Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Petr Cech gaf Wigan stig Chelsea náði ekki að fylgja eftir sigrinum á Man. City er það sótti Wigan heim í dag. Petr Cech gerði slæm mistök undir lok leiksins og Wigan náði að jafna. Lokatölur 1-1. 17.12.2011 00:01
Öll úrslit dagsins í enska boltanum | Enn tapar Blackburn Ef sæti Steve Kean, stjóra Blackburn, var ekki heitt fyrir þá sjóðhitnaði það í dag er Blackburn tapaði á heimavelli gegn WBA. Newcastle náði ekki að þvinga fram sigur gegn Swansea. 17.12.2011 00:01
HM kvenna 2011: Þórir og norsku stelpurnar í úrslitaleikinn Norska kvennalandsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á HM kvenna í handbolta eftir öruggan átta marka sigur á Spáni, 30-22, í undanúrslitaleiknum í kvöld. Þórir Hergeirsson er þar með búinn að koma norska liðinu í úrslitaleikinn á tveimur stórmótum í röð en norsku stelpurnar urðu Evrópumeistarar undir hans stjórn í fyrra. 16.12.2011 23:00
David Villa: Ég ætla að ná úrslitaleiknum í Meistaradeildinni í maí David Villa mun ekki spila með Barcelona næstu fimm mánuðina eftir að hafa hann fótbrotnaði í undanúrslitaleiknum á HM félagsliða í gær en Barcelona vann þá 4-0 sigur á Al Sadd frá Katar. 16.12.2011 23:45
Rooney var hissa á því að bannið hafi verið stytt Wayne Rooney segir að það hafi komið sér á óvart að áfrýjunarnefnd UEFA skildi hafa stytt þriggja leikja bann hans niður í tvo leiki. Að sama skapi er hann þakklátur. 16.12.2011 22:45
Jesper Nielsen: Við ætlum að vinna Kiel Danska ofurliðið AG Köbehavn fær alvöru próf um helgina er það sækir besta lið Þýskalands í dag, Kiel, heim. AG ætti að fá svör í þeim leik hversu langt félagið er frá því að geta keppt við bestu lið Evrópu. 16.12.2011 22:15
Samuel Eto´o dæmdur í fimmtán leikja landsleikjabann Samuel Eto´o, fyrirliði landsliðs Kamerún, var í dag dæmdur í fimmtán leikja landsleikjabann fyrir þátttöku sína í verkfallsaðferðum landsliðsmanna Kamerún í síðasta mánuði. 16.12.2011 21:00
Bayern München náði sex stiga forskoti á toppnum Bayern München er komið með sex stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 sigur á Köln í kvöld. Bayern hefur unnið þrjá leiki í röð og hefur sett pressu á Borussia Dortmund, Schalke 04 og Borussia Mönchengladbach að fylgja þeim eftir þegar umferðin klárast um helgina. 16.12.2011 21:00
Hildur fór fyrir endaspretti Snæfells í Grafarvogi | Snæfell í 4.sætið Snæfell vann níu stiga sigur á Fjölni, 94-85, í Garfarvogi í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld en þetta var fyrsti leikurinn í 14. umferð sem klárast á morgun. 16.12.2011 21:00
HM kvenna: Frönsku stelpurnar unnu Dani og fóru í úrslitaleikinn Franska kvennalandsliðið í handbolta er komið í úrslitaleikinn á HM í Brasilíu eftir fimm marka sigur á Danmörku, 28-23, í undanúrslitaleik í kvöld. Þetta er önnur heimsmeistarakeppnin í röð sem Frakkland fer í úrslitaleikinn en þær töpuðu fyrir Rússum fyrir tveimur árum. Frakkar mæta annaðhvort Noregi eða Spáni í úrslitaleiknum en seinni undanúrslitaleikurinn hefst klukkan tíu. 16.12.2011 20:00
Brynjar og félagar töpuðu í framlengingu Brynjar Þór Björnsson og félagar í Jämtland Basket þurftu að sætta sig við 88-92 tap í framlengingu á móti Uppsala Basket í kvöld í mikilvægum leik á milli liðanna í áttunda og níunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Þetta var fjórði heimaleikur Jämtland í röð sem tapast. 16.12.2011 20:00
