Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Juventus í átta liða úrslit eftir öruggan sigur Juventus vann öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti Sampdoria í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins Coppa Italia í kvöld. 18.1.2022 21:52
Marokkó tryggði sér sigur í C-riðli | Gana úr leik Keppni í C-riðli Afríkumótsins í fótbolta lauk í kvöld með tveimur leikjum. Marokkó tryggði sér sigur í riðlinum með 2-2 jafntefli gegn Gana og Gana endar í neðsta sæti riðilsins eftir 3-2 tap gegn Kómoreyjum. 18.1.2022 20:53
Senegal og Gínea upp úr B-riðli þrátt fyrir töpuð stig Senegal og Gínea tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitum Afríkumótsins í fótbolta þrátt fyrir að hafa bæði tapað stigum í lokaumferð B-riðils. Senegal gerði markalaust jafntefli gegn Malaví og Gínea tapaði gegn Simbabve, 2-1. 18.1.2022 17:56
Sá besti notar ryksugu til að laga hár dóttur sinnar Robert Lewandowski var í gær útnefndur besti knattspyrnumaður heims á síðasta ári á verðlaunahófi FIFA. Hann er einnig úrræðagóður faðir. 18.1.2022 17:15
Best í heimi en ekki í liði ársins Besta knattspyrnukona ársins 2021 að mati FIFA er ekki í úrvalsliði ársins að mati FIFA, eins einkennilega og það kann að hljóma. 18.1.2022 16:31
Á leið í frystinn vegna dýrkeyptra mistaka sem kostuðu Milan mark Leikmenn AC Milan voru allt annað en sáttir með dómara leiksins gegn Spezia í gær enda tók hann löglegt mark af þeim. Hann gæti verið settur til hliðar vegna mistakanna. 18.1.2022 15:16
ÍA fékk Dana og Svía frá Val Knattspyrnufélagið ÍA hefur samið við tvo nýja leikmenn um að spila með liðinu næstu tvö árin en báðir léku með Val á Hlíðarenda síðustu leiktíð. 18.1.2022 14:39
Hákon ekki seldur heldur með nýjan samning Þrátt fyrir áhuga danska stórliðsins Midtjylland þá lítur út fyrir að markvörðurinn ungi Hákon Rafn Valdimarsson verði áfram hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Elfsborg. 18.1.2022 14:01
Einn mesti sigurvegari fótboltasögunnar látinn Paco Gento, einn sigursælasti leikmaður fótboltasögunnar, er látinn. Hann var 88 ára. 18.1.2022 12:46
Davíð á leið í ítalska boltann Davíð Snær Jóhannsson er sagður búinn að semja við ítalska B-deildarfélagið Lecce en munnlegt samkomulag á að vera í höfn. 18.1.2022 12:30
Fred: Falskar fréttir úr búningsklefa Manchester United Brasilíski knattspyrnumaðurinn Fred segir ekkert til í þeim fréttum að einhver óeining sé meðal leikmanna Manchester United eins og hefur verið skrifað talsvert um í enskum miðlum að undanförnu. 18.1.2022 10:00
Blásið til sóknar á Hlíðarenda Þó enn sé töluvert í að knattspyrnusumarið hér á landi fari af stað þá er aldrei of snemmt að spá í spilin. Eftir skelfingartímabil á síðasta ári hafa Valsmenn blásið í herlúðra og virðist sem markmiðið sé einfaldlega að skora meira en hinir. 18.1.2022 07:01
Bruno ósáttur með að þéna ekki jafn mikið og launahæstu leikmenn Man Utd Bruno Fernandes hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við Manchester United þar sem hann er ósáttur með að samningurinn gefi honum ekki hærri laun en raun ber vitni. 17.1.2022 23:01
Óvænt tap AC Milan þýðir að Inter er enn á toppnum Þrír leikir fóru fram í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. AC Milan tapaði óvænt fyrir Spezia á heimavelli, Napoli vann Bologna 2-0 og Fiorentina vann … 17.1.2022 22:30
Fyrirliði Íslandsmeistaranna áfram á Hlíðarenda Íslandsmeistarar Vals tilkynntu í dag að Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði þeirra, hefði skrifað undir nýjan samning. Samningurinn er til eins árs. 17.1.2022 21:00
