Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KR vann 6-0 sigur á FH í uppgjöri efstu liðanna í 2. flokki Tvö efstu lið Pepsi-deildar karla, FH og KR, mætast í kvöld á heimavelli FH-inga í Kaplakrika. 2. flokkar liðanna mættust á föstudagskvöldið og það er vonandi að leikur kvöldsins verði jafnari en sá leikur þar sem KR vann 6-0. Þetta kemur fram á heimasíðu KR-inga. 9.8.2009 14:00
Aron Einar og félagar í Coventry unnu góðan sigur á Ipswich Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry unnu 2-1 sigur á lærisveinum Roy Keane í Ipswich í fyrstu umferð ensku b-deildarinnar í dag. Bæði mörk Coventry komu á fyrstu 24 mínútum leiksins. 9.8.2009 13:45
Stjórarnir klárir með liðin fyrir leik Manchester United og Chelsea Stjórarnir Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og Carlo Ancelotti hjá Chelsea eru búnir að tilkynna byrjunarliðin sín fyrir leikinn um Góðgerðaskjöldinn sem hefst milli Englandsmeistaranna og bikarmeistaranna eftir hálftíma. 9.8.2009 13:03
Ferguson býst við miklu af Dimitar Berbatov í dag Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United bíður spenntur eftir því að sjá Dimitar Berbatov spila á móti Chelsea í leiknum um góðgerðaskjöldinn í dag. Leikur Englandsmeistara Manchester United og bikarmeistara Chelsea hefst klukkan 14.00 og er í beinni útsendingu á bæði Stöð2 Sport og Stöð2 Sport2. 9.8.2009 13:00
Lampard: United mun sjá eftir því að hafa selt Ronaldo Frank Lampard hefur varað Manchester United við því að Chelsea ætli að láta þá sjá eftir því að hafa selt Cristiano Ronaldo til Real Madrid. Lampard er líka sannfærður um að Carlo Ancelotti sé rétti maðurinn til að gera Chelsea aftur að enskum meisturum á nýjan leik. Chelsea og Manchester United mætast einmitt í leiknum um Góðgerðaskjöldinn á Wembley í dag. 9.8.2009 12:15
Eiður Smári spilaði seinni hálfleikinn í jafntefli Barcelona og Chivas Barcelona gerði 1-1 jafntefli við Chivas í San Francisco í síðasta æfingaleik sínum fyrir tímabilið. Barcelona lenti undir í leiknum í upphafi síðari hálfleiks en Bojan Krkic jafnaði metin á 63. mínútu. 9.8.2009 11:45
Benitez hefur áhuga á á varnarmanni hjá Hull Rafael Benitez, stjóri Liverpool, er í miklum vandræðum með meiðsli varnarmanna sinna þessa daganna og nú síðasta meiddist Jamie Carragher í æfingaleik á móti Atletico Madrid á Anfield í gær. Til að leysa málið hefur Benitez sýnt áhuga á að kaupa Michael Turner frá Hull City. 9.8.2009 11:00
Fyrirliði Espanyol lést eftir að hafa fengið hjartaáfall Daniel Jarque, 26 ára fyrirliði spænska úrvalsdeildarliðsins Espanyol, lést í gær eftir að hafa fengið hjartaáfall á hótelbergi sínu þegar spænska liðið var í æfingaferð í Coverciano á Ítalíu. Félagar Jarque fundu hann þegar þeir fóru að undrast um hann þegar hann skilaði sér ekki í mat. 9.8.2009 08:00
Allar líkur á því að Mark Viduka komi til Portsmouth Paul Hart, stjóri Portsmouth, segir að ástralski framherjinn Mark Viduka muni koma til liðsins áður en enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi. Viduka er eins og er í frí með fjölskyldunni en Hart segir að hann sé búinn að ná samkomulagi við hinn 33 ára gamla framherja. 9.8.2009 07:00
Arsenal tapaði 2-0 fyrir Valencia í æfingaleik á Spáni Arsenal tapaði 2-0 fyrir spænska liðinu Valencia í gær en liðin mættust á Mestalla, heimavelli Valencia. Bæði mörk spænska liðsins komu á síðustu fimmtán mínútum leiksins. 9.8.2009 06:00
