Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rúrik spilaði allan leikinn í sigri Rúrik Gíslason var í byrjunarliði OB og spilaði allan leikinn þegar að liðið vann 1-0 útisigur á Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í dag. 19.11.2011 18:59
Huddersfield bætti metið Huddersfield, lið Jóhannesar Karls Guðjónssonar, bætti í dag 33 ára gamalt met Nottingham Forest er liðið vann 2-1 sigur á Notts County á heimavelli. Var þetta 43. deildarleikur liðsins í röð án taps. 19.11.2011 18:33
Keflavík kom fram hefndum Keflavík er enn á sigurbraut í Iceland Express-deild kvenna en liðið vann í dag sigur á nýliðum Fjölnis á heimavelli, 82-74. Þrír leikir fóru fram í deildinni í dag. 19.11.2011 18:19
Stórsigur ÍBV á KA/Þór Einn leikur fór fram í N1-deild kvenna í dag en í honum unnu Eyjastúlkur sextán marka sigur á KA/Þór á heimavelli. 19.11.2011 18:18
Martinez æfur út í dómarana - Yakubu kom ekki við boltann Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan, var allt annað en sáttur við dómara leiks sinna manna gegn Blackburn í dag vegna umdeilds marks sem síðarnefnda liðið skoraði í leiknum. 19.11.2011 17:45
Aron og félagar unnu Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn þegar að lið hans, Cardiff, vann 2-1 sigur á Reading í ensku B-deildinni í dag. 19.11.2011 17:34
Enn skorar Emil á Ítalíu - fimmti sigurinn í röð Emil Hallfreðsson skoraði eitt mark þegar að lið hans, Hellas Verona, vann 3-1 útisigur á Empoli í ítölsku B-deildinni í dag. Smellið á myndbandið til þess að sjá markið sem er skorað eftir 3:30 mínútur. 19.11.2011 16:02
Magdeburg vann með fimmtán mörkum Magdeburg vann í dag fimmtán marka sigur á Hannover-Burgdorf í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 41-26. 19.11.2011 15:37
Van Persie: Hefðum getað skorað meira Robin Van Persie sagði eftir sigur sinna manna í Arsenal á Norwich í dag að þeir hefðu jafnvel átt að skora meira en bara þessi tvö mörk. 19.11.2011 15:02
Snodgrass tryggði Leeds góðan sigur Robert Snodgrass skoraði tvívegis á síðasta stundarfjórðungnum og tryggði þar með Leeds 2-1 sigur á Burnley í ensku B-deildinni í dag. 19.11.2011 14:50
Heiðar byrjar en Grétar Rafn ekki í hóp Heiðar Helguson er á sínum stað í byrjunarliði QPR sem mætir Stoke á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Grétar Rafn Steinsson er hins vegar enn í kuldanum hjá Bolton. 19.11.2011 14:22
Höness búinn að missa þolinmæðina Uli Höness, forseti Bayern München, er búinn að fá sig fullsaddann af þeim hópi stuðningsmanna liðsins sem gagnrýna markvörðinn Manuel Neuer við hvert tækifæri. 19.11.2011 14:00
McLeish vill að Bannan breyti um lífsstíl Alex McLeish, stjóri Aston Villa, segir að Barry Bannan verði að breyta um lífsstíl ef ekki á illa að fara. Skotinn ungi var nýverið kærður fyrir ölvunarakstur. 19.11.2011 13:30
Bandaríkin enn í forystu og Tiger fékk loksins stig Tiger Woods náði loksins stigi fyrir bandaríska liðið í Forsetabikarnum í golfi en að loknum þriðja keppnisdeginum hefur Bandaríkin fjögurra stiga forystum, 13-9. 19.11.2011 12:49
Kean: Ekki séns að við föllum Steve Kean, knattspyrnustjóri Blackburn, hefur engar áhyggjur af slæmri stöðu liðsins í ensku úrvalsdeildinni og segir engan möguleika á því að liðið falli úr deildinni í vor. 19.11.2011 12:45
Wenger: Sjáum til hvort ég verði stjóri Arsenal á næsta tímabili Arsene Wenger segir óvíst að hann verði stjóri Arsenal á næsta tímabili og ætlar að skoða sín mál í sumar. Þetta sagði hann í viðtali við franska blaðið L'Equipe. 19.11.2011 12:30
Gunnar Einarsson aftur til Leiknis Varnarmaðurinn Gunnar Einarsson verður aftur spilandi aðstoðarþjálfari Leiknis í 1. deildinni, eftir stutt stop hjá Víkingi í sumar. 19.11.2011 12:17
Ferguson óánægður með Liverpool og ummæli Poyet Alex Ferguson vildi lítið segja um kynþáttaníðsdeiluna á milli Luis Suarez og Patrice Evra en sagði þó að Liverpool hafa ekki farið eftir fyrirmælum enska knattspyrnusambandsins í málinu. Hann var einnig ósáttur við ummæli Gus Poyet. 19.11.2011 11:30
