Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Keppendur úr Bocuse d'Or á Food and Fun Þeir keppendur á Food and Fun í ár sem hafa tekið þátt í hinni frægu Bocuse d'Or keppni eru Matti Jämsen frá Finnlandi og Chris Parsons frá Bandaríkjunum sem verið hefur einn af tólf útvöldum sem keppa í amerísku undankeppninni. 9.3.2011 00:01
Járnfrúin á Silfrinu Gestakokkurinn sem mætir til leiks á veitingastaðnum Silfri í næstu viku er enginn annar en sjálf Járnfrúin Celina Tio úr sjónvarpsþáttunum Iron Chef. Hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu. 9.3.2011 00:01
Sænskur stjörnukokkur eldar íslenskt á Nauthól Sænski stjörnukokkurinn Bengt Sjöström verður gestakokkur á Nauthól á Food and Fun hátíðinni. 9.3.2011 00:01
Góðar hugmyndir vakna Sjávarkjallarinn tekur þátt í Food and Fun sem hefst í næstu viku og fær líkt og aðrir veitingastaðir til sín góðan gestakokk. 9.3.2011 00:01
Nútímalegt í Lava Lava í Bláa lóninu er virkur þátttakandi í Food and Fun matarhátíðinni í ár. 9.3.2011 00:01
Sænsk-íslensk matarreisa Á Fiskfélaginu kætast bragðlaukar í Íslandsferð með sænskum fararstjóra. 9.3.2011 00:01
Taílenskur Fiskmarkaður Taílenskur matur verður í forgrunni á Fiskmarkaðnum á meðan Food and Fun stendur yfir því gestakokkurinn Morten Döjfstrup starfar á taílenska veitingahúsinu Kiin Kiin í Kaupmannahöfn. 9.3.2011 00:01
Stórskotalið í dómarasætum Dómarar á Food & Fun eru frægir matreiðslumenn frá Bandaríkjunum, Noregi og Rússlandi, sem margir hverjir hafa tekið þátt í Food & Fun hérlendis áður, annaðhvort sem dómarar eða keppendur. 9.3.2011 00:01
Charlie gjörsamlega búinn að missa það Leikarinn Charlie Sheen, sem var í dag formlega rekinn úr sjónvarpsþættinum Two and a Half Men eftir allt bílífið, bullar og ruglar núna í beinni á netinu. Meðfylgjandi má sjá hann tala við félaga sinn í síma á sama tíma og hann reykir og drekkur. Eins og myndbandið sýnir er leikarinn gjörsamlega búinn að missa það. Hann neitar að sýna hvað hann drekkur því hann fær ekki borgað fyrir það og sýgur meðal annars sígarettuna í gegnum nefið á milli þess sem hann segir eintóma þvælu. 8.3.2011 21:38
Ýkt sætir hátíðargestir Meðfylgjandi myndir voru teknar af gestum rétt áður en Íslensku tónlistarverðlaunin hófust en hátíðin fer fram í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Eins og myndirnar sýna voru hátíðargestir ýkt sætir. 8.3.2011 21:07
Usher gefur peningana Söngvarinn Usher hefur ákveðið að gefa til góðgerðarmála peningana sem hann fékk fyrir að syngja á einkatónleikum fyrir son Múmmars Gaddafí Líbíuleiðtoga. Usher fetar þar með í fótspor kollega sinna Nelly Furtado, Beyoncé og Mariuh Carey sem hafa gert slíkt hið sama. Usher og Beyoncé sungu bæði í nýársveislu á eyjunni St. Barts árið 2009. Hvorugt þeirra segist hafa vitað að Mútassim Gaddafí, sonur Líbíuleiðtogans, hélt veisluna. Furtado reið á vaðið þegar hún ákvað að gefa milljónirnar sem hún fékk fyrir að syngja fyrir Gaddafi-fjölskylduna. 8.3.2011 12:00
Óbeislaður kynþokki Þorsteins felldi Bieber "Kynþokkinn var of mikill fyrir ungstirnið. Þessi óbeislaði, þroskaði kynþokki íslenska grínistans,“ segir Þorsteinn Guðmundsson, höfundur og aðalleikari gamanmyndarinnar Okkar eigin Osló. 8.3.2011 09:00
Ný Megasarplata væntanleg í apríl Fyrstu tónleikar Megasar og Senuþjófanna eftir að þessi tvö tónlistaröfl hófu samstarf að nýju verða í Norðurpólnum 2. apríl. 8.3.2011 08:00
Grími meinað að flytja inn hljómsveitir á eigin vegum "Ég ætla ekki að vera virkur í tónleikahaldi, enda hef ég ekki áhuga á því. Það er erfitt að vera tónleikahaldari á Íslandi,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves hátíðarinnar. 8.3.2011 07:00
