Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar mæta Serbum Í dag var dregið í umspilsleikina um sæti á EM í handbolta sem fram fer í Noregi eftir eitt ár. Íslenska liðið mætir þar Serbum um laust sæti og fara leikirnir fram í júní í sumar. Ljóst er að þetta verður erfitt verkefni, enda Serbar með sterkt lið. Hér fyrir neðan má sjá hvaða þjóðir mætast í umspilinu. 26.1.2007 12:35
Milljónir fylgjast með HM Skipuleggjendur heimsmeistaramótsins í Þýskalandi eru hæstánægðir með hvernig til hefur tekist. Vel er mætt á leikina og mikil stemning í húsunum. Áhorf í sjónvarpi er einnig gott og fer vaxandi. 26.1.2007 00:01
Alfreð: „Mjög sérstakir dómar“ Alfreð Gíslason segir dómgæsluna í leiknum við Pólverja hafa verið mjög sérstaka á köflum en vill þó ekki kenna dómurunum alfarið um tapið. „Við vorum bara ekki að spila vel í vörninni“, segir Alfreð sem einnig hefur nokkrar áhyggjur af meiðslum íslensku leikmannana enda sé breiddin ekki mikil. 25.1.2007 20:42
Snorri: „Ekki dómurunum að kenna“ Snorri Steinn Guðjónsson segir íslenska liðið bara geta sjálfu sér kennt um tapið gegn Pólverjum. „Við vorum að fá á okkur mörk einum fleiri trekk í trekk, við erum að skjóta of snemma í sókninni og gera tæknifeila, þetta liggur eiginlega alfarið hjá okkur“, segir Snorri Steinn. 25.1.2007 20:30
Tap fyrir Pólverjum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld 35-33 fyrir Þjóðverjum í milliriðli 1 á HM. Íslenska liðið hafði yfir í hálfleik 14-12, en Pólverjar sigu framúr í lokin og tryggðu sér mikilvægan sigur. Lukkan var einfaldlega ekki á bandi íslenska liðsins í kvöld, spænsku dómararnir áttu ekki góðan dag og þá urðu þeir Logi Geirsson og Guðjón Valur fyrir meiðslum eftir fólskuleg brot Pólverja. 25.1.2007 18:55
Þjálfari Dana: „Við höfum breidd en Spánverjar ekki“ Ulrik Wilbek landsliðsþjálfari Dana segist hafa séð fyrir sigur sinna manna á heimsmeisturum Spánverja. „Spánverjarnir voru þreyttir í kvöld. Ég hef allan tímann sagt að ég væri sannfærður um að við mundum vinna þennan leik. Þetta er langt mót og liðin þurfa að hafa breidd. Hana höfum við en Spánverjar ekki,“ sagði Wilbek í viðtali við TV2 í Danmörku. 25.1.2007 21:08
Logi Geirsson ætlar að spila næsta leik Logi Geirsson varð fyrir meiðslum á öxl í leiknum gegn Pólverjum í kvöld, en þessi sama öxl fór úr lið fyrir um tveimur mánuðum. Logi ætlar ekki að láta þetta hafa áhrif á sig og lýsti því yfir í kvöld að hann ætlaði að spila gegn Slóvenum hvað sem raulaði eða tautaði. Þá er Guðjón Valur Sigurðsson nokkuð þjáður eftir að hafa fengið þungt högg á lærið og verður eflaust nokkurn tíma að jafna sig. 25.1.2007 20:57
Sigrar hjá Dönum og Frökkum Danir unnu heimsmeistara Spánverja í síðasta leik dagsins í milliriðli 2 á HM með fjórum mörkum 27-23. Það var að duga eða drepast fyrir Dani en þeir voru stigalausir í riðlinum fyrir. Spánverjar eru hinsvegar með 4 stig eftir leikinn og í góðri stöðu þrátt fyrir tapið. Í milliriðli 1 sigruðu Frakkar Slóvena mjög öruggt með 33 mörkum gegn 19. Frakkar eru komnir upp að hlið Íslands, Þýskalands og Póllands í riðlinum, öll liðin með 4 stig. 25.1.2007 20:49
