Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Terry fluttur á sjúkrahús John Terry, fyrirliði Chelsea, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa rotast í viðureign liðsins gegn Arsenal í dag. Að sögn Sky-fréttastofunnar í Englandi þjáðist Terry af ógleði og minnisglöppum þegar hann var borinn af velli um miðjan síðari hálfleik og því var ákveðið að taka enga áhættu. Frank Lampard tók á móti bikarnum í hans stað. 25.2.2007 17:25
Chelsea sigraði Arsenal í deildabikarnum Chelsea tryggði sér nú rétt í þessu enska deildabikarinn með því að leggja Arsenal af velli í úrslitaleik, 2-1. Didier Drogba var hetja Chelsea og skoraði bæði mörk liðsins eftir að Theo Walcott hafði komið Arsenal yfir. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið undir lok leiksins eftir slagsmál leikmanna. 25.2.2007 17:05
Vandræðalaust hjá Tottenham gegn Bolton Tottenham átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bolton af velli í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag en eftir aðeins 20. mínútna leik var liðið komið með þriggja marka forystu. Lokatölur urðu 4-1 og er Tottenham komið upp í níunda sæti deildarinnar. Tveir aðrir leikir fóru fram í Englandi í dag. 25.2.2007 16:58
Drogba búinn að koma Chelsea yfir Didier Drogba er búinn að skora sitt annað mark og koma Chelsea yfir gegn Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins. Markið skoraði Drogba á 82. mínútu, með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Arjen Robben. Arsenal hefur þó líklega um stundarfjórðung til að jafna leikinn en miklar tafir urðu þegar John Terry var borinn af velli. 25.2.2007 16:44
Inter heldur sigurgöngunni áfram Inter Milan burstaði Catina á útivelli í ítölsku A-deildinni í dag, 5-2, og vann sinn 17. sigur í röð í deildinni. Fjögur markanna komu í síðari hálfleik. Inter heldur 14 stiga forystu í deildinni en Roma er áfram í öðru sæti eftir 3-0 sigur á Reggina. 25.2.2007 16:38
Emil undir smásjánni hjá Viking Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður hjá Tottenham, er undir smásjánni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Viking sem vill fá vængmanninn flinka í sínar raðir fyrir komandi tímabil. Egil Östenstad, framkvæmdastjóri Viking, hefur staðfest að félagið hafi spurst fyrir um Emil. 25.2.2007 15:48
Jafnt hjá Chelsea og Arsenal í hálfleik Staðan er ennþá jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Chelsea og Arsenal í úrslitum deildabikarsins. Theo Walcott og Didier Drogba skoruðu mörkin í upphafi leiks en fyrri hálfleikurinn hefur verið frábær skemmtun. 25.2.2007 15:43
Drogba búinn að jafna fyrir Chelsea Didier Drogba er búinn að jafna metið fyrir Chelsea gegn Arsenal í deildabikarnum úr fyrstu alvöru sókn Chelsea í leiknum. Markið er skráð á 20. mínútu en það sem af er leik hefur Arsenal ráðið lögum og lofum á vellinum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 25.2.2007 15:20
Arsenal komið yfir í úrslitaleiknum Theo Walcott er búinn að koma Arsenal yfir í leiknum gegn Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins. Markið skoraði Walcott á 12. mínútu leiksins með góðu skoti úr vítateignum. Forysta Arsenal er fyllilega verðskulduð og hafa hinir ungu leikmenn liðsins spilað Chelsea sundur og saman á upphafsmínútunum. 25.2.2007 15:13
Tevez: Ég náði engu sambandi við Pardew Carlos Tevez, leikmaður West Ham, segir að samband sitt við Alan Pardew, fyrrum stjóra liðsins, hafi verið miður gott og að hann arftaki hans, Alan Curbishley, sé allt annar og betri þjálfari. Tevez fékk ekki mörg tækifæri hjá Pardew en mátti þola 4-0 tap fyrir honum í gær þegar West Ham mætti Charlton. 25.2.2007 14:45
Almunia vill verða markvörður númer eitt Markvörðurinn Manuel Almunia hjá Arsenal telur að úrslitaleikurinn gegn Chelsea í deildabikarnum í dag sé tilvalin vettvangur fyrir sig að sanna tilverurétt sinn í byrjunarliði Arsenal. Almunia hefur verið varamaður fyrir Jens Lehman undanfarin ár en margt bendir til þess að þýski markvörðurinn sé á förum frá Arsenal í sumar. 25.2.2007 14:45
Mourinho: Við megum ekki missa Lampard Jose Mourinho hefur ítrekað fyrir foráðamönnum Chelsea hversu mikilvægt það er fyrir félagið að samningur miðjumannsins Frank Lampard verði endurnýjaður. Mourinho segir Lampard vera einstakan og lýsir afleiðingunum af hugsanlegri brottför hans frá félaginu sem hrikalegum. 25.2.2007 14:45
Anelka gæti klárað ferilinn hjá Bolton Franski framherjinn Nicolas Anelka hjá Arsenal hefur lýst því yfir að hann sé jafnvel reiðubúinn að klára feril sinn hjá Bolton, svo ánægður sé hann í herbúðum liðsins. Stjórinn Sam Allardyce þótti taka nokkra áhættu þegar hann samdi við Anelka fyrir þetta tímabil, en sá franski hefur reynst liðinu afar vel og skorað nokkur mikilvæg mörk. 25.2.2007 14:30
Wiltord bjargaði Lyon Franski sóknarmaðurinn Sylvain Wiltord átti magnaða endurkomu eftir næstum þriggja mánaða fjarveru vegna meiðsla og tryggði Lyon 3-3 jafntefli gegn Sochoux í frönsku úrvalsdeildinni í gær nánast upp á eigin spýtur. Wiltord kom inn á þegar skammt var eftir, en náði að skora mark og fiska vítaspyrnu í viðbótartíma. 25.2.2007 14:00
Atletico og Real skildu jöfn Real Madrid var stálheppið með að sleppa við jafntefli í viðureign sinni gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Gonzalo Hugain skoraði jöfnunarmark Real í 1-1 jafntefli þegar um hálftími var eftir en Atletico var mun sterkari aðilinn í leiknum og fór illa með nokkur mjög góð marktækifæri. 25.2.2007 12:15
Ronaldo vill 160 þúsund pund á viku Cristiano Ronaldo vill fá 160 þúsund pund í vikulaun frá Man. Utd. ætli félagið sér að fá hann til að skrifa undir nýjan samning. Þetta fullyrðir spænska dagblaðið Marca í stórri umfjöllun um málið og bætir við að Real Madrid og Barcelona séu reiðubúin að mæta kröfum Ronaldo, auk þess að borga Man. Utd. 40 milljónir punda fyrir portúgalska landsliðsmanninn. 24.2.2007 20:45
Everton upp í 7. sæti Everton komst upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld með sannfærandi 3-0 útisigri á Watford. Manuel Fernandez, Andy Johnson og Leon Osman skoruðu Everton í leiknum. Watford er komið með annan fótinn niður í 1. deild en liðið er sem fyrr í neðsta sæti með 19 stig, einu minna en West Ham. 24.2.2007 20:20
Dida fer líklega til Barcelona Barcelona er komið langleiðina með að semja við brasilíska markvörðinn Dida, en margt bendir til þess að hann yfirgefi herbúðir AC Milan þegar samningur hans rennur út eftir núverandi leiktíð. Carlo Ancelotti, stjóri Milan, segir að samningaviðræður við markmanninn hafi ekki gengið sem skildi. 24.2.2007 20:00
Tekur Eriksson við af Mancini Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Sven Göran Eriksson, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, muni líklega taki við stjórastöðunni hjá Inter Milan eftir núverandi tímabil, af Roberto Mancini. Forseti Inter, Massimo Moratti, er ósáttur með að Mancini skuli ekki hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. 24.2.2007 19:30
Eiður byrjar hjá Barcelona á morgun Spænskir fjölmiðlar fullyrða að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Barcelona þegar liðið fær Atletico Bilbao í heimsókn á Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Þjálfarinn Frank Rijkaard er sagður hafa verið ósáttur með frammistöðu Javier Saviola í leiknum gegn Liverpool. Samuel Eto´o og Santiago Ezquerro eru einnig í 18-manna hópi Barca fyrir leikinn. 24.2.2007 19:00
Messi vill Ronaldo til Barcelona Lionel Messi hjá Barcelona vill ólmur fá Cristiano Ronaldo til spænska liðsins frá Manchester United, en portúgalski leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við sölu frá Man. Utd. eftir þetta tímabil. Messi segir Ronaldo vera ótrúlegan leikmann og að það yrði mikill heiður að spila í sama liði og hann. 24.2.2007 18:30
Eggert: Curbishley er öruggur í starfi sínu Stjórn West Ham, með Eggert Magnússon í fararbroddi, hefur frá sér yfirlýsingu eftir tap liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem fram kemur að knattspyrnustjórinn Alan Curbishley þurfi ekki að óttast að vera rekinn frá félaginu. Hvorki gengur né rekur hjá West og er liðið nú komið í afar vonda stöðu við botn deildarinnar. 24.2.2007 18:22