Manchester United 1-0 yfir í hálfleik - Nani með markið Englandsmeistarar Manchester United eru 1-0 yfir í hálfleik á móti bikarmeisturum Chelsea í leiknum um Samfélagsskjöldinn á Wembley. Það var Portúgalinn Nani sem skoraði eina mark fyrri hálfleiks. 9.8.2009 14:48
Fowler skoraði en North Queensland Fury tapaði samt Robbie Fowler skoraði sínum fyrsta leik með North Queensland Fury í áströlsku úrvalsdeildinni en það var þó ekki nóg til þess að koma í veg fyrir 2-3 tap liðsins fyrir Sydney FC. Ástralski landsliðsframherjinn John Aloisi skoraði tvennu fyrir Sydney-liðið og þar á meðal sigurmarkið. 8.8.2009 21:45
Martin O'Neill búinn að kaupa Habib Beye - Sylvain Distin næstur Martin O'Neill, stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa, gekk í dag frá kaupunum á Habib Beye frá Newcastle en Villa borgar um 2,5 milljónir punda fyrir þennan 31 árs gamla varnarmann frá Senegal. 8.8.2009 21:00
Fabio Capello búinn að velja hópinn á móti Hollandi - Owen ekki með Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, er búinn að velja 23 manna hóp fyrir vináttulandsleik á móti Hollandi í Amsterdam á miðvikudaginn. Capello valdi hvorki Michael Owen hjá Manchester United eða David James hjá Portsmouth í hópinn að þessu sinni. 8.8.2009 20:30
Árni Gautur eini Íslendingurinn með bros á vör Árni Gautur Arason og félagar í Odd Grenland unnu 5-1 stórsigur á Brann í átta liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í kvöld. Fimm íslendingar tóku þátt í leiknum en Árni Gautur var sá eini sem fagnaði sigri. 8.8.2009 20:00
Real ætlar að kaupa Ribery á næsta ári - búið að semja við leikmanninn Spænskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Real Madrid sé búið að gera samkomulag við franska landsliðsmanninn Franck Ribery um að hann komi til liðsins næsta sumar en hann er nú leikmaður Bayern Munchen. 8.8.2009 19:00
Jamie Carragher meiddist í tapi Liverpool á móti Atlético Madrid Undirbúningstímabilið hjá Liverpool endaði ekki vel í dag því auk þess að tapa 1-2 fyrir Atlético Madrid á Anfield þá missti Liverpool-liðið Jamie Carragher meiddan af velli eftir aðeins tólf mínútna leik. 8.8.2009 18:30
Jafntefli hjá Íslendingaliðunum - Heiðar sá eini sem spilaði Heiðar Helguson var eini íslenski leikmaðurinn sem fékk að spila í fyrstu umferð ensku b-deildarinnar en enski boltinn hófst í dag með leikjum í neðri deildunum. 8.8.2009 18:00
Mark Pálma Rafns í byrjun dugði Stabæk skammt Aalesund vann Stabæk 3-1 á heimavelli í dag og sló norsku meistaranan út úr 8 liða úrslitum norska bikarsins. Pálmi Rafn Pálmason kom Stabæk í 1-0 eftir aðeins átta mínútna leik en Aalesund jafnaði leikinn í fyrri hálfleik og tryggði sér síðan sigurinn með tveimur mörkum á síðustu tólf mínútnum. 8.8.2009 17:29
Haukarnir aftur í 2. sætið og minnkuðu forskot Selfoss í fjögur stig Haukar endurheimtu annað sætið í 1. deild karla í fótbolta með 3-1 sigri á Ólafsvíkur-Víkingum á Ásvöllum í dag. 8.8.2009 16:45
Lærisveinar Guðjóns lágu á heimavelli í fyrsta leik Það byrjar ekki vel hjá Crewe Alexandra, liði Guðjóns Þórðarsonar, í ensku d-deildinni en liðið tapaði 1-2 á heimavelli fyrir Dagenham & Redbridge í fyrstu umferð deildarinnar í dag. 8.8.2009 16:30
Lazio vann Inter óvænt í meistarakeppnini á Ítalíu Bikarmeistarar Lazio unnu óvæntan 2-1 sigur á Inter Milan í dag í Meistarakeppninni á Ítalíu sem að þessu sinni fór fram á Ólympíuleikvanginum í Peking í Kína. Bæði mörk Lazio komu á tveggja mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks. 8.8.2009 16:15
