Fleiri fréttir

Útgáfu á breiðskífu Britney flýtt

Útgáfudegi Blackout, nýjustu breiðskífu Britney Spears, hefur verið flýtt um tæpar tvær vikur. Platan átti að koma út þann 13. nóvember en verður nú fáanleg þann 30. október. Talsmenn Jive Recors, útgáfufyrirtækis Spears, segja ákvörðunina tekna til að sporna við frekara ólöglegu niðurhali á lögum af plötunni sem lekið hefur verið út á netið.

Pamela komin tvo mánuði á leið

Pamela á von á barni, samkvæmt heimildum In Touch Weekly, og mun hún vera komin tvo mánuði á leið. Faðirinn er Rick Salomon, fyrrverandi kærasti Parisar Hilton, en hann og Pamela gengu að eiga hvort annað þann 6. október síðastliðinn.

Marie var villiköttur í rúminu

Danska slúðurblaðið Se og Hör hefur haft uppi á fyrrverandi kærasta Marie Cavallier sem er tilvonandi eiginkona Jóakims prins. Kærastinn er athafnamaðurinn Anthony D. búsettur í Sviss og lætur allt flakka um sambandið við Marie.

Sólveig Káradóttir: Mætti með bítlasoninn Dhani til Yoko

„Ég vil ekkert tjá mig um þetta og ætli ég haldi mig ekki bara við aðstoðarmanna-söguna,“ segir fyrirsætan og sálfræðineminn Sólveig Káradóttir. Sólveig, sem er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deCODE, hefur þráfaldlega verið orðuð við Dhani Harrison, son Bítilsins George Harrison og Oliviu Harrison. Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi þegar þau mættu saman í móttöku borgarstjóra Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eftir að hafa fylgst með ekkju Johns Lennon, Yoko Ono, kveikja á Friðarsúlunni úti í Viðey.

Charlize Theron kynþokkafyllst

Tímaritið Esquire hefur útnefnt Óskars- og Golden Globeverðlaunaleikkonuna Charlize Theron kynþokkafyllstu konu heims.

Affleck elskar að vera pabbi

„Violet dóttir mín er það besta sem hefur komið fyrir mig,“ segir Ben Affleck í samtali við Parade tímaritið. „Hún er hamingjusöm og talar eins og brjálæðingur. Hún fær mig til að brosa gerir mig svo hamingjusaman. Ef ég er ekki í burtu í einhvern tíma get ég ekki hugsað um annað en að komast heim til að vera nálægt henni.“

Jamie Spears vill láta loka dóttur sína inni

Jamie Spears, faðir Britney Spears, leggur nú á ráðin, ásamt lögfræðingi sínum, um hvernig sé best að koma Britney aftur í meðferð. Þrátt fyrir að síðasta lyfjapróf söngkonunnar hafi verið neikvætt og að hún hafi mætt á foreldranámskeið þá er faðir hennar enn mjög áhyggjufullur.

Von á nýju efni frá Michael Jackson

Í bréfi sem Michael Jackson hefur sent til aðdáenda sinna gefur hann í skyn að von sé á nýju efni frá honum næstunni. Síðasta breiðskífa söngvarans, Invicible, kom út árið 2001 en í bréfinu segir hann óvæntra tíðinda að vænta von bráðar.

Lohan ætlar að hefja nýtt líf

Lindsay Lohan segir í nýlegu viðtali við tímaritið In Touch Weekly að hún ætli að snúa baki við óheilbrigðu líferni og fara að haga sér eins og fullorðin manneskja. Þetta er í fyrsta skipti sem hún tjáir sig opinberlega eftir að hún lauk meðferð á Cirque Lodge meðferðarheimilinu í Utah.

Airwaves á Akureyri

Tónleikar í anda Airwaves hátíðarinnar verða haldnir á Græna hattinum á Akureyri laugardagskvöldið 20. október. Á þeim koma hljómsveitirnar Buck65, Plants and Animals, Forgotten Lores og Audio Improvement fram.

Hasselhoff fellur

Strandvarðarstjarnan David Hasselhoff liggur nú á spítala eftir að hafa fallið. Leikarinn hefur lengi háð baráttu við bakkus en verið þurr í nokkra mánuði. Hann féll fyrir skömmu en um leið og hann áttaði sig á mistökunum setti hann sig í samband við lækna sem lögðu hann inn.

Sutherland í fangelsi

Leikarinn Kiefer Sutherland, sem fer með hlutverk Jack Bauer í sjónvarpsþáttaröðinni 24, hefur verið dæmdur í 48 daga fangelsi fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.

Randver í sjónvarpið á ný

Randver er heiti á þætti, í umsjá Randvers Þorlákssonar, sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni ÍNN í næstu viku.

