Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aukatónleikar sunnudaginn 24.september Vegna gríðarlegrar eftirspurnar, fjölda áskorana og ótrúlegrar pressu hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum með Björgvini Halldórssyni og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eins og kunnugt er seldust fyrri tónleikarnir upp á mettíma fyrir skömmu, þegar tæplega 3000 miðar ruku út á aðeins 90 mínútum. 10.9.2006 00:09
Vandræði í paradís Stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt virðist eiga í einhverjum erfiðleikum þessa dagana, samkvæmt bandarísku slúðurblöðunum, sem keppast um að birta fréttir af parinu þess efnis að vandræði séu í sambandinu. Þar segir að þau tali varla saman lengur því þegar þau tali saman fari rifrildi af stað. 9.9.2006 16:00
Plata í nóvember Enski tónlistarmaðurinn Yusuf Islam, sem áður hét Cat Stevens, ætlar að gefa út sína fyrstu poppplötu í 28 ár í nóvember undir merkjum Atlantic Records. 9.9.2006 15:00
Skímó á NASA í kvöld Strákarnir í Skítamóral munu spila fyrir dansi á skemmtistaðnum Nasa, í kvöld laugardaginn 9. sept. Peyjarnir eru í miklu stuði þessa dagana því stutt er síðan þeir spiluðu í Reykjanesbæ fyrir gesti Ljósanætur, en talið er að um 40.000 manns hafi lagt leið sína á Ljósanótt þetta árið. 9.9.2006 15:00
Karnivalísk ádeila í reiðhöll Einleikhúsið setur upp spunaleikritið Þjóðarsálina nú á haustdögum en ekki dugir minna en stærðarinnar reiðhöll til að rúma þá sál. Hópur fimm atvinnuleikara undir stjórn leikstjórans Sigrúnar Sólar Ólafsdóttur hefur skapað sýninguna út frá spurningunni um þessa meintu þjóðarsál og er þar unnið með viðhorf Íslendinga og tekið á ýmsum sammannlegum löstum og dyggðum. 9.9.2006 14:30
Karnival á Klapparstíg "Þetta er gert fyrir fólkið sem vill kreista síðustu dropana úr sumrinu með skemmtilegum hætti," segir Jón Atli Helgason, tónlistar- og hárgreiðslumaður og einn af skipuleggjendum hátíðarhalda á Klapparstíg sem bera nafnið Karnival á Klapparstíg og fara fram í kvöld. 9.9.2006 13:45
Kynnir óskarinn Bandaríski spjallþáttastjórnandinn og grínistinn Ellen DeGeneres verður kynnir á næstu óskarsverðlaunahátíð. Tekur hún við starfinu af grínistanum Jon Stewart. Ellen, sem er 48 ára, hefur tvívegis verið kynnir á Emmy-verðlaununum. 9.9.2006 13:00
Nauthólsvík lokuð vegna veðurs Já það er rétt við ákváðum að loka í gær vegna veðurs, segir Óttarr Hrafnkelsson forstöðumaður ylstrandarinnar í Nauthólsvík sem var lokuð í gær vegna veðurs enda mikil rigning og rok á Suðurlandi í gær. Óttarr segist ekki vita til þess að þurft hafi að loka ylströndinni áður vegna veðurs en þetta er allaveganna í fyrsta skiptið sem hann lokar síðan hann tók við fyrir tveimur árum. 9.9.2006 12:15
Elle lærði sína lexíu Ofurfyrirsætan Elle MacPherson segist þjást af sektarkennd yfir því að hafa ekki verið til staðar fyrir söngkonuna og vinkonu sína Kylie Minogue þegar hún greindist með brjóstakrabbamein. Elle, sem er áströlsk eins og Kylie, segist sjá einna mest eftir þessu af öllu í lífinu. 9.9.2006 11:30
Letterman áfram Bandaríski spjallþáttastjórnandinn David Letterman mun verða að minnsta kosti fjögur ár til viðbótar með þátt sinn, The Late Show. Letterman hefur átt í samningaviðræðum við sjónvarpsstöðina CBS að undanförnu og mun að öllum líkindum skrifa undir samninginn innan skamms. 9.9.2006 11:00
Til bóta ef kílóin fjúka Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður hefur stundað sundlaugarnar undanfarin tvö ár af miklum dugnaði. Ég reyni að koma því við eins oft og ég get að skella mér í sund, segir þingmaðurinn, sem syndir að meðaltali tvisvar í hverri viku. 9.9.2006 10:15
Komin á spítala Britney Spears fór ásamt maka sínum Kevin Federline upp á spítala í gær þar sem annað barn þeirra verður tekið með keisaraskurði. Það er viðeigandi því aðeins er ein vika í það að fyrsta barn þeirra hjóna, Sean Preston, verði ársgamall. 9.9.2006 09:30
