Fleiri fréttir

Hamborgarar eru ekkert óhollir

Tómas Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Hamborgabúllunni, er ekkert ófeiminn við að neyta eigin veitinga. Tommi, sem á að baki áratugareynslu í rekstri hamborgarabúlla, þreytist ekkert á borgurunum. Hann borðar þvert á móti lágmark einn eða tvo á hverjum degi og hlakkar til hvers dags þegar hann getur fengið sér hamborgara.

Stella ósátt við Heather Mills

Sótt er að hinni einfættu Heather Mills úr öllum áttum. Fyrir helgi skammaði Fergie, hertogaynjan af York hana fyrir umdeilt sjónvarpsviðtal sem hún veitti um daginn. Botninn tók líklega úr núna en Stella McCartney, dóttir Pauls, hefur sett svolítið sérstakan skartgrip á markað.

50 Cent er rómantískur inn við beinið

Gangsterrapparinn 50 Cent er greinilega ekki harðjaxlinn sem hann lítur út fyrir að vera. Það dugaði ekkert minna en þota til að ferja afmælisgjafirnar til kærustunnar hans á 22ja ára afmæli hennar.

Victoria Beckham er brandari

Hin yfirlýsingaglaða Lilly Allen réðst í gær á Victoriu Beckham, sem hún segir vera hlægilegan athyglissjúkling.

Kylie Minogue aflýsir tónleikaferðalagi vegna heilsuleysis

Kylie Minogue hefur aflýst tónleikaferðalagi sínu af heilsufarsástæðum. Stjarnan ætlaði að hefja tónleikaferðalag um allan heim snemma á næsta ári, en læknar hennar mæltu gegn því. Kylie þurfti að aflýsa ,,Showgirl" tónleikaferðalagi sínu árið 2005, eftir að hún greindist með brjóstakrabbamein.

Fimm ára kláðinn drepur hjónabandið

Nýgift fólk hefur hingað til getað átt von á sjö árum í sambúð áður en innanmein gera vart við sig og ganga jafnvel af sambandinu dauðu. Nú hafa nýjar rannsóknir leitt í ljós að hættumerkjanna verður vart eftir aðeins fimm ár.

Hannes ánægður með hlaupið

„Þetta gekk helvíti vel,“ segir Hannes Smárason, en hann lauk New York maraþoni á fjórum klukkustundum og fimmtíu mínútum. Hannes segir að þetta hafi verið sérstaklega skemmtileg upplifun og mikið mannlíf í hlaupinu.

Sífellt fleiri Íslendingar viðurkenna kynlífsfíkn sína

Rithöfundurinn Elísabet Jökulsdóttir lýsti því yfir í viðtali við Fréttablaðið á laugardaginn að hún hefði sótt fundi hjá SLAA, samtökum kynlífs- og ástarfíkla. Fréttablaðið kynnti sér starf samtakanna í kjölfarið. Heimildarmenn blaðsins gátu ekki komið fram undir nafni þar eð starf samtakanna byggist á nafnleysi, líkt og SÁÁ.

Aguilera viðurkennir að vera með barni

Söngstjarnan Christina Aguilera gengur með barn undir belti. Þetta staðfesti hún í samtali við Glamour tímaritið. Hún segist vera himinlifandi og hlakka til að eignast barnið. Faðir barnsins er eiginmaður hennar Jordan Bratman „Hann er alveg himinnlifandi. Hann er svo frábær,“ segir Aguilera um sinn heittelskaða. „Hann er mér svo mikill stuðningur og ótrúleg hjálp í öllu,“ bætir hún við.

Kryddstúlkumyndband lak á Netið

Myndband með laginu Headlines (Friendship Never Ends), af nýjustu breiðskífu Kryddstúlknanna er komið á YouTube. Ofurbloggarinn Perez Hilton gefur myndbandinu sjálfu enga toppeinkunn en segir að stúlkurnar líti glæsilega út. Hann dáist sérstakleg af vel þjálfuðum magavöðvum Geris.