Rokkararnir í Cliff Clavin koma sér á kortið í Bretlandi Strákarnir í rokkhljómsveitinni Cliff Clavin eru nýkomnir heim eftir myndatöku hjá breska tímaritinu Kerrang! Mikill heiður, að mati söngvarans Bjarna Þórs Jenssonar. 8.3.2011 04:00
Hársveiflan virkar pottþétt Aniston Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, auglýsir í meðfylgjandi myndskeiði drykkjarvatn sem ber heitið Smartwater. Í auglýsingunni má sjá Youtube stjörnuna Keenan Cahill og svokallaða internetsérfræðinga sem leggja sig fram við að útfæra spennandi auglýsingu, sérhannaða fyrir internetið, í samvinnu við leikkonuna með það að markmiði að 100 þúsund manns horfi á myndskeiðið. Jennifer sveiflar meðal annars hárinu áður en hún fær sér sopa af umræddu vatni. 7.3.2011 18:05
Bilað fjör á Bloodgroup Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á veitingahúsinu Hressó síðasta fimmtudag þegar hljómsveitin Bloodgroup sá til þess að allir skemmtu sér. Eins og meðfylgjandi myndir sýna leiddist engum. 7.3.2011 12:45
Brotnaði niður þegar hún rifjaði upp baráttuna Ástralska söngkonan Kylie Minogue, 42 ára, brotnaði niður í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi þegar hún ræddi um baráttu sína við brjóstakrabbamein. Hún þurfti að yfirgefa herbergið þar sem viðtalið fór fram því tilfinningarnar báru hana ofurliði eins og sjá má í myndskeiðinu. 7.3.2011 11:17
Nýbökuð mamma í dúndurformi Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen, 30 ára, sleikti sólina í gær, í Rio de Janeiro í Brasilíu. Hún er stödd þar í borg ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanni Tom Brady og syni sínum Benjamín, sem hún eignaðist fyrir 14 mánuðum. Eins og myndirnar sýna er nýbökuð móðirin í dúndurformi. 7.3.2011 09:53
Sjö manneskjur í fagráði Airwaves „Ég er mjög ánægður með þetta. Hugmyndin er að reyna að bæta festivalið og gera það skemmtilegra,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves. 7.3.2011 15:00
Eurovision-stjörnur með stórtónleika í Stokkhólmi Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson heldur tónleika ásamt Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur hinn 30. mars í Göta Lejon leikhúsinu í Stokkhólmi. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við sendiráð Íslands og ýmsa ferðaaðila í borginni. 7.3.2011 13:00
Yfirburðasigur Atrum Dauðarokkshljómsveitin Atrum stóð uppi sem sigurvegari í hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle, sem fór fram á Sódómu á laugardagskvöld. Sigur Atrum var nokkuð öruggur og dómnefnd var sammála um að hljómsveitin hefði skarað fram úr. Atrum keppir því fyrir Íslands hönd á lokakeppninni sem fer fram á Wacken-þungarokkshátíðinni í Þýskalandi í sumar, sem er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. 7.3.2011 12:00
Blúshátíð í áttunda sinn Blúshátíð í Reykjavík verður haldin í áttunda sinn dagana 16. til 21. apríl. Þrennir stórir tónleikar verða haldnir á Hilton-hótelinu. Áttunda Blúshátíðin í Reykjavík verður haldin 16. til 21. apríl. Setningarhátíðin verður í miðborginni laugardaginn 16. apríl þar sem blúsinn verður í fyrirrúmi. Blúslistamaður ársins verður heiðraður, blúsvagnar Krúserklúbbsins keyra um bæinn, framinn verður blúsgjörningur og um kvöldið verða tónleikar. 7.3.2011 11:00
Með veskið uppi á handleggnum Skemmtilega hönnuð veski eftir Arndísi Jóhannsdóttur eru tilvalin í samkvæmin. 7.3.2011 00:00