Lewandowski og Putellas leikmenn ársins að mati FIFA | Chelsea á þjálfara ársins Verðlaunahátíð Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, fór fram með pompi og prakt í kvöld. Robert Lewandowski var valinn besti leikmaðurinn í karlaflokki og Alexia Putellas í kvennaflokki. Þá voru Emma Hayes og Thomas Tuchel kosin þjálfarar ársins. 17.1.2022 20:31
Kamerún og Búrkína Fasó í sextán liða úrslit A-riðli í Afríkukeppninni í knattspyrnu lauk í kvöld með tveimur leikjum. Báðir fóru 1-1 sem þýðir að Kamerún vinnur riðilinn. Búrkína Fasó fer áfram en liðið endar með fjögur stig líkt og Grænhöfðaeyjar sem sitja í 3. sæti en eiga enn möguleika á að komast áfram. 17.1.2022 19:00
Brentford býður Eriksen samning Enska úrvalsdeildarliðið Brentford ætlar að bjóða Christian Eriksen samning. 17.1.2022 16:02
Niðursveiflan heldur áfram hjá Aroni og félögum Al Arabi, lið Arons Einars Gunnarssonar, hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í katörsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 17.1.2022 15:33
Liverpool stuðningsmennirnir sungu nafn Benitez eftir að þeir fengu fréttirnar Rafael Benítez hefur nú starfað sem knattspyrnustjóri beggja stóru félaganna í Liverpool borg en á meðan hann er mjög óvinsæll meðal flestra stuðningsmanna Everton er aðra sögu að segja af stuðningsmönnum Liverpool. 17.1.2022 15:00
Brentford selur Patrik til Noregs Norska úrvalsdeildarliðið Viking hefur keypt markvörðinn Patrik Sigurð Gunnarsson frá enska úrvalsdeildarliðinu Brentford. 17.1.2022 14:30
Búin að klára læknisnámið með atvinnumennsku fótbolta Nadia Nadim flúði Afganistan ellefu ára gömul eftir að faðir hennar var drepinn. Síðan hefur hún gert mikið með tækifærin sín bæði inn á knattspyrnuvellinum en líka utan hans. 17.1.2022 13:31
Sýndi stuðningsmönnum Marseille löngutöng í pirringi Portúgalski landsliðsmaðurinn Renato Sanches hjá Frakklandsmeisturum Lille sýndi stuðningsmönnum Marseille fingurinn þegar hann var tekinn af velli í leik liðanna í gær. 17.1.2022 11:31
Aðeins þrír leikmenn United óhultir ef Keane fengi að munda niðurskurðarhnífinn Bara þrír leikmenn Manchester United væru öruggir með framtíð sína hjá félaginu ef Roy Keane fengi að ráða. 17.1.2022 10:01
Búnar að selja 85 þúsund miða á kvennaleikinn á Nývangi Barcelona og Real Madrid mætast í Meistaradeild kvenna í fótbolta þegar átta liða úrslit keppninnar fara fram í mars. Það er óhætt að segja að leikurinn í Barcelona verði sögulegur. 17.1.2022 09:30
Var drullusama þótt hann fengi lítið að spila hjá Barcelona því hann fékk svo vel borgað Alex Song viðurkennir að hafa farið til Barcelona frá Arsenal peninganna vegna. 17.1.2022 07:31
Markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í Serie A Atalanta og Inter gerðu markalaust jafntefli í lokaleik helgarinnar í ítölsku Serie A deildinni. 16.1.2022 22:33
Afríkumeistararnir töpuðu fyrir Miðbaugs-Gíneu Afríkumeistarar Alsír töpuðu gegn Miðbaugs-Gíneu, 1-0, í lokaleik dagsins í Afríkukeppninni. Tap meistarana verður að teljast afar óvænt í ljósi þess að liðið hafði ekki tapað í síðustu 25 leikjum í röð. 16.1.2022 21:05
Dagný Brynjarsdóttir lagði upp mark í uppbótartíma fyrir West Ham Dagný Brynjarsdóttir var í byrjunarliði West Ham og spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli við Tottenham í ensku ofurdeildinni í kvöld. 16.1.2022 20:51
Real Madrid vann spænska ofurbikarinn Real Madrid vann þægilegan sigur á Athletic Bilbao, 2-0, í leik um spænska ofurbikarinn í kvöld. 16.1.2022 20:39
Íslendingar á varamannabekkjum | Alfreð spilaði sínar fyrstu mínútur í tvo mánuði Alfreð Finnbogason, Arnór Sigurðsson, Þórir Jóhann Helgason og Albert Guðmundsson þurftu allir að sætta sig við að byrja leiki sinna liða í dag meðal varamanna. 16.1.2022 17:31
