Fleiri fréttir

Mascherano á Ólympíuleikana

Javier Mascherano, miðjumaður Liverpool, mun missa af fyrstu leikjum Liverpool á komandi tímabili. Hann hefur verið valinn í argentínska landsliðið sem tekur þátt í Ólympíuleikunum í Peking í ágúst.

Heimasigrar í VISA-bikarnum

Þrír leikir voru í VISA-bikarnum í kvöld en í öllum leikjum unnu heimaliðin sigra. Íslandsmeistarar Vals og bikarmeistarar FH féllu úr leik í kvöld.

Crespo laus frá Chelsea

Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo er nú alfarið laus frá Chelsea en samningur hans er runninn út. Hann hefur síðustu tvö tímabil verið lánaður til Inter á Ítalíu.

Fjörið verður í Keflavík

16-liða úrslitunum í Visa-bikar karla í knattspyrnu lýkur með þremur hörkuleikjum í kvöld. Vísir sló á þráðinn til Magnúsar Gylfasonar sérfræðings og fékk hann til að spá í spilin.

Tiltekt hjá City

Forráðamenn Manchester City hafa tilkynnt að níu leikmenn séu á förum frá félaginu í sumar. Þar af eru fjórir leikmenn í aðalliðinu.

Ronaldo gæti þurft í uppskurð

Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United gæti þurft í ökklauppskurð um helgina samkvæmt heimildum Sky. Útsendarar United hittu Ronaldo og lækna portúgalska landsliðsins í gær þar sem ökklameiðsli leikmannsins voru til umræðu.

Joey Barton er skræfa

Ousmane Dabo, fyrrum leikmaður Man City, lét ófögur orð falla um fyrrum liðsfélaga sinn Joey Barton eftir að sá síðarnefndi fékk skilorðsbundinn dóm fyrir að ráðast á Dabo á æfingasvæði liðsins á sínum tíma.

Domenech heldur starfinu

Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka í knattspyrnu, verður áfram við stjórnvölinn hjá liðinu þrátt fyrir afar dapurt gengi liðsins á EM. Frakkar féllu úr leik í riðlakeppninni og flestir reiknuðu með því að það myndi kosta þjálfarann starfið.

Jóhann Guðmundsson á heimleið?

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar 2 er Jóhann B Guðmundsson, sem verið hefur á mála hjá Gais í Svíþjóð, á leiðinni heim.

Valur til Slóvakíu

Kvennalið Vals þarf að fara til Slóvakíu og spila þar leiki sína í riðlakeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu. Þetta varð ljóst eftir að dregið var í riðla í morgun.

Senna vill ekki fara í Arsenal

Marcos Senna leikmaður Villareal og spænska landsliðsins segist ekki ætla að yfirgefa klúbbinn sinn til þess að spila með Arsenal á næstu leiktíð. Eftir frábæra frammistöðu á evrópumótinu sýndu Arsenal lekmanninum mikinn áhuga. Villareal vonast til þess að halda honum þar til hannl eggur skóna á hilluna.

Framarar buðu Valsmönnum Henrik Eggerts

Valsmenn hafa náð samkomulagi við Fram um kaup á dananum Henrik Eggerts. Félagið á þó eftir að ná samkomulagi við leikmanninn sem skýrist væntanlega á næstu dögum. Eggerts er 32 ára gamall og hefur aðeins spilað tvo leiki með Fram í sumar vegna meiðsla. Félagaskiptin eru gerð í sátt og samlyndi beggja félaga.

Craig Fagan til Hull

Craig Fagan er formlega orðinn leikmaður Hull City. Þessi 26 ára sóknarmaður var lánaður til liðsins frá Derby County seinni hluta síðasta tímabil.

Ravanelli kominn með þjálfararéttindi

Fjölmargir þekktir ítalskir leikmenn sem hafa lagt skóna á hilluna öðluðust þjálfararéttindi í dag. Þar á meðal er Fabrizio Ravanelli, fyrrum leikmaður Middlesbrough.

Valur og Brann búin að ná samkomulagi um Birki Má

Valur og Brann hafa náð samkomulagi sín á milli um kaupverð á Birki Má Sævarssyni leikmanni Vals. Vísir sagði frá því fyrr í kvöld að Valsmenn byggjust við tilboði en gengið var frá því nú fyrir stundu. Birkir mun klára fyrri umferðina með Val en verður síðan leikmaður norsku meistaranna.

Ómar hetja Fjölnis sem vann ÍBV í framlengingu

Fjölnismenn eru komnir áfram í átta liða úrslit VISA-bikarsins eftir nauman 2-1 sigur á ÍBV í Grafarvoginum í kvöld. Leikurinn var framlengdur og skoraði Ómar Hákonarson sigurmarkið á 113. mínútu.

Messi vill spila á Ítalíu

Stærstu lið Ítalíu eru væntanlega með augun opin eftir að faðir Leo Messi sagði í viðtali að draumur sonar síns væri að leika í ítölsku deildinni.

HK úr leik eftir tap gegn Haukum

Haukar sem leika í 1. deild unnu úrvalsdeildarlið HK 1-0 í sextán liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld. Hrakfarir HK halda því áfram en liðið er í botnsæti Landsbankadeildarinnar.

AC Milan gefst upp á krækja í Adebayor

Ítalska félagið AC Milan segir að Arsenal hafi sett of háan verðmiða á sóknarmanninn Emmanuel Adebayor. Milan hefur gefist upp á því að krækja í Adebayor.

Elfsborg vann Djurgården

Sigurður Jónsson og lærisveinar hans í Djurgården töpuðu 0-2 á heimavelli fyrir Elfsborg í sænska boltanum í dag. Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn á miðjunni hjá Elfsborg.

Veigar Páll með þrennu

Veigar Páll Gunnarsson skoraði þrennu fyrir Stabæk sem vann Oslo Ost 5-0 í norsku bikarkeppninni í kvöld. Annað mark hans í leiknum kom úr vítaspyrnu.

Víðismenn fara til Frakklands

Víðir Garði verður fyrsta íslenska félagið til að taka þátt í Evrópukeppninni í Futsal, eða fótbolta innanhúss. Dregið var í riðla í dag og mun riðill Víðismanna verða leikinn í Frakklandi 9. - 17. ágúst.

Jo keyptur fyrir metfé

Manchester City hefur gengið endanlega frá kaupunum á brasilíska sóknarmanninum Jo frá CSKA Moskvu. Kaupverðið er ekki gefið upp en það mun vera hæsta upphæð sem City hefur greitt fyrir leikmann.

Valur á von á tilboði frá Brann í Birki

Birkir Már Sævarsson er undir smásjá erlendra liða, en þau eru flest á Norðurlöndum. Þetta sagði Ótthar Edvardsson, framkvæmdastjóri Vals, í samtali við Vísi.

Lárus Orri leggur skóna á hilluna

Lárus Orri Sigurðsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og hætta að leika með Þór Akureyri. Lárus er 35 ára og á 42 landsleiki og tvö mörk að baki fyrir Ísland.

Veldu besta mark níundu umferðar

Vísir, Stöð 2 Sport og Landsbankinn standa fyrir kosningu á besta markinu í hverri umferð í Landsbankadeild karla. Síðasta kosning fór af stað í gær eftir að níundu umferðinni lauk í fyrrakvöld.

Andreas Isaksson til PSV

Sænski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Isaksson hefur gengið til liðs við PSV Eindhoven í Hollandi.

Aston Villa refsar Barry

Aston Villa hefur refsað Gareth Barry fyrir að veita dagblaði í Englandi viðtal þar sem hann gagnrýnir Martin O'Neill, knattspyrnustjóra liðsins.

Alves dýrasti bakvörður heims

Barcelona hefur gengið frá kaupum á bakverðinum Daniel Alves frá Sevilla sem kostaði félagið 23,5 milljónir punda eða tæpa 3,7 milljarða króna.

Yorke áfram hjá Sunderland

Dwight Yorke hefur skrifað undir nýjan samning við Sunderland sem gildir til loka næsta tímabils.

Arshavin tilbúinn að fara frá Zenit

Andrei Arshavin segist nú reiðubúinn að fara frá rússneska Zenit St. Pétursborg sem hann hefur leikið með allan sinn atvinnumannaferil.

Jo til City í dag

Búist er við því að Brasilíumaðurinn Jo verður kynntur sem leikmaður Manchester City á blaðamannafundi í Manchester síðar í dag.

Arsenal fær miðjumann frá Werder Bremen

Miðjumaðurinn Amaury Bischoff er á leið til Arsenal frá þýska liðinu Werder Bremen. Arsene Wenger hefur fylgst vel með þessum leikmanni síðan hann var í unglingaliði Strasbourg í Frakklandi.

Framtíð Alonso í lausu lofti

Xabi Alonso, miðjumaður Liverpool, segist þurfa tíma til að íhuga framtíð sína. Hann viðurkennir að hafa ekki hugmynd um hvar hann muni spila á næsta leiktímabili.

Afturelding vann Keflavík

Fjórir leikir voru í 8. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Afturelding vann góðan 1-0 sigur á Keflavík, KR vann Fjölni 3-0 á útivelli, Breiðablik vann útisigur á HK/Víking 5-2 og Valur vann Fylki 4-1.

Sahar lánaður til Portsmouth

Ísraelski sóknarmaðurinn Ben Sahar hefur verið lánaður frá Chelsea til Portsmouth út þetta ár. Þessi átján ára leikmaður hefur leikið þrjá leiki með aðalliði Chelsea.

De Ridder til Wigan

Hollenski vængmaðurinn Daniel de Ridder er kominn til Wigan Athletic en hann var leystur undan samningi sínum við Birmingham í gær. Þetta er í annað sinn sem Steve Bruce, stjóri Wigan, fær De Ridder.

Gautaborg tapaði á heimavelli

Gautaborg tapaði 0-2 fyrir Trelleborg í sænska boltanum í kvöld. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku báðir allan leikinn í vörn Gautaborgar

Ólafur Örn skoraði úr víti

Ólafur Örn Bjarnason skoraði síðasta mark Brann sem vann 3-1 sigur á Valdres í norsku bikarkeppninni í kvöld. Brann komst í 2-0 í leiknum en gestirnir náðu að minnka muninn.

Sjá næstu 50 fréttir