Fleiri fréttir

Brand kallar á gamlan ref

Heiner Brand, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta, hefur kallað gamla brýnið Christian Schwarzer frá Lemgo inn í landsliðshóp sinn vegna þeirra miklu meiðsla sem eru á mannskap hans. Schwarzer er 37 ára gamall og lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2004, en hefur alltaf sagt að hann yrði tilbúinn ef til hans yrði leitað.

Verða að vinna Frakka

Eftir tapið gegn Úkraínu í gær er ljóst að Ísland verður að vinna Frakka í kvöld til þess að komast áfram í milliriðil. Ef það tekst ekki fer liðið í Forsetabikarinn og mun mæta þar þjóðum á borð við Kúveit, Grænlandi, Brasilíu og Argentínu.

Ligg bara í leti og horfi á HM

Davíð Georgsson, handboltamaðurinn efnilegi úr ÍR, hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hné. Davíð er aðeins nítján ára en hefur leikið lykilhlutverk með ÍR í DHL-deildinni og skorað mikið.

Ævintýralegur fyrri hálfleikur

Ísland hefur yfir 18-8 þegar flautað hefur verið til leikhlés í lokaleik liðsins gegn Frökkum í B-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta. Segja má að allt hafi gengið upp hjá íslenska liðinu fyrstu 30 mínúturnar, en liðið komst í 5-0 og náði svo tíu marka forskoti undir lok hálfleiksins.

Ótrúleg byrjun íslenska liðsins

Íslenska landsliðið hefur náð 5-0 forystu gegn Frökkum í leik þjóðanna á HM. Íslensku strákarnir voru um tíma tveimur færri en náðu samt að halda hreinu. Rétt í þessu voru Frakkar að skora sitt fyrsta mark eftir heilar 7 mínútur.

Alfreð gerir breytingar

Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska hópnum fyrir leikinn gegn Frökkum í dag. Markús Máni Michaelsson kemur inn fyrir Arnór Atlason og þá hefur Hreiðar Guðmundsson tekið stöðu Rolands Eradze í markinu.

Lélegasti leikur Íslands í mörg ár

Fyrrum landsliðsmaðurinn Sigurður Sveinsson segist vera í hálfgerðu losti eftir leik Íslendinga og Úkraínumanna í dag. Hann segir leik íslenska liðsins þann slakasta sem hann hafi séð í mörg ár og setur spurningamerki við hugarfar leikmanna í dag.

Spútniklið Ungverja lagði Norðmenn

Ungverjar tryggðu sér sæti í milliriðlum á HM í síðasta leik mótsins í kvöld þegar liðið skellti Norðmönnum 25-22 eftir að hafa verið yfir 15-13 í hálfleik. Ungverjar lögðu Dani í gær og því verður leikur Dana og Norðmanna upp á líf og dauða á morgun. Gabor Császár skoraði 8 mörk fyrir Ungverja í kvöld og Frank Loke 7 fyrir Norðmenn, en þrír leikmenn fengu rautt spjald í þessum átakaleik í kvöld.

Úrslit dagsins á HM

Línur eru farnar að skýrast nokkuð í riðlakeppni HM en nokkrar þjóðir hafa þegar tryggt sér sæti í milliriðlum. Hér fyrir neðan má sjá úrslit dagsins á mótinu.

Ísland tapaði fyrir Úkraínu

Íslenska landsliðið í handknattleik steinlá fyrir Úkraínu 32-29 í leik liðanna í B-riðli heimsmeistaramótsins í dag. Íslenska liðið var yfir 13-12 í hálfleik, en sá aldrei til sólar í þeim síðari, hvorki í vörn né sókn.

Úkraína fjórum mörkum yfir

Úkraínumenn hafa yfir 22-18 gegn Íslendingum þegar síðari hálfleikur er hálfnaður í Magdeburg. Íslenska liðið hefur verið heillum horfið í síðari hálfleik og fátt bendir til annars en að Úkraínumenn fari með sigur af hólmi.

Eins marks forysta í hálfleik

Íslendingar leiða gegn Úkraínumönnum með einu marki, 13-12 í hálfleik. Roland Valur Eradze hefur verið besti maður íslenska liðsins í hálfleiknum og meðal annars varið vel úr hraðaupphlaupi og eitt víti.

Ein breyting á íslenska hópnum

Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari gerði eina breytingu á 14 manna hópi fyrir leikinn gegn Úkraínumönnum sem er í þann mund að hefjast. Roland Valur Eradze kemur inn fyrir Hreiðar Levý Guðmundsson.

Frakkar söltuðu Ástrali

Fimm leikjum er lokið á HM í handbolta í dag og óhætt er að segja að þeir hafi allir unnist nokkuð örugglega. Þrátt fyrir fádæma sigur Frakka á Áströlum tókst þeim ekki að slá met okkar Íslendinga yfir stærstu sigra í sögu HM en til þess vantaði þá fjögur mörk í viðbót.

