Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mpenza á leið til City Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City er nú sagt við það að ganga frá samningi við belgíska framherjann Emil Mpenza sem leikið hefur í Katar undanfarið. Mpenza er mikill markahrókur og gerði garðinn frægan í Þýskalandi. Fréttir herma að Mpenza geri samning við City út leiktíðina með möguleika á framlengingu í sumar. 15.2.2007 15:22
Arsenal áfram eftir ótrúlegan leik Arsenal er komið í fimmtu umferð enska bikarsins eftir 3-1 sigur á Bolton í ótrúlegum leik í kvöld þar sem úrslitin réðust í framlengingu. Arsenal hafði virtist vera með unninn leik í höndunum eftir að Adebayor kom liðinu yfir, en Meite jafnaði fyrir Bolton í blálokin á venjulegum leiktíma. 14.2.2007 22:42
Queiroz: Ronaldo veit að United er besta félag í heimi Carlos Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, hefur skorað á landa sinn Cristiano Ronaldo að fara ekki frá félaginu. Hann segir Ronaldo vel geta fullkomnað glæstan feril sinn hjá enska félaginu og segir að hann geti orðið einn besti leikmaður í sögu félagsins. 14.2.2007 17:30
Everton kaupir Tim Howard Everton festi í dag formlega kaup á bandaríska landsliðsmanninum Tim Howard frá Manchester United og hefur hann skrifað undir fimm ára samning við Everton. Howard hefur verið í láni hjá Everton í vetur og hefur á þeim tíma stimplað sig inn sem aðalmarkvörður liðsins. Kaupverðið var ekki gefið upp. 14.2.2007 17:25
Bolton - Arsenal í beinni á Sýn í kvöld Leikur Bolton og Arsenal í enska bikarnum verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending 19:55. Arsene Wenger segir sína menn ekki óttast neitt þó liðið hafi tapað þremur síðustu leikjum sínum á útivelli gegn Bolton. 14.2.2007 14:24
Middlesbrough marði sigur Úrvalsdeildarliðið Middlesbrough er komið í fimmtu umferð enska bikarsins eftir sigur á Bristol City í vítaspyrnukeppni í kvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Yakubu hjá Boro afrekaði það að skora mark í leiknum en brenna svo af víti bæði í framlengingu og vítakeppninni. 13.2.2007 23:20
Stuðningsmenn West Ham ósáttir við Curbisley Vandamálin hrannast upp hjá Alan Curbishley knattspyrnustjóra West Ham. Leikmenn liðsins eru sagðir óánægðir með stjórnarstíl hans og rúmlega helmingur stuðningsmanna liðsins vill láta reka hann. Þá gæti West Ham misst stig í úrvalsdeildinni vegna félagaskipta Carlosar Tevez og Javiers Masherano. 13.2.2007 18:03
Newell sektaður fyrir karlrembu Mike Newell, knattspyrnustjóri Luton Town, var í dag sektaður um 6,500 pund fyrir að ausa fúkyrðum yfir kvenkyns aðstoðardómara eftir leik í nóvember sl. Newell sagði að konur ættu ekki heima í fótbolta og sagði þessa ráðstöfun vera aumkunarverða tilraun til að jafna bilið milli kynjanna. 13.2.2007 17:53
Stjörnufans í hátíðarleik á Old Trafford Manchester United mun halda sérstakan hátíðarleik á Old Trafford þann 13. mars nk. þar sem haldið verður upp á 50 ára afmæli fyrsta Evrópuleiks félagsins. Manchester United mætir þar sérstöku Evrópuúrvali sem þjálfað verður af Marcelo Lippi, fyrrum landsliðsþjálfara Ítala. 13.2.2007 14:34
Úrvalsdeildarfélög sektuð Tottenham og Middlesbrough voru í dag sektuð og áminnt af aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir að uppúr sauð í leik liðanna í desember síðastliðinn. Didier Zokora og George Boateng voru þá reknir af velli og fékk Tottenham 8.000 punda sekt og Boro 4.000 punda sekt vegna handalögmála leikmanna. 13.2.2007 14:27
Milan Mandaric kaupir Leicester Milan Mandaric, fyrrum eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth, festi í dag kaup á Leicester City. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, en Mandaric segir stefnuna setta á að koma liðinu í úrvalsdeildina innan þriggja ára. 13.2.2007 14:21
Jewell ákærður fyrir ummæli sín Paul Jewell knattspyrnustjóri Wigan hefur verið ákærður fyrir ósæmileg ummæli í garð dómarans Phil Dowd eftir tap Wigan gegn Arsenal á dögunum og hefur til 28. febrúar til að svara fyrir sig hjá aganefndinni. Jewell sagðist sjálfur eiga von á því að verða sektaður fyrir ummæli sín og hefur nú er útlit fyrir að svo verði. 13.2.2007 12:58