Króatar öruggir í átta liða úrslit Króatar urðu í kvöld fyrstir til að tryggja sig í átta liða úrslit á HM í handbolta með sjö marka sigri á Ungverjum 25-18 og eru þeir komnir með sex stig í milliriðli 2. Blazenko Lackovic var markahæstur Króata með 7 mörk og Dragan Jerkovic varði 17 skot í markinu. Hjá Ungverjum var Gergö Ivancsik markahæstur með sex mörk. Stórskyttan Lazlo Nagy átti dapran dag fyrir Ungverja en hann skoraði aðeins 1 mark úr fimm tilraunum. 25.1.2007 19:06
Auðveldur sigur Þjóðverja á Túnisum Þjóðverjar létu ekki smá hik í byrjun hafa áhrif á sig og völtuðu yfir Túnisa 35-28 í milliriðli 1 í dag. Túnis komst í 3-1 í leiknum en eftir það var leikurinn eign heimamanna sem leiddu 19-11 í hálfleik. Markvörðurinn Henning Fritz var kjörinn maður leiksins. 25.1.2007 17:24
Alfreð og Wenta mætast á ný Nú styttist í leik Íslendinga og Pólverja á HM en hann hefst klukkan 17:30. Frægasti leikur Íslendinga og Pólverja er eflaust einvígi liðanna í B-keppninni árið 1989, en þar mættust þjálfarar liðanna Alfreð Gíslason og Bogdan Wenta á vellinum og verða nú að gera sér að góðu að fylgjast með af hliðarlínunni. 25.1.2007 17:14
Pólverjar með grófasta liðið á HM Pólska landsliðið er grófasta liðið á HM til þessa samkvæmt stigagjöf Alþjóða Handknattleikssambandsins. Þessar niðurstöður eru reiknaðar út frá tveggja mínútna brottrekstrum og gulum og rauðum spjöldum. Suður-Kórea er þannig prúðasta liðið á HM fyrir keppni dagsins í dag, en íslenska liðið er þar í 14. sæti. 25.1.2007 17:01
Bann og sekt vegna slæmrar hegðunar Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann og deildin sektuð um 50 þúsund krónur vegna hegðunar Hlyns á leik ÍBV og Stjörnunnar í Eyjum þann 20. janúar. 25.1.2007 10:50
Danir að hrista af sér slyðruorðið? Danir eru fjórum mörkum yfir gegn heimsmeisturum Spánverja í hálfleik 15-11 í síðasta leik dagsins í milliriðli 2 á HM. Nú er að duga eða drepast fyrir Dani en þeir eru stigalausir í riðlinum. Spánverjar eru hinsvegar með 4 stig fyrir leikinn og í góðri stöðu hvernig sem fer. Í milliriðli 1 eru hinsvegar Frakkar að vinna Slóvena nokkuð öruggt en þegar fyrri hálfleik er að ljúka eru Frakkar með 7 marka forystu. Ef Frakkar sigra Slóvena eru þeir komnir upp að hlið Íslands, Þýskalands og Póllands í riðlinum, öll liðin með 4 stig. 25.1.2007 19:59
Staðan jöfn Þegar tíu mínútur eru eftir af leiknum við Pólverja er staðan jöfn, 27-27. Spennan er mikil en Íslendingar sakna Loga Geirssonar sem meiddist á öxl um miðjan hálfleikinn. 25.1.2007 18:41
Ísland yfir í hálfleik Íslenska landsliðið hefur yfir gegn Pólverjum 14-12 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna á HM. Ólafur Stefánsson er markahæstur með 5 mörk, Guðjón Valur er með 3, líkt og Logi Geirsson. Birkir Ívar hefur varið vel í íslenska markinu og hefur m.a. varið tvö víti. 25.1.2007 18:03
Íslendingar byrja betur Íslendingar byrja ágætlega gegn Pólverjum og þegar um 15 mínútur eru liðnar eru Íslendingar yfir 8-7. Birkir Ívar hefur verið drjúgur í markinu og varið m.a. 2 víti. 25.1.2007 17:45