Rafael Benitez rekinn Rafael Benitez hefur verið rekinn frá Everton en félagið staðfesti það fyrr í dag. Árangur liðsins undir stjórn Benitez hefur alls ekki verið nógu góður en félagið er aðeins 6 stigum frá fallsvæðinu með 19 stig í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Everton hefur aðeins unnið 5 deildarleiki á tímabilinu. 16.1.2022 17:01
Finnst óþægilegt að spila við Brentford „Það er mjög óþægilegt að spila á móti Brentford ef ég er hreinskilinn. Þeir spila oftast öðruvísi en hvernig þeir spiluðu gegn okkur í dag gerði okkur erfitt fyrir,“ sagði Jürgen Klopp eftir 3-0 sigur sinna manna á Brentford í ensku úrvalsdeildinni. 16.1.2022 16:46
Harrison með þrjú er Leeds vann West Ham í markaleik Leeds United vann 3-2 sigur á West Ham United er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var einkar fjörugur og undir lok leiks voru mörk dæmd af báðum liðum. Þá fékk Jarrod Bowen sannkallað dauðafæri til að jafna metin í uppbótartíma. 16.1.2022 16:16
Óvæntir markaskorarar er Liverpool gekk frá Brentford Liverpool vann öruggan 3-0 sigur á Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag. 16.1.2022 15:55
Guðlaugur Victor og félagar í Schalke 04 misstigu sig Þýska stórliðið Schalke 04 náði aðeins jafntefli er Holstein Kiel kom í heimsókn á Veltins-völlinn í Gelsenkirchen í B-deildinni þar í landi, lokatölur 1-1. Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði Schalke í leiknum. 16.1.2022 14:31
Newcastle að sækja þýskan landsliðsmann Hið nýríka knattspyrnu Newcastle United er í þann mund að festa kaup á sínum þriðja leikmanni í janúarfélagaskiptaglugganum. Vinstri bakvörðurinn Robin Gosens ku vera á leið til félagsins frá Atalanta á Ítalíu. 16.1.2022 13:46
Þróttur heldur áfram að bæta við sig leikmönnum Sæunn Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Þrótt Reykjavík á lánssamningi frá Haukum. Mun hún leika með liðinu í efstu deild kvenna í knattspyrnu í sumar. 16.1.2022 12:30
Martial segir Ralf ljúga Lífið virðist ekki leika við Manchester United þessa dagana. Liðið henti frá sér 2-0 forystu gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni og nú hefur Anthony Martial, franski framherji liðsins, ásakað þjálfara þess um lygar. 16.1.2022 10:31
Sóknarmennirnir okkar þurfa að stíga upp Thomas Tuchel, þjálfari Chelsea, var ekki parsáttur með framherja sína eftir 1-0 tap liðsins gegn Manchester City í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar. 16.1.2022 09:00
„Ég er búinn að sakna ensku úrvalsdeildarinnar“ Philippe Coutinho stal senunni í 2-2 jafntefli Aston Villa við Manchester United í gær. Coutinho kom inn af varamannabekknum í sínum fyrsta leik fyrir Aston Villa og bæði skoraði og lagði upp mark á sínum fyrstu 15 mínútum í treyju Villa. 16.1.2022 07:01
PSG ekki í vandræðum án Messi Lionel Messi var ekki með PSG í kvöld þar sem hann er enn þá að jafna sig eftir Covid-19 smit. París fór þó auðveldelga í gegnum Brest í 2-0 sigri í frönsku Ligue 1 deildinni í kvöld. 15.1.2022 22:46
Juventus skrefi nær Meistaradeildarsæti með sigri á Udinese Juventus er aftur komið á sigurbraut eftir tap gegn Inter í ítalska bikarnum í vikunni. Juventus tók á móti Udinese á Allianz Stadium í ítölsku Serie A deildinni í leik sem heimamenn unnu 2-0. 15.1.2022 21:30
Salah tryggði Egyptalandi sigur Mohamed Salah og félagar í egypska landsliðinu eru skrefi nær 16-liða úrslitum Afríkukeppninnar eftir sigur í dag. 15.1.2022 21:00
Sverrir Ingi í sigurliði og Hjörtur fékk klukkutíma Sverrir Ingi Ingason spilaði allan leikinn og hélt hreinu í 3-0 sigri PAOK á OFI í grísku ofurdeildinni í dag. Hjörtur Hermannsson átti einnig leik fyrr í dag en hann spilaði þó bara rúman klukkutíma í tapleik í ítölsku Seríu B. 15.1.2022 20:00
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti