Fleiri fréttir

Jæja ertu ekki aðeins að fara yfir strikið hérna

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá nýtt tónlistarmyndband söngkonunnar Rihönnu sem ber heitið S&M en það er bannað áhorfendum sem eru 18 ára og yngri. Það fer fyrir brjóstið á mörgum að Rihanna er bundin á höndum og fótum, klædd í latex og teipar mann og annan í umræddu myndbandi.

Anita Briem í rúminu með Superman

Anita Briem leikur í rómantískri ástarsenu með bandaríska leikaranum Brandon Routh, best þekktum sem Ofurmennið úr samnefndri mynd frá árinu 2006, í myndasögu-kvikmyndinni Dylan Dog: Dead of Night.

Íslenskur framleiðandi sópar til sín stjörnum

Eva Maria Daniels, íslenskur kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, hefur fengið Veru Farmiga til að leika aðalhlutverkið í kvikmynd sinni, Goats. Farmiga var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tveimur árum en hún þótti fara á kostum í Jason Reitman myndinni Up in the Air. Hún hefur þar að auki leikið í kvikmyndum á borð við The Departed.

Kærastan á mig ein

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór syngur fyrir land og þjóð ásamt því að þjálfa fótboltalið FH um helgar.

Dallas þættirnir endurgerðir

Ákveðið hefur að endurgera hina sívinsælu Dallas þætti og mun hinn 79 ára Larry Hagman fá að leika olíubaróninn JR Ewing á ný.

Stökkpallur fyrir hönnuði

Ýr Þrastardóttir fatahönnuður keppir í Designers Nest í Kaupmannahöfn. Keppnin er þar hluti af árlegri tískuviku sem þúsundir hönnuða, söluaðila og blaðamanna hafa boðað komu sína á.

Styrjaldir og stamandi kóngar

Kings Speech er ógleymanleg mynd sem ætti að geta höfðað til allra. Bjóddu ömmu og afa með, og unglingnum líka.

Rifja upp Sædýrasafnið í París

Leikritið Sædýrasafnið, sem var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2008, verður sýnt í París á næstu dögum. Leikarahópurinn er nýkominn til Parísar og ætlar að dvelja þar í tíu daga. Stefnt er á sex til sjö sýningar á þeim tíma.

Ásgeir Kolbeins segir frá uppruna FM-hnakkans

Sveitaball með Skímó á Sjallanum í kringum 1997. Þar fæddist FM-hnakkinn að sögn Ásgeirs Kolbeins. Hann sviptir hér hulunni af leyndardómi sem margir hafa spurt um en færri svarað. Úr Loga í beinni á Stöð 2.

Vandræðalegt vægast sagt

Þegar leikarahjónin Ashton Kutcher og Demi Moore mættu þremur klukkustundum of seint en áætlað var á sérstakt svæði þar sem ljósmyndarar fengu að mynda þau á rauða dreglinum í Sao Paolo í Brasilíu voru þau púuð niður eins og heyra má í meðfylgjandi myndskeiði. Hjónin stilltu sér brosandi upp og létu öskrin ekki koma sér úr jafnvægi eins og greinilega má sjá á myndbandinu. Hjónin boðuðu komu sína í myndatökuna eftir að Ashton tók þátt í tískusýningu á vegum Colcci sem er brasilískt tískumerki.

Leikrit upp úr fornsögunum sýnt um allt Þýskaland

„Nafnið á verkinu er mjög fyndin nálgun, það er fengið að láni frá Jóni Grunnvíkingi sem lýsti Íslendingasögunum svona, að þetta væru bændur að fljúgast á," segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA.

Elíza fær góða dóma

Tónlistarkonan Elíza Geirsdóttir Newman hefur fengið góða dóma í Bretlandi fyrir EP-plötu sína Ukulele Songs for You sem kom út í stafrænu formi fyrir skömmu. Platan inniheldur lögin Ukulele Song for You, Eyjafjallajökull, sem sló í gegn þegar Elíza flutti það á fréttastöðinni Al Jazeera, og áður óútgefið lag sem nefnist Out of Control.

Hitar upp fyrir The Go! Team

Retro Stefson hitar upp fyrir ensku hljómsveitina The Go! Team á tíu daga tónleikaferð um Þýskaland í mars.

Blue keppir í Eurovision

Strákabandið Blue keppir fyrir hönd Bretlands í Eurovision í vor. Lagið sem strákarnir ætla að flytja nefnist I Can og vonast þeir til að endurvekja feril sinn með þátttökunni í keppninni. „Orðrómurinn er á rökum reistur. Við getum ekki beðið eftir því að lofa ykkur að heyra lagið. Það er mjög flott," skrifaði söngvarinn Duncan James á Twitter. Blue hætti störfum árið 2005 en sneri aftur fyrir tveimur árum og fór í stóra tónleikaferð.

Ekki reykja krakk

The Fighter er hampað meira en hún á skilið. Skemmtanagildið er til staðar en dýptina vantar. Aðalpersónan er ekki nógu spennandi og framvinda sögunnar kemur aldrei á óvart.

Ballett, bítl og Rússar

John Galliano stóð undir merkjum á síðustu sýningu sinni á karlmannsfötum í París

Hin Eurovision lögin nutu ekki sannmælis

Það vakti nokkra athygli á laugardagskvöldið þegar tilkynnt var í Söngvakeppni Sjónvarpsins að þrjú lög kæmust áfram í undankeppninni. Hingað til hafa aðeins tvö lög verið kosin í gegnum símakosningu til að keppa um að verða framlag Íslands til Eurovision.

Ó já þessi rennislétti magi nærist á avókadó

Ástralska ofurfyrirsætan Miranda Kerr, 27 ára, sem eignaðist sitt fyrsta barn, drenginn Flynn, 6. janúar síðastliðinn, með eiginmanni sínum, breska leikaranum Orlando Bloom, 33 ára, er líka meðvituð um hvað lárperan er holl og góð. Spurð út í mataræðið svaraði Miranda:

Greinilega stuð hjá sumum um helgina

Eins og meðfylgjandi myndir sýna var greinilega mikið stuð í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is tók myndirnar á veitingahúsunum Kaffi Zimsen, Hressó, Risinu og Hvíta Perlan á föstudags- og laugardagskvöldið.

Laumar sér bakdyramegin inn í stórmynd í Hollywood

„Það vantaði bara íslenskar raddir og ég var beðinn um að koma og syngja íslenska drykkjusöngva og segja setningar á íslensku,“ segir Stefán Karl Stefánssson, leikari í Bandaríkjunum. Rödd hans og nokkrar velvaldar setningar á íslensku heyrast væntanlega í stórmyndinni Thor sem verður frumsýnd 6. maí. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Stefán Karl er kallaður í slíkt verkefni því hann talaði einnig inn á Night at the Museum með Ben Stiller fyrir fimm árum.

Tekur þátt í hönnunarsamkeppni sænskrar tískukeðju

Tóta Jóhannesdóttir er á meðal þátttakenda í hönnunarsamkeppni á vegum sænsku verslunarkeðjunnar Sisters. Hún hefur verið búsett í Svíþjóð undanfarin tvö ár og starfar sem klippari samhliða því að hanna tískufatnað.

Tilfinningaríkt Eurovision

Síðasta undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins var ákaflega tilfinningarík en þá sungu sex vinir Sigurjóns Brink lagið sem hann sendi inn, Aftur heim. Textann gerði eiginkona Sigurjóns, Þórunn Erna Clausen.

Bræður undrandi á gagnrýni

Leikstjórarnir Joel og Ethan Coen eru undrandi á ummælum sumra kvikmyndagagnrýnenda um að nýjasta mynd þeirra, True Grit, sé ekki eins góð og fyrri verk þeirra. Myndin hlaut fyrir skömmu tíu tilnefningar til Óskarsverðlaunanna. Á meðal annarra mynda þeirra sem hafa þegar fengið Óskarsverðlaun eru Oh Brother, Where Art Thou?, Fargo og No Country For Old Men.