Owen byrjaður að hlaupa Enski framherjinn Michael Owen hjá Newcastle er nú farinn að hlaupa á ný eftir löng og erfið meiðsli. Bjartsýnustu menn í herbúðum Newcastle vonast til þess að Owen muni geta spilað á ný í apríl, en leikmaðurinn sjálfur segist ekki ætla að taka neina áhættu með hnéð á sér og útilokar ekki að bíða með endurkomuna fram á næsta haust. 12.2.2007 17:12
Parlour æfir með Arsenal Gamla brýnið Ray Parlour, sem nýverið gekk í raðir Hull City, ætlar að æfa með gamla liðinu sínu Arsenal á næstu vikum á meðan hann nær sér af meiðslum. Parlour er nú að spila utan efstu deildar í fyrsta sinn á ferlinum og fær aðeins borgað hjá Hull ef hann nær að spila leiki með félaginu. 12.2.2007 16:01
Sögur af árásum stuðningsmanna ýktar Forráðamenn West Ham gáfu það út í dag að sögur sem gengu í bresku blöðunum í dag um að stuðningsmenn liðsins hefðu ráðist að Marlon Harewood eftir leik liðsins um helgina væru stórlega ýktar. Sagt var að 15 manns hefðu ráðist að Harewood og hreytt í hann fúkyrðum voru dregnar til baka og sagði talsmaður West Ham að félagið hefði engar áhyggjur af þessu meinta atviki. 12.2.2007 15:57
Kanchelskis leggur skóna á hilluna Rússneski kantmaðurinn Andrei Kanchelskis hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 38 ára að aldri. Kanchelskis gerði garðinn frægan með Manchester United snemma á síðasta áratug og varð tvisvar Englandsmeistari með liðinu. 12.2.2007 15:50
Diarra var nálægt því að fara frá Chelsea í janúar Lassana Diarra, leikmaður Chelsea, hefur nú upplýst að hann hafi verið kominn á fremsta hlunn með að fara frá félaginu í janúar. Diarra hafði ekki fengið mikið að spreyta sig síðan hann kom til Chelsea árið 2005, en hefur staðið sig vel í þeim þremur leikjum í röð sem hann hefur verið í byrjunarliðinu undanfarið. 12.2.2007 13:38
Jewell: Dómarinn kostaði okkur sigurinn Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, var allt annað en sáttur með frammistöðu dómarans Philip Dowd í leik sinna manna gegn Arsenal í dag og sagði slæma dómgæslu hafa kostað sitt lið sigurinn. Arsene Wenger hjá Arsenal viðurkenndi að Wigan hefði átt skilið af fá að minnsta kostið annað stigið í leiknum. 11.2.2007 19:13
Eggert: Ég er fæddur bardagamaður Eggert Magnússon segir í löngu og ítarlegu viðtali við breska blaðið Guardian sem birtist í gær að hann sé fæddur bardagamaður. Þess vegna muni West Ham berjast þar til í síðustu umferð ensku deildarkeppninar til að forðast fall úr úrvalsdeildinni. 11.2.2007 19:00
Frábær endasprettur færði Arsenal sigur Frábær endasprettur Arsenal tryggði liðinu 2-1 sigur á Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lengi vel leit út fyrir að gestirnir færu með öll þrjú stigin af hólmi eftir að Denny Landzaat hafði komið þeim yfir í fyrri hálfleik, en sjálfsmark og mark frá Thomas Rosicky á síðustu 10 mínútum leiksins tryggðu heimamönnum mikilvægan sigur. 11.2.2007 17:57
Bolton lagði Fulham af velli Bolton komst upp fyrir Arsenal í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Bolton er nú komið með 47 stig eftir 27 leiki en Arsenal er með 46 stig eftir 25 leik. Arsenal tekur á móti Wigan síðar í dag og getur því náð fjórða sætinu aftur. 11.2.2007 15:16
Venables: McLaren er fullur sjálfstrausts Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins í fótbolta, segir að sjálfstraust Steve McLaren hafi ekki beðið hnekki þrátt fyrir gríðarlega gagnrýni fjölmiðla og almennings í Englandi eftir tap enska liðsins gegn Spánverjum í síðustu viku. Venables segir hins vegar engan taka gagnrýnina eins nærri sér og Venables. 11.2.2007 14:49
Bolton yfir í hálfleik - Heiðar í byrjunarliðinu Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem er 1-0 undir gegn Bolton þegar leikur liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag er hálfnaður. Heiðar spilar í fremstu víglínu ásamt Bandaríkjamanninum Brian McBride. Það var miðjumaðurinn Gary Speed sem skoraði mark Bolton á 23. mínútu úr vítaspyrnu. 11.2.2007 14:34
