Fleiri fréttir

Obama Bandaríkjaforseti skrifaði bréf til FIFA

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að beita sínum áhrifum til að hjálpa Bandaríkjamönnum að fá að halda HM í fótbolta árið 2018 eða árið 2022. Hann hefur nú sent formlegt bréf til Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

Frank Lampard: Þetta var frábær fótboltaleikur

Chelsea sló Liverpool út úr Meistaradeildinni annað árið í röð þegar liðin gerðu 4-4 jafntefli í seinni leiknum á Brúnni í kvöld. Chelsea vann því samanlagt 7-5. Frank Lampard og Didier Drogba áttu mikinn þátt í því að Chelsea náði að vinna upp forskot Liverpool frá því í fyrri hálfleik.

Stabæk vann sinn fyrsta sigur í norsku deildinni

Pálmi Rafn Pálmason og félagar í Stabæk unnu sinn fyrsta sigur í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að hafa gert jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum. Stabæk vann Fredrikstad 1-0 á útivelli.

Wenger óhress með tilnefningarnar

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, virðist vera fúll yfir því að eiga engan leikmann í hópi þeirra sem tilnefndir hafa verið sem knattspyrnumenn ársins á Englandi.

Gerrard ekki með Liverpool í kvöld

Fyrirliðinn Steven Gerrard verður ekki með liði Liverpool í kvöld þegar það sækir Chelsea heim í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Ferdinand verður í byrjunarliðinu

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hefur staðfest að Rio Ferdinand verði í hjarta varnarinnar annað kvöld þegar liðið sækir Porto heim í Meistaradeildinni.

Orðinn leiður á tuðinu í Lehmann

Markvörðurinn Tim Wiese hjá Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni er búinn að fá sig fullsaddan af því að lesa yfirlýsingar kollega síns Jens Lehmann hjá Stuttgart.

Laursen kemur ekki meira við sögu hjá Villa

Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, segir nánast útilokað að danski varnarmaðurinn Martin Laursen komi meira við sögu hjá liðinu á leiktíðinni vegna hnémeiðsla.

Línuvörður bjargaði lífi leikmanns

Það er ekki á hverjum degi sem línuverðir eru hetjur dagsins á knattspyrnuleikjum, en sú var sannarlega raunin á leik í efstu deild í Búlgaríu í gær.

Djourou og Clichy ekki með Arsenal

Varnarmennirnir Johan Djourou og Gael Clichy verða ekki með Arsenal í síðari leiknum gegn Villarreal í Meistaradeildinni annað kvöld vegna meiðsla.

Nóg að gera hjá ítölsku aganefndinni

Aganefndin í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu hefur haft nóg að gera eftir leiki helgarinnar þar sem átta rauð spjöld fóru á loft í níu leikjum.

Wenger: Við ætlum að vinna

Arsene Wenger og hans menn í Arsenal ætla ekki að leika upp á jafntefli þegar þeir taka á móti Villarreal í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni annað kvöld.

Ramos stakk af til að horfa á nautaat

Varnarmaðurinn Sergio Ramos hjá Real Madrid hefur haldið blaðamannafund þar sem hann baðst afsökunar á því að hafa stungið af snemma frá leik liðsins gegn Valladolid á sunnudaginn til að horfa á vin sinn keppa í nautaati.

Klinsmann: Bayern spilar upp á stoltið

Jurgen Klinsmann, þjálfari Bayern Munchen, vill að leikmenn liðsins geti borið höfuð sitt hátt eftir síðari leikinn við Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld.

Jol ætlar ekki að yfirgefa Hamburg

Hollenski þjálfarinn Martin Jol hjá Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni, vísar fréttum enskra fjölmiðla á bug þar sem því hefur verið haldið fram að hann sé arftaki Mark Hughes hjá Manchester City.

Mánuður í Nistelrooy

Hollenska markamaskínan Ruud van Nistelrooy hjá Real Madrid hefur verið frá keppni frá því í nóvember á síðasta ári vegna hnémeiðsla.

Mihajlovic rekinn frá Bologna

Ítalska knattspyrnufélagið Bologna hefur sagt upp samningi við þjálfarann Sinisa Mihajlovic í kjölfar þess að liðið vann aðeins einn af síðustu tíu leikjum sínum.

United með fimm af sex tilnefndum leikmönnum

Fimm af þeim sex leikmönnum sem eru tilnefndir sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni leika með Manchester United. Sá sjötti er Steven Gerrard hjá Liverpool.

Ferguson óttast ekki Porto

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist ekki óttast Porto fyrir síðara leik liðanna í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu sem fer fram í Portúgal annað kvöld.

Van Persie líklega áfram hjá Arsenal

Robin van Persie telur miklar líkur á því að hann verði áfram í herbúðum Arsenal og að hann muni framlengja samning sinn við félagið í sumar.

Ketsbaia hættur hjá Famagusta

Temuri Ketsbaia er hættur sem knattspyrnustjóri kýpverska félagsins Anorthosis Famagusta sem sló í gegn í Meistaradeild Evrópu í vetur.

Federico Macheda líklega boðinn fimm ára samningur

Manchester United gæti boðið ítalska táningnum Federico Macheda fimm ára samning þegar hann verður 18 ára gamall í ágúst. Macheda hefur skoraði tvö sigurmörk í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir topplið ensku úrvalsdeildarinnar.

Heiðar spilaði í sigri QPR

QPR vann 3-2 sigur á Sheffield Wednesday í ensku B-deildinni í dag og spilaði Heiðar Helguson allan leikinn fyrir fyrrnefnda liðið.

Fabregas: Við ætlum ekki að tapa fleiri leikjum á tímabilinu

Cesc Fabregas hefur átt flotta innkomu í lið Arsenal síðan hann kom aftur eftir fjögurra mánaða fjarveru vegna hnémeiðsla. Fabregas tók við fyrirliðabandinu á ný þegar hann snéri aftur eftir meiðslin en Arsenal hefur ekki tapað leik með hann sem fyrirliða.

Leit hafin að nýjum stjóra

Bruce Buck, stjórnarformaður Chelsea, segir að forráðamenn félagsins hafi hafið leitina að nýjum knattspyrnustjóra til að taka við Guus Hiddink.

Stórt tap hjá Eddu og Ólínu

KIF Örebro tapaði í dag fyrir Kopparberg/Göteborg, 4-0, í fyrsta leik þriðju umferðar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Áhyggjur af Agbonlahor

Svo gæti farið að Gabriel Agbonlahor verði frá í einhvern tíma eftir að hann meiddist aftan í læri í leik Aston Villa gegn Everton í gær.

Ribery vill spila með Barcelona

Mark van Bommel, fyrirliði Bayern München og liðsfélagi Franck Riberi, segir að sá síðarnefndi vilji spila með Barcelona í framtíðinni.

Benitez til í að nota Gerrard

Rafael Benitez, stjóri Liverpool, segist reiðubúinn til þess að nota Steven Gerrard í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni á morgun.

Everton hefur ekki efni á að halda Jo

Brasilískí framherjinn Jo hefur skorað fimm mörk með Everton síðan hann gekk í raðir félagsins á lánssamningi í janúar. Félagið vill halda honum, en hefur ekki efni á því.

Gomez tryggði Stuttgart sigur

Mario Gomez skoraði í uppbótartíma fyrir Stuttgart gegn Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og tryggði liðinu þar með dýrmætan sigur.

Stuðningsmenn City kölluðu Robinho af bekknum

"Þú veist ekki hvað þú ert að gera," kölluðu stuðningsmenn Manchester City að Mark Hughes, stjóra liðsins, eftir að það lenti undir gegn Fulham í dag. City tapaði leiknum 1-3 á heimavelli.

Ferguson: Ég þarf stundum að róa Ronaldo

Sir Alex Ferguson segir að hann þurfi stundum að róa Ronaldo inni á vellinum. Ronaldo á það til að pirrast inni sem að sögn stjórans verði til þess að hann missi einbeitinguna og gefi jafnvel mörk.

Real minnkaði forystu Barcelona í sex stig

Real Madrid vann nokkuð öruggan sigur á Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Liðið er þar með aðeins sex stigum frá Barcelona í baráttunni um titilinn á Spáni.

Senna ekki með gegn Arsenal

Marcos Senna verður ekki með Villareal í seinni leiknum gegn Arsenal í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.

Emil lék með umbúðir í tapi Reggina

Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina sem tapaði 0-2 á heimavelli fyrir Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Emil lék í 79. mínútur.

Fulham upp í 8. sætið

Fulham vann góðan 1-3 sigur á Manchester City á útivelli í dag. Clint Dempsey skoraði tvö marka Fulham sem átti sigurinn skilinn gegn slöku liði City.

Moyes ósáttur við vítaspyrnudóminn

David Moyes, stjóri Everton, talaði undir rós þegar hann tjáði sig um vítaspyrnudóminn sem varð til þess að Aston Villa jafnaði í 3-3 í leik liðanna í dag.

Sjá næstu 50 fréttir