Ronaldo: Mjög ánægður með markið Cristiano Ronaldo var kampakátur eftir sigur Man. Utd. á Fulham í dag en hinn sjóðheiti portúgalski vængmaður skoraði sigurmark sinna manna eftir stórkostlegt einstaklingsframtak á lokamínútum leiksins. Ronaldo viðurkenndi þó að heppnin hafi verið með Man. Utd. í leiknum. 24.2.2007 18:15
Mikilvægur sigur Bayern Munchen Bayern Munchen vann 2-1 sigur á Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni í dag og færðist nær toppliðum deildarinnar. Stuttgart náði aðeins markalausu jafntefli gegn Stuttgart á heimavelli en heldur þó öðru sæti deildarinnar. Efstu lið deildarinnar, Schalke og og Werder Bremen, spila ekki fyrr en á morgun. 24.2.2007 18:14
Bjarni skoraði fyrir Bornemouth Bjarni Þór Viðarsson skoraði annað mark Bornemouth þegar liðið sigraði Oldham á útivelli, 2-1, í ensku 2.deildinni í dag. Bjarni, sem er í láni hjá liðinu frá Everton, skoraði markið á 30. mínútu en var síðan skipt af velli í hálfleik. Hinn fulltrúi Íslands í neðri deildunum í Englandi, Jóhannes Karl Guðjónsson, lék allan leikinn fyrir Burnley í 0-0 jafntelfi gegn Colchester. 24.2.2007 17:54
Mourinho: England er best í heimi Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er ekki í vafa um að England sé helsta knattspyrnuland heims og þar langi honum þess vegna helst að vera sem allra lengst. Mourinho segir andrúmsloftið í kringum fótboltann á Englandi vera einstakt. 24.2.2007 17:30
Ekkert gengur hjá West Ham Íslendingaliðið West Ham beið afhroð í fallslagnum mikla gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni og mátti þola 4-0 tap á útivelli. Við tapið fellur West Ham niður fyrir Charlton í deildinni og er nú í 19. sæti í afar vondri stöðu. Liverpool burstaði Sheffield United með sömu markatölu þar sem Robbie Fowler skoraði tvö mörk. 24.2.2007 17:03
John Terry spilar bikarúrslitaleikinn John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur náð undraverðum bata af ökklameiðslunum sem hann varð fyrir í leiknum gegn Porto í Meistaradeildinni í vikunni og hefur verið úrskurðaður leikfær fyrir úrslitin í deildabikarnum á morgun. Terry stóðst læknisskoðun í morgun og verður í byrjunarliði Chelsea gegn Arsenal. 24.2.2007 16:21
West Ham heillum horfið gegn Charlton Það blæs ekki byrlega fyrir Íslendingaliðið West Ham í viðureign liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0, heimamönnum í Charlton í vil. Verði þetta úrslitin mun Charlton komast upp fyrir West Ham á stigatöflunni og skilja Eggert Magnússon og lærisveina hans eftir í 19. og næst síðasta sæti deildarinnar. 24.2.2007 15:48
Hermann ekki með Charlton Hermann Hreiðarsson getur ekki spilað með Charlton í leik liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag vegna meiðsla. Ívar Ingimarsson er eini Íslendingurinn sem er í byrjunarliði síns liðs í dag en hann er í vörn Reading sem sækir Middlesbrough heim. Brynjar Björn Gunnarsson byrjar á bekknum hjá Reading. 24.2.2007 14:50
Verður Drogba í vörninni? Fari svo að annaðhvort Richardo Carvalho eða Michael Essien forfallist fyrir úrslitaleik Chelsea og Arsenal í deildabikarnum á morgun mun sóknarmaðurinn Didier Drogba vera færður í öftustu varnarlínu þeirra bláklæddu. Þetta segir Jose Mourinho, stjóri Chelsea, og bætir við að hann eigi ekki annara kosta völ. 24.2.2007 14:45
Ronaldo tryggði Man. Utd. sigur Cristiano Ronaldo tryggði Manchester United dýrmæt þrjú stig í baráttunni um enska meistaratitilinn í knattspyrnu með því að skora sigurmark liðsins gegn Fulham í dag, tveimur mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 2-1, Man. Utd. í vil, eftir að Fulham hafði komist yfir í fyrri hálfleik. Man. Utd. hefur nú níu stiga forystu á Chelsea. 24.2.2007 14:43
Jafnt í hálfleik hjá Fulham og Man. Utd. Staðan er jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Fulham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var Brian McBride sem kom heimamönnum yfir á 17. mínútu en Ryan Giggs jafnaði metin fyrir toppliðið á 29. mínútu. Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham. 24.2.2007 13:52
