Silfruð syrpa á Borginni 20. júlí 2006 10:30 Seth Sharp og Védís Hervör Með íslensk-ameríska efnisskrá á veitingastaðnum Silfur. MYND/Hörður
Söngvarinn Seth Sharp flytur silfraða söngdagskrá ásamt söngkonunni Védísi Hervöru Árnadóttur á Borginni í kvöld og annað kvöld. Tónleikarnir fara fram á veitingastaðnum Silfur á Hótel Borg sem er skemmtileg tilviljun því Seth fékk hugmyndina að baki dagskránni og yfirskrift hennar löngu áður en staðsetningin var ákveðin. „Þetta var algjör tilviljun, ég kalla dagskrána „Silfur“ sem vísar til blöndu af svörtu og hvítu. Við flytjum íslensk og bandarísk lög og blöndum þeim saman í syrpu, til dæmis flytur Védís lagið „Sofðu unga ástin mín“ og ég syng „Summertime,“ útskýrir Seth Sharp. Hann kveðst hafa tekið eftir ýmsum hliðstæðum í menningu Íslendinga og Bandaríkjamanna, einkum blökkumanna, og vísar þar til harðneskjunnar sem Íslendingar bjuggu við, til dæmis fyrir stríð. „Það eru mörg þemu í íslenskri tónlist frá þeim tíma sem hafa líkindi við tónlist blökkumanna og mér fannst fróðlegt að kanna það nánar. Síðan fékk ég styrk frá bandaríska sendiráðinu til þess að halda þessa tónleika.“ Í kvöld og á morgun gefst hlustendum síðan kostur á að heyra afraksturinn en aðeins tvennir tónleikar eru fyrirhugaðir því söngkonan er á leið aftur til London, þar sem hún dvelur um þessar mundir. Seth útskýrir að þau muni segja ákveðna sögu í gegnum tónlistina en áréttar að sú saga sé alls ekki sorgleg. „Það eru sorgleg andartök en það fallega við menningu beggja landa er þessi óbilandi sjálfsbjargarhvöt. Íslendingar eru þjóð sem lifir af. Þið setjið upp skemmtigarð í þessum napra kulda. Það minnir mig á heimabæ minn, Hartford í Connecticut, en í hverfinu mínu bjuggu aðeins blökkumenn. Þar bjargaði fólk sér og byggði án þess að velta því of mikið fyrir sér. Ef það vantaði körfuboltavöll þá festu menn gjörð upp í tré og þá var kominn völlur.“ Seth Sharp og Védís vinna saman í fyrsta skipti en hann segist gjörsamlega heillaður af söng hennar. „Ég var að leita að einhverjum til þess að flytja þetta efni með mér og nokkrir mæltu með henni við mig. Síðan sungum við saman á veitingastaðnum Horninu þar sem ég kem fram með djassdagskrá annan hvern fimmtudag og það gekk frábærlega. Það er sérstakt og sjaldgæft að fá að syngja svona tónlist með svona söngkonu, hún er með undursamlega rödd.“ Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 í kvöld og annað kvöld.
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Sjá meira