Leikið til góðs því lífið kallar Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika ásamt norsku söngkonunni Solveigu Kringelborn í Háskólabíói kl. 17 í dag. Tónleikarnir eru til stuðnings verkefni barna- og unglingageðdeildar Landspítalans Lífið kallar en verkefnið er unnið í samstarfi við FL Group. 9.9.2006 08:45
Burton tekur upp fyrir The Killers Kvikmyndaleikstjórinn virti, Tim Burton, ætlar að leikstýra sínu fyrsta tónlistarmyndbandi. Verður það við lagið Bones með ensku rokksveitinni The Killers. 9.9.2006 08:00
Talandi fíll Fílar hafa hingað til ekki verið þekktir fyrir að tala en þar virðist hafa orðið breyting á ef marka má starfsfólk í skemmtigarði í Jongin í Suður-Kóreu. Kosis, sextán ára gamall fíll, er sagður geta gefið frá sér hljóð sem minni á orð í kóresku. 8.9.2006 21:14
Jakobínarína ein þriggja sveita á hátíðinni Hafnfirska rokksveitin Jakobínarína er meðal þeirra þriggja hljómsveita sem troða upp á Iceland Airwaves tónleikum í London þann 12. september. Ein helsta von Svía í rokkbransanum um þessar mundir, Love is All, og hinir innfæddu Tilly and the Wall, sem fyrir skemmstu gaf út sina aðra breiðskífu 'Bottoms of Barrales' hjá hinni skemmtilegu Moshi Moshi plötuútgáfu, koma einnig fram á tónleikunum sem haldnir eru undir formerkjunum 'A Taste of Airwaves' og fara fram í London's King's College. Hljómsveitirnar þrjár munu allar koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í ár, sem fer fram í áttunda sinn í miðborg Reykjavíkur daganna 18. - 22. október. 8.9.2006 11:04
Magni í úrslitaþátt Rock Star Magni Ásgeirsson komst í úrslitaþátt Rock Star: Supernova eftir að öll atkvæði höfðu verið talin. Magni var um tíma meðal þriggja neðstu eins og allir hinir fimm þátttakendurnir en þegar allt kom til alls var hann ekki í hættu. 8.9.2006 00:01
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin Stórtíðindi berast úr herbúðum útgáfuhreyfingarinnar Nýhil sem blæs til upplestrarkvölds í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Þór Steinarsson, forvígismaður kynningarmála félagsins, segir þar von á stórkostlegri upplifun sem enginn megi missa af. 7.9.2006 18:00
Vill ekki umfangsmikla jarðarför Faðir krókdílafangarans Steve Irwin sem lést fyrr í vikunni vill ekki að sonur sinn verði jarðaður í boði ríkisins með mikilli viðhöfn. 7.9.2006 17:00
Tattú-hátíð fær frábæra dóma Tattú-rokkhátíð sem var haldin hér á landi dagana 8. til 11. júní fær góða fimm síðna umfjöllun í nýjasta tölublaði tattú-tímaritsins Prick. 7.9.2006 16:00
Mikill áhugamaður um mat og eldamennsku: Mexíkóskur Enchilada kjúklingaréttur Höskuldi Eiríkssyni, lögfræðingi hjá Logos og fyrirliða fótboltaliðs Víkings, er margt til lista lagt og eitt af því er eldamennska. Hann segist þó láta kærustu sína um allt dúllerí eins og hann orðar það og sér sjálfur um grófu og karlmannlegu hlutina eins og að grilla og krydda kjötið. 7.9.2006 15:00
Suri í dagsljósið Fyrstu ljósmyndirnar af Suri, barni Tom Cruise og Katie Holmes, voru birtar opinberlega í tímaritinu Vanity Fair í gær. Suri fæddist 18. apríl en hafði ekki sést opinberlega fyrr en í gær. 7.9.2006 15:00
Jazz á Cafe Rósenberg Jazzkvartett Sunnu Gunnlaugsdóttur heldur tónleika á Café Rósenberg í Lækjargötu kl. 21 í kvöld. Hljómsveitina skipa auk Sunnu sem leikur á wurlitzer rafpíano þeir Jóel Pálsson saxófónleikari, Þorgrímur Jónsson bassaleikari og Scott McLemore á trommur. Á efnisskránni eru tónsmíðar eftir Ornette Coleman, Cörlu Bley auk laga eftir hljómsveitarmeðlimi. Sunna mun leika í góðum félagsskap á Jazzhátíð í Reykjavík í lok mánaðarins en á spilar hún ásamt Tore Brunborg saxófónleikara og kvartett sínum. 7.9.2006 14:00