Rakel með slitið krossband og missir af HM Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, verður ekki með Íslandi á HM í Brasilíu sem hefst eftir tvær vikur þar sem hún er með slitið krossband í hné. 19.11.2011 11:00
Þórir Ólafsson: Ekki bara Lödur á götunni hérna Hornamaðurinn Þórir Ólafsson ákvað að söðla um í sumar. Eftir sex góð ár í Þýskalandi ákvað hann að reyna fyrir sér í Póllandi, fyrstur allra Íslendinga. Fleiri Íslendingar hafa fengið boð um að fara þangað en ekki verið til í að taka slaginn. 19.11.2011 10:00
Kolbeinn er enn í göngugifsi og á hækjum Kolbeinn Sigþórsson var búinn að stimpla sig inn í Ajax-liðið í haust, hafði skorað fimm mörk í fyrstu sjö leikjunum og fram undan var mikið ævintýratímabil með toppbaráttu í Hollandi og leikjum í Meistaradeildinni. Í millitíðinni kom hann heim og tryggði íslenska karlalandsliðinu langþráðan sigur í undankeppni með sínu fjórða A-landsliðsmarki í aðeins átta leikjum. 19.11.2011 09:00
Guðmundur æfir mögulega með MLS-liðinu New England „Það verður ekkert af því að ég fari í atvinnumennsku að þessu sinni. Þá er bara að skella sér til Harvard og mér finnst það alls ekkert verra,“ sagði Guðmundur Reynir Gunnarsson kátur, en hann fer í skiptinám í hinn heimsfræga Harvard-háskóla eftir áramótin. 19.11.2011 08:00
Huddersfield hefur spilað 42 leiki í röð án þess að tapa Harðjaxlinn Lee Clark hefur náð frábærum árangri með Huddersfield, en liðið hefur undir stjórn hans ekki enn tapað deildarleik á árinu 2011. Ef liðið tapar ekki fyrir Notts County í ensku C-deildinni um helgina slær það 33 ára gamalt met Nottingham Forest, sem lék 42 leiki í röð án taps undir stjórn hins goðsagnakennda Brians Clough. 19.11.2011 07:30
Jón Arnór og Haukur Helgi mætast á morgun Það verður söguleg stund fyrir íslenskan körfubolta í hádeginu á morgun þegar Assignia Manresa tekur á móti CAI Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Með þessum liðum spila nefnilega íslenskir landsliðsmenn og verður þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar mætast í bestu körfuboltadeild í Evrópu. 19.11.2011 07:00
Tap Man. City nam 36,3 milljörðum Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City gaf það út í gær að tap félagsins á rekstrarárinu 2010-2011 hefði alls numið 194,9 milljónum punda, eða tæplega 36,3 milljörðum króna. 19.11.2011 06:30
Kjarnorkuvetur í NBA: Við búum bara til nýja deild Billy Hunter, framkvæmdastjóri NBA-leikmannasamtakanna sem voru leyst upp í byrjun síðustu viku, hefur talað um þann möguleika að NBA-leikmennirnir taki sig saman og stofni bara nýja deild. Kjarnorkuveturinn er hafinn í NBA-deildinni eftir að leikmennirnir ákváðu að fara með deiluna í réttarsalinn og samningarviðræður við eigendur NBA-liðanna fóru í algjört frost. 19.11.2011 06:00
Heiðar skoraði tvö - ótrúlegt jafntefli botnliðanna | öll úrslit dagsins Fjölmargir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis. 19.11.2011 00:01
City virðist óstöðvandi - fyrst til að vinna Newcastle Manchester City vann í dag enn einn sigurinn í ensku úrvalsdeildinni, í þetta sinn gegn Newcastle í toppslag deildarinnar. Newcastle tapaði þar með sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu en City trónir á topppi deildarinnar með væna forystu. 19.11.2011 00:01
United vann nauman sigur á Swansea Manchester United náði að halda í við Manchester City í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með naumum 1-0 útisigri á Swansea í lokaleik dagsins í enska boltanum. 19.11.2011 00:01
Van Persie hetjan í sigri Arsenal á Norwich Robin van Persie var enn og aftur á skotskónum og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri Arsenal á Norwich í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 19.11.2011 00:01