Hannes og félagar í góðum félagsskap í New York maraþoninu

Hannes Smára og félagar verða ekki í lélegum félagsskap í New York maraþoninu um helgina. Það sást í dag til Katie Holmes og Tom Cruise leggja bíl sínum fyrir framan Carlyle hótelið í New York, aðeins örfáum skrefum frá Central Park þar sem maraþoninu lýkur. OK Magazine greinir frá því að Katie ætli sér að vera meðal þeirra 37 þúsund manna sem hlaupa kílómetrana 42 á sunnudaginn. Fjölskyldan hennar verður á svæðinu líka og tekur á móti stúlkunni þegar hún kemur í mark. Cruise mun hinsvegar að sögn OK bíða eiginkonunnar á Tavern on the Green með Suri litlu.

Þórunn Högna á 200 á þýskri hraðbraut

,,Þetta var bara ógleymanleg ferð. Það var farið með okkur eins og kóngafólk" sagði Þórunn Högnadóttir þáttastjórnandi í Innlit-útliti, en hún fór í sannkallaða ævintýraferð í dögunum til Munchen í Þýskalandi að skoða ,,BMW Welt."

Hannes ætlar að hlaupa maraþon fyrir fertugt

Hannes Smárason forstjóri FL Group hleypur í New York Maraþoninu á sunnudag ásamt 30 starfsmönnum fyrirtækisins og vinum sínum Magnúsi Ármanni stjórnarmanni í FL Group og 365, Bjarna Ármannssyni stjórnarformanni REI og Þorsteini M. Jónssyni stjórnarformanni Glitnis.

Amy og Pete héldu haus

Þvert á allar spár þóttu vandræðagemsarnir Amy Winehouse og Pete Doherty standa sig með prýði á MTV verðlaunahátíðinni í Munchen í gær, þó ekki syngju þau saman eins og hafði verið spáð. Gagnrýnendur voru sammála um að frammistöður beggja hefðu verið með þeim bestu á kvöldinu, sem þó var stjörnum prýtt.

Þorsteinn kynnir Edduna

Þorsteinn Guðmundsson leikari verður aðalkynnir Edduverðlaunanna 2007 sem fram fara á Hilton Reykjavik Nordica 11. nóvember. Þorsteinn var kynnir verðlaunanna árið 2005.

Uppselt á átján sýningar Ökutíma fyrir frumsýningu

Verðlaunaverkið Ökutímar eftir Paulu Vogel verður frumsýnt í kvöld hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meðal annars hlaut það hin virtu Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í Bandaríkjunum fyrir sjö árum.

Aðsókn í bíó tók kipp

Aðsókn á íslensku kvikmyndirnar sem nú eru sýndar í bíó tók kipp eftir að tilnefningar til Edduverðlauna voru kynntar í síðustu viku. Þannig jókst aðstókn á Veðramót um 64 prósent strax í kjölfar tilnefninganna. Aðsókn á Astrópíu jókst að sama skapi um 42 prósent.

Britney Spears skotin í Playboy fyrirsætu

Britney viðurkenndi áhuga sinn á hinni íturvöxnu Kim Kardashian í samkvæmisleik með vinum sínum. ,,Kim er með æðislegan rass, húð og augu" ,,Hún er alvöru kvenmaður, algjör kynlífsmaskína" hefur Sun eftir vinum poppstjörnunnar.

Mika gerist glysgjarn með meiru

Tónlistamaðurinn Mika gjörbreytti skilgreiningunni á ,,Blingi" á MTV verðlaunahátíðinni í gær. Söngvarinn var í sérsniðnum jakka með demöntum að virði 360 milljóna króna. Frændi söngvarans, sem er skartgripasmiður á Indlandi, gerði augalaga nælu með demöntunum fyrir söngvarann.

Katie Melua á Íslandi - Ætlar að heimsækja Loga

Söngkonan heimsþekkta Katie Melua lendir á Íslandi í hádeginu. Hún mun í kvöld koma fram í Kastljósinu og svo í skemmtiþætti Loga Bergmanns Eiðssonar á Stöð 2. Á morgun mun Melua svo gefa blaðamönnum viðtöl áður en hún heldur svo af landi brott síðdegis þann sama dag.

Tónleikum Zeppelin frestað vegna puttabrots

Endurkomu Led Seppelin, sem átti að eiga sér stað í lok nóvember, hefur verið frestað vegna puttabrots. Og ekki bara einhvers puttabrots. Jimmy Page, gítarleikari sveitarinnar braut puttann á sér um síðustu helgi og getur að læknisráði ekki spilað á gítar næstu þrjár vikur.