Vorum eins og skólastrákar í fyrri hálfleik Alfreð Gíslason var óánægður með vörn íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik í kvöld en sagði það hafa sýnt sig í þeim síðari hvað markvarslan væri mikilvægur þáttur í leik liðsins. Smellið á fréttina til að sjá viðtal við Alfreð og Guðjón Val Sigurðsson. 24.1.2007 18:38
Túnisbúa vísað úr húsi fyrir að sparka í Íslending Túnisar virtust vera heldur sárir og svekktir með úrslitin gegn Íslendingum, en þeir gerðu miklar væntingar til sinna manna í dag. Einum áhangenda Túnisa varð svo heitt í hamsi að hann sparkaði í stuðningsmann Íslendinga. 24.1.2007 18:30
Spánverjar eru ekki með Ivano Balic Lars Christiansen, leikmaður danska landsliðsins, hefur fulla trú á því að liðið geti unnið sigur á heimsmeisturum Spánverja á morgun. Af hverju? Af því þar er enginn Ivano Balic. 24.1.2007 21:37
Wilbek gat ekki leynt gremju sinni út í dómarana Danir þuftu að bíta í það súra epli að tapa fyrir sterku liði Króata í kvöld og voru menn á leiknum sammála um að dómgæslan hefði verið ansi vafasöm á köflum. Danski landsliðsþjálfarinn vildi ekki ganga svo langt að segja að brögð væru í tafli, en annar landsliðsþjálfari var snöggur að gefa sína skýrslu eftir leikinn. 24.1.2007 21:18
Íslendingar eru sigurstranglegastir í riðlinum Stórskyttan Nikola Karabatic hjá franska landsliðinu segir að íslenska landsliðið sé sigurstranglegasta liðið í milliriðlinum eftir sigur liðsins á Túnisum í dag. Þessi orð lét hann falla í samtali við franska fjölmiðla í kvöld. 24.1.2007 20:57
Danir án stiga í milliriðli Frakkar tóku sig heldur betur saman í andlitinu í síðari hálfleik gegn Pólverjum og unnu stórsigur 31-22 eftir að hafa verið undir 12-11 í hálfleik. Danir eru án stiga eftir tap fyrir Króötum 28-26 í æsilegum lokaleik dagsins. 24.1.2007 20:51
Verðum vonandi geðveikir eins og gegn Frökkum Guðjón Valur Sigurðsson var kátur í leikslok en þó jarðbundinn líkt og alltaf. “Við eigum nokkra leiki eftir og við erum ekki á leiðinni heim. Menn verða að ná sér niður og halda sér á jörðinni fyrir Slóveníuleikinn. Ef við vinnum hann þá er ýmislegt hægt,” sagði Guðjón og vonast til að sjá liðið í vígahug gegn Slóvenum. 24.1.2007 20:33
Pólverjar yfir í hálfleik Pólverjar eru einu marki yfir gegn Frökkum í hálfleik í síðasta leik dagsins í milliriðli 1 á HM. Staðan er 12-11 fyrir Pólverjum í Dortmund. Þá er leikur Dana og Króata að hefjast í Mannheim. 24.1.2007 19:08
Höfum ekki unnið neitt enn Snorri Steinn Guðjónsson var með báða fætur á jörðinni eftir sigurinn á Túnisum í kvöld og sagði liðið ekki hafa unnið neitt enn. Guðjón Valur Sigurðsson sagði liðsheildina hafa verið lykilinn að sigri. 24.1.2007 18:59
Spánverjar með öll spil á hendi Spánverjar lögðu Rússa í milliriðli 2 á HM rétt í þessu með fjórum mörkum eftir að jafnt hafði verið á öllum tölum í leiknum. Spánverjar eru með öll spil á hendi í riðlinum með fullt hús stiga sem og Ungverjar sem lögðu Tékka fyrr í dag. Í kvöld mætast svo Danir og Króatar. 24.1.2007 18:41