Sundsvall vann í framlengingu á móti Norrköping Sundsvall Dragons eru sterkir á heimavelli og sýndu það enn á ný í sigri á Norrköping Dolphins, 87-79, í framlengdum leik í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Sundsvall var búið að tapa tveimur útileikjum í röð en var þarna að vinna áttunda heimasigurinn í aðeins níu leikjum. 16.12.2011 19:00
Maldini: Bale kann ekki að verjast Ítalska goðsögnin Paolo Maldini er ekki sammála Harry Redknapp, stjóra Spurs, um að Gareth Bale geti orðið góður bakvörður síðar meir. 16.12.2011 19:00
Silva vill vera hjá Milan til 2020 Brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva er himinlifandi hjá AC Milan og stefnir að því að vera hjá félaginu til ársins 2020. Leikmaðurinn hefur verið orðaður meðal annars við Barcelona en það hefur ekki komið honum ur jafnvægi. 16.12.2011 18:30
Aron Pálmarsson: Vinnum AG ef við spilum okkar leik Aron Pálmarsson var í viðtali hjá HBOLD.dk í tilefni af því að Aron og félagar hans í THW Kiel taka á móti dönsku meisturunum í AG Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni á sunnudaginn. AG er í efsta sæti riðilsins einu stigi á undan Kiel. 16.12.2011 17:45
Pape gerði þriggja ára samning við Grindavík Pape Mamadou Faye er orðinn leikmaður Grindavíkur en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. 16.12.2011 17:15
Hülkenberg og Di Resta keppa með Force India 2012 Force India Formúlu 1 liðið staðfesti í dag að Nico Hülkenberg og Paul Di Resta keppa með liðinu á næsta keppnistímabili. Þar með er ljóst að Adrian Sutil sem var keppnisökumaður á þessu ári með liðinu verður það ekki á næsta ári. Hulkenberg var varaökumaður liðsins í ár, en fær nú sæti keppnisökumanns í stað Sutil. 16.12.2011 17:00
Dalglish: Downing hefur verið óheppinn Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er hæstánægður með Stewart Downing það sem af er leiktíðar þó svo hann segi að Downing hafi verið svolítið óheppinn. 16.12.2011 17:00
Paul heillaðist af sögu Clippers NBA-stjarnan Chris Paul endaði hjá litla bróðir í Los Angeles, Clippers, á meðan stóri bróðir, Lakers, sat aldrei þessu vant eftir með sárt ennið. 16.12.2011 16:15
Ljóst hvaða lið mætast í Flugfélags Íslands Deildarbikarnum HSÍ hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram hvaða fjögur karlalið og fjögur kvennalið munu taka þá í Deildarbikar HSÍ sem fer fram eins og áður á milli jóla og nýárs. Í ár líkt og í fyrra ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn. 16.12.2011 15:45
Stanslaust hringt í nýliðann Vergne eftir ráðningu Jean Eric Vergne verður nýliði sem keppnisökumaður í Formúlu 1 á næsta ári með Torro Rosso liðinu. Hann varð meistari í Formúlu 3 í Bretlandi 2010 og náði markverðum árangri á æfingum ungra ökumanna í Abú Dabí eftir síðustu Formúlu 1 keppni ársins á dögunum.. 16.12.2011 15:15
Jakob og Helena valin Körfuknattleiksfólk ársins 2011 Jakob Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuknattleiksmaður og körfuknattleikskona ársins 2011 af KKÍ. Þetta er í fyrsta sinn sem Jakob er valinn en Helena var nú valin sjöunda árið í röð. Jakob endaði fjögurra ára sigurgöngu Jóns Arnórs Stefánssonar í þessu árlega kjöri. 16.12.2011 14:45
Ólafur Stefánsson og Sigfús báðir í 28 manna forvalshóp fyrir EM í Serbíu Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta hefur tilkynnt hvaða 28 leikmenn koma til greina í sextán manna hóp hans fyrir Evrópumótið í Serbíu sem hefst í næsta mánuði. Guðmundur varð að senda forvalslista sinn inn til EHF og hann getur ekki kallað á aðra leikmenn þegar hann velur lokahóp sinn. 16.12.2011 14:00