Barcelona og Real Madrid kljást um 11 ára gutta Laureano Ludena er 11 ára argentínskur sóknarmaður sem þykir einn efnilegasti leikmaður sem upp hefur komið í heimalandi sínu. Barcelona og Real Madrid eru nýjustu félögin sem bætast í slaginn um undirskrift Ludena, en áður höfðu öll stærstu lið Argentínu fengið hann á reynslu til sín. Fjölskylda leikmannsins segir hins vegar líklegast að hún muni flytja til Evrópu. 24.2.2007 13:45
Makelele óánægður með Abramovich Hinn franski Claude Makelele, einn reyndasti leikmaðurinn í herbúðum Chelsea, hefur gagnrýnt æðstu yfirmenn félagsins, og þá sér í lagi aðaleigandann Roman Abramovich, harðlega fyrir að byggja upp það sem hann kallar “gríðarlega pressu” á leikmenn og þjálfara liðsins. 24.2.2007 13:15
Laporta: Tapið gegn Liverpool var slys Joan Laporta, forseti Barcelona, kveðst ekki í neinum vafa um að lærisveinar Frank Rijkaard geti farið með öruggan sigur af hólmi þegar liðið sækir Liverpool heim í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Laporta hefur fulla trú á leikmannahóp liðsins og segir tapið á Nou Camp hafa verið “slys”. 23.2.2007 21:30
Emerson orðaður við AC Milan Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Real Madrid er nú sterklega orðaður við sölu til AC Milan, en hann hefur engan veginn náð sér á strik á Spáni í vetur. Emerson er sagður hafa neitað að spila í sigurleik Real á Bayern Munchen í Meistaradeildinni á þriðjudag og vilja forráðamenn spænska liðsins hann burt. 23.2.2007 20:30
Hooijdonk spilar sjö leiki í Ástralíu Hollenski framherjinn Pierre van Hooijdonk hefur ákveðið að ganga til liðs við ástralska úrvalsdeildarfélagið Perth Glory eftir núverandi keppnistímabil. Hooijdonk, sem er á mála hjá Feyenoord í Hollandi, skrifar undir mjög sérstakan samning sem gildir í sjö leiki og er hann sagður hljóta væna summu fyrir. 23.2.2007 19:30
Materazzi óánægður með Capello Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá Inter Milan hefur gagnrýnt landa sinn Fabio Capello harðlega fyrir nýleg ummæli sín um ítalska knattspyrnu. Capello, sem nú stjórnar Real Madrid á Spáni, segir enga raunverulega samkeppni vera í ítölsku A-deildinni og því sé hún leiðinleg. Materazzi segir Capello vera að gera lítið úr sjálfum sér með ummælunum. 23.2.2007 18:30
Shevchenko er alveg eins og allir hinir Kerry Dixon, ein af helstu goðsögnum Chelsea, segir að frammistaða Andriy Shevchenko gegn Porto í Meistaradeildinni í vikunni sýni að úkraínski framherjinn sé kominn í sitt besta form. Dixon segir að Shevchenko sé ekkert frábrugðinn öðrum erlendum leikmönnum sem komi inn í ensku deildina – allir lendi í erfiðleikum fyrst um sinn. 23.2.2007 17:30
Howard gagnrýnir Ferguson Tim Howard, markvörður Everton, hefur opinberlega gagnrýnt fyrrum stjóra sinn Alex Ferguson fyrir stjórnarhætti sína. Howard var aðalmarkvörður Man. Utd. en féll í ónáð eftir að hafa átt nokkra slæma leiki. 23.2.2007 16:43
Inter ætlar að losa sig við Adriano Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano verður að öllum líkindum seldur frá Inter Milan í sumar og er talið að forráðamenn ítalska félagsins séu að undirbúa risatilboð í Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd, þar sem Adriano mun verða hluti að kaupverðinu. 23.2.2007 16:30
Ívar spilað allar mínúturnar með Reading Ívar Ingimarsson, miðvörður Reading, er einn af einungis 11 leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar sem leikið hefur allar mínúturnar af öllum leikjum, en 27 umferðum er nú lokið. 23.2.2007 16:23
Terry verður ekki lengi frá John Terry, fyrirliði ensku meistaranna í Chelsea, verður kominn aftur í slaginn mun fyrr en talið var í fyrstu eftir að hafa meiðst í vikunni og segir knattspyrnustjórinn Jose Mourinho að hann muni líklega getað spilað um næstu helgi. Hann hefur hins vegar verið útilokaður frá þáttöku í úrslitum deildabikarsins. 23.2.2007 16:10
Mourinho mun aldrei yfirgefa Chelsea Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var hinn önugasti á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Chelsea og Arsenal í deildabikarnum í morgun og brást illa við vangaveltum blaðamanna um að þetta gæti orðið síðasti titilinn sem hann vinnur með Chelsea. Mourinho svaraði fullum hálsi og sagðist aldrei ætla að yfirgefa stuðningsmenn Chelsea. 23.2.2007 16:00