Kryddin gera góðverk

Kryddpíurnar hafa tekið ákvörðun um að allur ágóði af nýju smáskífu þeirra Headlines renni til góðgerðarmála. Lagið er annað af tveimur sem píurnar hafa tekið upp í tengslum við væntanlega tónleikaferð sína og kemur út þann 19. nóvember næskomandi.

Spearssystur í rifrildi úti á götu

Birtney Spears og litla systir hennar Jamie Lynn lentu í heldur óskemmtilegu atviki um helgina þegar æst kona réðst að þeim og hellti sér yfir Spears. Systurnar sem höfðu verið að kaupa sér kaffi gengu um götur Malibu umkringdar ljósmyndurum þegar konan birtist.

Wahlberg æfir stíft fyrir boxmynd

Leikarinn Mark Wahlberg tekur væntanlegt hlutverk sitt í myndinni The Fighter það alvarlega að hann vaknar klukkan fjögur á morgnanna til að vera mættur í ræktina þegar hún opnar klukkan fimm.

Hugh Grant kemur sér í klandur

Háskólaár leikarans Hugh Grant eru löngu liðin en um helgina ákvað hann að endurvekja gamlar minningar og fór ásamt fríðu föruneyti ungra meyja í háskólapartý. Hann drakk ótæpilegt magn af ódýru víni, borðaði kalda pizzu og fór í sleik.

P. Diddy gengst við 15 mánaða gamalli stúlku

Rapparinn Sean P. Diddy hefur viðurkennt að vera faðir hinnar 15 mánaða gömlu Chance. Stúlkan fæddist þegar Diddy var enn í sambúð með Kim Porter. Móðir stúlkunnar heitir hins vegar Sarah Chapman. Því hefur lengi verið haldið fram að Diddy sé faðirinn en hann viðurkenndi það ekki fyrr en niðurstöður DNA-rannsóknar leiddu sannleikann í ljós.

Allt á afturfótunum hjá Cruise

Mikið af því efni sem búið var að taka upp í tengslum við gerð myndarinnar Valkyrie með, Tom Cruise, er ónothæft og þarf að taka fjölda atriða upp aftur. „Þegar upptökurnar bárust í kvikmyndaver kom í ljós að megnið af efninu var ónýtt eða horfið,“ segir talsmaður framleiðenda í samtali við þýska dagblaðið Bild.

Bilet.ro hlýtur verðlaun í Rúmeníu

Bilet.ro, dótturfélag Miða.is, sigraði í flokki afþreyingarvefja við afhendingu rúmensku vefviðskiptaverðlaunanna í síðustu viku. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin voru afhent og hlaut Bilet.ro verðlaun í flokknum „Besti afþreyingar og frístundavefurinn.“ Alls voru 24 vefir í úrslitum í þeim flokki.

Mary grét af afbrýðissemi

Danski blaðamaðurinn Trine Willeman hefur skrifað bókina 1015 Köbenhavn K þar sem hún segir af mikilli hreinskilni frá því sem gerist bakvið tjöldin hjá dönsku konungsfjölskyldunni.

Sigur Rós á tjúttinu með McCartney og Minogue

Hljómsveitin Sigur Rós var á meðal sigurvegara á hinni mikilsmetnu Q tónlistarverðlaunahátíð sem haldin var í London í dag. Aðrir sigurvegarar á hátíðinni voru til að mynda Kylie Minogue, Amy Winehouse, Arctic Monkeys, Stereophonics, Manic Street Preachers og Paul McCartney.

Jón og Eyvi með Cabaret í Kína

Þeir Jón Ólafsson og Eyjólfur Kristjánsson fóru um helgina ásamt fríðu föruneyti til Qingdau í Kína þar sem haldið var upp á kaup Eimskipa á 60% hlut í kínverska gámageymslufyrirtækinu Luyi Depot.

The Police mögulega með nýja plötu

Andy Summers, gítarleikari hljómsveitarinnar The Police, segir ekki útilokað að hann og félagar í hljómsveitinni taki sig til og geri nýja plötu þegar tónleikaferð þeirra lýkur á næsta ári. "Það væri mikil áskorun fyrir okkur að setjast niður og semja eftir öll þessi ár," sagði hinn 64 ára gamli Summers í samtali við blaðamenn í Dublin.

Jolie hittir föður sinn á laun

Leikarinn Jon Voight sást koma skælbrosandi út af Waldorf Astoria hótelinu í New York á sunnudag en þar dvöldu einnig Angelina Jolie, dóttir hans og sambýlismaður hennar Brad Pitt. Það bendir til þess að þau feðginin hafi náð sáttum en þau hafa ekki talast við síðan Jolie og Billy Bob Thornton skildu árið 2002.