Hamingjusöm saman

Leikarinn Ryan Phillippe hefur átt í sambandi við leikkonuna ungu Amöndu Seyfried undanfarna þrjá mánuði. Samkvæmt heimildarmönnum er parið afskaplega hamingjusamt og vill helst eyða öllum sínum stundum saman heima hjá Phillippe.

Vinir sundurorða vegna Gibsons

Slest hefur upp á vinskap leikaranna Robert Downey Jr. og Jude Law en þeir urðu miklir mátar við tökur á kvikmyndinni Sherlock Holmes. Ástæða ósættisins mun vera vinátta Downey Jr. við leikarann Mel Gibson.

Spjalla um brjóstin á sér

Meðfylgjandi myndskeið er úr spjallþætti Piers Morgan sem fram fór í vikunni á CNN sjónvarpsstöðinni þar sem hann spjallar við Kardashian systurnar, Kim og Kourtney. Kim heldur því fram að brjóstin sín séu ekta en Kourtney viðurkennir að hún lét stækka brjóstin á sér fyrir tíu árum. Þau ræða um vinsældir, útlitið og hæfileikana sem þær búa yfir.

Taktu mataræðið endanlega í gegn

Þórdís Jóna Sigurðardóttir annar eigandi veitingahússins HaPP sem hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi hefur nú sett á laggirnar svokallaða „HaPP daga" sem fram fara í Stykkishólmi. Um er að ræða fimm daga ferð þar sem lögð er áhersla á gott mataræði, hreyfingu og að ekki sé minnst á náin tengsl við náttúruna.

Vá hvað sumir hafa breyst

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá nokkrar Hollywoodstjörnur sem hafa breyst í útliti undanfarin ár. Þar á meðal má sjá söngkonuna Jennifer Hudson sem missti 30 kíló. Eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn ákvað Jennifer að líta betur út og líða betur. Kelly Osbourne léttist um 20 kíló og er nú sátt við að horfa á sjálfa sig í speglinum að eigin sögn. Jessica Simpson er sátt við sjálfa sig og fer ekki leynt með það. Gott hjá stelpunni. Enda skipta nokkur kíló til eða frá alls engu máli. Svo má ekki gleyma Heidi Montag sem fór í óendanlega margar skurðaðgerðir og sér eftir öllu saman.

Hélt að pabbi myndi myrða mömmu

Bandaríska söngkonan Nicki Minaj var stödd í London nú í vikunni og á meðan á heimsókninni stóð veitti hún dagblaðinu The Sun viðtal. Þar kemur meðal annars fram að faðir hennar hafi verið mjög ofbeldisfullur og lifði Minaj í stöðugum ótta.

Hlý föt fyrir dansara

Lára Stefánsdóttir, dansari og skólastjóri Listdansskóla Íslands, blandar saman gömlu og nýju.

Vekur athygli tískuheimsins

Ari Helgason er stofnandi fyrirtækisins Fabricly sem er ætlað að aðstoða fatahönnuði við að koma fatalínu sinni markað. Ari er búsettur í New York og stofnaði Fabricly í byrjun síðasta árs. Móttökurnar hafa að hans sögn verið mjög góðar bæði meðal hönnuða og kaupenda enda fer fyrirtækið nýjar leiðir í framleiðslu og sölu á tískufatnaði.

Meira að segja Logi Bergmann lifnaði allur við

Eins og sjá má á myndunum lifnaði Logi Bergmann allur við á sýningunni. Þá má einnig sjá Ólaf Stephensen ritstjóra Fréttablaðsins, Breka Logason frettamann Stöðvar 2, Mörtu Maríu Jónasdóttur aðstoðarritstjóra Pressunar, Bergljótu Arnalds leikkonu og Hafdísi Huld Þrastardóttur söngkonu svo einhverjir séu nefndir.