Íslenski pókerspilarinn úr leik í Dublin

Íslenski pókerspilarinn Rúnar Rúnarsson er úr leik á Evrópumótaröðinni í Dublin sem lýkur á morgun. Rúnar var í 17. sæti á tímabili en samkvæmt fréttasíðunni pokernet.is mun Rúnar hafa endað í 50. sæti, eða neðar.

Sæmdur riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar

„Mér var tilkynnt þetta ekki alls fyrir löngu. Maður fær engar nákvæmar skýringar heldur bara tilkynningu,“ segir rithöfundurinn Sigurður Pálsson en Frakklandsforseti hefur ákveðið að sæma hann Chevalier de l’Ordre National du Mérite eða riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar.

Led Zeppelin frestar tónleikum

Hljómsveitin Led Zeppelin hefur frestað boðuðum tónleikum um tvær vikur eftir að Jimmi Page, gítarleikari hljómsveitarinnar, braut á sér fingurinn.

Forhlustun á nýjustu plötu Páls Óskars

,,Allt fyrir Ástina", fyrsta dansplata Páls Óskars síðan árið 1999 kemur út miðvikudaginn 7. nóvember næstkomandi. Notendum tónlist.is gefst nú tækifæri til að hlusta á plötuna í heild sinni áður en hún kemur út.

Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálma ganga í hjónaband

Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir verða gefin saman í Dómkirkjunni þann sautjánda nóvember næstkomandi. Þrjúhundruð gestum er boðið í veisluna sem verður haldin í Hafnarhúsinu.

Amy Winehouse og Pete Doherty saman á MTV verðlaunahátíð

Skrattinn hittir ömmu sína á Evrópsku tónlistarverðlaununum í kvöld ef marka má sögusagnir. Samkvæmt heimildum Sun blaðsins munu ofurvandræðagemsarnir Pete Doherty og Amy Winehouse syngja dúett á verðlaunahátíðinni, sem er sýnd í beinni útsendingu fyrir milljónir áhorfenda.

Lúsin herjar á bæjarstjóra Bolvíkinga

,,Hér er kembt kvölds og morgna." sagði Grímur Atlason bæjarstjóri Bolungarvíkur í samtali við Vísi. Grímur greindi frá því á bloggi sínu á Eyjunni í gær að hann hefði fundið lús í hári sínu og dóttur sinnar.

Prison Break leikari dæmdur fyrir manndráp af gáleysi

Leikarinn Lane Garrison úr Prison break var í gær dæmdur í þriggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Sautján ára stúlka sem var farþegi í bíl Garrisons lést þegar leikarinn keyrði drukkinn á tré.

Heimsins flottustu bossar

Undirfatafyrirtækið Sloggi telur sig hafa fundið flottustu bossa í heimi, á karlmanni og konu.

Existaforstjóri keypti styrktarmálverk fyrir 2,5 milljónir

Erlendur Hjaltason, annar forstjóri Exista, keypti málverk eftir Hrafnkel Sigurðsson á styrktarkvöldi Krabbameinsfélags Íslands um síðustu helgi. Erlendur greiddi 2,5 milljónir fyrir verkið sem Hrafnkell málaði á staðnum.

Rúnar í 17. sæti á alþjóðlegu pókermóti

Rúnar Rúnarsson er í 17. sæti af þeim 122 keppendum sem eftir eru á EPT Dublin mótinu í Evrópumótaröðinni í Póker. Mótið heldur áfram í dag en því líkur á laugardag þegar þeir sem eftir standa leiða saman hesta sína á lokaborðinu. Alls hófu 221 þáttakendur leik en 99 eru hafa lokið keppni. 45 milljónir íslenskar króna koma í hlut sigurvegara mótsins.

Fullt hús á Mugiboogie

Þá er hún loks komin platan sem á að fylgja eftir einni af dáðustu plötum síðustu ára í íslenskri tónlist, Mugimama Is This Monkey Music? sem toppaði árslista flestra tónlistar­áhugamanna árið 2004. Mugison hefur ekki setið auðum höndum á þessum þremur árum sem eru liðin fá útkomu Mugimama. Hann hefur spilað töluvert í útlöndum til að fylgja erlendum útgáfum hennar eftir og hann er búinn að gera tónlist við tvær kvikmyndir; A Little Trip to Heaven og Mýrina. Svo hefur hann unnið að nýju plötunni sem er hér til umfjöllunar, Mugiboogie.

Sjá næstu 50 fréttir