Handbolti

Alfreð vorkennir næstu andstæðingum Frakka

AFP

Alfreð Gíslason hefur fulla trú á að Frakkar séu enn eitt sigurstranglegasta liðið á HM í handbolta, þrátt fyrir stórtap gegn Íslendingum í fyrrakvöld. Hann er jafnframt með skilaboð til næstu andstæðinga franska liðsins.

"Þrátt fyrir það sem gerðist í kvöld, held ég að Frakkar séu enn sigurstranglegir í keppninni," sagði Alfreð eftir leikinn. "Að sama skapi vorkenni ég næstu andstæðingum Frakka stórlega - þeir eru í vondum málum," sagði Alfreð í samtali við fjölmiðla eftir Frakkaleikinn og á greinilega von á að lið Frakka komi í næsta leik eins og grenjandi ljón, en það verða Pólverjar sem fá það verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×