Allardyce: Hvað er málið með Nolan? Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, skilur ekki af hverju fyrirlið liðs síns, Kevin Nolan, sé sífellt skilinn eftir utan enska landsliðsins. Allardyce telur að með sama áframhaldi sjái Nolan sér ekki annað fært en að fara til stærra félags í Englandi. 11.2.2007 14:05
Gerrard heillaður af nýjum eigendum Liverpool Fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, er himinlifandi með kaup bandarísku auðkýfinginanna George Gillett og Tom Hicks á félaginu og kveðst heillaður af framtíðaráætlunum þeirra. Fyrirliðinn hitti nýju eigendurna á fundi fyrir helgi þar sem þeir lýstu fyrir honum hugsjón sinni og framtíðarsýn. 11.2.2007 13:44
Ronaldo og Rooney eru bestu félagar Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur enn einu sinni lýst því yfir að hann og Wayne Rooney séu bestu vinir, þrátt fyrir uppákomuna á HM í Þýskalandi í sumar þar sem Ronaldo virtist eiga þátt í að Rooney var rekinn af leikvelli í viðureign Portúgals og Englands í 8-liða úrslitum. Ronaldo segir vináttu þeirra hafa styrkst eftir atvikið. 11.2.2007 13:17
Ferguson hrósar breidd leikmannahópsins Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd., segir að sigur sinna manna á Charlton í dag hafi undirstrikað mikilvægi þess að hafa úr stórum hópi leikmanna að velja. Ferguson hvíldi nokkra af sínum bestu mönnum, t.d. Cristiano Ronaldo, en það kom ekki að sök. 10.2.2007 21:00
Curbishley segir ekkert falla með sínum mönnum Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, ítrekar að fallbaráttan í ensku úrvalsdeildinni sé síður en svo ráðin, þrátt fyrir að lærisveinar hans og Eggerts Magnússonar hafi beðið lægri hlut gegn Watford á heimavelli í dag. West Ham var miklu betri aðilinn í leiknum en ekkert gekk upp við mark andstæðinganna. 10.2.2007 20:30
Jóhannes og Bjarni spiluðu Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley sem gerði 1-1 jafntefli við Sheffield Wednesday í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes Karl fór af velli á 77. mínútu. Þá spilaði Bjarni Þór Viðarsson síðasta hálftímann fyrir Bournemouth í stórsigri liðsins á Layton Orient í ensku 2. deildinni, en þar er hann í láni frá Everton. 10.2.2007 19:15
Man. Utd. og Chelsea halda sínu striki Manchester United heldur sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki dagsins en Man. Utd og Chelsea unnu bæði leiki sína í dag. Vonir Liverpool um að blanda sér alvarlega í toppbaráttunni hurfu líklega endanlega með tapi liðsins fyrir Newcastle í dag. 10.2.2007 16:53
Man. Utd. og Chelsea með forystu í hálfleik Manchester United og Chelsea, efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar, hafa bæði 1-0 forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureignum liðanna í dag. Staðan í leik Newcastle og Liverpool er 1-1 þar sem Craig Bellamy gæti auðveldlega verið búinn að skora þrennu. 10.2.2007 15:41
Rúrik ekki í hóp hjá Charlton - Terry byrjar hjá Chelsea Sóknarmaðurinn ungi Rúrik Gíslason er ekki í 16 manna hópi Charlton sem sækir topplið Manchester United heim í ensku úrvalsdeildinni í dag en Rúrik hafði verið valinn í 17 manna hóp liðsins í gær. Hermann Hreiðarsson spilar ekki með vegna meiðsla. John Terry er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Middlesbrough. 10.2.2007 15:00
Reading sigraði Aston Villa Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading sem bar sigurorð af Aston Villa á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag, 2-0. Það var miðjumaðurinn Steve Sidwell sem skoraði bæði mörk Reading, það fyrra á 16. mínútu en það síðara á 92 mínútu. Með sigrinum styrkir Reading stöðu sína í 6. sæti deildarinnar. 10.2.2007 14:33
Arsenal í samstarf við Colorado Rapids Enska úrvalsdeildarliðið Arsenal og bandaríska atvinnumannaliðið Colorado Rapids tilkynntu opinberlega í morgun að félögin hyggðust hefja samstarf sín á milli. Samstarfið felst í því að styrkja vörumerkið Arsenal í Bandaríkjunum ásamt því að liðin munu koma til með að skiptast á efnilegum leikmönnum. 10.2.2007 13:12