Þjóðverjar lögðu Slóvena Þjóðverjar sigruðu Slóvena með 35 mörkum gegn 29 í milliriðli 1 á HM í handbolta rétt í þessu. Þjóðverjar vinna sér þar með inn sín fyrstu stig í riðlinum og fara upp að hlið Slóvena og Pólverja. 24.1.2007 18:20
Frábær endurkoma hjá íslenska landsliðinu Íslenska landsliðið vann í kvöld frábæran 36-30 sigur á Túnisum í milliriðli HM í Dortmund eftir að hafa lent fimm mörkum undir í fyrri hálfleik. Túnisar höfðu yfir 19-16 í hálfleik en íslenska liðið náði að komast inn í leikinn á ný með gríðarlegri baráttu. Lokakaflinn var svo eign íslenska liðsins þar sem vörn og markvarsla komu í bland við góð tilþrif í sókninni. 24.1.2007 17:50
Fyrsti sigur Grænlendinga á HM Grænlendingar unnu í dag sinn fyrsta leik á HM þegar þeir lögðu Ástrala 34-25 í Kings Cup í dag. Ástralar náðu líka sögulegum áfanga þegar þeir höfðu í fyrsta sinn forystu í leik á mótinu. Grænlendingar höfðu yfir 16-12 í hálfleik og var hinn 18 ára gamli Angultimmarik Kreutzmann markahæstur þeirra með 15 mörk en Darryl McCormack skoraði 11 mörk fyrir Ástrala. 24.1.2007 16:13
Dominikovic klár í slaginn Króatíski landsliðsmaðurinn Davor Dominikovic sem féll á lyfjaprófi fyrir nokkru og var settur út úr hópnum, mun koma aftur inn í landsliðið á morgun eftir að bæði A og B sýni hans voru dæmd neikvæð í dag. Þetta eru góð tíðindi fyrir heimsmeistaraefni Króata. 24.1.2007 15:39
Arnór Atlason í hópinn gegn Túnis Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hefur tekið Arnór Atlason aftur inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Túnis klukkan 16:30 í dag. Arnór kemur inn í stað Ragnars Óskarssonar og þá verður Roland Eradze í markinu í stað Hreiðars Guðmundssonar. Logi Geirsson er í hópnum þrátt fyrir að hafa meiðst á ökkla í leiknum við Frakka. 24.1.2007 15:19
Upphitun fyrir Ísland - Túnis í dag Íslendingar mæta Túnisum í fyrsta leik milliriðlakeppninnar á HM í handbolta klukkan 16:30 í dag. Túnisar hafa á að skipa liði sem hefur getu og burði til að fara langt á þessu heimsmeistaramóti, líkt og þeir sýndu þegar þeir lentu í fjórða sæti á heimavelli á HM fyrir tveimur árum. Eins eru Túnisar margfaldir Afríkumeistarar og á undanförnum árum hafa einungis Egyptar getað velgt þeim eitthvað undir uggum í Afríku. 24.1.2007 14:01
Alfreð vorkennir næstu andstæðingum Frakka Alfreð Gíslason hefur fulla trú á að Frakkar séu enn eitt sigurstranglegasta liðið á HM í handbolta, þrátt fyrir stórtap gegn Íslendingum í fyrrakvöld. Hann er jafnframt með skilaboð til næstu andstæðinga franska liðsins. 24.1.2007 13:54
Onesta kennir lélegum undirbúningi um tapið fyrir Íslendingum Claude Onesta, þjálfari franska landsliðsins í handbolta, segir að undirbúningur liðsins fyrir leikinn gegn Íslendingum hafi verið ástæða tapsins stóra. Nikola Karabatic sagði áhorfendur líka hafa spilað stóran þátt í sigri íslenska liðsins. 24.1.2007 13:46
Ísland komið yfir Íslenska liðið er búið að ná yfirhöndinni í leiknum gegn Túnis og er komið í 29-26 þegar rúmar 10 mínútur eru eftir af leiknum með gríðarlegri baráttu. 24.1.2007 17:37