HM 2011: Hvaða lið fara í úrslitaleikinn í Brasilíu? Það ræðst í kvöld hvaða lið leika til úrslita á heimsmeistaramótinu í handbolta kvenna í Brasilíu. Báðir undanúrslitaleikirnir verða sýndir á Stöð 2 sport og ítarleg umfjöllun verður á milli leikja í þættinum Þorsteinn J og gestir. Danir og Frakkar eigast við kl. 19.15, og Norðmenn leika gegn Spánverjum kl. 21.50. 16.12.2011 13:45
Bendtner og Cattermole skemmdu saman bíla á bæjarrölti í Newcastle Nicklas Bendtner og Lee Cattermole eru ekki í alltof góðum málum því BBC segir frá því að þeir hafi verið handteknir í gær grunaðir um að hafa skemmt bíla í miðbæ Newcastle. Báðir eru lausir gegn tryggingu og geta því spilað með Sunderland um helgina þegar liðið mætir Tottenham á White Hart Lane. 16.12.2011 13:15
Evrópudeildin: Man. Utd mætir Ajax | Man. City gegn Porto Nú í hádeginu var dregið í Evrópudeild UEFA. Bæði var dregið í 32-liða og 16-liða úrslit keppninnar og óhætt er að segja að drátturinn hafi vakið meiri athygli en oft áður í ljósi þess að bæði Manchesterliðin voru í pottinum. 16.12.2011 10:56
Donovan kemur til Everton í janúar Everton fær fínan liðsstyrk eftir áramót en Bandaríkjamaðurinn Landon Donovan hefur samþykkt að spila með liðinu á nýjan leik. 16.12.2011 10:15
Meistaradeildardrátturinn: Arsenal mætir AC Milan Nú rétt fyrir hádegi var dregið í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Stórleikur sextán liða úrslitanna er viðureign AC Milan og Arsenal. 16.12.2011 09:37
Redknapp steytti hnefann í átt að stuðningsmönnum Shamrock Harry Redknapp, stjóra Spurs, gæti verið refsað af UEFA eftir að hann steytti hnefann í átt að stuðningsmönnum Shamrock Rovers í leik liðanna í Evrópudeildinni í gær. 16.12.2011 09:00
Sjúkdómur Fletcher: Háalvarlegur og erfiður viðureignar Darren Fletcher, leikmaður Manchester United, mun líklega ekki spila meira á leiktíðinni vegna veikinda en hann hefur greinst með sáraristilbólgu. Sjúkdómurinn er ólæknandi en sífellt fleiri greinast með hann. 16.12.2011 08:00
Sjúkraþjálfari sem varð að knattspyrnustjóra Nigel Adkins hefur náð afar eftirtektarverðum árangri á stuttum ferli sem knattspyrnustjóri. Í dag stýrir hann Southampton sem trónir á toppi ensku B-deildarinnar en fyrir rúmum fimm árum starfaði hann sem sjúkraþjálfari hjá Scunthorpe í C-deildinni. 16.12.2011 07:00
Atli Sigurjónsson: Það er ekki ætlunin að sitja á bekknum hjá KR KR-ingar eru komnir langt með að setja saman liðið sem mun reyna að verja Íslands- og bikarmeistaratitlana á næsta sumri en þeir héldu blaðamannafund í gær þar sem tilkynnt var um undirskriftir fjórtán leikmanna. 16.12.2011 06:30
Fer Þórir með Noreg í úrslit? Þórir Hergeirsson á möguleika á því að koma norska kvennalandsliðinu í úrslitaleikinn á HM þegar Noregur mætir Spáni í undanúrslitum á HM kvenna í Brasilíu í kvöld. 16.12.2011 06:00
Flugeldasýning Balotelli mun kosta hann í kringum 90 milljónir Flugeldasýningin sem vinir Mario Balotelli, leikmanns Man. City, stóðu fyrir á baðherberginu á heimili kappans hefur heldur betur dregið dilk á eftir sér. 15.12.2011 23:30
Sjónvarpsmenn Stöðvar 5 ekki fúlir út í Cole | tóku lagið Kyndingin sem Ashley Cole á að hafa tekið á leikmenn Man. City snérist um að gera lítið úr liðinu fyrir að vera í beinni útsendingu á Stöð 5 á fimmtudögum. 15.12.2011 22:45