Staðan eftir bókinni

Nú eru fimm leikir hafnir á HM í handbolta og staðan í þeim öllum eftir bókinni. Pólverjar hafa tveggja marka forystu á Brasilíumenn í C-riðli þegar flautað hefur verið til hálfleiks en Pólverjar hófu leikinn mun betur en Brassar klóruðu í bakkann fyrir hálfleik.

E-riðill: Staðan galopin

Óvæntustu úrslit gærdagsins á HM í handbolta voru eflaust að Danir töpuðu fyrir Ungverjum með 29 mörkum gegn 30 en fyrirfram var búist við að Danir yrðu meðal efstu liða á mótinu. Danir hafa hinsvegar ákveðið að láta tapið ekki á sig fá og segja möguleika sína á árangri á mótinu ekki skerta.

Lazlo Nagy í nærmynd

Þrátt fyrir að hin rúmlega tveggja metra háa ungverska vinstrihandarskytta hafi unnið bæði Meistaradeild Evrópu, Evrópukeppni félagsliða og tvo spænska meistaratitla á sínum sjö tímabilum hjá hinum geysisterku Barcelona-mönnum, hefur árangurinn með landsliðinu staðið aðeins á sér.

Allt í járnum

Eftir fimmtán mínútna leik er staðan jöfn gegn Úkraínumönnum 7-7. Leikurinn er í járnum en okkar menn hafa verið á undan að skora.

Ungverjar skelltu Dönum

Ellefu leikir fóru fram í dag á öðrum keppnisdegi HM í handbolta í Þýskalandi. Íslenska liðið vann auðveldan sigur á því ástralska í dag og í kvöld gerðu Ungverjar sér lítið fyrir og lögðu Dani 30-29 í E-riðli. Hér fyrir neðan eru úrslit allra leikja í dag.

Frakkar unnu auðveldan sigur á Úkraínu

Frakkar voru ekki í vandræðum með að vinna Úkraínumenn í fyrsta leik sínum á HM í handbolta í dag og unnu sannfærandi sigur 32-21 eftir að hafa leitt 17-8 í hálfleik. Þessar þjóðir leika í B-riðli með okkur Íslendingum í Magdeburg.

Miðaverð tífalt hærra á svörtum markaði

Stemmingin í Magdeburg var frábær í dag þegar íslenska landsliðið í handbolta spilaði sinn fyrsta leik í riðlakeppni HM. Íslendingarnir gengu skrúðgöngu á leikinn þar sem fánum var veifað og öl var teigað. Uppselt er á alla leiki í riðlinum, en þeir miðar sem enn fást á svörtum markaði hafa tífaldast í verði.

Guðjón Valur maður leiksins

Íþróttamaður ársins Guðjón Valur Sigurðsson var kjörinn maður leiksins í dag þegar íslenska landsliðið burstaði Ástrala 45-20. Þetta kom ekki sérlega á óvart þar sem Guðjón skoraði hvorki meira né 15 mörk úr aðeins 16 skotum í leiknum og á myndinni hér til hliðar má sjá hann sýna fjölskyldu sinni verðlaunagripinn sem hann fékk að launum.

Auðveldur sigur hjá íslenska liðinu í fyrsta leik

Íslenska landsliðið vann í dag auðveldan stórsigur á því ástralska 45-20 í fyrsta leik sínum á HM í handbolta, en leikið var í Magdeburg. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með 15 mörk úr 16 skotum, Alexander Petersson 8 og þeir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson 5.

Miklir yfirburðir íslenska liðsins

Íslenska landsliðið á náðugan dag í fyrsta leik sínum á HM í Þýskalandi þar sem það er að rótbursta Ástrala 26-9 þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Guðjón Valur Sigurðsson hefur farið á kostum í hraðaupphlaupunum og er markahæstur með 8 mörk úr 9 skotum. Ísland komst í 7-0 og hefur ekki litið til baka síðan þó ástralska liðið hafi náð að skora nokkur mörk undir lok hálfleiksins.

Veislan að hefjast

Þjóðverjar sigruðu Brasilíumenn í opnunarleiknum á HM í handbolta í gær en í dag má segja að mótið fari af stað fyrir alvöru með 11 leikjum. Íslenska landsliðið þreytir frumraun sína nú klukkan 15 þegar liðið mætir Áströlum í Magdeburg.

Hannes spáir 46 – 17

Hannes Jón Jónsson handknattleiksmaður með Ajax í Danmörku mun fylgjast með HM í handbolta eins og flestir Íslendingar. „Þeir ætla alltaf að verða meistarar,“ segir Hannes um Dani og stemmninguna í Danmörku fyrir mótinu.