Beckham landar milljóna samningi við Cavalli

Victoria Beckham hefur landað milljóna samningi við tískukonunginn Roberto Cavalli og mun hann ætla að sjá um að gera klæðaburð kryddpíanna óaðfinnanlegan í væntanlegri endurkomutónleikaferð sem hefst í byrjun desember.

Britney sættist við móður sína

Í kjölfar þess að Britney Spears missti tímabundið forræði yfir sonum sínum tveimur mun hún hafa leitast eftir sáttum við móður sína. Spears og móðir hennar Lynne voru ávallt nánar en þær hættu að talast við í sumar eftir að Britney afhenti móður sinni bréf með særandi athugasemdum.

Myndband við Bohemian Rhapsody talið best

Myndband við lagið Bohemian Rhapsody með hljómsveitinni Queen var valið besta tónlistarmyndbandið í nýlegri könnun sem gerð var í Bretlandi. Af þeim rúmlega þúsund sem tóku þátt í könnuninni sögðu 30 % að hið sex mínútna langa myndband með Queen væri best.

Moore og Kutcher í uppnámi eftir myndastuld

Demi Moore og eiginmaður hennar Ashton Kutcher eru sögð í miklu uppnámi eftir að nektarmyndir úr síma Kutcher komust í umferð. Leikarinn týndi símanum á ferð sinni um Spán í Apríl síðastliðinn og óprúttinn aðili fann hann í aftursæti leigubíls.

Lindsay Lohan lýkur meðferð

Ungstirnið Lindsay Lohan hefur lokið meðferð á Cirque Lodge meðferðarleimilinu í Utah. Hún var lögð inn í byrjun ágúst eftir að hafa tvívegis verið tekin fyrir ölvunarakstur á skömmum tíma. Þetta mun vera þriðja meðferðin sem hin 21 árs gamla leikkona fer í gegnum.

Pamela aftur í hnapphelduna

Fregnir berast nú frá Las Vegas um að kynbomban Pamela Anderson hafi gifst Rick Salomon á laugardagkvöld ,á milli sýninga sinna á Las Vegas Strip. Hjúskaparheitin voru gefin á milli sýninganna á Hans Kloks The Beauty of magic þar sem Pamela leikur eitt af aðalhlutverkunum.

Video: Britney hundelt á rúntinum með litlu systur

Þrátt fyrir að vera hundelt af ljósmyndurum hvert sem hún fyrir hikar Britney Spears ekki við að eyða heilu laugardagskvöldi á rúntinum. Í gærkvöldi brá söngkonan sér í bíltúr með litlu systur sinni Jamie Lynne sem er hjá henni í heimsókn um þessar mundir.

Sigrar og sorgir Britney Spears

Fyrir fimm árum útnefndi Forbes-tímaritið söngkonuna Britney Spears valdamestu manneskjuna í afþreyingariðnaðinum. Og ekki að undra. Fyrstu fjórar sólóskífurnar höfðu rokið út og nafn hennar og andlit voru greypt í öll helstu dagblöð og tímarit.

Frá Hverfisgötu í Ingólfsstræti

Stefán Baldursson er maðurinn sem ber ábyrgð á glæstum ferli okkar stærstu leikara í dag. Hann fann það fljótt að hann vildi ekki verða leikari.

Frægir Íslendingar skrá sig á Facebook

Yfir sjö þúsund Íslendingar hafa skráð sig á vefsvæðinu Facebook en heildarfjöldi skráninga á heimsvísu er hátt í 40 milljónir. Þekktir Íslendingar sjá sér greinilega hag í þátttöku því þeir skipta tugum.

Lopez kemur upp um sig

Jennifer Lopez hefur undanfarnar vikur keppst við að neita því að hún og eiginmaður hennar Marc Anthony eigi von á barni. Á tónleikum þeirra hjóna í Connecticut í lok september virtist hún þó einhverju vera að leyna. Hún skipti ört um kjóla og allir voru þeir víðir yfir magann. Í eitt skipti feyktist kjóllinn til og blasti grunsamlega útstæður magi við.

Meintur lagastuldur Knowles fyrir áfrýjunardómstól

Kona sem sakar Beyonce Knowles um lagastuld hefur vísað málinu til áfrýjunardómstóls. Jennifer Armour heldur því fram að lag Knowles, Baby Boy, byggi á textanum og laglínunni í lagi hennar Got a Little Bit of Love for You.

Hvað er Jude að fela?

Það mætti halda að leikarinn Jude Law sé að reyna að koma á nýrri hattatísku en skýringin á sífellt nýjum höfuðfötum mun vera kollvikin sem gera lítið annað en að hækka. Í nýlegu viðtali hjá David Letterman tók hann ofan og þá sást bersýnilega hversu þunnhærður hjartaknúsarinn er. Það bæti ekki úr skák að hann er nánast snoðaður þessa dagana svo hárleysið fer ekkert á milli mála.

Sjá næstu 50 fréttir