Ásgeir Kolbeins og Arnar Gauti á fremsta bekk Ásgeir Kolbeins og Arnar Gauti sátu á fremsta bekk á tískusýningu sem fram fór í Fjölbrautaskólanum við Ármúla á fimmtudaginn var. Haffi haff sló í gegn sem kynnir á meðan nemendur fjölbrautaskólans sýndu fatnað frá Volcano, Nikita, Sautján, Kiss, Brim, Naked ape, Gestný Design, Nostalgía, Spútnik og E-label. 6.3.2011 10:40
Georg Michael segist eiga fangelsisvist skilið Dægurlagasöngvarinn George Michael sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið í morgun að hann ætti fangelsisvist skilið eftir að hafa ekið undir áhrifum kannabisefna. 6.3.2011 10:02
Konan á bak við hlébarðagallann Í meðfylgjandi myndskeiði kynnumst við innanhússhönnuðinum og fasteignasalanum Bjarnheiði Hannesdóttur, sem er kölluð Heiða, en hún á og rekur fyrirtækið Deco.is þar sem hún sér um að aðstoða fólk við að endurhanna húsnæði sín. Þá sýnir Heiða þrönga gráa hlébarðagallann sem stal senunni á Eddunni svo vægt sé til orða tekið. 6.3.2011 08:15
Matt Damon sem Assange Breski veðbankinn William Hill telur að Matt Damon sé líklegastur til að hreppa hlutverk Ástralans Julians Assange, stofnanda Wikileaks, í nýrri mynd um síðuna sem er í bígerð. Russell Crowe, sem ólst upp í Ástralíu, er einnig talinn líklegur til að fá hlutverkið. Aðrir sem eru nefndir til sögunnar eru Leonardo DiCaprio, Jude Law, Michael Sheen og Chris Cooper. 6.3.2011 14:00
Lifir í gömlum glæðum Leikararnir Sandra Bullock og Ryan Gosling áttu í eldheitu ástarsambandi þegar þau unnu saman við tökur á kvikmyndinni Murder by Numbers árið 2001. Sambandið entist þó ekki lengi og parið hætti saman stuttu eftir að tökum á myndinni lauk. Tímaritið In Touch vill meina að nú þegar bæði Bullock og Gosling eru aftur á lausu hafi þau tekið aftur upp þráðinn. 6.3.2011 12:00
Lavigne trúlofuð aftur Söngkonan Avril Lavigne hefur trúlofast kærasta sínum, raunveruleikastjörnunni og fyrrverandi kærasta Nicole Richie, Brody Jenner. Þess má geta að Jenner er sonur Bruce Jenner og því stjúpbróðir Kardashian-systranna. 6.3.2011 10:00
Lady Gaga óheppin í ástum Vinir söngkonunnar Lady Gaga eru ósáttir við kærasta hennar og halda því fram að hann sé að nota hana. 6.3.2011 08:00
Dolce & Gabbana alsett stjörnum Stjörnukjólar, -kápur og -bindi eru það sem koma skal samkvæmt Dolce & Gabbana. Þeir Domenico Dolce og Stefano Gabbana sýndu á sér nýja og nokkuð ærslafulla hlið á tískuvikunni í Mílanó í síðustu viku. Þar voru stjörnur í aðalhlutverki og sáust þær jafnt á klæðnaði og fylgihlutum. 6.3.2011 06:00
Bragðlaus kokkteill hjá Statham Hasarmyndir nútímans eru flestar í stjórnlausum og þreytandi rallígír. The Mechanic er gamall karl á Volvo með stóðið á eftir sér. 6.3.2011 06:00
Steindi Jr spariklæddur Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslensku auglýsingaverðlaunahátíðinni sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í gærkvöldi. ÍMARK, félag íslensk markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa, verðlaunar árlega auglýsingar, sem sendar eru inn í keppnina sem ber heitið Lúðurinn. Íslenska auglýsingastofan, Fíton og Hvíta húsið hlutu flesta lúðra. Athygli vakti að Steindi Jr var áberandi smart klæddur en hann var í jakkafötum, skyrtu og með bindi eins og sjá má á myndunum. 5.3.2011 17:21
Íd frumsýnir dansveislu Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu Íslenska dansflokksins í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Um var að ræða dansveislu sem ber heitið Sinnum þrír þar sem áhorfendur upplifa kraftmikinn dans, ærslafullan kabarett og sirkuslistir. Eins og sjá má ríkti gleði á meðal frumsýningargesta. 5.3.2011 16:41
