Fleiri fréttir

Gummi Ben til starfa hjá Breiðabliki

Guðmundur Benediktsson hefur verið ráðinn í þjálfarateymi Breiðabliks en Fótbolti.net greinir frá þessu. Guðmundur mun aðstoða Ólaf Kristjánsson og Úlfar Hinriksson.

Hörður Sveinsson kominn í Val

Kristján Guðmundsson hefur krækt í sinn fjórða leikmann síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Val. Sóknarmaðurinn Hörður Sveinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hlíðarendaliðið.

Verður spilandi aðstoðarþjálfari og lögfræðingur á Selfossi

Selfyssingar eru duglegri á leikmannamarkaðnum eftir fall úr úrvalsdeild en þeir voru fyrir leiktíðina í úrvalsdeildinni. Í gær nældi félagið í varnarmanninn sterka Auðun Helgason, sem skrifaði undir eins árs samning og verður spilandi aðstoðarþjálfari.

Andri Fannar til Vals

Andri Fannar Stefánsson er genginn til liðs við Val en kemur frá KA á Akureyri. Hann er nítján ára gamall og þykir efnilegur miðvallarleikmaður.

Auðun verður spilandi aðstoðarþjálfari á Selfossi

Varnarmaðurinn Auðun Helgason fann sér nýtt félag í dag er hann skrifaði undir eins árs samning við 1. deildarlið Selfoss. Ásamt því að spila með liðinu verður Auðun aðstoðarþjálfari en þjálfari liðsins er Logi Ólafsson.

Í mér blundar KR-ingur

KR-ingar leystu markvarðavandræði sín í gær þegar Hannes Þór Halldórsson skrifaði undir fjögurra ára samning við KR. Hann hefur leikið með Fram síðustu fjögur ár við fínan orðstír en hefur nú tekið þeirri áskorun að spila fyrir KR.

KSÍ vill halda Sigurði

Flest bendir til þess að Sigurður Ragnar Eyjólfsson verði áfram þjálfari A-landsliðs kvenna en núverandi samningur hans við Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, rennur út um áramótin.

Mawejje til reynslu hjá Molde

Úgandamaðurinn Tonny Mawejje er nú til reynslu hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Molde. Það er Fótbolti.net sem greinir frá þessu.

Björgvin Karl þjálfar kvennalið KR næsta sumar

Björgvin Karl Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari KR í Pepsi-deild kvenna í fótbolta og mun hann taka við liðinu af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur. Björgvin Karl skrifaði undir þriggja ára samning en þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KR.

Hannes Þór búinn að semja við KR

Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er farinn frá Fram og skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við KR. Þessi félagaskipti hafa legið í loftinu í nokkurn tíma og eru nú loks staðfest.

Arnar Már Björgvinsson til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks

Sóknarmaðurinn Arnar Már Björgvinsson er hættur hjá Stjörnunni og búinn að gera þriggja ára samning við Íslandsmeistara Breiðabliks. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net en Arnar Már er fyrsti leikmaðurinn sem Blikarnir fá til sín fyrir titilvörninni í Pepsi-deild karla næsta sumar.

Bjarni Þórður aftur í Fylki

Bjarni Þórður Halldórsson, sem varið hefur mark Stjörnunnar undanfarin þrjú tímabil, er aftur genginn í raðir Fylkis.

Greta Mjöll með mark og 2 stoðsendingar um helgina

Northeastern Huskies, lið Gretu Mjallar Samúelsdóttur og Söndru Sifjar Magnúsdóttur, sigraði í báðum leikjum sínum í bandarísku háskóladeildinni í kvennaknattspyrnu um helgina. Greta Mjöll skoraði í fyrri leiknum og lagði upp mark í báðum. Hún er sem fyrr markahæst leikmanna Huskies og með flestar stoðsendingar, 5 talsins.

Mist Edvardsdóttir farin úr KR í Val

Mist Edvardsdóttir gerði í gær þriggja ára samning við Íslands- og bikarmeistara Vals en hún hefur leikið með KR undanfarin tvö tímabil og hefur verið einn allra besti leikmaður liðsins.

Heimir: Þjálfun er ástríða hjá mér

Heimir Hallgrímsson segist vera ákaflega ánægður með að hafa framlengt samningi sínum við ÍBV en hann verður áfram með liðið næsta sumar.

Heimir þjálfar ÍBV áfram

Heimir Hallgrímsson skrifaði í morgun undir nýjan samning við knattspyrnudeild ÍBV. Hann mun því þjálfa karlalið félagsins næsta sumar.

Magnús úr Stjörnunni í Grindavík

Magnús Björgvinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík. Magnús er 23 ára og uppalinn í Stjörnunni þar sem hann lék 61 leik og skoraði 10 mörk.

