Fleiri fréttir

Dagreykingamönnum fækkar mjög

Innan við fimmtungur Íslendinga á aldrinum 15-89 ára reykja daglega samkvæmt niðurstöðum þriggja kannana á tóbaksnotkun hér á landi sem lýðheilsustöð hefur látið taka saman. Til samanburðar reyktu um 30% fólks á þessum aldri daglega fyrir tólf árum síðan. Í aldurshópnum 30-40 ára reykja helmingi færri nú en árið 1992.

Díana vildi stinga af með lífverði

Díana Bretaprinsessa féll fyrir lífverði sínum og vildi stinga af með honum, aðeins fjórum árum eftir að hún gekk í hjónaband með Karli Bretaprins. Þetta kemur fram á gamallri myndbandsupptöku með prinsessunni sem var sýnd á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC í gær.

Ferskt og hollt fyrir barnið

Meðal þess fræðsluefnis sem foreldrum er rétt á heilsugæslustöðinni er bæklingur sem heitir Næring ungbarna og þar er farið vel og ítarlega yfir það hvað er óhætt að gefa barninu á ýmsum aldursskeiðum og hvers það þarfnast.

Gengur og hjólar á milli staða

"Ég er svo heppin að eiga ekki bíl þannig að ég geng mjög mikið. Það er minn ferðamáti - að ganga og hjóla. Það er mjög praktísk leið til að komast á milli staða og alls ekki meðvituð hollustuhreyfing en ákaflega hressandi," segir Guðfríður Lilja og hlær dátt.

Súkkulaðisígarettur

Súkkulaðisígarettur eru tiltölulega hættulausar í hófi og á hátíðlegum stundum eins og á jólum!

Þroskasaga graslauks

Erla Huld Sigurðardóttir sýnir  leirlist og myndlist í Listagjánni í Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi í desember.  Sýningin nefnist Trú, von og kærleikur.  Verkin eru unnin út frá þroskasögu graslauks.  Byrjað var á málverkunum sem eru akrýlmyndir og leirverkin unnin út frá þeim.

Faithfull hætt við tónleikaferðina

Söngkonan Marianne Faithfull hefur hætt við tónleikaferð sína sem hún hóf hér á landi 11. nóvember síðastliðinn. Henni leið illa skömmu áður en hún átti að stíga á svið í Mílanó á Ítalíu og svo leið yfir hana. Læknar komust að þeirri niðurstöðu að hún stríddi við ofþreytu í kjölfar þess að hún lék í sjötíu og fimm sýningum á leikritinu The Black Rider í San Francisco.

1.400 hitaeininga ofurborgari

Á sama tíma og hver skyndibitakeðjan á fætur annarri er farin að tala um heilnæmari skyndibita en áður hafa stjórnendur Hardees farið þveröfuga leið til að auka sölu sína. Nýjustu afurðina kalla þeir Thickburger, sá er tvöfaldur hamborgari sem inniheldur 1.420 hitaeiningar og 107 grömm af fitu.

Fatnaður og skór í eitt ár

Einstætt foreldri með eitt barn undir sjö ára aldri og 150 þúsund í tekjur á mánuði græðir 163 þúsund krónur á skattabreytingum ríkisstjórnarinnar þegar þær verða komnar að fullu til framkvæmda árið 2007.

Sýður á sumarhúsaeigendum

Sumarhúsaeigendur vilja fá að eiga lögheimili í húsum sínum en það vilja sveitarfélögin ekki því þá þurfa þau að veita kostnaðarsama þjónustu. Eigendur sumarhúsa telja hins vegar að tími sé kominn til að þeir fái eitthvað fyrir gjöldin sem á þá eru lögð

Öruggasta öldurhús í heimi

Öryggisgæslan í kjölfar 11. september hefur fallið misvel í kramið hjá almenningi. Kráareigandi í Berlín nýtur hins vegar góðs af eftirlitinu.

Morgunblaðið ekki dýragarður

Íslensku bókmenntaverðlaunin gera ekkert fyrir bókmenntirnar segir Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sem hefur sent frá sér bókina Málsvörn og minningar. Hann segir að mikilvægt hafi verið að slíta pólitísk tengsl blaðsins en ekki hafi verið ætlunin að breyta því í dýragarð allra landsmanna.

Stórsöngvari á heimavelli

Kristján Jóhannsson söngvari var staddur í sínum gamla heimabæ síðast liðinn föstudag og áritaði nýja diskinn sinn, Portami Via, í verslun Hagkaups og á Glerártorgi.

Hótel miðborg Reykjavík

Fyrir nokkrum árum var eitt hótel í hjarta miðborgar Reykjavíkur auk tveggja í næsta nágrenni. Hugmyndir voru uppi um að loka því og breyta í skrifstofur. Síðan hafa fimm bæst í hópinn, tvö eru í byggingu og eitt á teikniborðinu. 343 hótelherbergi eru í miðborginni, 160 bætast við á næsta ári og hugsanlega 200 til viðbótar innan fárra ára.

