Sundsvall vann í framlengingu á móti Norrköping Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2011 19:00 Jakob Örn Sigurðarson lék vel í kvöld. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons eru sterkir á heimavelli og sýndu það enn á ný í sigri á Norrköping Dolphins, 87-79, í framlengdum leik í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Sundsvall var búið að tapa tveimur útileikjum í röð en var þarna að vinna áttunda heimasigurinn í aðeins níu leikjum. Jakob Örn Sigurðarson, nýkrýndur körfuboltamaður ársins 2011, var með 20 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum, Pavel Ermolinskij var með 15 stig, 6 fráköst og 8 stoðsendingar í leiknum og Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig og tók 15 fráköst. Sundsvall byrjaði leikinn mjög vel, var komið í 8-2 eftir þrjár mínútur og var síðan yfir 13-7 og 17-13. Norrköping kom til baka en Sundsvall leiddi að lokum 21-20 eftir fyrsta leikhlutann. Norrköping skoraði fimm fyrstu stig annars leikhlutans og var 29-31 yfir þegar íslensku landsliðsmennirnir fóru í gang. Pavel, Hlynur og Jakob skoruðu næstu níu stigin í leiknum og fimm stig til viðbótar frá Jakobi kom Sundsvall í 43-33. Sundsvall var síðan 45-35 yfir í hálfleik og Jakob var með 11 stig og 5 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum, Pavel var með 7 stig og 5 stoðsendingar og Hlynur skoraði 7 stig og tók 6 fráköst í fyrri hálfleiknum. Hlynur og Jakob byrjuðu seinni hálfleikinn á körfum eftir stoðsendingar frá Pavel og Sundsvall náði mest ellefu stiga forskot en Norrköping minnkaði muninn í sex stig, 60-54, fyrir lok leikhlutans. Norrköping hélt áfram að éta upp forskotið og munurinn var kominn niður í eitt stig, 65-43, þegar rúmar þrjár mínútum voru liðnar af fjórða leikhlutanum. Norrköping komst yfir, 66-67, tæpar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Norrköping var 73-71 yfir en Hlynur Bæringsson jafnaði leikinn í 73-73 þegar níu sekúndur voru eftir af. Norrköping tókst ekki að nýta lokasókn sína og því varð að framlengja. Sundsvall tapaði síðasta leik í framlengingu en var reynslunni ríkari að þessu sinni og tryggði sér sigur í leiknum með að vinna framlenginguna 14-6.
Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Sjá meira