Fleiri fréttir

David Luiz er tilbúinn í nýtt hlutverk hjá Chelsea

Brasilíumaðurinn David Luiz segir að hann sé tilbúinn að taka að sér nýtt hlutverk hjá Chelsea sem varnarsinnaður miðjumaður. Luiz, sem leikur sem miðvörður hjá enska úrvalsdeildarliðinu, telur að hann geti aðstoðað liðið með því að fylla það skarð sem Spánverjinn Oriol Romeu skilur eftir sig.

D-deildarlið Bradford sló Arsenal út

Arsenal er úr leik í enska deildabikarnum í knattspyrnu eftir dramatískt tap gegn D-deildarliði Bradford í kvöld. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslitin.

Gareth Barry ákærður af enska knattspyrnusambandinu

Gareth Barry, leikmaður Englandsmeistaraliðs Manchester City, hefur verið ákærður fyrir óviðeigandi orðbragð í garð dómara eftir að 3-2 tap liðsins gegn Manchester United s.l. sunnudag. Enski landsliðsmaðurinn lét aðstoðardómara leiksins heyra það á meðan hann yfirgaf leikvöllinn á leið sinni til búningsherbergja Man City.

Mancini ætlar ekki að selja Balotelli í janúar

Sagan endalausa um framtíð Mario Balotelli hjá Manchester City heldur áfram. Balotelli er án efa ekki á jólakortalistanum hjá Roberto Mancini knattspyrnustjóra Man City en þeir hafa ekki náð vel saman á undanförnum misserum. Það búast margir við því að Balotelli verði seldur þegar leikmannamarkaðurinn opnar í janúar en Mancini er ekki tilbúinn að láta Balotelli fara frá félaginu.

Oriol Romeu úr leik hjá Chelsea út tímabilið

Oriol Romeu leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, verður frá keppni í allt að hálft ár, en hann fór í aðgerð í gær. Miðjumaðurinn sleit krossband í hné í leiknum gegn Sunderland s.l. laugardag og að auki var gert við liðþófa í hnénu.

Fulham skellti Newcastle

Newcastle sótti ekki gull í greipar Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Heimamenn sterkari í kuldanum og unnu 2-1 sigur.

Sunnudagsmessan: Umræða um Chelsea og Fernando Torres

Fernando Torres skoraði tvívegis í 3-1 sigri Chelsea á útivelli gegn Sunderland á laugardaginn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Spænski framherjinn virðist vera að finna sitt gamla form undir stjórn Rafael Benítez. Nigel Quashie, sem var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær, ræddi um Torres og Chelsea við þá Guðmund Benediktsson og Hjörvar Hafliðason.

Stuðningsmaður Man City bað Ferdinand afsökunar - níu aðilar kærðir

Níu aðilar hafa verið kærðir fyrir ýmis atvik sem áttu sér stað á leik Manchester City og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór í gær. Tveir þeirra fóru inn á leikvöllinn og ógnuðu þar leikmönnum Man Utd en alls hafa fjórir verið handteknir. Rio Ferdinand leikmaður Man Utd fékk skurð á augabrún eftir að smápening var kastað í andlit hans og það er ljóst að fjölmörg atvik sem komu þarna upp verða rannsökuð enn frekar hjá enska knattspyrnusambandinu.

Sunnudagsmessan: Umræða um Arsenal og Ray Wilkins

Ray Wilkins er sá leikmaður sem Nigel Quashie lítur hvað mest upp til en Quashie var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær. Quashie ,Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason ræddu m.a. Jack Wilshere og Arsenal í þessu innslagi úr Sunnudagsmessunni.

Sunnudagsmessan: Quashie ræðir um Joe Allen og Liverpool

Nigel Quashie var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær og þar tjáði hann sig m.a. um gengi Liverpool. Quashie hefur ákveðnar skoðanir á Joe Allen, landsliðsmanni frá Wales. Hinn 22 ára gamli miðjumaður kom til Liverpool s.l. sumar frá Swansea þar sem að Brendan Rodgers, núverandi knattspyrnustjór Liverpool, var áður knattspyrnustjóri. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason ræddu við Quashie um Liverpool í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær.

