Fleiri fréttir

Breiðablik komið í samstarf við Tottenham

Breiðablik kynnti í dag samstarf við enska knattspyrnustórveldið Tottenham en samkomulagið felur meðal annars í sér að Tottenham starfrækir knattspyrnuskóla hér á landi næsta sumar. Á kynningarfundinn mætti einnig Charlotte Lade, sem er freestyle fótboltakona frá Álasundi í Noregi en hún hefur verið hjá Tottenham í hálft ár.

Kristinn Björnsson til Keflavíkur

Njarðvíkingurinn Kristinn Björnsson hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við granna sína í Keflavík. Þetta var staðfest á heimasíðu Keflavíkur.

Joe Tillen hættur hjá Fram

Joe Tillen mun ekki spila með Fram í Pepsi-deild karla á næstu leiktíð og leitar sér nú að nýju félagi hér á landi.

Yfirlýsing frá félagi deildadómara

Félag deildadómara á Íslandi hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi beiðni skoska knattspyrnusambandsins sem vildi fá íslenska dómara til þess að dæma í Skotlandi.

Ásgeir Aron í HK

HK fékk liðsstyrk í dag þegar miðjumaðurinn Ásgeir Aron Ásgeirsson skrifaði undir þriggja ára samning við Kópavogsliðið. Hann kemur til liðsins frá ÍBV.

FH og Breiðablik rífast um greiðslur vegna Gylfa

FH vill fá rúmlega þriðjungshlut af rúmlega 100 milljóna króna greiðslu sem Breiðablik fékk þegar Gylfi Þór Sigurðsson var seldur frá Reading til þýska liðsins Hoffenheim.

Íslenskir dómarar duglegir að skipta um félög

Þóroddur Hjaltalín Jr. er þriðji íslenski FIFA-dómarinn á stuttum tíma sem ákveður að skipta um félag sem hann dæmir fyrir. Allir hafa þessir dómarar skipt úr félagi í úrvalsdeild karla í félag í neðri deildunum. Þetta kom fram á fótbolta.net.

Valur, Þór/KA og Breiðablik byrja öll á heimavelli

Þrjú efstu liðin í Pepsi-deild kvenna í sumar, Valur, Þór/KA og Breiðablik, byrja öll á heimavelli þegar deildin fer af stað á næsta ári en það var dregið í töfluröð í höfuðstöðvum KSÍ í dag í lok formanna- og framkvæmdastjórafundar.

Blikar byrja titilvörnina á móti KR og FH

Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta KR í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla á næsta ári en það var dregið í töfluröð í höfuðstöðvum KSÍ í lok formanna- og framkvæmdastjórafundar í dag.

Rafrænt sólarljós hjálpar

Á heimasíðu KSÍ, ksi.is, má lesa tvo áhugaverða pistla um kosti og galla gervigrass. Hinn fyrri ritar Lúðvík Georgsson, formaður mannvirkjanefndar KSÍ, þar sem hann talar um kosti gervigrasvalla.

Ríkharður sá eini sem byrjaði betur

Kolbeinn Sigþórsson hefur byrjað vel með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta og er nú kominn í fámennan hóp með þeim Ríkharði Jónssyni og Tryggva Guðmundssyni.

Mögulegt að lið spili sjö leiki strax í maí

Nú liggja fyrir drög að niðurröðun leikja í Pepsi-deild karla næsta sumar. Þátttaka íslenska U-21 landsliðsins í EM í Danmörku næsta sumar hefur mikil áhrif en mótið fer fram dagana 11.-25. júní.

Sindri Snær skrifar undir hjá Val

Meistaraflokkur karla hjá Val bætti við sig markverði í dag þegar Sindri Snær Jensson skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Sindri kemur til Vals frá Þrótti.

21. vináttulandsleikurinn á 33 mánuðum

Ísland mætir Ísrael í vináttulandsleik í Tel Aviv í kvöld og er þetta 21. vináttulandsleikurinn sem Ísland spilar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar síðan að hann tók við landsliðinu í lok ársins 2007. Ísland hefur spilað fimm aðra vináttulandsleiki á þessu ári og hefur ekki tapað neinum þeirra.

Arnar Gunnlaugsson í Fram

Arnar Gunnlaugsson hefur skrifað undir eins árs samning við Fram en þetta kemur fram á heimsíðu félagsins.

Brynjar Gauti til ÍBV

Eyjamenn hafa styrkt leikmannahóp sinn fyrir átök næsta sumars í Pepsi-deild karla en Brynjar Gauti Guðjónsson samdi við liðið í dag.