Sir Alex Ferguson: Erfitt að komast í hóp þeirra fjögurra efstu Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að það verði erfitt fyrir Manchester City liðið að komast í hóp fjögurra efstu liðanna í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að nágrannarnir hafi eytt miklum peningum í að styrkja liðið sitt. 8.8.2009 15:30
Veron tók á sig 40 prósent launalækkun Juan Sebastian Veron, fyrirliði argentínska liðsins Estudiantes, hefur tekið á sig myndarlega launalækkun til þess að aðstoða félagið við fjármögnun yngri flokka starfs þess. Miðjumaðurinn tilkynnti þetta sjálfur á blaðamannafundi. 8.8.2009 15:00
Áfall fyrir Liverpool - Aquilani ekki tilbúinn fyrr en eftir tvo mánuði Liverpool þarf að spila án bæði Xabi Alonso og Alberto Aquilani fyrstu tvo mánuði tímabilsins eftir að það kom í ljós að ökklameiðsli Ítalans muni halda honum frá fótboltavellinm í fjóra til átta mánuði. Liverpool keypti Aquilani frá Roma til þess að fylla í skarð Xabi Alonso sem var seldur til Real Madrid. 8.8.2009 14:15
Erfitt að komast að hjá Guðjóni - ellefu leikmönnum tókst ekki að sanna sig Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe, ætlar ekki að fá neina meðaljóna til liðsins. Þrátt fyrir að Guðjón hafi ekki mikla peninga milli handanna til leikmannakaupa vill hann aðeins fá til sín leikmenn sem geta orðið byrjunarliðsmenn strax. 8.8.2009 13:30
KR-ingar undirbjuggu sig fyrir FH-leikinn út í Sviss Það er nóg af leikjum hjá KR-ingum þessa daganna, þeir mættu Basel í Evrópudeildinni út í Sviss á fimmtudagskvöldið og mæta síðan toppliði FH í Pepsi-deildinni á morgun í Kaplakrika. Leikurinn á móti FH verður sextándi leikur KR-liðsins á átta vikum og til þess að létta á ferðaálaginu ákvaðu forráðamenn KR að undirbúa liðið fyrir Íslandsmeistarana út í Sviss. 8.8.2009 12:45
90 mínútur búnar af enska boltanum og enn ekkert mark Fyrsti leikur ensku b-deildarinnar fór fram í gærkvöldi þegar Middlesbrough lék sinn fyrsta leik utan ensku úrvalsdeildarinnar í tólf ár. Middlesbrough tók á móti Sheffield United og niðurstaðan var markalaust jafntefli. 8.8.2009 12:00
Real Madrid hrökk í stuð fyrir framan NBA-stjörnurnar Real Madrid vann 5-1 sigur á Toronto FC í Toronto í Kanada í nótt en Toronto-liðið spilar í bandarísku MLS-deildinni. Meðal 22 þúsund áhorfenda voru NBA-stjörnurnar Steve Nash og Chris Bosh. 8.8.2009 11:30
Freyr: Pottþétt lélegasti fyrri hálfleikur okkar í sumar „Þessi leikur var mikil vonbrigði. Ég er mjög svekktur með hvernig stelpurnar mættu til leiks gegn góðu liði Þórs/KA og þetta var pottþétt lélegasti fyrri hálfleikur sem ég hef séð mitt lið spila í sumar. 7.8.2009 22:48
Dragan: Það getur allt gerst á lokakafla mótsins Dragan Stojanovic þjálfari Þórs/KA var eðlilega í skýjunum í leikslok eftir 1-2 sigur Þórs/KA gegn Val á Vodafonevellinum í kvöld. 7.8.2009 22:42
Katrín: Þór/KA er með hörkulið og frábæra framlínu „Ég er ótrúlega svekkt því við mættum bara ekki tilbúnar í fyrri hálfleik. Við vorum kannski að átta okkur á því að þrír byrjunarliðsmenn voru ekki með okkur í kvöld en það afsakar ekki neitt því það komu bara stelpur inn í þeirra stað. 7.8.2009 22:30
Stjörnustúlkur mættar við hlið Vals og Breiðabliks Valur, Breiðablik og Stjarnan eru öll jöfn að stigum í Pepsi-deild kvenna eftir úrslit kvöldsins. Björk Gunnarsdóttir skoraði þrennu fyrir Stjörnuna þegar liðið vann GRV 4-0. Kristrún Kristjánsdóttir skoraði hitt markið. 7.8.2009 22:25