Grindavík semur við McCunnie

Grindvíkingar fengu góðan liðsstyrk í dag þegar skoski varnarmaðurinn Jamie McCunnie skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Reynir Leósson lánaður til ÍA næsta sumar

Reynir Leósson mun spila með ÍA í 1. deild karla næsta sumar en þessi 31 árs miðvörður er því aftur á leiðinni á æskustöðvar sínar á Skaganum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Albert verður áfram í Eyjum

Markvörðurinn Albert Sævarsson mun verja mark ÍBV á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Albert við Vísi í dag.

Gunnlaugur tekur við KA

Gunnlaugur Jónsson verður næsti þjálfari 1. deildarliðs KA í knattspyrnu. Þetta kemur fram á fréttavef N4 í dag.

Enn fellur Ísland á FIFA-listanum

Íslenska A-landsliðið í knattspyrnu er sem fyrr í frjálsu falli á FIFA-listanum. Ísland hrundi niður um tíu sæti að þessu sinni og er nú í 110. sæti.

Ungu stjörnurnar eftirsóttar

Strákarnir i islenska U-21 árs liðinu eru eftirsóttir um þessar mundir og þrír þeirra eru á faraldsfæti um Evrópu þessa dagana.

Fyrirliði Leiknismanna samdi við Val

Halldór Kristinn Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við Valsmenn en hann hefur verið fyrirliði Leiknismanna undanfarin ár og var einn af lykilmönnunum á bak við frábæran árangur liðsins í 1. deildinni í sumar. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá Val.

KFÍ vann upp 9 stiga forskot í blálokin og vann í framlengingu

KFÍ vann 107-97 sigur á ÍR eftir framlengdan leik á Ísafirði í kvöld í Iceland Express deild karla. Það stefndi allt í sigur ÍR sem var yfir nær allan leikinn en heimamenn náðu að tryggja sér framlengingu þar sem þeir tryggðu sér síðan sigurinn.

Stjörnumenn unnu sinn fyrsta sigur í Keflavík

Stjarnan vann sinn annan leik í röð í Iceland Express deild karla þegar liðið vann 9 stiga sigur á Keflavík í Keflavík í kvöld. Þetta var jafnframt annar tapleikur heimamanna í röð.

Dramatískur Fjölnissigur í fyrsta leik Örvars

Fjölnir vann 81-80 sigur á Hamar í Iceland Express deild karla í kvöld. Fjölnismenn lentu 16 stigum undir í byrjun leiksins en komu sér inn í leikinn og tryggðu sér dramatískan sigur í lokin.

Alfreð og Dóra María best

Alfreð Finnbogason, Breiðabliki, og Dóra María Lárusdóttir, Val, voru kjörin leikmenn ársins á lokahófi KSÍ í kvöld.

Jón Guðni á leið til PSV og Bayern

Það bendir afar fátt til þess að Jón Guðni Fjóluson verði áfram í herbúðum Fram enda er Jón Guðni eftirsóttur af stórliðum.

Gylfi búinn að semja við Fylki

Gylfi Einarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fylki en hann er nú að snúa aftur heim eftir tíu ár í atvinnumennsku.

Valur úr leik í Meistaradeildinni

Kvennalið Vals hefur lokið keppni í Meistaradeild Evrópu þetta árið eftir jafntefli á heimavelli, 1-1, í síðari leiknum gegn spænska liðinu Rayo Vallecano.

Björgólfur Takefusa til liðs við Víkinga

Björgólfur Takefusa hefur ákveðið að ganga til liðs við nýliða Víkings í Pepsi-deild karla. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Víkingar halda þessa stundina í Víkinni.

Logi Ólafsson að taka við Selfossliðinu

Logi Ólafsson verður næsti þjálfari karlaliðs selfoss í fótboltanum samkvæmt heimdilum sunnlenska fréttablaðsins en Knattspynrnudeild Selfoss hefur boðað blaðamannafund seinna í dag.

Ólafur: Fellur lítið með okkur

„Jafntefli hefði verið frábær úrslit en það hefur ekkert fallið með okkur í keppninni og það þarf gegn þjóðum í þessum styrkleika,“ sagði Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir tap sinna manna gegn Portúgal á Laugardalsvelli í kvöld, 1-3.

Birkir Már: Algjört skítatap

„Þetta er í raun algjört skítatap,“sagði Birkir Már Sævarsson, leikmaður Íslenska landsliðsins, eftir tapið gegn Portúgal í kvöld. Íslenska landsliðið tapaði fyrir því Portúgalska ,1-3, á Laugardalsvelli í kvöld, en leikurinn var hluti af Undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer í Úkraínu og Póllandi árið 2012.

Theodór Elmar í byrjunarliðinu á móti Portúgal

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Portúgölum í undankeppni EM 2012 á Laugardalsvelli í kvöld. Uppselt er á leikinn, sem hefst kl. 19:45 og er í beinni útsendingu á RÚV.

Sjá næstu 50 fréttir