Handbolti

Auðveldur sigur Þjóðverja á Túnisum

NordicPhotos/GettyImages

Þjóðverjar létu ekki smá hik í byrjun hafa áhrif á sig og völtuðu yfir Túnisa 35-28 í milliriðli 1 í dag. Túnis komst í 3-1 í leiknum en eftir það var leikurinn eign heimamanna sem leiddu 19-11 í hálfleik. Markvörðurinn Henning Fritz var kjörinn maður leiksins.

Þá unnu Rússar sigur á Tékkum 30-26 og nældu sér þar með í sín fyrstu stig í milliriðlinum en Tékkar eru án stiga.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×