Fleiri fréttir

Benitez vill halda Alonso

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segist harðákveðinn í því að reyna að halda Xabi Alonso innan raða Liverpool.

Ferguson og Allardyce láta Benitez heyra það

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur mátt þola gagnrýni úr mörgum áttum í dag - bæði frá Alex Ferguson, stjóra Manchester United, sem og Sam Allardyce hjá Blackburn.

Zola vill fá Upson til að semja

Gianfranco Zola vill að Matthew Upson verði tíundi leikmaður West Ham til að framlengja samning sinn við félagið síðan hann tók við starfi knattspyrnustjóra liðsins.

Þórunn Helga búin að skora í fjórum leikjum í röð

Þórunn Helga Jónsdóttir skoraði eitt marka brasilíska liðsins Santos í 3-0 sigri á Caraguatatuba í Paulista-mótinu í gær. Santos-liðið er búð að vinna alla leiki sína í mótinu með markatöluna 41-0.

Martin Jol: Betra en hjá Spurs

Hollenski þjálfarinn Martin Jol hjá Hamburg var að vonum kátur eftir að hans menn sendu milljónamæringana í Manchester City út úr Uefa keppninni í kvöld og tryggðu sér sæti í undanúrslitum.

Torres vill reyna sig á Ítalíu

Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool segist vilja reyna fyrir sér í ítölsku A-deildinni einn daginn. Kappinn hefur þegar leikið í efstu deild á Spáni og Englandi virðist staðráðinn í að ná þrennunni í bestu knattspyrnudeildum heims.

Megum ekki láta þetta eyðileggja tímabilið okkar

Manchester City er úr leik í UEFA-bikarnum eftir að liðið fór afar illa með dauðafærin í 2-1 sigri á Hamburger SV í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum í kvöld. Þýska liðið vann 4-3 samanlagt þökk sé 3-1 sigri í fyrri leiknum á heimavelli sínum.

Manchester City úr leik í UEFA-bikarnum

Enska liðið Manchester City er úr leik í UEFA-bikarnum þrátt fyrir 2-1 sigur á þýska liðinu Hamburger SV í seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum keppninnar í kvöld.

Buffon á óskalista United?

Gianluigi Buffon, dýrasti markvörður heims, er á óskalista Manchester United í sumar eftir því sem fram kemur í Daily Mail í dag.

United hafði heppnina með sér

Jose Gomes, aðstoðarþjálfari Porto, segir að Manchester United hafi einfaldlega haft heppnina með sér í einvígi liðanna í Meistaradeildinni og þess vegna sé liðið komið áfram í undanúrslitin.

Ronaldo tilnefndur til Laureus verðlaunanna

Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, hefur nú fengið enn eina verðlaunatilnefninguna. Hann er einn þeirra sem koma til greina þegar Laureus verðlaunin verða afhent í tíunda sinn í sumar.

Scolari orðaður við QPR

Breska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Luiz Felipe Scolari, fyrrum þjálfari Chelsea, sé á óskalista QPR sem rak knattspyrnustjórann Paulo Sousa úr starfi fyrir skömmu.

Laudrup rekinn frá Spartak Moskvu

Spartak Moskva í Rússlandi hefur rekið Danann Michael Laudrup úr starfi knattspyrnustjóra félagsins eftir aðeins sjö mánuði í starfi.

Ranieri áfram hjá Juventus

Forráðamenn Juventus segja það ekki rétt sem hafi komið fram í ítölskum fjölmiðlum og að Claudio Ranieri verði áfram knattspyrnustjóri liðsins.

Pires spáir Arsenal velgengni

Robert Pires, leikmaður Villarreal, spáir sínum gömlu félögum í Arsenal velgengni í Meistaradeild Evrópu.

Ribery: Enn miklu ólokið með Bayern

Franck Ribery hefur gefið í skyn að hann ætli sér að vera áfram í herbúðum Bayern München en hann hefur verið sterklega orðaður við stórlið víða um Evrópu.