Jón Guðni kallaður inn í landsliðið

Ólafur Jóhannesson, A-landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, hefur þurft að gera enn eina breytinguna á landsliðshópi sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Ísrael í næstu viku.

Tommy Nielsen framlengdi um eitt ár

Tommy Nielsen mun spila sitt níunda tímabil með FH í úrvalsdeild karla en hann hefur skrifað undir nýjan eins árs samnning við FH. Þetta kom fram í kvöld á heimasíðu stuðingsmanna félagsins, FHingar.net.

Jeffs: ÍBV var besti kosturinn fyrir mig

Ian Jeffs skrifaði rétt í þessu undir eins árs samning við Pepsi-deildarlið ÍBV. Þetta er í annað sinn á ferlinum sem Jeffs gengur í raðir ÍBV en hann fór fyrst til félagsins árið 2003.

Ian Jeffs semur við ÍBV

Ian Jeffs hefur samþykkt að ganga í raðir ÍBV og hann mun skrifa undir eins árs samning við félagið klukkan 17.00 í dag.

Eyþór Helgi aftur til HK

Framherjinn Eyþór Helgi Birgisson mun ekki leika með ÍBV í Pepsi-deildinni næsta sumar. Lánssamningur hans frá HK er útrunninn og Eyþór farinn aftur í borgina.

Arnór Sveinn í hópinn fyrir Grétar Rafn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, varð að gera eina breytingu á landsliðshópi sínum í dag þegar Grétar Rafn Steinsson boðaði forföll.

McShane samdi við Grindavík

Paul McShane hefur skrifað undir tveggja ára samning við Pepsi-deildarlið Grindavíkur. McShane kemur til félagsins frá Keflavík.

Orri framlengir og Helgi ráðinn aðstoðarþjálfari

Það er nóg að gera hjá Grindvíkingum við að undirbúa liðið fyrir næsta sumar. Félagið hefur nú ráðið Helga Bogason sem aðstoðarþjálfara Ólafs Arnar Bjarnasonar og svo er Orri Freyr Hjaltalín búinn að framlengja við félagið til ársins 2014.

Steinþór og Stefán Logi inn í A-landsliðið

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum sem hann tilkynnti í gær fyrir vináttulandsleik á móti Ísrael sem fer fram í Tel Aviv 17. nóvember næstkomandi.

Grétar samdi við Keflavík

Grétar Ólafur Hjartarson hefur gert eins árs samning við Keflavík. Þetta staðfesti Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, við fréttastofu.

Grétar á leið til Keflavíkur

Grétar Ólafur Hjartarson er sagður á leið til Keflavíkur á vef Víkurfrétta í dag en hann hefur verið sterklega orðaður við félagið síðan ljóst varð að hann yrði ekki áfram með Grindavík.

Færeyskur landsliðsmaður til Vals

Jónas Þór Næs, landsliðsmaður frá Færeyjum, hefur gengið til liðs við Val og er annar Færeyingurinn sem kemur til liðsins. Sá þriðji er á reynslu hjá félaginu.

Rakel hafnaði Jitex - verður áfram á Akureyri

Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er greinilega mjög heimakær því hún hefur ákveðið að spila áfram með Þór/KA í Pepsi-deildinni í stað þess að fara utan til Svíþjóðar í atvinnumennsku. Þetta er staðfest á heimasíðu Þórs í dag.

ÍBV krækti í Guðmund

Selfyssingurinn efnilegi. Guðmundur Þórarinsson, skrifaði í kvöld undir eins árs samning við spútniklið síðasta sumars, ÍBV. Frá þessi er greint á fótbolti.net í kvöld.

Baldur Ingimar til Víkings

Víkingar hafa styrkt sig enn frekar fyrir átök næsta sumars í Pepsi-deild karla og fengið Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val.

Jón Daði til reynslu hjá AGF

Selfyssingurinn efnilegi, Jón Daði Böðvarsson, mun halda til Danmerkur um helgina þar sem hann verður til reynslu hjá AGF í Árósum.

Gunnar semur við FH

FH-ingar fengu fínan liðsstyrk í dag þegar Gunnar Kristjánsson samþykkti að skrifa undir tveggja ára samning við félagið. Gunnar kemur til FH frá KR.

Eggert Rafn í Leikni

Eggert Rafn Einarsson hefur gengið til liðs við Leikni sem leikur í 1. deildinni. Eggert Rafn er tvítugur og uppalinn KR-ingur.

Sjá næstu 50 fréttir