir Ripley í Alien-myndunum. Sigourney Weaver náði þar að sannfæra heimsbyggðina um að konur gætu líka bjargað körlum þótt í flestum tilvikum væri því öfugt farið. Ripley var mikið hörkutól sem kallaði ekki allt ömmu sína og lét meðal annars nokkra „one-linera“ fjúka þegar lífið var murkað úr hinum óvinveittu gestum. Þótt konur eigi vissulega undir högg að sækja á hetjumarkaðnum í kvikmyndum hafa kvikmyndaframleiðendur áttað sig á því að hetjan þarf ekki alltaf að hafa skegg og stutt hár, eða svo vitnað sé til Jean Luc Godard: „Það eina sem þarf í kvikmynd er kona með byssu.“
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Fleiri fréttir „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Sjá meira