Mourinho verður áfram hjá Inter

Jorge Mendes, umboðsmaður Jose Mourinho, segir að hann verði áfram hjá ítalska úrvalsdeildarliðinu Inter sama hvað tautar og raular.

Santa Cruz í hnéaðgerð

Roque Santa Cruz, leikmaður Blackburn, verður frá í einhvern tíma eftir að hann gekkst undir aðgerð á hné í vikunni.

Ragnar og félagar steinlágu í derby-slagnum

Ragnar Sigurðsson og félagar í IFK Göteborg voru skotnir niður á jörðina í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Eftir 6-0 stórsigur á Djurgården um síðustu helgi tapaði liðið 4-1 á móti BK Häcken.

Meistaradeildarmet hjá Ferguson í kvöld

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, setti nýtt met í Meistaradeildinni í kvöld þegar hann kom Manchester United í sjötta sinn inn í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Manchester United tryggði sér sætið með því að vinna Porto 1-0 í seinni leik liðanna í átta liða úrslitunum.

Alex Ferguson: Mikilvægt að ná að halda aftur hreinu

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var ánægður með 1-0 sigur liðsins á Porto í Meistaradeildinni í kvöld en með því komst liðið í sjötta sinn í undanúrslit keppninnar undir hans stjórn

Markaleikur hjá Bröndby í danska bikarnum

Stefán Gíslason og félagar í Bröndby gerðu 3-3 jafntefli við AaB í fyrri leik liðanna í undanúrslitum danska bikarsins í dag. Bröndby komst þrisvar yfir í leiknum en það dugði ekki til sigurs.

Manchester og Arsenal fóru áfram - frábært sigurmark Ronaldo

Manchester United og Arsenal tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fóbolta eftir sigra í seinni leikjum sínum í átta liða úrslitunum. Arsenal vann öruggan 3-0 sigur á spænska liðinu Villarreal en Cristiano Ronaldo tryggði United 1-0 sigur með stórkostlegu marki í upphafi leiks.

Kosið hjá Real þann 14. júní

Geturðu útvegað 10 milljarða bankaábyrgð? Ertu spænskur? Hefurðu borgað félagsgjöldin þín hjá Real Madrid síðustu 10 ár? Ef þú svarar þessum spurningum játandi, getur þú orðið næsti forseti félagsins.

Klinsmann krossfestur

Jurgen Klinsmann, þjálfari Bayern Munchen, er sagður ætla að höfða mál á hendur blaðinu Die Tageszeitung eftir að það birti skopmynd af honum hangandi á krossi.

Hiddink lýsir yfir stuðningi við Cech

Guus Hiddink, stjóri Chelsea, segist standa við bakið á markverði sínum Petr Cech þó hann hafi ekki verið upp á sitt besta að undanförnu.

Voronin sektaður og settur í bann

Úkraínumaðurinn Andriy Voronin hjá Hertha Berlín hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann og gert að greiða sekt upp á 1,7 milljónir króna vegna agabrots í leik um síðustu helgi.

Defoe kominn af stað á ný

Framherjinn Jermaine Defoe hjá Tottenham er nú byrjaður að æfa á fullu með liði sínu eftir að hafa verið frá keppni síðan í janúar vegna meiðsla.

Anderson: Vissi að Porto væri með hörkulið

Brasilíumaðurinn Anderson hjá Manchester United, sem áður lék með Porto, segir ekkert hafa komið sér á óvart í leik Porto þegar liðið náði fræknu 2-2 jafntefli við United í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Danielle krækti í þriðja Spursarann

Breska fyrirsætan Danielle Lloyd hlýtur að vera harðasti aðdáandi Tottenham í heimi. Hún er nú að rugla saman reitum við þriðja leikmannin úr röðum liðsins á nokkrum árum.

West Ham semur við Ilunga

West Ham hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Herita Ilunga frá franska félaginu Toulouse og hefur hann skrifað undir samning til ársins 2013.

Nani: Við erum með bestu leikmenn í heimi

Vængmaðurinn Nani hjá Manchester United er handviss um að liðið hafi það sem til þarf til að leggja Porto á Estadio Dragao í Meistaradeildinni í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir