Lífið

Jamie Spears vill láta loka dóttur sína inni

Britney og Jamie talast ekki við
Britney og Jamie talast ekki við MYND/Getty

Jamie Spears, faðir Britney Spears, leggur nú á ráðin, ásamt lögfræðingi sínum, um hvernig sé best að koma Britney aftur í meðferð. Þrátt fyrir að síðasta lyfjapróf söngkonunnar hafi verið neikvætt og að hún hafi mætt á foreldranámskeið þá er faðir hennar enn mjög áhyggjufullur.

Heimildarmaður The Sun segir Jamie vilja koma á fundi með Britney og þeim sem að henni standi til að ræða opinskátt um vanda hennar. Hann er hræddur um að hún fari sér að voða og óttast jafnvel að hún geri sonum sínum mein. Þá hefur hann áhyggjur af villtu líferni hennar og miklum fjárútlátum. Hann hefur í því samhengi bent á ítrekaðar hóteldvalir hennar í Los Angeles þrátt fyrir að eiga þar tvö afbragðsfín heimili.

Samkvæmt heimildarmanninum ýta nýlegar uppákomur hjá Britney enn undir áhyggjur föður hennar en í síðustu hóteldvöl á hún að hafa tekið upp á því að sækja um starf barstúlku og um helgina hringdi hún hágrátandi í lögregluna og hélt því fram að brotist hafi verið inn hjá henni. Lögregla kom á staðinn en kom ekki auga á nokkuð óeðlilegt á heimili hennar.

Myndbandið við Gimme More, nýjasta lag söngkonunnar, er svo ekki beint til þess fallið að slá á áhyggjur Jamie en þar bregður dóttir hans sér í gervi strippara og dinglar sér upp við súlu. Lagið þykir þó ekki alslæmt og er von á smáskífunni í búðir þann 22 október næstkomandi. Nýja breiðskífan Blackout er svo væntanleg þann 29. október. Myndbandið og súludansinn má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.