Margbrotin myndlist í Reykjanesbæ Myndlistarmönnum hefur fækkað í Reykjanesbæ eftir Ljósanótt um síðustu helgi en talið er að allt að hundrað myndlistarmenn hafi komið að sýningum í bænum um þá helgi sem hlýtur að vera met miðað við höfðatölu. 7.9.2006 14:00
Fræðsla og faldir fjársjóðir Fræðslustarf Listasafns Reykjavíkur verður eflt í vetur en þar er stefnt að aukinni fræðslu fyrir alla aldurshópa. 7.9.2006 13:30
Forskot á sæluna með Tim Sweeney Á laugardaginn er hinn virti plötusnúður Tim Sweeney væntanlegur til landsins til að þeyta skífum í Bláa Lóninu og á Barnum. Plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson stendur fyrir komu hans hingað og segir hann Tim vera með betri plötusnúðum í heiminum í dag. 7.9.2006 13:00
Clooney komin með nýja Leikarinn og hjartaknúsarinn George Clooney er nú komin með nýja dömu upp árminn. Sú heppna mun vera leikkonan Ellen Barkin en hún lék ásamt Clooney í myndinni Oceans Thirteen. Það sem er fréttnæmt við þetta er að Barkin er 52 ára og þar af leiðandi eldri en Clooney en hann er þekktur fyrir að falla ávallt fyrir yngri konum. Clooney hefur margt oft verið valinn kynþokkafyllsti maður heims en hann hefur ekki verið milll sambandsmaður og segist sjálfur vera lítið fyrir kærustupara leik eins og hann kallar það. 7.9.2006 12:45
Áhugi hjá CNN Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt 20 ára afmæli Höfðafundarins og komu Mikhail Gorbatsjov hingað til lands í október mikinn áhuga, þar á meðal CNN og CBS. 7.9.2006 12:30
Fólk ársins að mati GQ Breska tímaritið GQ hélt kosninsgu meðal lesanda sinna um fólk ársins. Þar vann fyrrverandi Bítillinn Sir. Paul McCartney aðalverðlaunin en hann var valinn maður ársins. Paul McCartney er stærsta lifandi goðsögnin sem við höfum í dag og hann nýtur einnig mikillar virðingar í heiminum, segir Dylan Jones ritstjóri GQ. McCartney var valinn vegna nýutkominni plötu hans og velheppnuðu hljómleikaferðalegi hans um Bandaríkjin. 7.9.2006 12:15
Arctic Monkeys bestir á Mercury Breska hljómsveitin Arctic Monkeys var valinn besta hljómsveitin á Mercury Awards sem haldin var fyrir stuttu í Bretlandi. Það kom ekki mörgum á óvart að hljómsveitin skyldi hafa hampað verðlaununum en plata þeirra, Whatever People Say I Am, That's What I'm Not, seldist upp í Bretlandi um leið og hún kom út í febrúar á þessu ári. 7.9.2006 12:00
Hitað upp í Iðnó Stórtónleikar verða haldnir í Iðnó annað kvöld. Fram koma Apparat Organ Quartet, Flís, Benni Hemm Hemm, Paul Lydon og Kira Kira, ásamt Hilmari Jenssyni. 7.9.2006 11:15
Búið spil hjá Orlando Leikaraparið Orlando Bloom og Kate Boshworth eru hætt saman eftir að hafa verið kærustupar í fjögur ár. Samkvæmt sjónvarpstöðinni Entertainment Tonight hætti parið saman í góðu og vegna mikils vinnuálags. Bloom og Bosworth hafa áður hætt saman tvisvar á þessum fjórum árum en alltaf náð sman aftur. Síðustu 12 mánuðuðir hafa verið parinu erfiðir vegna þess að Bloom er að kynna nýjustu mynd sína stórmyndina Pirates of the Caribbean og Bosworth en hin nýja Lois Lane í myndinni Superman returns og því mikið að gera hjá báðum aðilum á þessu ári. 7.9.2006 11:00
Bíður spenntur eftir viðbrögðum Íslendinga Aðstandendur kvikmyndarinnar Börn skrifuðu hafa skrifað undir samning við breska fyrirtækið The Works International um alheimssölurétt á myndinni. Fyrirtækið er eitt þekktasta sölufyrirtæki í Evrópu og hefur haft puttana í mörgum þekktum myndum á borð við 24 Hour Party People, Bend it Like Beckham og óskarsverðlaunamyndinni No Man"s Land. 7.9.2006 10:00
Ánægjulegt sumar í miðasölu Kvikmyndaverin héldu niðri í sér andanum þegar sumarið gekk í garð. Í fyrra urðu þau fyrir stórum og óþægilegum skellum en virðast hafa veðjað á rétta hesta að þessu sinni. 7.9.2006 09:00