Sátt við hækkun gjalda

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hækka áfengisgjald á sterkt vín og tóbaksgjald um sjö prósent. Edda Sigurjónsdóttir ljósmyndari segist ekki sjá neitt sérstakt að því að þessi gjöld séu hækkuð. "Mér finnst þetta bara allt í lagi því bæði áfengi og tóbak eru heilsuspillandi."

Lauklaga kúplar í Leynimýri

"Það er allt mjög gott að frétta," segir Ksenia Ólafsson, talsmaður Trúfélags rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi, en félagið hefur fengið vilyrði fyrir lóð undir kirkju sína í svonefndri Leynimýri í Öskjuhlíð. "Þetta er mjög spennandi, mér finnst þetta einn besti staðurinn í Reykjavík og hentar okkur mjög vel."

Ungfrú Perú er fegurst

Fegursta kona heims kemur í ár frá Perú. Ungfrú Perú bar sigur úr bítum þegar hin árlega ungfrú heimur, eða miss World, fór fram í Kína í gær. Íslenskar fegurðardrottningar áttu lengi vel góðu gengi að fagna í þessari keppni, en á síðar árum hefur farið lítið fyrir íslenskri fegurð á verðlaunapallinum.

Maðurinn með píanóið

Kristinn Leifsson er yngsti píanóstillari landsins en segist samt vera nokkuð gamall í faginu.

Andarunginn í Lækjargötu

Nýr veislusalur á Litla ljóta andarunganum bætir ásýnd miðbæjarins og gæðir borgina meira lífi.

Óvenjulegar klukkur og fleira fínt

Verslun með listmuni í Listasafni Íslands er sneisafull af spennandi munum. bæði innlendum og frá frægum söfnum í New York.

Heimagert konfekt: Trufflur, möndlutoppar og fylltar döðlur

Í huga margra er konfektgerð ómissandi hluti jólaundirbúningsins. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að leggja jólabaksturinn á hilluna og hafa eintómt konfekt í baukum á jólaföstunni. Öðrum vex konfektgerðin í augum og leggja ekki í hana.

Di Caprio á lélegustu setninguna

Með því að segjast vera „konungur heimsins" á skipsstafni í kvikmyndinni Titanic tókst leikaranum Leonardo Di Caprio einnig að verða konungur lélegheitanna að mati kvikmyndaáhugamanna. Setningin þykir sú lélegasta í sögu kvikmyndanna að mati þeirra sem tóku þátt í skoðanakönun í Bretlandi.

Myntusteinseljusúpa og maríneruð og rúlluð lúða

Það er list að setja saman hátíðarmatseðil sem uppfyllir ströngustu hollustukröfur. Þá list kunna þau Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringarþerapisti og unnusti hennar, Umahro Cadogan, sem hefur sérhæft sig í matreiðslu hagnýtra og góðra heilsurétta.

Götusalar reknir frá Coloseum

Götusalar í Róm eru í miklu uppnámi vegna þess að ákveðið hefur verið að reka þá frá Hingleikahúsinu mikla, sem hefur verið miðstöð þeirra í áratugi. Götusalanir hafa haft af því viðurværi sitt að selja gestum og gangandi minjagripi og þessháttar.

Stúlkur skara fram úr

Ísland er talsvert fyrir ofan meðaltal í könnun OECD á stærðfræðikunnáttu, eða í 10.-14. sæti, við meðaltal í lestrarkunnáttu og rétt fyrir neðan meðaltal í kunnáttu í náttúruvísindum. Langmest áhersla var á að kanna stærðfræðikunnáttu að þessu sinni í PISA-rannsókninni 2003 sem náði til OECD-landanna og annarra ríkja.

Jón Ásgeir fjórði á lista yfir áhrifamenn í breskum tískuiðnaði

Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group er í fjórða sæti á lista yfir hundrað áhrifamestu menn í tískuiðnaði í Bretlandi, samkvæmt áliti vikuritsins Drapers Record sem birt er í nýjasta hefti þess. Jón Ásgeir er ennfremur einn af hástökkvurnum á lista Drapers Record, stekkur up um heil 47 sæti frá síðustu könnun.

Sendiherrann söng jólavísu

Jólaljósin voru tendruð á Óslóarjólatrénu á Austurvelli í Reykjavík klukkan 16.000 í gær. Fjölmargir borgarbúar voru viðstaddir atburðinn eins og undanfarin ár og skemmtu sér vel þrátt fyrir rigningarsúld og snjóleysi.

Samið um söfnunarbauka

Viðskiptavinum Avis á Íslandi gefst brátt tækifæri til að losa sig við smápeninga sem þeir eiga afgangs og styðja um leið mannúðar- og hjálparstarf Rauða krossins.

Dagur sjálfboðaliðans

Mikið var um dýrðir á degi sjálfboðaliðans í gær þegar Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands var með opið hús í nýju húsnæði deildarinnar að Laugavegi 20.

Tíu bækur tilnefndar

Tíu bækur voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna eftir ákvörðun dómnefndar í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi.