Ástralar sækja í sig veðrið

Ástralska liðið hefur tekið sig saman í andlitinu í síðari hálfleik gegn íslenska landsliðinu og staðan nú um miðjan síðari hálfleik er 35-18 fyrir Ísland. Ljóst er að íslenska liðið fer með sigur af hólmi, en þeir áströlsku ætla þó að bjarga andlitinu áður en flautað verður til leiksloka.

Ísland komst í 7-0

Íslenska landsliðið í handbolta á ekki í miklum vandræðum með lið Ástrala í upphafi leiks liðanna í Magdeburg eins og búast mátti við. Íslenska liðið komst í 7-0 eftir tæpar 7 mínútur og staðan um miðjan fyrri hálfleik er orðin 14-3 fyrir Ísland, þar sem Guðjón Valur og Alexander hafa skorað grimmt.

Kjelling er með indíánahúðflúr

Stórskyttan Kristian Kjelling hjá norska landsliðinu í handbolta segist ákveðinn í að spila leikinn gegn Angóla á morgun þó hann hafi átt við þrálát hnémeiðsli að stríða. Kjelling er með sérstakt húðflúr á handleggnum tileinkað æskuvini hans.

Þjóðverjar lögðu Brasilíumenn

Þjóðverjar lögðu Brasilíumenn í opnunarleik HM í handbolta í kvöld 27-22 eftir að hafa verið yfir 12-10 í hálfleik. Ekki er hægt að segja að hafi verið sérstakur glæsibragur á leik heimamanna í Berlín í kvöld, en þeir kláruðu verkefnið. Pascal Hens, Markus Baur og Florian Kehrmann skoruðu sex mörk hvor fyrir þýska liðið fyrir framan 10.000 áhorfendur í Max Schmeling Halle.

Greið leið Ástrala á HM

Ekki er hægt að segja að leið Ástrala á HM í handbolta hafi verið sérlega grýtt, en liðið lék í riðli með grönnum sínum frá Nýja-Sjálandi og Cook-eyjum í undankeppninni. Það væri vægt til orða tekið að segja að Ástralir hafi haft yfirburði í riðlinum, því liðið lagði Nýja-Sjáland 41-14 og Cook-eyjar 63-5, eftir að hafa verið með 31-1 forystu í hálfleik.

Opnunarleikurinn í beinni á Fjölvarpinu

Opnunarleikur Þjóðverja og Brasilíumanna á HM í handbolta er sýndur beint á ZDF sjónvarpsstöðinni, en hana má sjá á rás 81 á Fjölvarpinu á Digital Ísland. Heimamenn hafa undirtökin framan af leik, stuðningsmönnum sínum í Berlín til mikillar ánægju. Leikurinn hófst klukkan 16:30.

Nikola Karabatic í nærmynd

„Þið æfið of lítið“ sagði þá tvítugur Nikola Karabatic við spænska stórliðið Ciudad Real þegar þeir buðu honum samning fyrir tveimur árum. Í stað þess ákvað hann að fara frá Montpellier til Kiel í Þýskalandi, þar sem hann hafði frétt að æfingar væru erfiðari og strangari en annarsstaðar undir stjórn Noka Serdarusic, gamals vinar pabba hans.

Juan Garcia í nærmynd

Eftir að hafa borið víurnar í hann í mörg ár, tókst stórliðinu Barcelona loksins að lokka hinn eldfljóta hornamann Juan Garcia til sín þegar hann gekk til liðs við þá frá heimaliðinu Ademar Leon árið 2005.

Ivano Balic í nærmynd

Ivano Balic, sem nú er 27 ára og á hátindi ferils síns sló fyrst í gegn í lokakeppni HM í Portúgal 2003, ekki síst í úrslitaleiknum þar sem hann átti stórleik gegn langt um stærri og sterkari Þjóðverjum. Frábær tækni og framúrskarandi leikskilningur eru það sem gera Balic að einum fremsta handboltamanni í heimi, hann sannar að þeir kostir eru ekki síður mikilvægir en stærð og styrkur.

Dominikovic verður ekki með Króötum

Króatíska landsliðið í handbolta varð fyrir miklu áfalli í dag eftir að upp komst að Davor Dominikovic sem leikur með Portland San Antonio á Spáni hefði fallið á lyfjaprófi í síðasta mánuði. Þetta þýðir að leikmaðurinn fær ekki að taka þátt í HM sem hefst í dag. Verði B-sýni hans jákvætt á hann yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann, en hann er lykilmaður í sterku liði Króata.

Lið Þjóðverja klárt

Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja, valdi 15 manna hóp sinn fyrir opnunarleikinn gegn Brasilíumönnum á allra síðustu stundu í morgun. HM hefst í dag klukkan 16:30 með þessum eina leik, en mótið byrjar svo á fullu á morgun og þar mæta Íslendingar Áströlum.

Sjá næstu 50 fréttir