Klassík í Smáralind Vetrarstarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands var þjófstartað á hér á síðum Fréttablaðsins í gær og eru lesendur beðnir velvirðingar á því, einkum þeir sem mættu upp í verslunarmiðstöðina Smáralind í gær og komu þar að tómum kofanum. Hið rétta er að óvenjulegir upphafstónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í Smáralind fara fram kl. 17 í dag. 7.9.2006 08:30
Magni áfram í lokaþáttinn Magni Ásgeirsson komst örugglega áfram í lokaþátt Rockstar:Supernova sem verður í næstu viku. Magni og hinn ástralski Toby voru öryggir frá byrjun og lentu aldrei í neðstu þremur sætunum. Þau sæti komu í hlut Lukasar, Dilönu og Storm en Supernova félagar ákváðu að senda Storm heim í gær. 7.9.2006 08:15
Örfáir miðar eftir á Sálina og gospel Aðeins örfáir miðar eru eftir á tónleika Sálarinnar hans Jóns míns og Gospelkórs Reykjavíkur sem verða haldnir í Laugardalshöll 15. september. 6.9.2006 18:00
Ættleiða í Afríku Söngkonan Madonna og eiginmaður hennar leikstjórinn Guy Richie halda til Afríku í næsta mánuði til að ættleiða barn af barnaheimili í Malawi. Hjónin eru þar með að feta í fótspor Angelinu Jolie og Brad Pitt. Ástæðan fyrir Afríkuferðinni er einnig að safna peningum fyrir afrísk barnaheimili en þau ætla að nota ferðina og taka með sér barn heim til Englands. 6.9.2006 17:00
Þetta er ekkert mál frumsýnd á morgun Heimildarmyndin Þetta er ekkert mál verður frumsýnd annað kvöld í Smárabíói með viðhöfn. 6.9.2006 16:00
Sinfóníuhljómsveitin leikur í Smáralind Vetrarstarf Sinfóníuhljómsveitarinnar hefst með óvenjulegum hætti þetta árið en fyrirhugaðir útitónleikar sveitarinnar á Austurvelli hafa verið færðir á skjólbetri stað. Það rignir sjaldnar í Smáralindinni og víst er skjólgott í Kópavoginum svo dýrmætum hljóðfærum sveitarinnar er borgið og færri fá kvef. 6.9.2006 15:15
Rigningarsöngur Kellys bestur Kvikmyndin Singin' in the Rain hefur verið valin besta söngvamynd allra tíma af Bandarísku kvikmyndastofnuninni AFI. 6.9.2006 15:00
Orðin gift kona Söngkonan og rokkarabarnið Kelly Osbourne hefur nú gengið í það heilaga með kærasta sínum, óþekkta tónlistarmanninum Matty. Eina vandamálið er að parið var einungis búið að þekkjast í eina viku áður en þau ákváðu að giftast. Brúðkaupið fór fram í hoppukastala á tónleikahátíð á Írlandi og eru foreldrar Kelly, Ozzy Osbourne og Sharon Osbourne, brjáluð yfir þessari fljótfærni í dóttur sinni og leita nú leiða til að láta ógilda hjónabandið. Kelly er þekkt fyrir að vera mikið partíljón en fyrir stuttu kom hún með þær yfirlýsingar að hún væri hætt að drekka áfengi. 6.9.2006 14:30
Nálgast milljarðinn Nú styttist í að kvikmyndin Pirates of the Caribbean: Dead Man"s Chest verði aðeins þriðja myndin í sögunni til að hala inn yfir einn milljarð dollara í miðasölu um heim allan, eða tæpa 70 milljarða króna. Myndin hefur verið í efsta sæti á lista yfir vinsælustu myndir utan Bandaríkjanna í níu vikur í röð og þar hefur hún halað inn tæpar 580 milljónir dollara, eða rúmlega helminginn af heildartekjunum. Tekjuhæsta mynd sögunnar um heim allan er Titanic frá árinu 1997 sem tók inn 1,8 milljarða dollara. Næst á eftir kemur The Lord of the Rings: The Return of the King sem náði 1,1 milljarði. 6.9.2006 14:00
Lou Ye settur í bann heimafyrir Kínverska leikstjóranum Lou Ye hefur verið bannað að gera kvikmynd í fimm ár eftir að hafa sýnt mynd sína Summer Palace án leyfis kínverskra stjórnvalda. 6.9.2006 13:00
Myrkraverk Andra Snæs í samstarfi við undirheima Þetta verður opnunaratriði alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Þeir þar gripu hugmyndina á lofti. Og létu verða að veruleika. Til siðs er að hafa stórstjörnur á kvikmmyndahátíðum. Margar skærustu stjörnur í heimi munu birtast borgarbúum þetta kvöld. Alvöru stjörnur, segir Andri Snær Magnason rithöfundur. Hann horfir til himins eins og svo oft áður. 6.9.2006 12:45