Rakel: Má búast við góðri stemningu í rútunni „Þetta gerist ekki mikið sætara," sagði Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA, eftir 2-1 útisigurinn á Val í kvöld. Norðankonur skoruðu sigurmarkið í blálokin og opnuðu baráttuna á toppi deildarinnar upp á gátt. 7.8.2009 22:14
Fjórir leikir í 1. deild - Leiknir vann Breiðholtsslaginn Fjórir leikir voru í 1. deild karla í kvöld. Það var stórleikur í Breiðholtinu þar sem grannarnir í Leikni og ÍR áttust við. Leiknismenn fóru þar með sigur af hólmi 2-1 en öll mörkin komu í seinni hálfleik. 7.8.2009 21:32
Umfjöllun: Dramatískur sigur Þórs/KA gegn Val Norðanstúlkur í Þór/KA gerðu góða ferð á Hlíðarenda þar sem þær unnu Íslandsmeistara Vals 1-2 í fjörugum leik. 7.8.2009 21:00
Gunnlaugur Jónsson hættir að spila í haust Gunnlaugur Jónsson, spilandi þjálfari Selfyssinga sem trjóna á toppi 1. deildar, ætlar sjálfur að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Hann mun einbeita sér að þjálfun liðsins eftir það. 7.8.2009 20:30
Aston Villa að ganga frá kaupum á Beye Samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar er Aston Villa búið að ná samkomulagi við Newcastle vegna varnarmannsins Habib Beye og hefur leikmaðurinn þegar skrifað undir þriggja ára samning við Beye. 7.8.2009 18:30
Halldór Hermann: Ekkert mark í 3114 mínútur og svo tvö á 16 mínútna kafla Framarinn Halldór Hermann Jónsson opnaði markareikning sinn í úrvalsdeild karla í 5-0 sigri Fram á Keflavík í Pepsi-deild karla. Halldór Hermann skoraði tvö mörk í leiknum en hann hafði ekki skorað í fyrstu 34 leikjum sínum í efstu deild fyrir leikinn á Laugardalsvellinum í gær. 7.8.2009 16:00
Emil á leiðinni í ensku b-deildina Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson er kominn til Englands til viðræðna við enska b-deildarfélagið Barnsley um lánssamning frá ítalska b-deildarfélaginu Reggina en frá þessu er greint á heimasíðu Barnsley í dag. 7.8.2009 15:08
Sunderland hefur áhuga á Mensah Knattspyrnustjórinn Steve Bruce hjá Sunderland hefur staðfest að varnarmaðurinn John Mensah hjá Lyon sé leikmaður sem hann hafi lengi reynt að fá og hafi enn mikinn áhuga á að fá í raðir Sunderland. 7.8.2009 15:00
Pálmi Rafn í landsliðið í stað Arnórs Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Slóvökum í vináttulandsleik næstkomandi miðvikudag á Laugardalsvelli. 7.8.2009 14:33
Gunnleifur: Ekki leiðinlegt að syngja Rabbabara-Rúnu í klefanum á ný Gunnleifur Gunnleifsson, fyrirliði HK og markvörður íslenska landsliðsins, átti mikinn þátt í 2-1 sigri liðsins á toppliði Selfoss fyrir austan fjall í gær. Gunnleifur varði meðal annars vítaspyrnu frá markahæsta leikmanni deildarinnar og kom síðan í veg fyrir að Selfyssingar næðu í stig með frábærri markvörslu í uppbótartíma. 7.8.2009 14:30
Heimildarmyndin Stelpurnar okkar frumsýnd í næstu viku Heimildarmynd um íslenska kvennalandsliðið og leið þess inn á Evrópumótið í Finnlandi verður frumsýnd í Háskólabíói í næstu viku en síðustu tvö ár hafa þær Þóra Tómasdóttir og Hrafnhildur Gunnarsdóttir, fylgt íslenska kvennalandsliðinu eins og skugginn. 7.8.2009 14:00
Vidic missir af byrjun tímabilsins - meiddur á kálfa Serbneski miðvörðurinn Nemanja Vidic verður ekki með ensku meisturunum í Manchester United í byrjun tímabilsins vegna meiðsla á kálfa. Þessi meiðsli hafa haldið honum utan vallar allt undirbúningstímabilið og nú er ljóst að hann missir einnig af fyrstu tveimur vikum tímabilsins. 7.8.2009 12:00