Fleiri fréttir

McIlroy sjóðheitur á HSBC-mótinu í Kína

Rory McIlroy er efstur á HSBC-mótinu í golfi sem fram fer þessa dagana í Sjanghæ í Kína en Norður-Írinn fór fyrsta hringinn á tveim höggum undir pari eða á 65 höggum.

Enn óvissa um meiðsli Steinunnar

Enn er óvíst hversu lengi Steinunn Björnsdóttir, leikmaður Fram, verður frá keppni en óttast er að hún spili ekki aftur fyrr en eftir áramót.

Tíu sigrar í tíu leikjum hjá Roma

Roma varð í kvöld fyrsta ítalska fótboltaliðið sem nær að vinna tíu fyrstu deildarleiki sína á tímabilinu þegar liðið vann 1-0 heimasigur á Chievo.

Keflvíkingar áfram taplausir í karlakörfunni - úrslit kvöldsins

Keflavík og Grindavík unnu örugga sigra í leikjum sínum í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. Keflavík vann 18 stiga sigur á Val, 94-76, í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda en kanalausir Grindavíkingar unnu á sama tíma 25 stiga heimasigur á ÍR, 98-73.

Stjörnuframmistaða bikarmeistaranna á Egilsstöðum

Bikarmeistarar Stjörnunnar eru komnir áfram í 16 liða úrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta eftir 27 stiga sigur á b-deildarliði Hattar, 86-59, en leikurinn fór fram á Egilsstöðum í kvöld.

Axel með flotta tvennu í góðum sigri

Axel Kárason og félagar í Værlöse BBK unnu góðan átta stiga heimasigur á Horsens IC, 78-70, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Værlöse endaði um leið þriggja leikja taphrinu sína í deildinni.

Sara Björk: Duttum í smá stress í seinni hálfleik

Sara Björk Gunnarsdóttir lék sinn 66. landsleik í dag þegar Ísland vann 2-1 sigur á Serbíu í undankeppni HM 2015 en hún er aðeins 23 ára gömul. Sara Björk var, eins og aðrar stelpur í íslenska liðinu, ánægð með að ná í þrjú stig út úr þessum leik í Belgrad.

Beckham: Get ekki gagnrýnt Ferguson

David Beckham, neitar að gagnrýna Sir Alex Ferguson eftir að ævisaga hans kom út á dögunum. Sir Alex og Beckham unnu náið saman hjá Manchester United þegar leikmaðurinn lék undir hans stjórn.

Philippe Coutinho fær grænt ljós

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, staðfesti í dag að brasilíski miðjumaðurinn Philippe Coutinho sé orðinn leikfær en hann meiddist á öxl um miðjan september.

Stuðningsmenn Tottenham svöruðu kallinu

Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, gagnrýndi stuðningsmenn félagsins á dögunum fyrir að láta ekki nægilega mikið í sér heyra á leikjum.

„Ísland spilar einfaldan fótbolta“

Niko Kovac, nýráðinn landsliðsþjálfari Króata, tilkynnti í dag leikmannahóp sinn fyrir umspilsleikina gegn Íslandi um miðjan nóvember. Hópinn má sjá neðst í fréttinni.

Maradona: Aguero er aumingi

Argentínumaðurinn Diego Maradona lætur fyrrum tengdason sinn Sergio Aguero heyra það í fjölmiðlum og kallar hann aumingja en Aguero var giftur Giannina, dóttur Maradona í fjögur ár.

Hér býr vallarstjórinn

Vallarstjórinn á FK Obilic leikvanginum í Belgrad þarf ekki að fara langt til þess að mæta í vinnuna.

Rysjótt rjúpnavertíð

Nú er önnur helgin í rjúpnaveiðum framundan og veðurspáin er veiðimönnum ekki hagstæð en spáð er leiðindaveðri á norður-, austur- og vesturlandi. Besta veðrið verður líklega frá Snæfellsnesi austur að Mýrdalsjökli og það má reikna með töluverðri umferð veiðimanna á þessu svæði.

Reiknað með að Þóra Björg byrji í markinu

Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, staðfesti við Fréttablaðið í gær að reikna mætti með breytingum á liðinu í dag gegn Serbíu frá því í leiknum gegn Sviss.

Bruce: Áttum ekki skilið að falla úr leik

Steve Bruce, knattspyrnustjóri Hull, var að vonum ekki sáttur eftir leikinn gegn Tottenham en liðið féll úr leiki í enska deildarbikarnum eftir vítaspyrnukeppni í gær.

Það verður mikið skorið niður í vetur

Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er í fjárhagsvandræðum og gæti misst keppnisleyfi sitt í sænska körfuboltanum. Þegar er byrjað að skera niður hjá félaginu. Hlynur Bæringsson stefnir ekki á að koma heim ef liðið fer á hausinn.

FH var eina liðið sem skoraði ekki mark fyrir utan teig

Fréttablaðið hefur lokið við greiningu á öllum mörkum Pepsi-deildar karla í fótbolta í sumar og þar kemur ýmislegt fróðlegt í ljós. FH-ingar eru í sérflokki á mörgum listanna en reka hins vegar lestina á einum.

Loksins eru allir leikmenn í toppstandi

Stelpurnar okkar mæta Serbum í undankeppni HM ytra í dag. Allir leikmenn liðsins eru klárir í slaginn en ljóst er að Serbar eru sterkari en áður í ljósi jafnteflis liðsins við Dani um helgina.

Bók Ferguson slær sölumet

Þó svo Sir Alex Ferguson sé hættur að vinna titla með Man. Utd þá er hann alls ekki hættur að setja met. Ævisaga hans er seld í bílförmum þessa dagana.

Gylfi stjarna kvöldsins er Tottenham fór áfram eftir vítaspyrnukeppni

Tottenham er komið áfram í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir ótrúlegan sigur á Hull City eftir vítaspyrnukeppni. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eitt af mörkum tímabilsins í kvöld og kom Spurs yfir 1-0. Gylfi skoraði einnig fyrsta mark Tottenham í vítaspyrnukeppninni.

Sjá næstu 50 fréttir