Stuðningsmaður Man. Utd vill selja Aguero bílnúmerið KUN16 Ryder Owen, klettharður stuðningsmaður Man. Utd, hélt hann væri að gera gáfulegan hlut er hann greiddi háar fjárhæðir fyrir bílnúmeraplötuna: "KUN16". Owen hélt á þeim tíma að Sergio Aguero væri á leið til Man. Utd en úr varð nokkru síðar að hann samdi við erkifjendurna í Man. City. 18.11.2011 23:15
Birgir Leifur með neðstu mönnum Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði sér engan veginn á strik á þriðja hring úrtökumótsins fyrir PGA-mótaröðina í Bandaríkjunum. Birgir Leifur lék á 76 höggum sem hans langslakasti hringur á mótinu. Birgir Leifur er í 58.-63. sæti og því með neðstu mönnum. Aðeins um 20 fara áfram og möguleikar Birgis á því að komast áfram eru því væntanlega úr sögunni. 18.11.2011 19:06
Sigurganga KFÍ heldur áfram | öll úrslit kvöldsins í 1. deild karla Fimm leikir fóru fram í 1. deild karla í körfubolta í kvöld. Sigurganga KFÍ frá Ísafirði heldur áfram en liðið sigraði ÍG í Grindavík örugglega 78-120. KFÍ hefur unnið alla sex leiki sína. Skallagrímur er í öðru sæti deildarinnar með 10 stig eftir 7 leiki en Borgnesingar unnu Ármenninga á útivelli, 77-98. Þór frá Akureyri er eina liðið í deildinni sem er án stiga en Þórsarar töpuðu sínum sjöunda leik í kvöld og nú gegn Hetti frá Egilsstöðum 74-84. 18.11.2011 22:04
Úrslit kvöldsins í N1-deild kvenna Þrír leikir fóru fram í N1-deild kvenna í kvöld og er óhætt að segja að afar lítil spenna hafi verið í leikjum kvöldsins. Hún var reyndar engin því Valur, Fram og Stjarnan unnu leiki sína afar örugglega. 18.11.2011 21:24
Milan getur fengið Aquilani á góðu verði Ítalska miðjumanninum Alberto Aquilani hefur gengið illa að finna sér framtíðarheimili en Liverpool hefur lánað hann til Ítalíu síðustu tvö ár. 18.11.2011 21:00
Sundsvall vann Íslendingaslaginn gegn Stockholm Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Svíþjóðarmeistara Sundsvall Dragons sem lagði Helga Má Magnússon og félaga í 08 Stockholm, 84-76. 18.11.2011 19:56
Eftirmaður Hiddink ráðinn í Tyrklandi Abdullah Avci, fyrrum þjálfari U-17 liðs Tyrklands, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Tyrklands en Guus Hiddink var sagt upp störfum á dögunum. 18.11.2011 19:00
Vieira: City á Tevez mikið að þakka Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Manchester City og nú einn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, segir að félagið eigi þrátt fyrir allt Carlos Tevez mikið að þakka. 18.11.2011 18:15
Sexwale: Ummæli Blatter óheppileg Suður-Afríkumaðurinn Tokyo Sexwale segir að ummælin sem Sepp Blatter, forseti FIFA, lét falla í gær hafi verið óheppileg. 18.11.2011 17:30
Rakel samdi við Breiðablik Breiðablik fékk góðan liðsstyrk í dag þegar landsliðskonan Rakel Hönnudóttir skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Rakel kemur til félagsins frá KA/Þór þar sem hún hefur verið í algjöru lykilhlutverki undanfarin ár. Missir Akureyrarliðsins er því mikill. 18.11.2011 16:50
Beckham segir lítið um framtíðina David Beckham hefur lítið vilja segja um hvað taki við hjá honum eftir að keppnistímabilinu í bandarísku MLS-deildinni lýkur um helgina. 18.11.2011 16:00
Cleverly frá fram að jólum Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur staðfest að miðjumaðurinn Tom Cleverley verði frá vegna meiðsla fram að jólum. 18.11.2011 14:45
Gibbs og Jenkinson báðir meiddir Arsenal varð fyrir áfalli í dag er fréttir bárust af því að bakvörðurinn Kieran Gibbs verði frá næsta mánuðinn vegna meiðsla. 18.11.2011 14:15
Torres: Stuðningsmenn Liverpool vita ekki alla söguna Fernando Torres hefur gefið í skyn að það sé ýmislegt ósagt um félagaskipti hans frá Liverpool til Chelsea í upphafi ársins. 18.11.2011 13:30
Norðmenn fyrirmynd í laxeldi? Merkilegur fréttaflutningur átti sér stað í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkveldi. Þar var fjallað um laxeldi hérlendis en því miður með mjög einhliða hætti. 18.11.2011 13:17