Endurfundir hafa bjargað hjónaböndum og mannslífum

Lagið Endurfundir með Upplyftingu varð geysilega vinsælt þegar það kom út árið 1981 og stefnir í að verða ámóta vinsælt á ný, nú í flutningi Í svörtum fötum. Höfundurinn, Sigfús E. Arnþórsson, samdi lagið í kjallaraherbergi í Kópavogi þegar hann átti í eldheitu en stormasömu ástarsambandi við áhugaleikkonu undan Eyjafjöllum.

Leitað á heimili Michaels Jacksons

Lögreglan í Kaliforníu gerði húsleit á heimili söngvarans Michaels Jacksons, Neverland-búgarðinum, í gær. Tilgangurinn var að leita sönnunargagna í tengslum við ásakanir á hendur söngavaranum um kynferðislega misnotkun á börnum.

Næturtónleikar í minningu Mozarts

Óperukórinn í Reykjavík heldur sérstæða tónleika í Langholtskirkju í nótt á dánarstundu Mozarts. Wolfgang Amadeus Mozart andaðist klukkan eitt eftir miðnætti aðfararnótt 5. desember árið 1791 en hann var þá langt kominn með að semja sitt síðasta tónverk, Sálumessu.

Sammi básúna kynþokkafyllstur

Sammi í Jagúar er kynþokkafyllsti tónlistarmaður landins í dag. Þetta er niðurstaða könnunar DV sem fjallað er um í helgarblaði. Kynslóðaskipti eru orðin og menn eins og Egill Ólafs og Bó Halldórs komast ekki á blað.

KONAN-gegn heimilisofbeldi

Í dag klukkan 16 munu nokkrir fulltrúar frá Bríeti, félagi ungra feminista kynna jólagjöfina í ár, dúkku sem hefur hlotið nafnið KONAN, í Iðu, Lækjargötu

Húsleit hjá poppgoði

Rannsóknarlögreglumenn Sýslumannsembættis Santa Barbara í Kaliforníu í Bandaríkjunum gerðu húsleit á búgarði poppgoðsins Michaels Jackson á föstudag, en hann á að mæta fyrir rétt eftir nokkrar vikur sakaður um barnamisnotkun.

Slegist um bók ráðherradóttur

Cecelia Ahern, 23 ára gamall rithöfundur og dóttir forsætisráðherra Írlands, segist engan áhuga hafa á því að feta í fótspor föður síns. Fyrsta skáldsaga hennar, Ps. Ég elska þig, sem út er kominn í íslenskri þýðingu, hefur enda fengið glymrandi viðtökur. Útgefendur og kvikmyndafyrirtæki, bæði austan hafs og vestan, hafa slegist um útgáfuréttinn.

Reykti um borð þrátt fyrir bann

Flugstjórar reyktu óáreittir um borð í flugvélum Flugleiða þó að reykingar hefðu verið bannaðar. Björn Thoroddsen flugstjóri er í hópi þeirra síðustu sem reyktu um borð.

Fókus býður í bíó

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir með DV í dag. Að venju er blaðið fremst í flokki fréttaflutnings úr tónlistar-, skemmtana- og bíóheimum. Fókus býður lesendum sínum í bíó, að þessu sinni á hryllingsmyndina Seed of Chucky, sem flestir ættu að hafa húmor fyrir.

Úr þrælakistu í dj-djobb á Hlemmi

Fókus fylgir DV í dag með fréttir úr skemmtana-, bíó- og tónlistarheimum. Meðal þess sem um er fjallað er nýr staður, sem býður ótakmarkað magn af bjór fyrir 2000 eða 1000 kall og hljómsveitina Aminu sem er gift Sigur Rós og loksins að gefa út plötu. Þá er einnig tekið viðtal við plötusnúðinn Mana Raknarong, sem er karókístjóri Kaffisetursins.

Sósan góða og rjúpan

Þó að ekki megi veiða rjúpu eru þær fluttar inn fyrir þá sem ekki getað hugsað sér annan jólamat. Ingi Þór Jónsson, veitingamaður á Rauða Húsinu við Eyrarbakka, dró fram úr ermi sinni fyrir Fréttablaðið þennan forláta rjúpnarétt og segir uppskriftina fylgja gömlum og gildum hefðum.

Klink vill Guðsmorð

Rokksveitin Klink, sem í eru m.a. Frosti Runólfsson, trommari, kvikmyndagerðarmaður og forsíðugaur Fókus, og Þröstur Johnny bassafantur í Mínus, hefur verið boðið að hita upp fyrir dauðarokksveitina alræmdu Deicide á Evróputúr. Þeir halda styrktartónleika fyrir ferðina í kvöld á Dillon.

Lögmaður Laxness stal frá honum

Danskur lögmaður Halldórs Laxness stal af honum andvirði íbúðar í byrjun sjötta áratugarins. Hann sat í fangelsi í þrjú ár fyrir fjársvik. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu um Nóbelsskáldið.

Sjá næstu 50 fréttir