Ísland undir í hálfleik Íslenska landsliðið hefur átt á brattann að sækja í fyrri hálfleik gegn sterku liði Túnisa í leik liðanna í milliriðlinum á HM, en Túnis hefur yfir 19-16 í hálfleik. Varnarleikur íslenska liðsins hefur ekki átt svör við skyttum Túnisa með sleggjuna Hmam í fararbroddi. Snorri Steinn er markahæstur með 5 mörk og þeir Ólafur Stefánsson og Logi Geirs hafa skorað 3 hvor. 24.1.2007 17:05
Norðmenn afar óhressir með dómgæsluna Norsku landsliðsmennirnir voru mjög ósáttir við störf þýsku dómarana sem dæmdu leik þeirra við Dani í gær, en tap norska liðsins þýddi að liðið sat eftir og komst ekki í milliriðil á mótinu. 23.1.2007 15:37
Tapið fyrir Íslandi eins og köld sturta Franskir miðlar fara hörðum orðum um frammistöðu Frakka í landsleiknum gegn Íslendingum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gær. Þar segir að fall Evrópumeistaranna hafi verið hátt enda tapaði liðið með átta mörkum fyrir Íslandi. Frakkarnir hafi einfaldlega verið of sigurvissir eftir stórsigra á Áströlum og Úkraínumönnum. 23.1.2007 15:23
Íslendingar áberandi í helstu töfræðiþáttum á HM Ólafur Stefánsson hefur gefið flestar stoðsendingar allra leikmanna til þessa á HM ásamt Króatanum magnaða Ivano Balic en þeir eru báðir með 16 stoðsendingar. Logi Geirsson er í 12. sæti með 11 stoðsendingar. 23.1.2007 12:35
Þetta gerist ekki á hverjum degi Feðgarnir Bjarki Sigurðsson og Örn Ingi Bjarkason spiluðu saman síðasta föstudag þegar Afturelding lék gegn Gróttu í 1. deild karla í handbolta. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir feðgar leika saman en Bjarki er þjálfari Aftureldingar, sem situr í toppsæti deildarinnar. 23.1.2007 00:01
Liðið spilaði frábærlega „Mér gekk miklu betur í dag en í þessum hörmulega leik í gær. Ég ákvað að láta boltann rúlla og ráðast gegn frönsku vörninni og liðið spilaði hreint frábærlega," sagði Ólafur Stefánsson, sem gekk svo út að hliðarlínunni og tók í höndina á félaga sínum Degi Sigurðssyni, fyrrum landsliðsfyrirliða eins og sést hér á myndinni. 22.1.2007 21:10
Þetta var eina leiðin Eftir gærdaginn var aðeins ein leið fær, þessi," sagði Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins eftir stórsigur Íslendinga á Evrópumeisturum og heimsmeistaraefnum Frakka á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Þýskalandi. „Okkur tókst að snúa við því sem í gær virtist vera vonlaust," sagði Guðjón enn fremur í samtali við Þorstein J., fréttamann Stöðvar 2. 22.1.2007 21:05
Ísland burstaði Evrópumeistara Frakka Íslenska landsliðið í handknattleik vann í kvöld frábæran 32-24 sigur á Evrópumeisturum Frakka í lokaleik sínum í B-riðli. Íslenska liðið hafði yfirburði allan leikinn og sýndi einhvern besta leik sinn á síðustu árum. Liðið fer því áfram í milliriðil með tvö stig í farteskinu ásamt Frökkum, sem hafa ekkert stig. 22.1.2007 20:27
Úrslit dagsins á HM Það var mikið um dýrðir á lokadegi riðlakeppninnar á HM og frækinn sigur Íslendinga á Frökkum stendur þar klárlega uppúr. Norðmenn þurftu að bíta í það súra epli að missa af sæti í milliriðli eftir tap fyrir frændum sínum Dönum 27-25. 22.1.2007 21:31