Mikel var neyddur til að spila landsleikinn Nígeríski miðjumaðurinn hjá Chelsea, John Obi Mikel, kveðst hafa neyðst til að spila fyrir landsliðið sitt sl. þriðjudag þegar Nígería mætti Ghana í vináttuleik. Ástæðan voru hótanir í garð fjölskyldu sinnar sem búsett er í Nígeríu. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hafði bannað Mikel að spila landsleikinn þar sem hann var lítillega meiddur. 10.2.2007 12:51
Roeder ánægður með að hafa valið Martins Glenn Roeder, knattspyrnustjóri Newcastle, kveðst alls ekki sjá eftir því að hafa keypt Obafemi Martins frá Nígeríu til félagsins í sumar, fremur en hollenska framherjann Dirk Kuyt sem fór stuttu síðar til Liverpool. Roeder segir að Martins hafi vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína. 10.2.2007 12:45
Benitez og Fabregas menn mánaðarins í Englandi Rafael Benitez hjá Liverpool hefur verið valinn þjálfari mánaðarins og Cesc Fabregas hjá Arsenal leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni en greint var frá þessum tíðindum nú undir kvöld. 9.2.2007 18:49
Wenger: Landsleikir eru leiðinlegir Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að landsleikir í fótbolta séu hundleiðinlegir nú á dögum. Ástæðan sé einföld; gæði félagsliða hafi aukist á síðustu árum en gæði landsliða hafi þvert á móti farið minnkandi. 9.2.2007 18:45
Ronaldo fer ekki fet Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo er ekki á förum frá Man. Utd. í bráð, að því er knattspyrnustjórinn Alex Ferguson segir. Ferguson ræddi við fjölmiðla í morgun í þeim tilgangi að binda enda á þær sögusagnir sem bendla Ronaldo við sölu til Barcelona eða Real Madrid í sumar. 9.2.2007 15:57
Alex Ferguson: Gefið McLaren vinnufrið Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd, hefur hefur beðið fjölmiðla í Englandi að gefa landsliðsþjálfaranum Steve McLaren frið til að sinna starfi sínu. McLaren, sem hefur verið harðlega gagnrýndur eftir tap Englendinga gegn Spánverjum á miðvikudag, er fyrrum aðstoðarmaður Ferguson hjá Man. Utd. 9.2.2007 14:46
Óvíst hvað Lampard gerir eftir tímabilið Ummæli umboðsmanns Frank Lampard hjá Chelsea í morgun hafa ýtt undir þær sögusagnir að enski landsliðsmaðurinn kunni að vera á förum frá Englandsmeisturunum í sumar. Umboðsmaðurinn staðfestir að Lampard verði hjá Chelsea út leiktíðina en hvað taki við í sumar sé algjörlega óráðið. 9.2.2007 14:21
QPR: Leikmenn hugsanlega reknir fyrir slagsmál Gianni Paladini, stjórnarformaður QPR á Englandi, segir að vel komi til greina að reka leikmenn frá félaginu eftir að þeir lentu í hörkuslagsmálum við U-23 ára landslið Kína í æfingaleik á æfingasvæði enska félagsins í gærkvöld. Einn kínversku leikmannanna var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús eftir átökin. 8.2.2007 19:27
Grannliðin í Liverpool sektuð Knattspyrnufélögin Liverpool og Everton hafa verið sektuð um 10 þúsund pund og gefin hörð viðvörun vegna slagsmála sem brutust út í haust þegar varalið félaganna áttust við. Nokkrum leikmönnum var þá vísað af velli eftir að slagsmál brutust út þegar Jerzy Dudek markverði Liverpool var sýnt rauða spjaldið. Liverpool var sektað aukalega vegna óláta leikmanna liðsins. 8.2.2007 19:09
Van der Sar verður frá í tvær vikur Hollenski markvörðurinn Edwin van der Sar hjá Manchester United verður frá keppni í tvær vikur í viðbót vegna nefbrotsins í leiknum gegn Tottenham um síðustu helgi. Félagið tilkynnti þetta í dag, en það verður Pólverjinn ungi Tomasz Kuszczak sem tekur stöðu hans í markinu á meðan. 8.2.2007 16:45
Martins stakk af til að sinna veikri móður sinni Glenn Roeder, knattspyrnustjóri Newcastle, hefur farið þess á leit við þjálfara nígeríska landsliðsins að hann sýni framherjanum Obafemi Martins skilning eftir að hann skrópaði í landsleik Nígeríu og Gana í fyrrakvöld. Martins flaug heim til Nígeríu til að sækja veika móður sína, en landsliðsþjálfarinn varð æfur og sagðist ætla að setja Martins í bann fyrir að vanvirða landslið sitt. 8.2.2007 15:45