Sunnudagsmessan: Quashie ræðir um veru sína hjá West Ham

Nigel Quashie var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær þar sem stórkostleg helgi í enska boltanum var gerð upp. Englendingurinn hefur mikla reynslu úr ensku knattspyrnunni en hann hefur leikið með QPR, Nottingham Forest, Portsmouth, Southampton , WBA, West Ham, Birmingham, Wolves og Milton Keynes Dons. Quashie er spilandi þjálfari hjá ÍR en hann ræði hér um veru sína hjá West Ham þegar liðið var í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Eggerts Magnússonar.

Roberto Mancini gagnrýndi Samir Nasri harkalega

Samir Nasri er ekki í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum né liðsfélögum sínum í Manchester City en franski leikmaðurinn gerði afdrifarík mistök á lokamínútunum gegn Manchester United í gær. Robin van Persie skoraði sigurmark Man Utd með skoti úr aukaspyrnu en Nasri "faldi“ sig á bak við liðsfélaga sína í varnarveggnum og í stað þess að reyna verjast.

Thierry Henry gæti leikið með Arsenal í janúar

Allar líkur eru á því að Thierry Henry muni leika með enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal sem lánsmaður en franski framherjinn er samningsbundinn New York í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Misstir þú af enska boltanum? - öll mörkin og tilþrifin eru á Vísi

Það var mikil dramatík í gangi í leikjum helgarinnar í ensku knattspyrnunni. Stórleikur Manchester City og Manchester United bar þar hæst þar sem að Robin Van Persie tryggði Man Utd sigurinn á elleftu stundu í stórkostlegum leik. Sextándu umferðinni lýkur í kvöld með leik Fulham og Newcastle sem sýndur verður á Stöð 2 sport 2. Að venju eru öll mörk helgarinnar aðgengileg á Vísi.

Peningakastið í Manchester verður rannsakað

Það varð allt vitlaust á Manchester-vellinum í dag þegar Robin van Persie, leikmaður Manchester United, tryggði liði sínu sigurinn á lokamínútum leiksins gegn grönnum sínum í Man. City.

Ferguson: Framkoma stuðningsmanna City til skammar

„Ég hef ekki upplifað mikið meiri dramatík í leikjum þessara liða á mínum ferli," sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir sigurinn á Manchester City í dag.

Benitez skrifaði bréf til stuðningsmanna Chelsea

Rafa Benitez, stjóri Chelsea, ætlar sér ekki að gefast upp á því að vinna stuðningsmenn Chelsea á sitt band. Þeir hafa baulað látlaust á hann síðan hann tók við liðinu af Roberto di Matteo.

Everton með ótrúlegan sigur á Tottenham

Everton vann ótrúlegan sigur á Tottenham Hotspurs, 2-1, á Goodison-Park, heimavelli Everton. Everton skoraði tvö mörk undir lok leiksins og tryggðu sér stigin þrjú.

Robin van Persie hetja United gegn City

Manchester United vann ótrúlegan sigur, 3-2, á Manchester City á heimavelli City. Rooney skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en Man. City neitaði að gefast upp og náðu að jafna metin í síðari hálfleik.

Crouch: Það er eins gott að ég er giftur

Peter Crouch, leikmaður Stoke, fékk heldur betur að kenna á því í leik gegn Newcastle á dögunum. Þá fékk hann högg frá Fabricio Coloccini sem leiddi til þess að hann missti tvær tennur. Síðasta vika hefur síðan verið ansi erfið fyrir Crouch.

Heimasigur hjá Birni og félögum

Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Wolves rifu sig upp í sextándi sæti ensku B-deildarinnar í dag er liðið vann heimasigur á Birmingham.

Mancini lætur Ashley Young heyra það

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, kveikti bálið fyrir borgarslaginn gegn City í gær er hann benti á hversu mörg víti City fengi á heimavelli.

Rodgers óttast ekki að missa Sterling

Það er kurr í Liverpool eftir að Man. Utd lýsti yfir áhuga á hinum 18 ára gamla leikmanni Liverpool, Raheem Sterling, sem er ekki búinn að ganga frá nýjum samningi við Liverpool.

Redknapp hefur áhuga á Robbie Keane

Harry Redknapp, stjóri QPR, er þegar farinn að huga að því að styrkja lið sitt í janúar og hann horfir vestur yfir haf til Bandaríkjanna.

Torres: Erum farnir að sækja meira

Þungu fargi var létt af Rafa Benitez, stjóra Chelsea, í dag en liðið vann þá sinn fyrsta leik í deildinni undir hans stjórn. Það sem meira er þá skoraði Fernando Torres tvö mörk í leiknum.

Ferguson skýtur föstum skotum á alla vítaspyrnudómana hjá Man City

Alex Ferguson tekur þátt að venju þátt í sálfræðistríðinu fyrir stórleik ensku úrvalsdeildarinnar sem fram fer á sunnudag. Knattspyrnustjóri Manchester United sagði á fundi með fréttamönnum að það væri búið að setja rannsóknarnefnd á laggirnar hjá breska þinginu ef Manchester United hefði fengið jafnmargar vítaspyrnur það sem af er keppnistímabilinu og Manchester City hefur fengið.

Sálfræðistríðið fyrir slaginn um Manchester hafið - Mancini hrósar Man Utd

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Englandsmeistaraliðs Manchester City, mun bíða fram á síðustu stundu með liðsvalið fyrir stórleikinn gegn Manchester United á sunnudaginn. Óvíst er hvort David Silva leikmaður Man City verði leikfær en Mancini vonast til þess að hann geti gefið Spánverjanum tækifæri í þessum mikilvæga leik sem fram fer á Etihad Stadium heimavelli Man City.

Obi Mikel í þriggja leikja bann

John Obi Mikel, leikmaður Chelsea, var í dag dæmdur í þriggja leikja bann og sektaður um 12 milljónir króna fyrir hegðun sína í leik Chelsea og Man. Utd.

John Obi Mikel samdi við Chelsea til fimm ára

John Obi Mikel, leikmaður Evrópumeistaraliðs Chelsea, skrifaði undir fimm ára samning við félagið en hann hefur verið í herbúðum enska liðsins frá árinu 2006. Nígeríumaðurinn kom til Chelsea frá norska liðinu Lyn árið 2006 og voru þau félagaskipti mjög umdeild – þar sem að Mikel hafði áður gert samkomulag við Manchester United.

Mario Balotelli orðaður við AC Milan

Það ríkir mikil óvissa um framtíð Mario Ballotelli hjá Englandsmeistaraliði Manchester City en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu á undanförnum vikum. Ítalska liðið AC Milan er eitt þeirra liða sem nefnd hafa verið til sögunnar sem næsti vinnustaður hjá ítalska landsliðsframherjanum.

Styttist í endurkomu Scott Parker hjá Tottenham

Það styttist í að enski landsliðsmaðurinn Scott Parker fari að leika á ný með enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham. Parker hefur ekkert leikið með liðinu á þessari leiktíð en hann hefur verið að jafna sig eftir aðgerð á hásin.

Beckham fer líklegast til PSG í Frakklandi

Breskir og bandarískir fjölmiðlar greina frá því í dag að David Beckham muni semja við franska liðið PSG á allra næstu vikum. Hinn 37 ára gamli enski knattspyrnumaður lék sinn síðasta leik með LA Galaxy um s.l. helgi þegar liðið varð bandarískur meistari en Beckham hafði verið í herbúðum liðsins í rúm fimm ár.

Sjá næstu 50 fréttir