Ný norræn tónlistarhátíð

„Íslendingar eru svo gegnsósa af bandarískri og breskri tónlist að það er orðið tímabært að kynna fyrir þeim nýja tónlist. Og hvar er þá betra að byrja en í nágrannalöndunum? Þar er alveg heill hellingur í gangi,“ segir Gunnhildur Gunnarsdóttir, einn af forsvarsmönnum nýrrar tónlistarhátíðar sem hefur verið gefið nafnið Reykjavík-Bergen-Nuuk. Eins og nafngiftin gefur til kynna munu tónlistarmenn frá þessum þremur borgum spila en ráðgert er að hátíðin standi yfir frá 25.-27. febrúar. Heimavöllur hennar verður í nýju leikhúsi úti á Seltjarnarnesi, Norðurpólnum.

Pantera kemur aldrei saman aftur

Vinnie Paul, trommari hinnar sálugu þungarokkshljómsveitar Pantera, segir endurkomu hljómsveitarinnar ekki á dagskránni. Dimebag Darrell, gítarleikari Pantera, var skotinn til bana á sviði í desember árið 2004. Paul segir eftirlifandi meðlimi hljómsveitarinnar ekki ætla að koma saman á ný.

Endurkoma Culture Club

Hljómsveitin Culture Club, sem gerði það gott á níunda áratugnum, ætlar að koma saman aftur á næsta ári í tilefni 30 ára afmælis síns. Ný plata er fyrirhuguð og tónleikaferð um heiminn.

Dugleg Perry

Söngkonan Katy Perry er nú í óðaönn að búa sig undir tónleikaferðalag sem hefst 20. febrúar í Portúgal. „Ég þarf að fylgja ströngu mataræði þess dagana, sem er alveg ömurlegt. Á sunnudögum má ég þó borða það sem ég vil og þá fæ ég mér oftast hamborgara," segir söngkonan.

Var bara fallega fólkinu boðið?

Hárgreiðslufólk alls staðar af landinu kom saman síðustu helgi á hárgreiðslustofunni Circus Circus á Laugavegi til að læra lita- og klippitækni í tilefni 50 ára litadýrðar hárlita frá Schwarzkopf. Eins og myndirnar sýna var hárgreiðslufólkið áhugasamt þegar Dieter Kaiser hárgreislusnillingur kenndi nýjustu lita- og klippitæknina.

Nýtt sýnishorn úr Kurteist fólk frumsýnt á Vísi

Vísir frumsýnir hér nýtt sýnishorn úr grínmyndinni Kurteist fólk. Myndin er eftir Ólaf Jóhannesson og verður frumsýnd 31. mars. Stefán Karl Stefánsson leikur aðalhlutverkið, óhæfa verkfræðinginn Lárus. Hann lýgur sig inn í samfélagið á Búðardal og þykist geta komið sláturhúsinu þar í gang á ný.

Hárdoktorinn kveður Ísland

Plötusnúðurinn Jón Atli Helgason flytur til Danmerkur í byrjun næstu viku. Þar mun hann meðal annars starfa sem plötusnúður ásamt því að spila á bassa inn á plötu með danska plötusnúðnum Kasper Björke.

Havarí fer í frí

„Blóm og kransar afþakkaðir, við munum koma aftur sko,“ segja aðstandendur Havarí en verslunin flytur úr húsnæði sínu í Austurstræti á morgun.

66° í New York: Allsherjar landkynning

Fyrirtækið 66°Norður stóð fyrir umfangsmikilli sýningu á haust- og vetrarlínu sinni 2011 í New York á dögunum. Fjöldi blaðamanna mætti og birtust jákvæðar umsagnir um fatalínuna víða.

Einhleypir og ókunnugir borða saman

Þau þekkjast ekki neitt, hafa aldrei hist en ætla að borða reglulega saman, í anda Come dine with me þáttanna. Það verður fjallað um Borðum og brosum Facebookhópinn í Íslandi í dag í kvöld, kl 18.55 strax að loknum fréttum.

Sjá næstu 50 fréttir