Jóhann Berg og félagar í AZ fóru áfram í Evrópudeildinni Hollenska félagið AZ Alkmaar tryggði sér sæti í 32 liða úrslitum Evróudeildarinnar með því að gera 1-1 jafntefli á heimavelli á móti úkraínska liðinu Metalist Kharkiv í kvöld. Metalist var þegar búið að tryggja sigur í riðlinum en AZ náði öðru sætinu á markatölu. 15.12.2011 20:00
Umfjöllun og viðtöl: Grótta - FH 24-27 FH-ingar tryggðu sér sæti í deildarbikarnum milli jóla og nýárs með því að vinna 27-24 útisigur á botnliði Gróttu í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Grótta tapaði þarna sínum ellefta deildarleik í röð en FH-ingar voru nálægt því að missa frá sér sigurinn í lokin. 15.12.2011 18:45
Birmingham og Tottenham úr leik - úrslitin í Evrópudeildinni í kvöld Ensku liðin Birmingham og Tottenham duttu bæði út úr Evrópudeildinni í kvöld og fóru því sömu leið og Fulham í gær. Stoke var því eina enska liðið sem komst upp úr sínum riðli. Rubin Kazan, Club Brugge, AZ Alkmaar og Udinese voru síðustu liðin til þess að tryggja sæti í 32 liða úrslitunum í lokaumferðinni í kvöld. 15.12.2011 18:00
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 26-20 Klaufalegur sóknarleikur varð Aftureldingu að falli í 26-20 tapi þeirra gegn Haukum í N1-deild karla í kvöld. 15.12.2011 11:17
Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 30-27 HK tryggði sér þátttökurétt í deildarbikarnum með sigri á Fram í N1-deild karla í kvöld. Með sigrinum fór HK um leið upp í annað sæti deildarinnar. 15.12.2011 11:11
Töp hjá bæði Helga og Loga Íslendingaliðin 08 Stockholm HR og Solna Vikings töpuðu bæði í kvöld í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR voru búnir að vinna sex leiki í röð og áttu möguleika á því að komast upp í annað sæti deildarinnar. Loga Gunnarssyni og félögum í Solna Vikings liðinu hefur gengið illa á útivelli í vetur og það breyttist ekki á móti toppliði Borås Basket. 15.12.2011 19:00
Fimmti leikurinn í röð án sigurs hjá FCK FC Kaupmannahöfn náði ekki að enda á sigri í síðasta leik sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kövld það var þegar ljóst fyrir lokaumferðina að FCK sæti eftir í B-riðlinum og að Standard Liege og Hannover 96 færu í sextán liða úrslitin. FCK tapaði 0-1 á heimavelli á móti belgíska félaginu Standard Liege. 15.12.2011 17:45
Stórsigur Tottenham dugði ekki - úr leik í Evrópudeildinni Fyrri leikjapakka kvöldsins í Evrópudeildinni er lokið og þar var aðeins eitt laust sæti í boði í 32 liða úrslitin. Standard Liege og Hannover voru komin áfram úr B-riðli og sömu sögu er að segja af PSV Eindhoven og Legia Varsjá í C-riðli. Spennan var hinsvegar í A-riðlinum þar sem Tottenham þurfti á hálfgerðu kraftaverki að halda. Tottenham vann 4-0 útisigur á Shamrock Rovers en það dugði ekki því Rubin Kazan náði 1-1 jafntefli á móti PAOK. 15.12.2011 17:45
Hópundirskriftir í Vesturbænum | 14 leikmenn skrifuðu undir hjá KR KR-ingar héldu blaðamannafund í dag þar sem að tilkynnt var að fjórtán leikmenn hafi gengið frá samningum við Íslands- og bikarmeistarana fyrir titilvörnina í Pepsi-deild karla næsta sumar. 15.12.2011 17:30
Westwood grátlega nálægt því að koma í hús á 59 höggum Englendingurinn Lee Westwood lék ótrúlegt golf á tælenska meistaramótinu í dag og var aðeins einu höggi frá því að koma í hús á 59 höggum. Hann lék holurnar 18 sem sagt á 60 höggum eða 11 undir pari. Hann er með fimm högga forskot eftir daginn. 15.12.2011 17:15