Vel heppnuð LÍF-söfnun Meðfylgjandi myndir voru teknar í húsakynnum Saga film í Reykjavík í kvöld, þar sem LÍF söfnunin, Gefðu líf, sem fram fór um allt land fyrir Kvennadeild Landspítala háskólasjúkrahúss, var sýnd á Stöð 2 í beinni útsendingu. 5.3.2011 00:03
Kvæntur maður Gamanleikarinn Mike Myers kvæntist í laumi kærustu sinni, Kelly Tisdale, í lok síðasta árs. Parið kynntist árið 2006 en hefur reynt að halda sambandi sínu út af fyrir sig. Kelly Tisdale er fyrrverandi kærasta tónlistarmannsins Moby og saman reka þau testofu í New York þar sem hún og Myers kynntust. Þegar NationalEnquirer hafði samband við Myers sagði hann aðeins: „Ég er hissa að þið höfðuð ekki frétt af þessu fyrr.“ 5.3.2011 15:00
Fjögur hundruð vilja vera fréttamenn á RÚV „Það er ánægjulegt að sjá þennan áhuga á bæði RÚV og fréttastofunni. En þetta lýsir jafnframt atvinnuástandinu,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV. 5.3.2011 14:00
Fékk lopapeysu upp á svið frá aldraðri grúppíu „Viðtökurnar hafa verið yndislegar. Það er rosalega gaman að syngja fyrir eldra fólk,“ segir tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Svavar Knútur gaf út plötuna Amma í fyrra. Á henni flytur hann gamlar perlur sem hann hefur tekið ástfóstri við, en platan er tileinkuð ömmum hans. Svavar hefur fylgt plötunni eftir í félagsmiðstöðvum eldri borgara víða um land og verið vel tekið. „Það er svo mikil æskudýrkun í samfélaginu,“ segir Svavar 5.3.2011 12:00
Þolir ekki Longoria Stuttu eftir skilnað sinn við körfuknattleiksmanninn Tony Parker hóf leikkonan Eva Longoria samband með Eduardo Cruz, litla bróður leikkonunnar Penelope Cruz. Samkvæmt heimildum The National Enquirer er Penelope lítið hrifin af þessu sambandi og óttast að Longoria muni skilja bróður sinn eftir í sárum. 5.3.2011 11:00
Lygilegt langlífi Spaugstofunnar „Þetta er auðvitað lygilegt,“ segir leikarinn Karl Ágúst Úlfsson. Fjögur hundraðasti þáttur Spaugstofunnar verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Þættirnir hófust í Ríkissjónvarpinu árið 1985 og hafa verið sýndir við miklar vinsældir allar götur síðan, eða í 26 ár. 5.3.2011 11:00
Efron daðraði við annan karlmann Leikarinn Zac Efron á að hafa komið öllum á óvart þegar hann sást leiða karlmann í veislu einni í Hollywood fyrir stuttu. Tímaritið The National Enquirer heldur því jafnframt fram að Efron hafi einnig daðrað duglega við manninn og það í augnsýn fyrrverandi kærustunnar, leikkonunnar Vanessu Hudgens. 5.3.2011 10:00
Charlie yngri Leikaranum Shia LaBeouf hefur verið líkt við vandræðapésann Charlie Sheen og samkvæmt tímaritinu The Enquirer kann LaBeouf ágætlega við samlíkinguna. „Líf Shia er í mikilli óreglu. Hann vill vera þekktur sem drykkfelldur kvennabósi, ekki ólíkt Sheen, og eftir að hann tók að sér hlutverk í kvikmyndinni Wall Street 2: Money Never Sleeps hefur fólk tekið upp á því að kalla hann Charlie yngri,“ hefur tímaritið eftir heimildarmanni sem vill meina að LaBeouf sé hreykinn af samlíkingunni enda líti hann upp til Sheen. 5.3.2011 08:00
Litlir víkingar og vígalegar valkyrjur Ný lína af íslenskum víkingabúningum frá hönnuðum barnafatalínunnar Húnihún er væntanleg á markaðinn um helgina. Ríkey Kristjánsdóttir textílhönnuður og Diljá Jónsdóttir klæðskeri eru hönnuðir drengjafatalínunnar Húnihún í Kirsuberjatrénu. Núna hafa þær bætt við línuna víkingabúningum. 5.3.2011 06:00
Smeykur við Lady Gaga Rapparinn Snoop Dogg er hrifinn af tónlist söngkonunnar Lady Gaga en segir að hann yrði of smeykur til að geta farið í rúmið með henni. Snoop segist telja að ástaratlotin yrðu undarleg, enda sé söngkonan ekki alveg eins og fólk er flest. 4.3.2011 22:00